Morgunblaðið - 21.01.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.01.2013, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2013 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Kim Dotcom vígði um helgina nýja gagnavist- unarþjónustu sem fengið hefur heitið Mega. Fréttaveitan Bloomberg greinir frá að fyrstu 14 tímana sem heimasíða Mega var í loftinu hafi síðan fengið milljón gesti og hálfa milljón skráðra not- enda. Það þóttu stórfréttir fyrir réttu ári þegar sér- sveitarmenn ruddu sér leið inn á óðal netfrumkvöð- ulsins Kims Dotcoms austur á Nýja-Sjálandi. Þar gaf að líta hluta af þeim auðæfum sem gagna- og myndbandadeilivefirnir Megaupload og Megavideo höfðu aflað Dotcom: átján lúxusbifreiðir, völund- arhús, jafnvirði eins milljarðs króna í reiðufé og einkaþyrla. Illa fengnir milljarðar? Í máli sem rekið var af bandaríska dóms- málaráðuneytinu var Dotcom gefið að sök að hafa framið risavaxið brot á höfundarlögum. Voru tekjur Megaupload af hinum meintu brotum taldar nema 175 milljónum dala, eða um 21 milljarði króna. Auk Dotcom voru þrír aðrir stjórnendur fyr- irtækisins handteknir. Um 220 starfsmen Megaup- load urðu atvinnulausir, hýsingarþjónum var lokað, gögn notenda vefjarins töpuðust og 50 milljón dag- legir notendur þjónustunnar þurftu að fara annað með viðskipti sín. Þegar mest lét er áætlað að starf- semi Megaupload hafi verið á bak við um 4% af allri netumferð. Málarekstur í Megaupload-málinu stendur enn yfir og í ágúst á þessu ári hyggjast nýsjálenskir dómstólar taka ákvörðun um hvort Dotcom og samstarfsaðilar hans verða framseldir til Banda- ríkjanna. Ýmsir alvarlegir gallar þykja þó á málinu og þykir sumum líklegt að Dotcom þurfi ekki að kvíða niðurstöðunni. Starfsemi Mega verður á flesta vegu svipuð og starfsemi Megaupload og er séð sem bein sam- keppni við t.d. Dropbox og jafnvel YouTube. Að viðstöddum 200 gestum sagði Dotcom við vígslu vefjarins að Mega skæri sig frá samkeppninni með því að leyfa mjög sterka dulkóðun gagna gegnum vafra þar sem aðeins notandinn hefði lykilinn til að opna gögnin. Fyrir vikið eiga gögnin að vera utan seilingar stjórnvalda og gagnafyrirtækja. Kim Dotcom snýr aftur  Stofnandi Megaupload hleypir af stokkunum nýjum skráaskiptivef  Opnaði vefinn nákvæmlega ári eftir að lögregla handtók litríka netjöfurinn vegna meintra stórfelldra brota á höfundarlögum AFP Risi Kim Dotcom vígði nýja vefinn með litríkum hætti og gerði m.a. grín að handtöku sinni fyrir ári. Dotcom fyrir miðju, umkringdur leikurum, bregður glaðbeittur á leik fyrir fjölmiðlafólk. Undarlega dulúðugur blær er yfir Kim Dotcom. Þessi hávaxni og gildvaxni maður fæddist Kim Schmitz í borginni Kiel í Þýskalandi og hneigðist ungur að tölvum. Hann hefur hreykt sér af að vera hakkari, og mun um skeið hafa búið á Taílandi þaðan sem hann stundaði ólöglegar tölvuhakkanir. Árið 2002 var Dotcom fram- seldur til Þýskalands, þá 28 ára gamall, og sakfelldur fyrir umfangsmestu innherjasvik í sögu landsins, en slapp með lága sekt og skilorðsbundinn dóm. Áætlað er að þegar Megaup- load-ævintýrið stóð sem hæst hafi Dotcom verið með um 115.000 dali í tekjur á dag, jafnvirði tæplega 14 milljóna króna á núverandi gengi. Vellauðugur tölvunörd ÓVENJULEGUR MAÐUR Hvað svo sem mönnum kann að þykja um pólitík þeirra Obama-hjóna getur enginn neitað því að Michelle Obama er stórglæsileg og smekkleg kona. Raunar ætti engan að undra að hún skuli vera orðin áhrifavaldur í tískuiðnaðinum. Prófessor við New York University hefur nú reiknað út að áhrif Michelle Obama séu svo mikil að fataval hennar við opinberar athafnir hafi bætt um fimm millj- örðum dala við hlutabréfaverð ýmissa fataframleið- enda – og það bara á árinu 2009. Á þessi tala að slá við áhrifum allra helstu tískugoða til þessa. Grænu leðurhanskarnir Viðskiptafréttastofa Yahoo! segir frá útreikningunum og hver áhrif val forsetahjónanna á fatnaði, matvælum og ýmsum öðrum vörum getur haft á hegðun neytenda og um leið markaðsverð fyrirtækja sem eru svo heppin að höfða til smekks hjónanna. Tilefni útreikninganna er sú mikla athygli sem von er á að fjölmiðlar sýni klæðaburði Michelle á sunnudag þegar Barack Obama sver í annað sinn embættiseið sem forseti Bandaríkjanna. Við embættistökuathöfnina fyrir fjórum árum klæddist Michelle m.a. grænum leðurhönskum frá J. Crew. Voru viðbrögðin slík að vefsíða fyrirtækisins hrundi. Þá minntist Michelle á J. Crew í viðtali hjá Jay Leno árið 2008 og varð það til þess að hlutir í fyrirtæk- inu hækkuðu um 25% á einni viku. Forsetinn sjálfur virðist reyna að sneiða hjá því að gefa í skyn stuðning við tiltekin fyrirtæki eða hönnuði en sömu sögu er ekki hægt að segja um Chuck Schu- mer, þingmann frá New York, sem stýrir nefndinni sem skipuleggur athafnir sunnudagsins. Áhrif Schu- mers sjást m.a. í því að mikil New York-slagsíða er á matarvalinu í veislunum í kringum athöfnina. ai@mbl.is Fataval Michelle fimm millj- arða dala virði árið 2009  Neytendur fylgjast vel með smekk forsetafrúarinnar og skilar það sér í snarbættu verði á hlutabréfamarkaði AFP Kraftur Bandarískar konur virðast líta á Michelle Obama sem mikilvæga tískufyrirmynd. Peter Brabeck-Letmathe segir framleiðslu lífefnaeldsneytis úr land- búnaðarafurðum skýra hækkun matvælaverðs undanfarinn áratug. Brabeck-Letmathe er stjórnarfor- maður matvælarisans Nestlé og lét þessi ummæli falla á ráðstefnu um matvæli og landbúnað sem haldin var í Berlín. „Það er með ólíkindum að þegar skortur er á matvælum í heiminum skulum við vera að setja þessi mat- væli á bílana okkar,“ sagði hann og biðlaði til ráðstefnugesta að láta af notkun landbúnaðarafurða í elds- neytisgerð. Brabeck-Letmathe segir kolrangt að kenna spákaupmennsku um þá þreföldun á verði ýmissa matvöru- tegunda sem orðið hefur síðastliðin tíu ár. Hann segir spákaupmennsk- una skýra sveiflur í verði en ekki undirliggjandi og stöðuga hækkun. Heimsmarkaðsverð á matvælum hefur tvöfaldast á einum áratug sam- kvæmt mælingum Sameinuðu þjóð- anna. Bloomberg greinir frá. ai@mbl.is Lífefnaeldsneyti um að kenna  Stjórnarformaður Nestlé gagnrýnir notkun landbúnaðar- afurða til eldsneytisgerðar og segir hækka matvælaverð AFP Hillur Matvælaverð hefur verið á hraðri leið upp á við síðasta áratuginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.