Morgunblaðið - 31.01.2013, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
SVIÐSLJÓS
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra vill endurskoða áform um
að leigja tvær björgunarþyrlur fyr-
ir Landhelgisgæsluna. Hann telur
hagkvæmara fyrir skattgreiðendur
að kaupa þyrlurnar.
Tvö fyrirtæki buðust til að leigja
Landhelgisgæslunni þyrlu í útboði.
Ríkiskaup og Landhelgisgæslan
eru að fara yfir tilboðin og kanna
hvort þau standast þær kröfur sem
gerðar voru í útboðsgögnum. Sam-
kvæmt upplýsingum Ríkiskaupa er
þeirri vinnu ekki lokið og því ekki
hægt að veita frekari upplýsingar
um viðræður við tilboðsgjafa.
Efasemdir um tilboð
Annað fyrirtækið bauðst til að
leigja þyrlur fyrir sem svarar til
rúmlega 300 milljóna króna á ári,
fyrir hvora þyrlu, og hitt bauð
þyrlur á rúmlega 450 milljónir á
ári. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins þykir hærra tilboðið of
hátt. Þá mun fyrirtækinu sem bauð
lægri leiguna ekki hafa tekist að fá
staðfestingu eiganda þyrlnanna um
það hvernig standa skuli að breyt-
ingum og ísetningu búnaðar fyrir
Landhelgisgæsluna.
Ögmundur segir að hann hafi
tekið fram í ríkisstjórn þegar
ákveðið var að bjóða út leigu á
þyrlum að það væri ekki hagkvæm-
asti kosturinn fyrir skattgreið-
endur, til langs tíma litið. Hins
vegar væri kveðið á um það í lögum
um fjárreiður ríkisins að allt kaup-
verðið yrði gjaldfært á kaupdegi
þótt það yrði greitt á lengri tíma.
Því þyrfti að afla fjárheimilda fyrir
öllu kaupverðinu í upphafi. Vegna
niðurskurðar og hagræðingar í
rekstri ríkisins eftir efnahags-
hrunið hafi ekki verið talið rétt að
setja svo stórar fjárfestingar inn á
fjárlög. Ein björgunarþyrla er talin
kosta um tvo milljarða króna.
Taka málið upp að nýju
„Nú þegar bjartara er fram-
undan í þjóðarbúskapnum, vonandi,
finnst mér mikilvægt að taka málið
upp að nýju,“ segir Ögmundur og
vísar til stöðu mála varðandi útboð
á leiguþyrlunum. Hann tekur
fram að fullur vilji sé til þess að
fá þyrlur, í stað þeirra tveggja
leiguþyrlna sem hverfa af land-
inu á þessu ári og því næsta.
„Við hljótum alltaf að
stefna að hagkvæmasta
kostinum,“ segir inn-
anríkisráðherra um
hugsanleg kaup á
þyrlum.
Hagkvæmara að
kaupa þyrlurnar
Innanríkisráðherra vill endurskoða leiguleiðina
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Lús er enn að smitast í skólum og
hafa stjórnendur í Vogaskóla meðal
annars gripið til þess ráðs tvo síð-
ustu daga að skikka foreldra allra
barna í 1.-10. bekk til að kemba
börnum sínum áður en þau koma í
skólann. Komi börnin ekki með miða
með undirskrift foreldra sinna þess
efnis eru þau send aftur heim til sín.
Jónína Ólöf Emilsdóttir, skóla-
stjóri Vogaskóla, segir ástæðu þess
að gripið var til þessara aðgerða
vera þá að lúsin hafi fundist í fleiri
en einum árgangi.
„Lúsin kemur reglulega upp. Við
ákváðum að ganga svolítið langt í að-
gerðum til að athuga hvort það tæk-
ist ekki að losna við hana í þetta
skiptið,“ segir hún.
Samkvæmt upplýsingum frá
skóla- og frístundasviði Reykjavík-
urborgar er þetta ekki eina dæmið
um lúsasmit í leik- og grunnskólum
borgarinnar í janúar. Því hafi þurft
að grípa til aðgerða og fara aftur í að
láta kemba börnum.
„Það virðist vera meira af lús
núna en í meðalári. Það eru næstum
því helmingi fleiri skráð tilfelli hjá
skólahjúkrunarfræðingum en í
fyrra,“ segir Ása Atladóttir, hjúkr-
unarfræðingur og verkefnisstjóri á
sóttvarnasviði embættis Landlækn-
is.
Skólahjúkrunarfræðingar hafi nú
fyrir stuttu verið búnir að senda út
alls ellefu þúsund bréf til foreldra
vegna lúsasmits.
„Foreldrar verða frekar pirraðir á
svona bréfum. Margir sinna þeim
ekki neitt. Það er kannski þess
vegna sem þetta gerist og hún bloss-
ar upp aftur,“ segir Ása.
Venjulega detti lúsasmitin niður
eftir haustið en núna hafi tilfellin
haldið áfram að koma upp. Það gefi
vísbendingu um að fólk geri ekki
nægilega mikið í því. Hún hefur tek-
ið saman tölur um sölu á lyfjum gegn
lús í fyrra en þá voru yfir 6.000
skammtar seldir í apótekum. Mælt
er með að meðferð sé endurtekin og
bendir það því til þess að á fjórða
þúsund manns hafi fengið lús í fyrra.
Börnin send
heim ef ekki er
kembt fyrir lús
Grunnskólar enn að berjast við lúsina
Lúsaleit Á vef Landlæknis eru ráð
til að bregðast við lúsatilfellum.
Fyrirtækin sem tóku þátt í tilboði
Ríkiskaupa um leigu á tveimur
björgunarþyrlum fyrir Landhelg-
isgæsluna buðu fram sömu þyrl-
urnar. Hins vegar munar nærri
150 milljónum í leigufjárhæð á
ári.
Ásmegin ehf. bauðst til að
leigja tvær þyrlur og hugðist
taka fyrir 295 þúsund dollara á
mánuði fyrir hvora. Samsvarar
það rúmlega 450 milljónum kr. á
ári, fyrir hvora þyrlu.
CMS ehf. vill leigja þyrlur á
tæplega 200 þúsund dollara
á mánuði, eða sem svarar
til rúmlega 300 milljóna
á ári, fyrir hvora.
Í fundargerð opn-
unarfundar sést á núm-
erum þyrlnanna að
fyrirtækin eru að
bjóða sömu
þyrlurnar til
leigu.
Bjóða sömu
þyrlurnar
ÚTBOÐ RÍKISKAUPA
Ögmundur
Jónasson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Björgunarþyrla Leigutími TF-GNA rennur út á næsta ári en TF-SYN verður skilað síðar á þessu ári. Ekki hefur
verið unnið úr tilboðum sem bárust í leigu þyrlna í þeirra stað. Innanríkisráðherra vill endurskoða fyrirkomulagið.
LEIÐIN TIL HOLLUSTU
Skyr.is drykkirnir standast þær ströngu
kröfur sem gerðar eru til matvæla sem
merktar eru Skráargatinu. Þú getur
treyst á hollustu Skyr.is.
www.skyr.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Eins og greint var frá í gær ákvað
stjórn Veiðifélags Norðurár að hafna
tilboðum Stangaveiðifélags Reykja-
víkur, SVFR, í veiðiréttinn í Norðurá
í Borgarfirði frá og með sumrinu
2014. SVFR hefur leigt réttinn í 66 ár
og lýkur samstarfinu í haust.
„Við urðum fyrir vonbrigðum,“
segir Bjarni Júlíusson, formaður
SVFR. „Veiðifélag Norðurár fór af
stað með vandað útboðsferli sem við
tókum þátt í og vonuðumst til að rætt
yrði við okkur. En svo var ekki og það
eru mikil vonbrigði.“
Bjarni segir að vissulega hafi Norð-
urá verið eitt flaggskipa félagsins og
margir félagsmenn veitt þar árlega,
enda séu margar stangir í ánni. „Við
teygðum okkur eins og við treystum
okkur mest og
best í þessu til-
boði. En við verð-
um mjög vör við
afstöðu veiði-
manna í dag og
hún litar afstöðu
manna, eins og
sást í þessu útboði
þar sem enginn
annar bauð.“
Bjarni segist hafa talað við fjölda
veiðimanna síðustu mánuði og séu
skilaboðin frá þeim öll á sama veg:
„Ekki meiri hækkanir. Verðið verður
að fara niður. Við sjáum það í eftir-
sókn eftir veiðileyfum hjá okkur í um-
sóknarferlinu nú í janúar, umsóknum
fækkaði,“ segir Bjarni. efi@mbl.is
Staðan á veiðileyfa-
markaði viðkvæm
Ákvörðunin um Norðurá vonbrigði
Bjarni Júlíusson
Boðað hefur ver-
ið til fundar í
kjaradeilu Land-
spítala og hjúkr-
unarfræðinga á
sjúkrahúsinu kl.
10.30 í dag. Elsa
B. Friðfinns-
dóttir, formaður
Félags íslenskra
hjúkrunarfræð-
inga, segir mikið
bera á milli í deilunni og hún viti
ekki hvers sé að vænta á fundinum.
„Ég eiginlega vil ekkert spá í það
hvort maður á að vera bjartsýnn
eða svartsýnn. En við ætlum alla
vega að hitta þau og maður auðvit-
að bara vonar að við náum samn-
ingum. Það er mikið í húfi fyrir
alla. Þannig að ég ætla bara að
vona að okkur lánist að gera það.
En til þess þurfa auðvitað báðir að-
ilar að leggja sig fram,“ sagði hún í
gærkvöldi. holmfridur@mbl.is
Fundað í kjaradeilu
hjúkrunarfræðinga
Elsa B.
Friðfinnsdóttir
Blaðamenn frá nokkrum fjölmiðlum
á Írlandi og Englandi hafa verið hér
frá því á þriðjudag að kynna sér
sjávarútvegsmál, ekki síst sjónarmið
Íslendinga í makríldeilunni.
„Þetta er hluti af upplýsinga-
miðlun stjórnvalda, útgerða og fisk-
vinnslufyrirtækja um makríldeiluna
og íslenskan sjávarútveg,“ sagði
Huginn Þorsteinsson, aðstoðar-
maður atvinnuvegaráðherra. Hann
sagði að blaðamennirnir hefðu feng-
ið góðan aðgang að íslenskum ráð-
herrum og eins að fólki úr sjávar-
útvegi. Í gær var efnt til hringborðs
þar sem fulltrúar sjávarútvegsfyrir-
tækja og stoðkerfis sjávarútvegsins
sátu fyrir svörum. „Við vonumst til
þess að geta mætt ýmsum gífur-
yrðum sem sett hafa verið fram í
fjölmiðlum og víðar með upp-
byggilegum boðskap og upplýs-
ingum,“ sagði Huginn. Hann benti á
að ESB og Noregur hefðu dregið
upp ósanngjarna mynd af stöðunni.
Með þessari kynningu væri verið að
koma sjónarmiðum Íslendinga á
framfæri og því hvernig staðan í
makrílmálinu væri í raun. Hópurinn
fer héðan í dag. gudni@mbl.is
Erlendir blaðamenn
kynntu sér makríldeiluna