Morgunblaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Almenn laun alls launafólks á al-
mennum vinnumarkaði hækka um
3,25% frá og með morgundegin-
um, 1. febrúar, samkvæmt kjara-
samningum, sem hafa verið fram-
lengdir og gilda til 30. nóvember
næstkomandi.
Auk þessa hækka launataxtar
frá og með mánaðamótum um
11.000 krónur og föst álög skv.
samningum hækka um 3,25%.
Launahækkunin kemur ofan á
laun í febrúarmánuði og kemur
því til útborgunar hjá þeim sem
eru á eftir á greiddum launum 1.
mars næstkomandi en launamenn
sem fá fyrirfram greidd laun fá
hækkunina frá og með morgun-
deginum.
Launakostnaðurinn 980 millj-
arðar eftir hækkanirnar
Við þessar hækkanir hækka lág-
markslaun fyrir fullt starf á vinnu-
markaði um 11.000 kr., úr 193 þús-
und kr. á mánuði í 204 þúsund.
3,25% meðalhækkun launa sam-
kvæmt kjarasamningum og krónu-
töluhækkanir gera að verkum að
launakostnaður atvinnulífsins
hækkar um 3,75% samkvæmt
áætlun Samtaka atvinnulífsins eða
um 37 milljarða kr. Eru þá með-
talin launatengd gjöld á borð við
lífeyrisiðgjöld og tryggingagjald.
Tryggingagjaldsstofninn er nú
áætlaður um 900 milljarðar kr. og
heildarlaunagreiðslur að frádregn-
um iðgjöldum í lífeyrissjóði 823
milljarðar. Eftir hækkanirnar sem
taka gildi 1. febrúar verður
heildarlaunakostnaður á vinnu-
markaðinum að meðtöldu trygg-
ingagjaldi atvinnurekenda, lífeyr-
isgreiðslum o.fl. kominn í 980
milljarða króna.
Opinberir starfsmenn fá sam-
bærilegar hækkanir 1. mars
Sambærilegar launahækkanir
og taka gildi á morgun á almenna
vinnumarkaðinum verða hjá ríkinu
og sveitarfélögum 1. mars næst-
komandi.
Í fjárlögum ársins 2013 var
gengið út frá að áfangahækkun
launa í kjarasamningum við félög
ríkisstarfsmanna 1. mars leiddi til
þess að launaliðir stofnana hækk-
uðu að meðaltali um 3,5% á árs-
grundvelli. Kostnaður ríkissjóðs
við hækkanirnar er metinn á tæpa
4,4 milljarða króna.
Kauptaxtar hækka
Hækkun launataxta um 11.000
kr. hjá einstökum starfsstéttum á
almenna vinnumarkaðinum hefur
m.a. í för með sér að lægsti kaup-
taxti verslunarmanna hækkar úr
185.450 kr. á mánuði í 196.450 kr.
eða um 5,9% skv. útreikningum
Samtaka atvinnulífsins. Lægsti
kauptaxti iðnaðarmanna hækkar
úr 249.604 kr. í 260.604 eða um
4,4% svo dæmi séu nefnd.
Morgunblaðið/Golli
Kjarabætur Launafólk á almenna vinnumarkaðinum fær launahækkanir 1. febrúar. Laun starfsmanna ríkis og sveitarfélaga hækka 1. mars.
Hækka um 37 milljarða
Laun hækka um 3,25% á morgun Lágmarkslaun úr 193 þúsund í 204 þús.
á mánuði Launakostnaður atvinnulífsins 980 milljarðar eftir hækkanirnar
„Við framsóknar-
menn munum
ekki leggja fram
vantraust. Það er
búin að vera eftir-
spurn eftir því að
þessi ríkisstjórn
fari frá og að það
komi fram van-
traust. Við viljum
að vantrausti
fylgi skilyrði um
að þingið starfi fram að kosningum
að þremur mikilvægum málum; fjár-
hagsstöðu heimilanna, atvinnu-
málum og stjórnarskránni,“ segir
Gunnar Bragi Sveinsson, þing-
flokksformaður Framsóknarflokks-
ins.
„Það er hins vegar alveg ljóst að
Björt framtíð og einhverjir þing-
menn Hreyfingarinnar munu ekki
styðja slíkt vantraust, hvorki á ríkis-
stjórnina né einstaka ráðherra. Þar
af leiðandi kemur það í hlut þjóð-
arinnar að segja álit sitt og sam-
þykkja vantraust sitt á ríkis-
stjórnina í komandi kosningum,“
segir Gunnar Bragi.
Framsókn
hættir við
vantraust
Ekki reyndist
stuðningur í þinginu
Gunnar Bragi
Sveinsson
Maðurinn sem varð úti við heimili
sitt eftir þorrablót á Kópaskeri að-
faranótt sunnudags hét Rúnar Arn-
björnsson. Hann var til heimilis að
Boðagerði 2 á Kópaskeri.
Rúnar heitinn var fertugur að
aldri. Hann var ókvæntur og barn-
laus.
Aftakaveður gekk yfir Norður-
land aðfaranótt sunnudags.
Varð úti á Kópaskeri
Undirbún-
ingur er að
hefjast fyrir
gerð næstu
kjarasamn-
inga en skv.
sam-
komulagi
ASÍ og Samtaka atvinnulífs-
ins 22. janúar um endur-
skoðun kjarasamninga var
samningstími gildandi samn-
inga styttur til 30. nóvember
nk. Á vettvangi ASÍ er í und-
irbúningi fundaherferð um
allt land sem á að gangsetja
í síðari hluta febrúar.
Skv. upplýsingum ASÍ er
hugmyndin sú að funda með
aðildarfélögum og fara yfir
þau áherslumál sem hæst
bar við endurskoðun kjara-
samninganna fyrr í þessum
mánuði, þ.e. um atvinnu-
málin og verðlagsmálin, auk
þess sem fara á yfir áherslur
ASÍ í húsnæðismálum og
hugmyndir um nýtt húsnæð-
islánakerfi sem er í smíðum
á vettvangi launþegasamtak-
anna.
UNDIRBÚA SAMNINGAHlutfallsleg hækkun kauptaxta
í kjarasamningum SA og landssambanda ASÍ þann 1. febrúar 2013
vegna 11.000 kr. hækkunar (almenn launahækkun 3,5%)
Heimild: Samtök atvinnulífsins
1. febrúar
2012 2013 Hækkun
Lægsti kauptaxti verkafólks 180.752 191.752 6,1%
Lágmarkstekjutrygging 193.000 204.000 5,7%
Hæsti kauptaxti verkafólks 216.937 227.937 5,1%
Lægsti kauptaxti verslunarmanna 185.450 196.450 5,9%
Hæsti kauptaxti verslunarmanna 222.989 233.989 4,9%
Lægsti kauptaxti iðnaðarmanna 249.604 260.604 4,4%
Hæsti kauptaxti iðnaðarmanna 309.600 320.600 3,6%
Fundaherferð
um landið
Meirapróf
8. febrúar 2013 ef næg þátttaka verður
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300, 894 2737
Þorkell Sigurbjörnsson
tónskáld lést í gær, 30.
janúar, á líknardeild
Landspítalans í Kópa-
vogi. Þorkell var fæddur
16. júlí 1938, eitt átta
barna biskupshjónanna
Magneu Þorkelsdóttur
og dr. Sigurbjörns Ein-
arssonar.
Þorkell hóf snemma
nám við Tónlistarskólann
í Reykjavik en eftir stúd-
entspróf frá MR 1957 hóf
hann nám í tónsmiðum við Hamline-
háskólann í Minnesota og síðan við
Illinois-háskólann þaðan sem hann
lauk meistaraprófi 1961. Sama ár
kom hann heim og hóf störf við Tón-
listarskólann í Reykjavík og kenndi
þar allan starfsaldur sinn. Kenndi
einnig í Listaháskólanum er hann var
stofnaður. Hann var félagi í kon-
unglegu sænsku tónlistarakademí-
unni og heiðursdoktor frá
Hamline-háskólanum.
Þorkell samdi rúm-
lega 300 tónverk, og
mörg þeirra hafa verið
gefin út á nótum og á
hljómplötum.
Þorkell var formaður
Tónskáldafélags Íslands
um árabil, formaður Mu-
sica Nova 1964-67 og for-
seti Bandalags íslenskra
listamanna 1982-86
Hann var framkvæmda-
stjóri og stjórnarmaður Listahátíðar
í Reykjavík um skeið.
Þorkell kvæntist Barböru Jane
Powell á jólum 1959. Börn þeirra
eru: Mist Barbara, tónskáld og
deildarforseti tónlistardeildar
Listaháskólans, og Sigurbjörn verk-
fræðingur, einn stjórnenda Barcla-
y’s banka í London. Barnabörnin
eru átta og eitt barnabarnabarn.
Andlát
Þorkell Sigurbjörnsson
„Við höfum verið
að bíða eftir nýj-
um verkefnum
hér innanlands
nokkuð lengi,
það er talið í
mánuðum. Það
eru ekki margar
nýjar fjárfest-
ingar að fara í
gang,“ segir Eyj-
ólfur Árni Rafns-
son, forstjóri Mannvits, en fyr-
irtækið sagði upp 21 starfsmanni
fyrir þessi mánaðamót. Eyjólfur
segir að um varúðarráðstafanir sé
að ræða og vissulega standi vonir
til þess að verkefnastaðan batni
innanlands.
hjorturjg@mbl.is
Mannvit segir upp
21 starfsmanni
Eyjólfur Árni
Rafnsson