Morgunblaðið - 31.01.2013, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013
Daginn sem EFTA-dómurinnvar væntanlegur auglýsti
stjórn Samfylkingarinnar glað-
beitt:
Dómur EFTA-dómstólsins í
Icesave-málinu,
samningsbrotamáli
sem ESA – Eft-
irlitsstofnun EFTA
höfðaði gegn ís-
lenska ríkinu, verð-
ur kveðinn upp í
dag. Til að ræða dóminn og afleið-
ingar hans höfum við fengið Vil-
hjálm Þorsteinsson, frumkvöðul
og gjaldkera Samfylkingarinnar,
á opinn fund á Hallveigarstíg.
Að lokinni framsögu Vilhjálms
verða umræður. Fundurinn verð-
ur haldinn á miðvikudagskvöldið
30. janúar og hefst kl. 20.00.“
En svo varð slys. Dómurinn féllóvænt þjóðinni í hag en ekki
Samfylkingunni!
Þá var í miklu óðagoti samin ogbirt glæný auglýsing:
Ágæti félagi. Áður auglýstumfundi um Icesave-dóminn sem
halda átti á Hallveigarstíg 1 ann-
að kvöld, miðvikudagskvöldið 30.
janúar, er frestað vegna þess að
húsnæðið á Hallveigarstíg er þétt
setið þessa dagana vegna lands-
fundarverkefna og undirbúnings
sem honum tengist.“
Gátu þeir á samfylking-arbænum ekki fundið neina
aðra skýringu en að þeir hefðu
skyndilega uppgötvað að lands-
fundur væri hjá þeim eftir fjóra
daga?
En auðvitað var þeim vönk-uðum vorkunn.
Vilhjálmur
Þorsteinsson
Fagnaðarlátum
frestað
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 30.1., kl. 18.00
Reykjavík 1 slydda
Bolungarvík 1 skýjað
Akureyri -2 skýjað
Kirkjubæjarkl. -1 skýjað
Vestmannaeyjar 4 alskýjað
Nuuk -7 skýjað
Þórshöfn 3 skúrir
Ósló 2 skýjað
Kaupmannahöfn 5 skýjað
Stokkhólmur 3 léttskýjað
Helsinki 0 snjókoma
Lúxemborg 8 skýjað
Brussel 11 léttskýjað
Dublin 7 léttskýjað
Glasgow 7 skýjað
London 11 léttskýjað
París 12 léttskýjað
Amsterdam 10 léttskýjað
Hamborg 7 skúrir
Berlín 8 heiðskírt
Vín 13 skýjað
Moskva -2 alskýjað
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 15 heiðskírt
Róm 13 heiðskírt
Aþena 11 skýjað
Winnipeg -17 skafrenningur
Montreal 6 alskýjað
New York 10 léttskýjað
Chicago 3 skúrir
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
31. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:11 17:13
ÍSAFJÖRÐUR 10:32 17:01
SIGLUFJÖRÐUR 10:16 16:43
DJÚPIVOGUR 9:44 16:38
Haraldur Guðbergsson myndlistar-
maður lést á hjúkrunarheimilinu
Eir aðfaranótt gærdagsins, 30. jan-
úar. Haraldur fæddist 26. október
1930. Hann er þekktastur fyrir
myndasögur og myndskreytingar
sem byggjast á Snorra-Eddu. Hann
lærði við Myndlista- og handíða-
skólann og er stundum talinn fyrsti
menntaði íslenski myndlistarmað-
urinn sem tekst á við myndasögu-
formið. Myndasaga hans, Ævintýri
Ása-Þórs, birtist í Lesbók Morgun-
blaðsins 1964-1965. Árið eftir birtist
í Fálkanum myndasagan Sæmund-
ur fróði og sama ár hóf Gylfaginn-
ing göngu sína í Lesbókinni og síð-
an Þrymskviða.
Árið 1968 hóf Haraldur að teikna
fyrir Spegilinn undir ritstjórn Ása í
Bæ en blaðið lagði upp laupana eftir
aðeins eitt ár.
Árið 1974 hannaði Haraldur
sviðsmynd fyrir óperu Jóns Ás-
geirssonar, Þrymskviðu. Á sama
tíma myndskreytti hann fjölda
barna- og námsbóka. 1980 komu út
bækurnar Baldursdraumur og
Þrymskviða.
Haraldur kvæntist Þóru Jóns-
dóttur. Hún lést árið 2009. Þau áttu
einn uppkominn son.
Andlát
Haraldur
Guðbergsson
mbl.is
alltaf - allstaðar