Morgunblaðið - 31.01.2013, Síða 10

Morgunblaðið - 31.01.2013, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013 Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is Hvernig fannst ykkurstuttmyndin Fáðu já?Guðríður: „Mérfannst þetta frábær mynd. Loksins er komið eitthvað nýtt. Þegar ég var í kynfræðslu var öll umræða bæði vandræðaleg, leið- inleg og gömul. Ég held að þessi mynd veki til dæmis grunn- skólanema meira til umhugsunar en annað efni sem hefur verið notað.“ Guðný Rós: „Mér finnst líka að það mætti gera fleiri svona myndir að því að mér finnst þessi eina mynd ekki ná yfir allt sem snýr að kynlífi. En það er ótrúlega flott að taka það sem er mest í umræðunni núna til að útskýra málið betur. Mér finnst svo góður punktur í myndinni að þú þarft að fá já. Að fá já er að fá örugga staðfestingu. Þögn er ekki það sama og sam- þykki og það eru ekki alltaf að- stæður til þess að berjast á móti og segja nei.“ Egill: „Það sem er líka svo flott við þessa mynd er að hún er ekki löng, hún er skemmtileg, ekki of fræðileg og heldur manni við efnið.“ Kynlíf gleymist í kynfræðslu Kristján: „Það er náttúrlega líka þannig að kynfræðsla í grunn- skólum er lítil sem engin og það er eiginlega bara líffræði. Þar er til dæmis ekkert farið yfir muninn á ofbeldi og kynlífi.“ Guðný Rós: „Mér finnst kyn- fræðsla snúast svo oft um getn- aðarvarnirnar og kynlífið sjálft gleymist.“ Kristján: „Ég held að öll börn ættu að sjá þessa mynd þegar þau eru að komast á kynþroskaaldur. Það þarf að ná til krakka áður en þau eru farin að stunda kynlíf.“ Egill: „Það er náttúrlega ekkert of seint í rassinn gripið að sýna krökkum eins og okkur svona mynd en hitt er kannski mikilvægara. Í grunnskóla eru krakkar svo mikið að mótast og þá er hægt að hafa svo mikil áhrif á þá.“ Guðríður: „Umræðan þarf að vera opin á milli foreldra og barna.“ Guðný Rós: „Ég var til dæmis mjög heppin með þetta. Ég ólst upp mestmegnis hjá mömmu minni og hún byrjaði mjög snemma að upp- lýsa mig um kynlíf. Þetta var auð- vitað vandræðalegt, ég var nátt- úrlega gelgja en núna er þetta mjög auðvelt og þægilegt okkar á milli og gerir það að verkum að ég á mjög auðvelt með að ræða við aðra um kynlíf. Þetta hefur til dæmis hjálp- að mér mjög mikið í samböndum því maður á að geta talað um hvað maður vill gera og hvað maður vill ekki gera.“ Guðríður: „Ég fór ekkert sér- staklega til foreldra minna og bað þau um að segja mér frá en í dag finnst mér aldrei neitt vandræða- legt að spyrja um það sem ég vil vita eða að tala við þau eða aðra um kynlíf.“ Egill: „Auðvitað finnst samt mörgum þetta viðkvæmt og erfitt að ræða þetta. Maður tekur sér- staklega eftir því meðal kenn- aranna. Ég er náttúrlega svo lítið feiminn og á ekkert erfitt með að ræða kynlíf en ég hef ekki rætt það sérstaklega við foreldra mína. En maður á klárlega alltaf að geta rætt við einhvern hvort sem það eru fé- lagar manns eða einhverjir aðrir.“ Maður veit hvað maður vill og hvað maður vill ekki Hafið þið orðið vör við kyn- ferðistengt ofbeldi í kringum ykk- ur? Öll: „Já.“ Guðný Rós: „Maður veit samt aldrei hversu mikið maður á að ræða slíkt. Maður veit ekki hversu mikið á að ýta á manneskjuna til að tjá sig. Það veltur allt á manneskj- unni sem verður fyrir því.“ Kristján: „Þetta er alltaf alvar- legt mál og maður pressar ekki á fólk með þetta.“ Guðný Rós: „Það er samt mik- ilvægt að láta manneskjuna vita í einrúmi að maður sé til staðar til að hlusta ef hún er tilbúin og þarf á því að halda. Fólk þarf líka að muna að sá sem verður fyrir ofbeldi Já er öruggasta staðfestingin Stuttmyndin Fáðu já var frumsýnd í Menntaskólanum við Sund í gær á jafnrétt- isdegi skólans. Handritshöfundar myndarinnar ræddu við nemendur um mörk kynlífs og ofbeldis sem fjölmenntu á sal skólans. Menntaskólanemarnir Guðný Rós Vilhjálmsdóttir, Kristján Hermann Þorkelsson, Guðríður Jóhannsdóttir og Egill Fannar Halldórsson ræddu myndina sín á milli og sögðu umræðuna þarfa. Kynlíf og samþykki Leitaðu eftir svari og fáðu já, nýr áherslupunktur í baráttunni gegn kynferðisofbeldi. Þögn er ekki sama og samþykki. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jafningjafræðsla Kristján, Guðný Rós, Egill og Guðríður telja að jafningja- fræðsla skili meiri árangri en bókleg kynfræðsla frá kennurum. Bloggsíðan manversusworld.com er skemmtilegt ferðablogg Ástralans Simon Petersen og kærustannar hans sem kalla sig „kíví“ á ferð og flugi um heiminn. Þegar kreppan var við það að skella á ákváðu þau skötuhjúin að rífa sig upp og flytja frá Nýja Sjálandi til London, árið 2008. Á leiðinni komu þau við í Taí- landi, Frakklandi, Ítalíu, Grikklandi og Belgíu en á þeim fjórum árum sem þau hafa búið í London hafa þau hald- ið áfram að ferðast og nú heimsótt nærri 30 lönd. Á síðuna setja þau ým- is góð ráð fyrir ferðalanga t.d. hvað sé best að gera ekki í London, hvaða strendur séu bestar í Víetnam og svo mætti áfram telja. Á síðunni er hægt að lesa skemmtilegar frásagnir frá spennandi áfangastöðum og ekki annað hægt að segja en að ferðaþrá- in kitli þegar þessi vefsíða er heim- sótt. Um að gera að fara á flakk. Vefsíðan www.manversusworld.com London Á vefsíðunni má lesa sér til um það sem varast ber í borginni. Hugrakkir ferðalangar Vörðukórinn stendur fyrir bað- stofukvöldi í Félagsheimili Hruna- manna á morgun, föstudagskvöld 1. febrúar kl. 20.30. Meðal dagskrár- atriða er sýning á stuttmynd Sig- urðar Ingólfssonar, Reimt á Kili. Þar er fléttað saman örlögum Reynistað- arbræðra sem urðu úti á Kili haustið 1780, og ferð nokkurra fífldjarfra uppsveitamanna sem fetuðu slóð þeirra bræðra haustið 2011. Tónlist úr myndinni verður flutt „live“ og leikarar gefa eiginhandaráritanir. Vörðukórinn tekur nokkur lög, Sigga í Arnarholti flytur ljóð sem hæfa kvöldinu og Bjarni Harðarson, bóksali á Selfossi, verður með hnitmiðað er- indi. Veitingar verða að hætti Vörðu- kórsins og má búast við góðri stemn- ingu. Sjá má sýnishorn úr stuttmyndinni á YouTube ef slegið er inn leitarorðið: Reimt á Kili. Myndin var frumsýnd á heimildarmyndahá- tíðinni Skjaldborg í fyrra og í kynn- ingu segir m.a. um hana: Reimt á Kili er leikin heimildastuttmynd um sam- band Íslendinga við sögur og sögu, samband lifenda við dauða, um kynlíf afturgangna innbyrðis og nesti. Myndin reynir að fanga þá kyrrlátu gleði að gæða umhverfi sitt merkingu og arfleifð, sama hversu nöturlegt, óljóst og óskiljanlegt tilefnið er. Hún leitast ekki við að ráða gátuna um ör- lög þessara fornu ferðalanga heldur gerir þeim óhikað upp skoðanir og eignar þeim áhugamál, tiktúrur eða lesti eftir þörfum líðandi stundar, jafn fyrir sem eftir dauðann. Eftir stendur ljóslifandi mynd af mataræði Reynistaðarbræðra og þrálátum uggi. Endilega… …kíkið á baðstofukvöld Á Kili Veður geta orðið válynd á Kili eins og sést í kvikmyndinni. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is RV 0113 RV birginn þinn - í skrifstofuvörum Vönduðbréfabindi ímiklu úrvaliVerð frá 288 kr./stk. Ljósritunar-prentpappír500 bl/búntVerð frá 499 kr. 12 stk.Trélitir 297 kr. Reiknivélar10 stafa 1.598 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.