Morgunblaðið - 31.01.2013, Page 14

Morgunblaðið - 31.01.2013, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013 13 O 4 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? KALT ÚTI Rafmagnshitablásari 2Kw 1 fasa 6.990 Rafmagnshitablásari 5Kw 3 fasa 11.990 Panelofnar í MIKLU ÚRVALI! FRÁBÆRT VERÐ! KRANAR OG HITASTILLAR FRÁ Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Vestmannaeyjum Rafmagnshita- blásari 3Kw 1 fasa 8.890 Gas hitablásari 15Kw 16.900 „Ég gat alls ekki upplifað þetta svona. Það er náttúrlega fráleitt að tala um ofbeldi og ef borgarstjóri getur ekki tekið við gagnrýni á hann ekki að vera í þessu starfi,“ sagði Hjörtur Stefánsson, sem var á íbúafundi með Jóni Gnarr í Graf- arvogi í fyrrakvöld, við mbl.is í gær. Jón Gnarr borgarstjóri skrifaði færslu á Facebook þar sem hann segist vona að hann hafi með skrif- um sínum, um að hafa upplifað „einelti og hreint og klárt ofbeldi“ frá nokkrum fundargestum, hrund- ið af stað gagnlegri umræðu. Hann þakkar fyrir stuðninginn en segir svo: „Einn og einn er þó með sér- kennileg viðhorf; annars vegar að upplifun mín af ofbeldinu í gær hafi verið mín ímyndun á ein- hverju sem hafi ekki átt sér stað. Það er bara rangt.“ Hjörtur segir það með eindæm- um að borgarstjóri skuli upplifa þetta sem einelti. „Þarna var fólk að ræða málin en borgin er búin að valta yfir Grafarvoginn með sameiningu skóla sem hefur verið harðlega mótmælt.“ Hann segir að umræðan hafi verið hófstillt og um réttmæta gagnrýni hafi verið að ræða, að megninu til. „Að vísu féllu kannski óheppileg orð en þegar fólki er neitað um svör, það fór í taugarnar á nokkrum þarna inni.“ Nokkur umræða var um málið á netinu og fannst sumum borgarstjóri gengis- fella hugtakið einelti. „En er það einelti þegar almenningur skamm- ar borgarstjórann sinn?“ spurði Sigríður Guðmarsdóttir, prestur í Guðríðarkirkju, á vefsvæði sínu og bætti við að þegar valdamiklir menn tali um einelti á hendur sér séu þeir að taka yfir orðræðu hinna valdalausu. Þá spurði Marta Guðjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokks, á Facebook hvers vegna Jón héldi fundi með borgarbúum ef hann treysti sér ekki til að svara gagnrýnum spurningum um hagsmunamál íbúanna. „Hann þarf að fara að gera sér grein fyrir því að fólk er ekki tilbúið til að taka þátt í þessum skrípaleik lengur og að fólk vill borgarstjóra sem axlar ábyrgð en er ekki skemmtanastjóri borgarinnar.“ andri@mbl.is „Fráleitt að tala um ofbeldi“ Morgunblaðið/Golli Borgarstjóri Jón Gnarr á íbúafundi.  Segir borgarstjóra verða að geta tekið gagnrýni  Borgarfulltrúi vill borgarstjóra sem axlar ábyrgð Bensínlítrinn hjá N1 og síðar Olís var hækkaður í gær um fimm krónur og fór í 260,5 kr. og lítr- inn af dísilolíu í 265,4 krónur. Skammt er síðan olíufélögin hækkuðu lítrann um þrjár krón- ur. Eldsneytisverð hafði ekki hækkað hjá öðrum olíufélögum í gærkvöldi. Lægsta verðið var hjá Orkunni eða 255,2 krónur fyrir bensínlítrann og 262 krónur fyrir lítrann af dísilolíu. Hæsta verðið var hjá N1 og Ol- ís en næsthæst hjá Skeljungi eða 257,9 krónur fyrir bensínlítra. N1 og Olís hækk- uðu um 5 krónur Hólmfríður Gísladóttir Hjörtur J. Guðmundsson Frumvarp til stjórnskipunarlaga var tekið til 2. umræðu á Alþingi í gær. Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks höfðu farið fram á að umræðunni yrði frestað í ljósi þess að fundur hefði verið boð- aður um málið í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í dag og fóru þeir hörðum orðum um vinnubrögð stjórnarliða í málinu. „Stærsta málið sem yfirleitt er tekið fyrir í þinginu er frumvarp til fjárlaga og það er mælt fyrir því í fyrstu umræðu og svo tekur nefnd- in það fyrir og vinnur og síðan hefst önnur umræða og þá vinnur nefnd- in áfram. Og það er ekkert því til fyrirstöðu að nefndin haldi áfram að vinna málið,“ sagði Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskip- unar- og eftirlitsnefndar, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Hún sagði það markmið meiri- hlutans að nota tímann sem best og gera frumvarpið eins vel úr garði og mögulegt væri og gagnrýndi sjálfstæðismenn og framsóknar- menn fyrir að reyna að stöðva mál- ið. „Þeir hafa ekki lagt neitt efn- islegt til málanna,“ sagði hún. Málið vanbúið „Það er mat okkar sjálfstæðis- manna í stjórnskipunar- og eftirlits- nefnd að málið sé alls ekki tilbúið til annarrar umræðu,“ sagði Birgir Ármannsson þegar umræðum var að ljúka í gærkvöldi. Hann sagði það rétt að það væri álit fulltrúa Sjálfstæðisflokksins að frumvarpið í núverandi mynd ætti alls ekki að ná fram að ganga, í stað heildarendurskoðunar hefði átt að beina kröftunum í að breyta eða bæta nýjum ákvæðum við nú- gildandi stjórnarskrá. Þá sagði Birgir málið vanbúið. „Í fyrsta lagi er stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ekki búin að fara nema á miklum harðahlaupum yfir umsagnir annarra nefnda þingsins, sem sumar hverjar eru mjög viða- miklar,“ sagði hann. Þá hefði ekki nema að litlu leyti verið komið til móts við athugasemdir. „Í öðru lagi liggur fyrir að Fen- eyjanefndin, sem af hálfu stjórn- skipunar- og eftirlitsnefndarinnar var beðin um að fara yfir mikilvæga þætti frumvarpsins, eins og æðstu stjórn ríkisins, samspil handhafa ríkisvalds, þjóðaratkvæðagreiðslur og fleira, er ekki búin að skila af sér, þannig að álit hennar liggur ekki fyrir þegar önnur um- ræða hefst.“ Þá sagði Birgir nefndar- álit meirihlutans lítið gera til að skýra efni frumvarpsins betur en áður og að þær breytingatillögur sem meirihlutinn hefði lagt til væru algjörlega ófull- nægjandi. Vildu fresta umræðunni  Málið alls ekki tilbúið til 2. umræðu, segir Birgir Ármannsson  Ekkert því til fyrirstöðu að nefndin vinni málið áfram, segir Valgerður Bjarnadóttir Morgunblaðið/Golli Alþingi Þegar umræðum lauk í gærkvöldi um stjórnarskrárfrumvarpið voru fjölmargir eftir á mælendaskrá. Önnur umræða heldur áfram í dag. Í fréttatilkynningu sem þing- flokkur Sjálfstæðisflokksins sendi frá sér í gær segir m.a. að hætta sé á því að verði frumvarpið samþykkt muni það leiða af sér mikla óvissu um ýmsar grundvallarreglur stjórnskipunarinnar. „Auk þess bjóða miklar breytingar á mannréttinda- ákvæðum og fleiri tengdum ákvæðum heim hættunni á margvíslegum túlkunarvanda og deilum, sem við blasir að leiða munu til umfangsmikilla málaferla fyrir dómstólum á næstu árum,“ segir í tilkynn- ingunni. Valgerður Bjarnadóttir gef- ur lítið fyrir áhyggjur sjálf- stæðismanna. „Ég myndi ein- mitt frekar segja að það væri tekinn af vafi, t.d. um það hvort dómarar eða aðrir eigi að taka tillit til óbeinna einka- réttaráhrifa varðandi mannréttindabrot og annað,“ sagði Val- gerður í gær- kvöldi. Eru uggandi um áhrifin RÉTTARÓVISSA? Valgerður Bjarnadóttir Veðurstofan aflýsti í gærmorgun óvissustigi vegna hættu á snjóflóð- um á Austfjörðum. Búið er að opna vegina yfir Fjarð- arheiði og Oddsskarð en Vegagerðin biður vegfarendur um að sýna sér- staka aðgát á leið um þessa vegi því vegurinn er einbreiður á köflum. Þar verður unnið áfram við snjómokstur næstu daga. Undir kvöldmat í gær var þæfingur á Fjarðarheiði og hálka á Oddsskarði. Raunar var hálka víða á vegum í gær, m.a. á fjallvegum á Vestfjörðum auk Aust- urlands. Búist var við ísingu á veg- um á Suðvesturlandi í nótt sem leið. Orkubú Vestfjarða lauk síðdegis í gær viðgerð á Hrafnseyrarlínu og Þingeyrarlínu. Keyrslu varaaflsvéla var þá hætt og allir rafmagnsnot- endur í Dýrafirði komnir með raf- magn. Þar með var raforkukerfið fyrir vestan komið í lag eftir trufl- anir undanfarna daga. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Ófærð Mikil ófærð hefur verið á Austurlandi. Myndin er úr safni. Einbreiðar snjótraðir á heiðum  Rafmagn komst á í Dýrafirði í gær

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.