Morgunblaðið - 31.01.2013, Síða 20
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Á Bryggjunni, nýjum veitingastað
í gamla Gránufélagshúsinu við
Strandgötu, verða þekktir Akureyr-
ingar heiðraðir með því, að þeim
verður tileinkaður stóll á staðnum.
Staðurinn verður opnaður í vetur og
sá fyrsti frægi sem hægt verður að
setjast á, er Baldvin Z kvikmynda-
gerðarmaður.
Líklega mætti orða það þannig,
ef vill, að gestum veitingastaðarins
verði til z boðið. En þá er best að z sé
með greini …
Einn flottasti hrútur landsins – ef
að líkum lætur – verður senn fluttur
til Bandaríkjanna, þar sem hann
mun gleðja viðskiptavini ullar-
vöruverslunar í Princeton. Þar stóð
íslenskur hrútur, uppstoppaður eins
og sá nýi, árum saman en var stolið á
síðasta ári.
Kristján Stefánsson frá Gilhaga í
Skagafirði, sem búsettur er á Ak-
ureyri, tók að sér að stoppa upp
þennan nýjasta Vesturfara. Hrútn-
um verður komið upp fyrir utan
verslun bræðranna Roberts og
Henry Landau en afi þeirra stofnaði
verslunina 1914 og þriðju kynslóðar
Landauar reka nú búðina.
Kristján segir í samtali við
Morgunblaðið að mjög mikið sé að
gera við uppstoppun. „Ég stoppa
upp gríðarlega mikið af kindahaus-
um, en líka geita- og nautshausum,“
segir hann. Aðallega er um að ræða
verk fyrir bændur, sem vilja hafa
uppáhaldsgripi sína til skrauts á
heimilinu.
Kristján afhenti fyrir stuttu 200.
kindahausinn sem hann stoppar
upp, en á verkstæðinu má líka sjá sel
og ýmiskonar fugla. „Ég hef nú ekki
verið í þessu nema í þrjátíu ár!“ seg-
ir Kristján.
„Ég fór hægt af stað. Ætlaði
upphaflega bara að læra þetta að
gamni mínu til að hafa eitthvað að
dunda við í ellinni, tók að mér eitt og
eitt stykki fyrir kunningjana en það
hlóð utan á sig,“ segir Kristján.
Um fjórir áratugir eru síðan
Landau-fjölskyldan keypti íslenska
hrútinn, hann ku ætíð hafa verið vin-
sæll og vakið mikla athygli og versl-
unarmennirnir voru með böggum
hildar eftir að sá íslenski hvarf af
vettvangi í fyrra með aðstoð ein-
hverra fingralangra fagurkera. Því
var ekki nema um eitt að ræða; að
snúa sér aftur til Íslands og kaupa
hrút.
Vesturfarinn nýi er frá Birgi
Arasyni bónda í Gullbrekku í Eyja-
fjarðarsveit, mjög fallega hvítur en
Birgir leggur sérstaka áherslu á að
rækta slíkt fé.
Fjórar myndir af frönsku kvik-
myndahátíðinni, sem nýlokið er í
Reykjavík, verða sýndar í Borg-
arbíói um helgina. Þetta eru: Ryð og
bein, Jarðarförin hennar ömmu,
Griðastaður og Ást. Sú síðastnefnda
hlaut Gullpálmann í Cannes og Evr-
ópsku kvikmyndaverðlaunin. Óhætt
er að lofa góðum bíódögum á morg-
un, laugardag og sunnudag.
Gamanleikritið Dagatalsdöm-
urnar verður frumsýnt á morgun,
föstudag, hjá Freyvangsleikhúsinu í
Eyjafirði. Verkið er breskt, eftir
Tim Firth, og er gert eftir bíómynd-
inni Calendar Girls. Davíð Þór Jóns-
son var fenginn til að þýða það og
staðfæra, og er það nú sett upp í
fyrsta sinn hérlendis.
Í leikritinu er fjallað um kven-
félagskonur. Ein þeirra missir mann-
inn sinn úr krabbameini og í kjölfar
þess taka þær sig til og útbúa hálf-
gert nektardagatal til að selja og
safna með því peningum fyrir sófa á
deildina á sjúkrahúsinu þar sem hann
lá.
Sýningin er unnin í samstarfi við
Krabbameinsfélag Akureyrar. Hluti
af hagnaði miðasölu og af sölu daga-
tals, sem gefið er út í tengslum við
sýninguna, rennur til félagsins.
Sýning Freyvangshópsins að
þessu sinni er skemmtilegt mótvægi
við Með fullri reisn, sem berrössuðu
bændurnar í Leikfélagi Hörgdæla
sýndu á Melum í fyrravetur!
Hljómsveitin MEIK heldur tón-
leika á Græna hattinum í kvöld. Sveit-
in var stofnuð í haust með það í huga
að leika eingöngu lög glysrokksveit-
arinnar Kiss, en MEIK skipa liðs-
menn ýmissa þekktra sveita.
Einn liðsmanna MEIK er Þráinn
Árni Baldvinsson gítarleikari í
Skálmöld, en sú magnaða hljómsveit
verður með tvenna tónleika í Hofi á
laugardagskvöldið.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Brjálað að gera Kristján frá Gilhaga á vinnustofu sinni með hrútinn góða, sem senn verður fluttur vestur um haf.
Fjör Freyvangsdömurnar munu væntanlega trylla lýðinn næstu mánuði.
Glæsilegur Vesturfari
ættaður frá Gullbrekku
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013
Ómar Friðriksson
Guðni Einarsson
ASÍ hefur höfðað mál fyrir Fé-
lagsdómi gegn Samtökum atvinnu-
lífsins fyrir hönd LÍÚ, þar sem þess
er krafist að sú aðgerð LÍÚ að beina
því til félagsmanna sinna að halda
skipum sínum ekki til veiða eftir sjó-
mannadaginn 2. júní sl. og beina
þeim þess í stað til Reykjavík-
urhafnar 7. júní, í mótmælaskyni
gegn sjávarútvegsfrumvörpum rík-
isstjórnarinnar, verði dæmd brot á
vinnulöggjöfinni.
Stefna ASÍ var þingfest síðastlið-
inn mánudag og var SA og LÍÚ
veittur frestur til 6. mars til að skila
greinargerð vegna málsins.
Er þess krafist að stefndi verði
dæmdur til greiðslu sektar skv. 70.
grein laganna um stéttarfélög og
vinnudeilur og greiðslu málskostn-
aðar.
ASÍ heldur því fram í málshöfðun
sinni að aðgerðir LÍÚ hafi falið í sér
ólögmæta stöðvun fiskiskipaflotans.
Um hafi verið að ræða ólögmæta
pólitíska vinnustöðvun sem brjóti
gegn 2. tölulið, 17. greinar laganna
um stéttarfélög og vinnudeildur en
hún kveður á um að aðilum vinnu-
markaðarins sé óheimilt að fara í
vinnustöðvun til að knýja stjórnvöld
til ákveðinna athafna eða athafna-
leysis.
Í málatilbúnaði ASÍ er á það bent
að samtökin hafi ítrekað mótmælt
þessari aðgerð LÍÚ og haldið því
fram að hún hafi haft neikvæðar af-
leiðingar fyrir félagsmenn aðild-
arfélaga ASÍ. Því sé ASÍ knúið til að
höfða málið til viðurkenningar á að
um ólögmæta stöðvun fiskiskipaflot-
ans dagana 4.-7. júní hafi verið að
ræða. Gerir ASÍ ekki athugasemdir
við sjálfan samstöðufundinn sem
haldinn var á Austurvelli 7. júní þar
sem sjávarútvegsfrumvörpunum var
mótmælt, en stöðvun flotans hafi aft-
ur á móti verið óskyld og ónauðsyn-
leg aðgerð.
Hafna ólögmæti
Forsvarsmenn LÍÚ hafa á hinn
bóginn haldið því fram að þessar að-
gerðir hafi verið lögmætar og ekki
falið í sér vinnustöðvun eins og hún
er skilgreind í lögunum um stétt-
arfélög og vinnudeilur.
„Við höfnum því að hér sé um
ólögmæta vinnustöðvun að ræða
eins og ASÍ heldur fram,“ sagði
Hlynur Sigurðsson, forstöðumaður
upplýsinga- og kynningarmála hjá
LÍÚ, um tilefni málshöfðunar ASÍ.
Stefna SA/LÍÚ
fyrir Félagsdóm
Telja stöðvun skipaflotans ólögmæta