Morgunblaðið - 31.01.2013, Síða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Meðalheimta á laxi í flotvörpuveiði á
síld og makríl fyrir þrjú síðustu ár er
talin vera um 5,5 laxar á hverjar þús-
und lestir úr þeim veiðiferðum þegar
lax fékkst sem meðafli. Enginn lax
fékkst hins vegar í mörgum veiðiferð-
um og ef miðað er við heildarafla á
síld og makríl í flotvörpu þrjú síðustu
ár má reikna með að um 1,5 laxar hafi
fengist á hverjar þúsund lestir.
Enginn lax frá vinnsluskipum
Á árinu 2010 veiddust 169 laxar
sem meðafli, 249 laxar 2011 en aðeins
48 laxar 2012. Fram kemur í grein-
argerð sérfræðinga á Fiskistofu að
einhver tregða sé í því að skila inn
veiddum löxum úr uppsjávarveiði
þrátt fyrir tilmæli þar að lútandi.
Fiskistofa hefur virkt eftirlit um borð
í vinnsluskipum, þegar eftirlitsmenn
eru um borð.
Alls hafa því 466 laxar skilað sér úr
uppsjávarveiðinni þrjú síðustu ár en
athygli vekur að enginn lax skilaði
sér úr afla vinnsluskipa 2012, sam-
kvæmt því sem fram kemur í grein-
argerðinni. Þar sem niðurstöður árin
2010 og 2011 sýndu að meðafli á laxi
var mun meiri fyrri hluta sumars og
gæti þessi mismunur stafað af því að
eftirlit um borð í vinnsluskipum hófst
mánuði seinna í fyrrasumar en árið á
undan. Einnig eru líkur á að veiðarn-
ar 2012 hafi verið markvissari og
makrílafli á togtíma hafi aukist með
meiri veiðireynslu og úthaldstími hafi
því styst, sem gæti dregið úr meðafla.
Meðaflinn virðist vera mjög
sveiflukenndur og vitað er um allt að
30 laxa í 600 lesta heildarafla upp-
sjávarskips fyrir Austurlandi, sem
samsvarar 50 löxum á hver 1000 tonn
af makríl/síld. Þetta virðist þó vera
undantekning, segir í greinargerð-
inni.
Uppruni rannsakaður
Tilgangur rannsóknarinnar, sem
haldið verður áfram í ár, er annars
vegar að kanna magn þeirra laxa,
sem koma fram sem meðafli í flot-
vörpuveiðum á síld og makríl, og hins
vegar kanna dreifingu og uppruna
þeirra laxa, sem veiðast í hafinu um-
hverfis Ísland.
Ekki liggja fyrir niðurstöður frá
Veiðimálastofnun um líffræðilega
þætti og uppruna þeirra laxa sem
veiddust í fyrra og hittiðfyrra en upp-
lýsingar frá árinu 2010 bentu til að
meirihluti af laxinum (90%) væri af
erlendum uppruna.
Lax sem meðafli
X 2010
X 2011
X 2012
2
Fjöldi laxa sem meðafli innan ICES rétthyrninga í
makríl/síldveiðum 2010-2012 ásamt endurheimtum merkjum
1 1 1
3
1 1
1 1 1 4
2 6 1
2 1
3 1 3
1 3 5 1
2
2
3
6 4 1
7 1
1 1 1 1
18 12
3122 2
3
2 4 6 1
6 1 2
2 4 1
7 2 3 1
3 2 1
2111 32
3
7
1 2
1
2 1
1 1 2
1 3 4
4 2
3 4 3 5 1 3 7 8 9 10 14 2
3 5 8 2 3 3 8 2
1 1 12 3
1 12
7
10 2 3 1 9
1 18 4 4 16
1 1 11 2
10
4 2
1
Írland
Noregur
Noregur
Noregur
Noregur
Írland
Ísland
Heimild: Fiskistofa
Sveiflur í skilum á laxi
sem meðafla með makríl
Alls 466 laxar Kanna uppruna Tregða í skilum
Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík | Sími: 557 9510 | Netfang: patti@patti.is | vefsíða: patti.is
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl. 9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað
Tilboðsvörur á frábæru verði
70%afsláttur
allt að
af völdum vörum og
sýningareintökum Borðstofustólar frá 4.900 kr Heilsukoddar 2.900 kr
Borðstofuborð 40.000
Höfðagaflar 5.000
Sjónvarpsskápar 25.000
Rúm 153cm 157.000
Púðar 2.900
Vín
Torino
Fjarstýringavasar 2.500
Hægindastólar 99.000
Tungusófar 75.400
Hornsófar 119.450
Sófasett 99.900
Mósel
AquaClean áklæði
kynningarafslátturAquaClean áklæði er sérstaklegaauðvelt að hreinsa
aðeins með vatni!
H Ú S G Ö G N
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
VR KRINGLUNNI 7 103 REYKJAVÍK
S. 510 1700 F. 510 1717 WWW.VR.IS
VR óskar eftir orlofshúsum
VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofsíbúðum á leigu til framleigu
fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja: Lýsing á eign og því sem henni
fylgir, ástand hennar, staðsetning, stærð, aldur og fjöldi svefnplássa. Auk þess
skal fylgja lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta umhverfi.
Æskilegt er að myndir og lýsing á umhverfi fylgi einnig með.
Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is, fyrir 15. febrúar nk.
Forsætisráðuneytið hefur und-
irritað samning við Blindrafélagið
um að bjóða upplestur á íslensku
efni á vefsíðum Stjórnarráðs Ís-
lands með svonefndum veflesara.
Um er að ræða hugbúnað
(IVONA - iWebReader) sem bætir
aðgengi blindra og sjónskertra að
textuðu efni á vefjum allra ráðu-
neytanna. Veflesarinn nýtist einnig
lesblindum og þeim sem kjósa að
hlusta frekar en að lesa.
Með samningnum hefur forsæt-
isráðuneytið f.h. Stjórnarráðs Ís-
lands tryggt afnot allra ráðuneyta
af veflesara sem þulið getur textað
efni af vefsíðum stjórnarráðsins,
segir í tilkynningu frá forsæt-
isráðuneytinu.
Jóhanna Sigurðardóttir ritaði
undir samkomulagið fyrir hönd
Stjórnarráðsins og Kristinn Hall-
dór Einarsson, formaður Blindra-
félagsins, f.h. félagsins.
Bjóða upplestur
á efni á vefjum
Námsbraut í japönskum fræðum í
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í
erlendum tungumálum við Háskóla
Íslands, í samvinnu við sendiráð
Japans á Íslandi, stendur að Jap-
anshátíð laugardaginn 2. febrúar
milli kl. 13.00 og 17.00 á Há-
skólatorgi í Háskóla Íslands.
Japanshátíðin hefur verið haldin
í janúar ár hvert síðan árið 2005.
Hátíðin í ár er því sú níunda í röð-
inni. Eitt af sérkennum Japans-
hátíðarinnar er að flestallt sem
gestum og gangandi er boðið upp á
að skoða er unnið og fram borið af
nemendum í japönsku máli og
menningu við Háskóla Íslands. Há-
tíðin er öllum opin.
Japanshátíð haldin
í níunda skipti í HÍ
Lögfræðingafélag Íslands efnir til
hádegisverðarfundar föstudaginn
1. febrúar kl. 12.00-13.00 í Gull-
teigi, Grand Hóteli, Sigtúni 28.
Heiti fundarins er „Úr klaka-
böndum Icesave“. Á fundinum
munu Kristín Haraldsdóttir, sér-
fræðingur við Háskólann í Reykja-
vík, og Reimar Pétursson hrl., sem
voru í málflutningsteymi Íslands
fyrir EFTA-dómstólnum, fjalla um
forsendur dómsins og einstök álita-
efni sem fram hafa komið. Fund-
arstjóri verður Kristín Edwald, hrl.
og formaður LÍ.
Fjallað um forsend-
ur Icesave-dómsins
STUTT