Morgunblaðið - 31.01.2013, Page 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013
Kona biður fyrir Norodom Sihanouk, fyrrver-
andi konungi Kambódíu, fyrir utan konungshöll-
ina í Phnom Penh. Búist er við að um milljón
manna komi saman á götum borgarinnar á
morgun þegar lík Sihanouks verður flutt frá
höllinni í líkbrennsluhús, á gylltum vagni í líki
goðsagnafugls. Sihanouk afsalaði sér völdum ár-
ið 2004 eftir að hafa verið konungur í sex ára-
tugi. Hann lést í Peking í október.
AFP
Kambódíumenn búa sig undir milljón manna líkfylgd
Ný rannsókn í Bandaríkjunum
bendir til þess að kettir drepi fjór-
um sinnum fleiri fugla en áður var
talið. Rannsakendurnir áætla að
bandarískir kettir drepi 1,4 til 3,7
milljarða fugla og 6,9 til 20,7 millj-
arða spendýra á ári hverju.
Villikettir drepa flest dýranna en
rannsóknin bendir til þess að villt-
um dýrum stafi einnig hætta af
heimilisköttum. Á meðal dýra sem
eru í mestri hættu eru mýs, snjáldr-
ur, íkornar og kanínur, auk fugla
eins og farþrasta.
Talið er að 33 dýrategundir hafi
orðið útdauðar í heiminum vegna
katta, að sögn fréttavefjar BBC.
Kettir drepa millj-
arða dýra á ári
AFP
Skæðir Sumir kettir eru sérlega sólgnir
í mýs, aðrir vilja frekar fugla.
BANDARÍKIN
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Sérfræðingar í málefnum Malí telja
að hætta geti enn stafað af íslamist-
um í landinu þótt þeir hafi misst
helstu vígi sín á síðustu þremur dög-
um.
Franskir hermenn náðu bænum
Kidal í norðurhluta Malí á sitt vald í
gær og hafa þar með náð yfirráðum
yfir öllum helstu borgum og bæjum
sem íslamistar lögðu undir sig í
fyrra. Hermennirnir mættu ekki
mótspyrnu því íslamistarnir höfðu
flúið frá bænum. Áður höfðu fransk-
ar hersveitir náð borgunum Gao og
Timbúktú á sitt vald án mótspyrnu
eftir að íslamistarnir forðuðu sér
vegna harðra loftárása.
Alain Antil, franskur sérfræðing-
ur í málefnum Afríkuríkja sunnan
Sahara, segir að íslamistarnir hafi
ekki gefist upp, þótt þeir hafi ekki
veitt mótspyrnu. „Þeir geta nú hafið
skæruhernað, meðal annars gert
skyndiáhlaup, framið mannrán og
gert sprengjuárásir,“ hefur frétta-
veitan AFP eftir Antil. Hann telur að
erfitt verði að verja borgirnar vegna
þess að engir hermenn séu á stórum
svæðum í grennd við þær.
Sérfræðingarnir segja að verkefni
franska hersins sé aðeins hálfnað nú
þegar þeir hafi flæmt íslamistana frá
borgunum og stærstu bæjunum.
„Eftir að hafa frelsað bæina þarf að
stjórna þeim og verja þá,“ hefur
AFP eftir Dominique Thomas,
frönskum sérfræðingi í málefnum
múslímaþjóða í Afríku. „Hermenn-
irnir eiga á hættu að verða fyrir
sprengjuárásum.“
Hermt er að tveir helstu leiðtogar
íslamistanna séu að safna liði í af-
skekktu fjallahéraði nálægt landa-
mærunum að Alsír.
Óttast að íslamistarnir í Malí
hefji skæruhernað og mannrán
Verkefni franska hersins aðeins hálfnað þótt hann hafi náð borgunum á sitt vald
AFP
Þúsund þakkir Frönskum her-
mönnum fagnað í bæ nálægt Gao.
Fornritum bjargað
» Nánast öll fornrit, sem voru
geymd á safni í borginni Tim-
búktú, björguðust þar sem
stærstum hluta þeirra var
smyglað út úr safninu áður en
íslamistar náðu borginni á sitt
vald í fyrra.
» Shamil Jeppie, sem hefur
umsjón með varðveislu hand-
ritanna frá Timbúktú, segir að
yfir 90% þeirra hafi verið
bjargað áður en íslamistar
kveiktu í byggingu þar sem
handritin voru geymd.
Rannsókn, sem gerð var í Banda-
ríkjunum, bendir til þess að því
meira sem kvæntir karlmenn taki
þátt í húsverkunum því minna sé
kynlíf þeirra, að því er fram kemur
í tímaritinu American Sociological
Review. Rannsakendurnir segja að
hjón, sem hjálpist að við heimilis-
störf á borð við eldamennsku, þrif
og innkaup, hafi sjaldnar kynmök
en hjón sem hafi hefðbundna verka-
skiptingu. Þeir mæla þó ekki með
því að eiginmenn neiti að taka þátt í
heimilisstörfunum og segja það
auka hættuna á togstreitu og
rifrildum í hjónabandinu.
Minna kynlíf þegar
karlar taka þátt
í húsverkunum
BANDARÍKIN
Ein evrópsk
drottning hefur
tilkynnt starfslok
sín. Er einhver
möguleiki á að sú
frægasta, sjálf
Elísabet Bret-
landsdrottning,
feti í fótspor
þeirrar hol-
lensku? Það er
afar ólíklegt, að mati sérfræðinga.
Beatrix Hollandsdrottning mun
segja af sér í apríl. Elsti sonur
hennar, Willem-Alexander, tekur
við af henni. Beatrix er 75 ára og
sonur hennar 45 ára. Elísabet er 86
ára. Karl sonur hennar er 64 ára og
hefur verið lengur ríkisarfi en
nokkur annar í breskri sögu.
Breskir fjölmiðlar grínuðust með
fréttina um afsögn Beatrix. Daily
Mirror skrifaði stórum stöfum:
„Drottning afsalar sér krúnunni
fyrir soninn“. Í undirfyrirsögn, í
smærra letri stóð svo: „Rólegur
Karl, þetta er Hollandsdrottning“.
Í öðrum fjölmiðlum stóð m.a.:
„Því miður Karl, þetta gerðist í
Hollandi, ekki hér!“
Sérfræðingar í málefnum kon-
ungshallarinnar hafa bent á að El-
ísabet líti svo á að það að vera
drottning sé lífstíðarstarf. Síðasta
sumar er Elísabet fagnaði 60 ára
valdatíð sinni sagði John Major,
fyrrverandi forsætisráðherra, að
hugmyndin um að drottningin
myndi afsala sér krúnunni væri „al-
gjörlega fáránleg“. Hann sagði
ljóst að Elísabet myndi sinna sínu
starfi til æviloka nema heilsubrest-
ur hindraði það. sunna@mbl.is
Verður drottning
til dauðadags
Elísabet drottning
BRETLAND
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Fyrir þá sem hönnun