Morgunblaðið - 31.01.2013, Side 28

Morgunblaðið - 31.01.2013, Side 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013 Súgfirðingaskálin – 4 lota Fjórða lota í keppni um Súgfirð- ingaskálina var spiluð á mildum mánudegi í lok mörsugs. Tólf pör mættu til leiks. Úrslit kvöldsins urðu eftirfarandi feðgarnir Ásgeir Sölvason og Sölvi Ásgeirsson tóku 61,4% skor. Ásgeir Sölvason - Sölvi Ásgeirsson 135 Kristján H. Björnss. - Flemming Jessen 123 Jensína Stefánsd. - Mortan Hólm 123 Unnar Guðmss. - Guðrún K. Jóhannesd. 119 Kristján Pálsson - Ólafur Karvel Pálsson 119 Friðgerður Friðgeirs - Kristín Guðbjd. 110 Heildarstaðan fyrir þorra er svo- hljóðandi, meðalskor 352. Kristján H.Björnss. - Flemming Jessen 406 Ásgeir Sölvason - Sölvi Ásgeirss. 401 Karl Bjarnason - Ólafur Ólafsson 375 Gróa Guðnad. - Guðrún K. Jóhannesd. 370 Þorsteinn Þorsteinss. - Rafn Haraldss. 369 Guðbjartur Halldórss. - Gísli Jóhannss. 343 Kristján Pálss. - Ólafur Karvel Pálss. 342 Þrjár lotur eru eftir af mótinu og gilda sex bestu skorin til verðlauna. Næst verður spilað 18. febrúar. Alltaf fjölmenni í Gullsmáranum Sama góða þátttakan er í Gull- smára. Mánudaginn 28. janúar var spilað á 17 borðum. Úrslit urðu: N/S Samúel Guðmss. - Jón Hannesson 345 Guðrún Hinriksd. - Haukur Hannesson 325 Þórður Jörundss. - Jörundur Þórðarson 306 Pétur Antonss. - Guðlaugur Nielsen 295 Guðrún Gestsd. - Gunnar Hansson 291 A/V Þorsteinn Laufdal - Páll Ólason 335 Birgir Ísleifsson - Jóhann Ólafsson 327 Ragnar Haraldsson - Bernhard Linn 325 Svanhildur Gunnarsd.- Magnús Láruss. 310 Ernst Backman - Hermann Guðmss. 295 Félag eldri borgara í Reykja- vík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl, mánudaginn 28. janúar sl. Spilað var á 14 borðum, meðalskor 312 stig. Árangur N-S: Friðrik Jónsson - Tómas Sigurjónsson 395 Valdimar Ásmundss. - Björn E. Péturss. 357 Magnús Oddsson - Oliver Kristóferss. 347 Björn Árnas. - Auðunn Guðmundss. 343 Árangur A-V: Vilhj. Vilhjálmss.- Ólafur Kristinsson 379 Kristín Guðmundsd. - Kristján Guðmss. 373 Hrólfur Guðmundss. - Óli Gíslason 370 Jón Þ. Karlsson - Björgvin Kjartanss. 361 Bridsdeild Breiðfirðinga Eftir tvö kvöld í fimm kvölda tvímenn- ingskeppni eru þeir Magnús og Halldór með góða forstu. Röð efstu para er þessi Magnús Sverriss. - Halldór Þorvaldss. 537. Bergljót Gunnarsd. - Jón H. Jónsson 499 Þorleifur Þórarinss. - Haraldur Sverriss. 497 Oddur Hanness. - Árni Hannesson 491 Ragnar Haraldss. - Bernhard Linn 481 Sunnudaginn 27/1 var spilaður tvímenn- ingur á 11 borðum Hæstaskor kvöldsins í Norður/Suður. Gunnar Guðmss. - Sigurjóna Björgvinsd.266 Björgvin Kjartans. - Berglj. Aðalsteinsd.255 Garðar V. Jónss. - Sigurjón Guðmss. 246 Austur/Vestur Magnús Sverriss. - Halldór Þorvaldss. 265 Ragnar Haraldss. - Bernhard Linn 253 Bergljót Gunnarsd. - Jón H. Jónsson 245 Þetta var annað spilakvöldið í fimm kvölda tvímenningskeppni . Þar sem fjögur bestu kvöldin gilda til úrslita. Spilað er í Breiðfirðingabúð Faxafeni 14 á sunnudögum kl. 19. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Brautarholti 10-14 / 105 Reykjavík / 575 2700 / pixel@pixel.is / www.pixel.is Við prentum alla regnbogans liti. Við bjóðum upp á alla almenna prentun, ráðgjöf, skönnun, umbrot, bókband og umsjón með prentgripum. Pixel er alhliða prentþjónusta með starfsstöðvar í Reykjavík og á Ísafirði. Pixel þýðir myndeining - sem er minnsta eining úr mynd. Orðið pixel er byggt á samblöndu úr orðunum pix (pictures) og el (element) Nafnspjöld, bréfsefni og umslög! Kjaranefnd Félags eldri borgara mótmælir því harðlega að ríkis- stjórnin skerðir á ný í upphafi árs 2013 rétt- mæta hækkun lífeyris eldri borgara. ASÍ telur að lífeyrir aldraðra eigi að hækka um 11 þúsund kr. á mánuði í upphafi ársins vegna gildandi kjarasamninga en ríkis- stjórnnin hefur ákveðið að greiða að- eins hluta þeirrar fjárhæðar í hækk- un lífeyris. Jafnframt er það nú endanlega ljóst, að ríkisstjórnin ætlar að svíkjast um að afturkalla kjara- skerðingu aldraðra og öryrkja frá 1. júlí 2009 en tekið var fram í at- hugasemdum með frumvarpi um þá kjaraskerðingu, að hún væri tíma- bundin og voru 3 ár nefnd í því sam- bandi. Ríkisstjórnin virðist telja nóg að ráðherrar, alþingismenn og embætt- ismenn hafi fengið afturköllun á tíma- bundinni kjaraskerðingu sinni. Fjár- lög fyrir árið 2013 voru afgreidd án þess að gera ráð fyrir afturköllun á kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja. Hér er um grófa mismunun að ræða. Þá stóð ríkisstjórnin heldur ekki við það að leggja fram fyrir áramót frum- varp um endurskoðun almannatrygg- inga eins og heitið hafði verið. Ráð- gert hafði verið að fyrsti áfangi endurskoðunar almannatrygginga tæki gildi 1. janúar 2013 en það stóðst ekki. Kjaranefnd FEB krefst þess að kjaraskerðing aldraðra og öryrkja frá 2009 verði þegar í stað afturkölluð. Jafnframt krefst kjaranefndin þess að lífeyrir aldraðra og öryrkja verði leiðréttur vegna kjaraskerðingar á tímabilinu 2009-2012 og lífeyrir hækkaður um 20% af þeim sökum. Ráðuneytið stingur ályktunum eldri borgara undir stól Framangreind ályktun var sam- þykkt samhljóða í kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík 3. janúar sl. Ályktunin var send ráðherrum. Einn- ig var hún send formönnum þing- flokkanna. Þær eru orðnar margar ályktanirnar sem kjara- nefnd FEB og kjara- málanefnd LEB hafa sent ráðherrum ríkis- stjórnarinnar á valda- tíma hennar en það hef- ur engin áhrif haft. Ráðherrarnir stinga þessum ályktunum allt- af undir stól. Þó hét rík- isstjórnin því, er hún tók við völdum, að hafa samráð við almanna- samtök í landinu. En sú yfirlýsing hefur reynst orðin tóm. Eins er með umbótaáætl- un Samfylkingarinnar, sem sam- þykkt var eftir miklar umræður: Ákveðið var að taka upp ný og breytt vinnubrögð sem einkennast mundu af heiðarleika. Sú samþykkt hefur einn- ig reynst orðin tóm. Fyrrverandi formaður kjaranefnd- ar FEB, Ólafur Hannibalsson, fór ásamt undirrituðum á fund forseta ASÍ, Gylfa Arnbjörnssonar, haustið 2010. Með í för var einnig Eyjólfur Eysteinsson. Erindi okkar við forseta ASÍ var að fara þess á leið við verka- lýðshreyfinguna að hún mundi bera upp þá kröfu í viðræðum við rík- isstjórnina að bætur aldraðra og ör- yrkja yrðu hækkaðar jafnmikið og laun samvæmt nýjum kjarasamn- ingum vorið 2011. Forseti ASÍ sam- þykkti erindi okkar. Og ríkisstjórnin féllst á þessa kröfu ASÍ í tengslum við kjarasamninga sem gerðir voru 2011. Við fórum þessa leið vegna þess að við höfðum gefist upp á því að eiga bein samskipti við ríkisstjórnina. Ríkisstjórnin hundsaði kröfur eldri borgara og öryrkja Þess vegna leituðum við aðstoðar ASÍ. Ástandið er eins í dag. Ríkis- stjórnin neitar að afturkalla kjara- skerðinguna frá 1. júlí 2009. Hún neit- ar að leiðrétta kjaraskerðingu og kjaragliðnun frá tímabilinu 2009-2012 og hún uppfyllir ekki eigin yfir- lýsingar um að láta lífeyri aldraðra og öryrkja hækka hliðstætt launahækk- unum samkvæmt kjarasamningum. Enn á ný verða eldri borgarar því að treysta á verklýðssamtökin. Samkvæmt nýjum kjarasamn- ingum vorið 2011 hækkuðu lágmarks- laun strax um 10,3% en velferð- arráðherra ákvað að bætur einhleypra elli- og örorkulífeyris- þega, sem eingöngu höfðu bætur frá TR, skyldu aðeins hækka um 6,5%. Þarna byrjaði ríkisstjórnin strax að klípa af bótum aldraðra og öryrkja. Ríkisstjórnin hélt uppteknum hætti í ársbyrjun 2012 en þá var réttmæt hækkun lífeyris aldraðra og öryrkja skert á ný. Lífeyrir átti þá að hækka um 11.000 kr. á mánuði en var aðeins hækkaður um rúmlega helming þeirrar fjárhæðar (um 3,5%). Og nú í ársbyrjun 2013 er í þriðja sinn höggv- ið í sama knérunn, þegar ríkisstjórnin eða velferðarráðherra ákveður enn á ný að klípa af réttmætri hækkun líf- eyrisþega. Höfum fjarlægst norræna velferðarkerfið Ríkisstjórnin lýsti því yfir, þegar hún tók við völdum, að hún ætlaði að koma hér á norrænu velferðarkerfi. Það hefur mistekist. Í stað þess að bæta kjör aldraðra og öryrkja hafa kjörin verið skert. Því var lofað að kjaraskerðingin sem framkvæmd var 2009 yrði tímabundin. En ekki hefur verið staðið við það. Í lögum um almannatryggingar segir að breytingar á lífeyri aldraðra og öryrkja eigi að taka mið af þróun launa og verðlags en bætur eigi aldrei að hækka minna en vísitala neyslu- verðs. Við þetta hefur ekki verið stað- ið. Á árunum 2009 og 2010 hækkuðu lágmarkslaun um 16% án þess að líf- eyrir aldraðra og öryrkja hækkaði nokkuð. Á öllu tímabili ríkisstjórn- arinnar, 2009-2010, hafa lágmarks- laun hækkað miklu meira en lífeyr- ir.Til þess að jafna metin þarf að hækka lífeyri strax um a.m.k. 20%. Ályktunum eldri borgara stungið undir stól Eftir Björgvin Guðmundsson » Stjórnin lýsti því yf- ir, þegar hún tók við völdum, að hún ætlaði að koma hér á norrænu velferðarkerfi. Hefur mistekist: Kjör aldraðra skert. Björgvin Guðmundsson Höfundur er viðskiptafræðingur og formaður kjaranefndar Félags eldri borgara Oft hefur það kom- ið í ljós, hvað svoköll- uðum vinstri mönn- um, sem þykjast þó vera sammála í því að berja á auðvald- inu, virðist ómögu- legt að standa saman og eru einlægt að klofna vegna valda- græðgi þeirra, sem ráða í þessum flokk- um á hverjum tíma. Þegar svo- nefndri Samfylkingu var ýtt á flot til að berjast við Sjálfstæðisflokk- inn, gátu gamlir kommar og barnalegir hugsjónamenn í ýmsum málum ekki verið með, sennilega vegna þess, að of margir vildu fá að stjórna hinum nýju samtökum. Sjálfsagt hefur gamla ólæknanlega kommahatrið á jafnaðarmönnum líka ráðið ferð. Steingrími Sigfússyni gekk vel að afla VG fylgis. Samfylkingunni gekk ekki vel þar til bankahrunið og eggjakastarar á Austurvelli komu þeirri fylkingu og Jóhönnu til valda. Henni tókst að mynda stjórn með því að taka formann VG hreðjatökum í stærsta kosn- ingamáli hinna síðarnefndu, ESB málinu. Margt hefur gengið á síðan. Jó- hönnu hefur tekist að jarða flest baráttumál sín frá því hún var jafnaðarkona í stjórnarandstöðu. Henni hefur tekist með fádæma frekju og óbilgirni að eyðileggja stóru málin sín nú, t.d. ESB-málið og stjórnarskrármálið, sem þó átti að verða kórónan á hennar stjórnmálaferli. Helst verður hennar minnst fyrir það pólitíska afrek að beita meirihlutavaldi vinstri manna á Alþingi til að bola bankastjórum Seðlabankans frá og koma húskarli sínum í stöðu þar með loforðum um laun, sem hún gat svo ekki staðið við. Jóhanna heldur tökum sínum á Steingrími J. með þeim afleið- ingum, að hver þingmaður hans eftir annan gengur úr flokknum og lýsir hann svikara. Flokk- urinn er að leysast upp í óflokksbundna þingmenn. Samfylk- ingin neyðist til að stofna útibú með björtu nafni. Útibús- stjóri þar er siðgæð- isvörður í stjórn- málum og flóttamaður úr flokki föður síns, þar sem aðrir stóðu í vegi fyrir hans frama. Brottrekstur Jóns Bjarnasonar úr embættum að kröfu Jóhönnu var klámhögg og Steingrímur J. er kominn í mestu ógöngur. Á ný- afstöðnum flokksráðsfundi sagði hann í ræðu og við fjölmiðlamenn, að það væri sorglegt, að góðir menn yfirgæfu hann og húskarla hans, en það gerði ekkert til. Hann ætlar að ná aftur vopnum sínum með hnefasveiflum og stór- yrtum ræðum í anda Leníns um illmennsku rúmlega þriðjungs þjóðarinnar, sem styður Sjálfstæð- isflokkinn. Eru þeir tímar ekki liðnir, að stjórnmálamenn reyni að afla sér fylgis með því að berja í ræðupúlt og öskra á þá fáu, sem ennþá fylgja þeim? Frambjóðandi til formennsku í Samfylkingunni er svo gáfaður, að hann hefur efni á því að segja meiri hluta Íslendinga skyni skroppinn. Eru þeir tímar komnir, að stjórnmálamenn reyni að afla sér fylgis með því að segja kjós- endur illa gefna? Kosningasundrung vinstri manna Eftir Axel Kristjánsson Axel Kristjánsson »Eru þeir tímar komnir, að stjórn- málamenn reyni að afla sér fylgis með því að segja kjósendur illa gefna? Höfundur er lögmaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.