Morgunblaðið - 31.01.2013, Page 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Garðsbrún 4, 218-0632, Hornafirði, þingl. eig. Hlynur Kárason,
gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 5. febrúar
2013 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Höfn,
30. janúar 2013.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Álftaland 173216, fastanr. 221-6659, Reykhólahreppi, þingl. eig.
Steinar Pálmason, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 4.
febrúar 2013 kl. 18:00.
Dalbraut 1, fastanr. 212-4818, Bíldudal, Vesturbyggð, þingl. eig. Mjóni
ehf, gerðarbeiðendur Landsbankinn hf. og Vesturbyggð, mánudaginn
4. febrúar 2013 kl. 11:00.
Vatneyri, fastanr. 212-4171, Patreksfirði, Vesturbyggð, þingl. eig.
Sjóræningjar ehf., gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.,
mánudaginn 4. febrúar 2013 kl. 13:00.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði,
30. janúar 2013,
Úlfar Lúðvíksson.
Smáauglýsingar 569 1100
Garðar
Trjáklippingar
trjáfellingar og grisjun sumar-
húsalóða. Hellulagnir og almenn
garðvinna. Tilboð eða tímavinna.
Jónas F. Harðarson,
garðyrkjumaður, sími 6978588.
Húsgögn
HÓTELHÚSGÖGN
www.nyvaki.is
Húsnæði íboði
Húsnæði í boði
Herbergi og íbúðir. Alltaf til leigu í
stuttan eða langan tíma. Upplýsingar
í síma 511 3030 og gsm 861 2319.
Atvinnuhúsnæði
Óska eftir 600-1000 fm lagerhús-
næði. Ódýrt lagerhúsnæði óskast,
600 til 1000 fm á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu, þarf að hafa sæmilega inn-
keyrsluhurð. Hafið samband við
midlarinn@midlarinn.is eða
892 0808.
Sumarhús
Vaðnes - eignarlóðir
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir í
kjarrivöxnu landi Vaðness í Grímsnes-
og Grafningshreppi. Allar nánari
upplýsingar í síma 896 1864.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Helgi pípari
Hitamál, viðgerðir, endurlagnir,
nýlagnir og allar pípulagnir.
Hafið samband í s. 820 8604 eða:
helgipipari@gmail.com
Til sölu
Ódýr blekhylki og tónerar
verslun í Hagkaup Smáralind og
Fjarðargötu 11, Hafnarfirði.
Blekhylki.is, sími 517-0150.
Óska eftir
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu. Fannar verðlaunagripir,
Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi.
fannar@fannar.is, s. 551 6488.
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ
Teg: 4141 Þægileg og vönduð
dömustígvél úr leðri, fóðruð. Litur:
grænt. Stærðir: 37 - 41.
Tilboðsverð: 12.500.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
NÝ SENDING - NÝ SENDING
MINIMIZERINN, teg. 4500, fæst í
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 7.880.
Teg. REBECCA - léttfyllt skál, frá-
bært snið í D,DD,E,F,FF,G skálum á
kr. 11.550.
Teg. VIVIENNE - sérlega glæsilegur
í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 10.990.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-föst. 10-18,
laugard. kl. 10-14.
Þú mætir - við mælum
og aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
Teg. 99504: Fallegir og vandaðir
dömuskór úr mjúku leðri, skinnfóðr-
aðir. Stærðir: 36 - 41. Verð: 16.500.
Teg. 5522: Þægilegir dömuskór úr
leðri, kuldafóðraðir. Litir: brúnt og
grátt. Stærðir: 36 - 41. Verð: 17.500.
Teg. 99560: Flottir og þægilegir
dömuskór úr mjúku leðri, skinnfóðr-
aðir, með grófum sóla. Stærðir: 36 -
41. Verð: 18.800.
Teg. 99562: Flottir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir, með
grófum sóla. Litir: svart og vizon.
Stærðir: 36 - 41. Verð: 18.800.
Teg. 99561: Flottir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir, með
grófum sóla. Litir: grátt og brúnt.
Stærðir: 36 - 41 Verð: 18.800.
Teg. 99566: Flottir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir, með
grófum sóla. Litir: rautt og svart.
Stærðir: 36 - 41. Verð: 18.800.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán. - föst. 10 - 18.
Opið laugardaga 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Góður í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur
laga ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Fjarlægi veggjakrot
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Byssur
Útsala á skotfærum
Bjóðum út janúar 20% afslátt af
skotfærum í riffla, ýmis caliber í boði.
Tactical.is, Verslunarmiðstöðinni
Glæsibæ, sími 517 8878. Opið alla
virka daga frá kl. 11-18.
✝ Daniel JacobJensen fæddist
14. júní 1930 í
Skálavík, Sandö í
Færeyjum.
Foreldrar: Jacob
Hendrik Jensen
sjómaður, f. 7. nóv-
ember 1887 í Skála-
vík d. 30. apríl 1942
og Elsebeth Mar-
lene Thomsen f. 6.
júlí 1895, d. 9. októ-
ber 1978. Daniel Jacob stundaði
nám í Døveskole Kastelsvej í
Kaupmannahöfn 1937-1940 og í
Døveskole Fredericia í Dan-
mörku 1940-1947. Lauk klæð-
skeranámi hjá Svejier Triam í
Kaupmannahöfn. Kom til Ís-
lands 12. júlí 1956
og átti heima hér
síðan. Rafsuðumað-
ur í járnsmiðju að
Nýlendugötu 14 og
í fyrirtækinu Run-
tal ofnum í Síðu-
múla. Tíu ár til sjós
á bátum á síld- og
þorskveiðum. Einn-
ig verið háseti í
fjölda ára á tog-
urum. Í stjórn Fé-
lags heyrnarlausra, m.a. for-
maður frá 1966-1971. Starfaði í
framkvæmdanefnd Félags
heyrnarlausra í fjölda ára. Val-
inn maður ársins af Félagi
heyrnarlausra árið 1981.
Jarðarförin hefur farið fram.
Fallinn er frá Daníel Jensen,
góður vinur og félagi.
Við kynntumst Daníel fyrst
þegar hann kom til landsins árið
1956 og hélst vináttan alla tíð.
Daníel var skemmtilegur maður,
fyndinn og frumlegur og því allt-
af gott að vera nálægt honum.
Daníel var færeyskur en hafði
gengið í skóla í Danmörku. Hann
kom með nýjar hugmyndir inn í
samfélag heyrnarlausra á Íslandi
enda hafði hann kynnst slíkum
samfélögum á Norðurlöndunum
áður en hann settist að hér. Sem
dæmi má nefna að hann kom með
þá hugmynd að stofna sérstakt
félag heyrnarlausra og vann
hann að því þar til Félag heyrn-
arlausra var stofnað árið 1960.
Daníel var sjómaður alla tíð.
Þegar hann var í landi fylgdist
hann vel með því sem var að ger-
ast hjá félaginu, var virkur í fé-
lagsstörfum og var m.a. varafor-
maður þess 1965-1966 og síðar
formaður í sex ár.
Hann var alls staðar vel liðinn
og kom því ekki á óvart að hann
var valinn maður ársins hjá Fé-
lagi heyrnarlausra árið 1981 og
var gerður heiðursfélagi þess á
50 ára afmæli félagsins fyrir mik-
il og óeigingjörn störf í þágu
þess.
Við eigum margar góðar minn-
ingar um Daníel. Oft áttum við
skemmtilegar samverustundir og
þegar hann kom heim af sjónum
fannst okkur gaman að fara sam-
an á kaffihús, í gönguferðir eða í
ferðalög. Þar sem Daníel átti ekki
ættingja hér á landi var hann
duglegur að rækta vinskapinn og
við eigum eftir að sakna þessa
góða drengs úr hópnum okkar.
Við þökkum þér samfylgdina,
kæri vinur, og minnumst þín með
hlýju og söknuði.
Baldur og Sigurborg.
Daníel Jacob Jensen
Mig langar í fá-
einum orðum að
minnast Skjaldar Tómassonar
og þakka honum samfylgdina
sem auðgaði líf mitt á margan
hátt. Ég vil þakka honum fyrir
dætur sínar sem ég hef átt sam-
leið með lengi og þær ásamt
honum hafa auðgað mitt líf.
Ég man fyrst þegar ég sá
Skjöld, maður varð hálfhrædd-
ur við hann, brúnaþungur og
stífur, en fyrir innan var því-
líkur gullmoli sem ég gleymi
aldrei. Traustari maður og
tryggari var vandfundinn, hann
passaði vel upp á sitt fólk, að
allir væru sælir og sáttir, þá
held ég að hann hafi verið sátt-
ur.
Óteljandi eru þær stundir
sem ég eyddi í Einilundinum
með Huldu dóttur hans og
margt var spjallað og brallað,
og var Skjöldur alltaf sem einn
af okkur krökkunum.
Skjöldur var alltaf flottur í
tauinu, vel greiddur og vel lykt-
andi, fylgdist vel með hvað var í
tísku og hvaða lykt strákarnir í
ræktinni voru með og þar hjálp-
aði Hulda dóttir hans honum oft
að finna út hvaða lykt var um
að ræða.
Ekki voru það margir dagar
sem maður mætti honum ekki á
göngu einhvers staðar í bænum,
teinréttur og flottur. Hann
skíðaði líka sem unglingur, oft
brunaði hann fram úr manni í
brekkunum þannig að maður
fékk á tilfinninguna að þar færi
unglingur en ekki fullorðinn
maður, slík var færni hans á
skíðum.
Skjöldur Tómasson
✝ Skjöldur Tóm-asson fæddist
19. október 1938 á
Akureyri. Hann
lést á heimili sínu
föstudaginn 11.
janúar 2013 og fór
útförin fram frá
Akureyrarkirkju
21. janúar 2013.
Eftir hjartaað-
gerðina í apríl fyrir
nærri tveimur ár-
um átti hann að
taka því rólega og
fara vel með sig,
það var nú senni-
lega ekki til í hans
orðabók og Hulda
var oft að segja við
pabba sinn að ekki
gera þetta og ekki
gera hitt, en þá
svaraði hann hnarreistur:
Hulda mín, ég ætla að lifa lífinu
lifandi og fara svo með hvelli,
sem hann svo sannarlega gerði.
Ég trúi því að þótt þetta sé erf-
itt og virðist oft óyfirstíganlegt
fyrir aðstandendur hans hafi
þetta verið eins og hann vildi
fara, ekki verða ósjálfbjarga og
upp á aðra kominn.
Margt langar mig að skrifa
og segja frá en ég geymi það í
minningasjóði mínum. Mér þótti
það mjög miður að koma ekki
við í Furulundinum áður en
hann fór, en það þýðir ekki að
tala um það, gert er gert og bú-
ið er búið.
Ég skal gera mitt besta í því
að styðja og styrkja Huldu og
Drífu Sól, sem hafa misst mikið,
og kveð ég nú Skjöld vin minn
með þessum orðum og bið al-
góðan Guð að styrkja Huldu,
Drífu Sól, Björk og aðra að-
standendur á þessum erfiðu
tímum.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Guðrún Jóhannsdóttir.