Morgunblaðið - 31.01.2013, Qupperneq 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is
-VOTTUN ER OKKAR GÆÐAMERKI
Sérfræðingar í gleri
… og okkur er nánast ekkert ómögulegt
Opið: 08:00 - 17:00alla virka daga
• Hert gler
- Í sturtuklefa
- Í handrið
- Í rennihurðir
- Í milliveggi
• Speglar
- Á baðið
- Á ganginn
- Á skápinn
- Í eldhúsið
- Í barnaherbergið
- Í svefnherbergiðSENDUM UM ALLT LAND
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ísland er fimmta landið sem er
komið með fastan samning um að
halda Sónar-hátíðina árlega,“ segir
Björn Steinbekk, skipuleggjandi,
tónlistarhátíðarinnar Sónar Reykja-
vík sem haldin verður í fyrsta skipti
í Hörpu föstudaginn 15. og laug-
ardaginn 16. febrúar nk. Bendir
Björn á að Sónar-hátíðin hafi fyrst
verið haldin í Barcelona árið 1994,
en árlega er þar haldin þriggja daga
hátíð í júní. Frá árinu 2002 hefur há-
tíðin verið haldin víðsvegar um
heiminn, m.a. í Buenos Aires, New
York, London, Frankfurt, Seoul,
Toronto, Montreal og Los Angeles.
„Í dag er hátíðin haldin árlega í
Barcelona, Höfðaborg, Tókýó og
Sao Paulo auk þess sem Reykjavík
bætist nú í hópinn,“ segir Björn og
tekur fram að hátíðin hérlendis sé
haldin í samstarfi við hátíðina í
Barcelona. „Það er auðvitað ekki
einfalt að feta í fótspor Sónar Barce-
lona, sem hefur verið brautryðjandi
á sínu sviði um árabil. Engu að síður
teljum við vel raunhæft að setja upp
viðburð sem verður enginn eft-
irbátur Sónar Barcelona hvað varð-
ar tónlistaratriði og stemningu,“
segir Björn.
Breyta hluta af bílakjallara
Hörpu í næturklúbb
Að sögn Björns er á Sónar-
hátíðunum lögð mikil áhersla á að
blanda saman skemmtun og til-
raunastarfsemi þar sem það nýjasta
í framsækinni tónlist og tengdum
listum fái að njóta sín. „Á öllum Són-
ar-hátíðum er vakin athygli á þeirri
gerjun sem á sér stað í rafrænni
tónlist og sýnt hvernig hún sam-
tvinnast ýmsum öðrum listgreinum.
Um leið er leitast við að kalla saman
bæði þekkta listamenn og upprenn-
andi nýliða, sem gerir hátíðina að
suðupotti nýrra hugmynda og
framþróunar á öllum sviðum hljóð-
og sjónlistar.“
Samkvæmt upplýsingum frá Birni
munu um tuttugu erlendir lista-
menn, hjómsveitir og plötusnúðar
troða upp á hátíðinni auk um þrjátíu
íslenskra tónlistarmanna og plötu-
snúða. „Meðal þeirra sem koma
fram eru japanski listamaðurinn
Ryuichi Sakamoto sem ásamt þýska
raftónlistarmanninum Alva Noto
mun leika í Norðurljósum Hörpu.
Sakamoto vann til Óskarsverðlauna
fyrir tónlist sína í myndinni The
Last Emperor (1987) og hefur á
ferli sínum starfað með fjölda
þekktra listamanna. Af öðrum má
nefna Modeselektor sem er þekkt
þýskt teknóband, en það spilar í
Silfurbergi. Squarepusher leikur í
Silfurbergi, en hann er ásamt Aphex
Twin talinn brautryðjandi í raf-
tónlist í Bretlandi. Jafnframt má
minnast á James Blake sem átti
mest spilaða lagið á Íslandi í fyrra,
„Limit to your love“, en hann mun
leika í Silfurbergi auk þess að troða
upp sem plötusnúður í bílakjallara
Hörpu,“ segir Björn og bendir á að
hluta af bílakjallara tónlistarhússins
verður breytt í næturklúbb þar sem
íslenskir og erlendir plötusnúðar
munu þeyta skífum meðan á hátíð-
inni stendur ásamt erlendum og inn-
lendum danstónlistarhljómsveitum.
„Af íslenskum listamönnum má
nefna GusGus, Bloodgroup, Retro
Stefson, Ásgeir Trausta og Mug-
ison, en hann er einmitt að fara að
hita upp fyrir Of Monsters and
Men,“ segir Björn, en þess má geta
að allar nánari upplýsingar um dag-
skrá og listamenn hátíðarinnar má
nálgast á sonarreykjavik.com. Þar
má einnig nálgast miða sem og á
harpa.is og midi.is. Aðspurður segir
Björn miðasöluna hafa farið vel af
stað, en gert er ráð fyrir að gestir
hátíðarinnar geti alls orðið allt að
3.500 talsins.
Að sögn Björns eru skipuleggj-
endur þegar farnir að huga að
næstu hátíð að ári. „Við ætlum að
stækka hátíðina strax á næsta ári,
bæta við einum tónleikastað og
bjóða upp á þriggja daga dagskrá í
stað tveggja,“ segir Björn og tekur
fram að hann sé þegar byrjaður að
bóka listamenn sem koma eigi fram
að ári.
Suðupottur nýrra hugmynda
Listamaður Meðal þeirra sem fram koma á Sónar Reykjavík er japanski listamaðurinn Ryuichi Sakamoto.
050 íslenskir og
erlendir listamenn
koma fram á Sónar
Þekktur Margir þekkja vafalaust
lagið Limit to Your Love í flutningi
James Blake. Hann mun koma fram
í Silfurbergi og í kjallara Hörpu.
Fjölhæfur Sakamoto samdi tónlist-
ina fyrir myndinni Merry Christmas
Mr. Lawrance (1983) og fór með eitt
aðalhlutverka ásamt David Bowie.
Málþing verður haldið í Norræna
húsinu í dag, fimmtudag kl. 13 til 16,
um varðveislu og skráningu gagna
sem tengjast Halldóri Laxness.
Fjöldi allskyns gagna er til eftir
og um Halldór og eru þau varðveitt
á mörgum stöðum. Má þar á meðal
nefna hljóðrit, ljósmyndir, handrit
og kvikmyndir. Þar sem varðveislu-
staðirnir eru margir og skráningar-
kerfin ólík er mikilvægt að yfirsýn
sé höfð yfir þessi menningar-
verðmæti. Málþingið er haldið til að
vekja athygli á margbreytileika
minjanna og þeirri hættu sem steðj-
að gæti að ef ekki er vel haldið utan
um slík gögn.
Með framsögu verða Margrét Sig-
urgeirsdóttir, safnastjóri RÚV, og
Hreinn Valdimarsson tæknimaður,
Erlendur Sveinsson, forstöðumaður
Kvikmyndasafnsins, Margrét Hall-
grímsdóttir þjóðminjavörður og
Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir
landsbókavörður. Í pallborðs-
umræðum bætist Fríða Björk Ingv-
arsdóttir, formaður stjórnar
Gljúfrasteins, í hópinn.
Kolbrún Halldórsdóttir stýrir
málþinginu og umræðum.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Mikilvirkur Verk Halldórs Laxness hafa varðveist í handritum, hljóðrit-
unum, sendibréfum og kvikmyndum, en hvernig eru gögnin varðveitt?
Rætt um gögn um og
eftir Halldór Laxness
Fjórir viðburðir eru á dagskrá
Myrkra músíkdaga í dag:
Kl. 12.15 Forleikur að Myrkum
músíkdögum í
Kaldalóni
Hörpu: Guðrún
S. Birgisdóttir
flautuleikari og
Peter Máté pí-
anóleikari flytja
verk eftir Þorkel
Sigurbjörnsson,
Snorra Sigfús
Birgisson og Jón Nordal.
Kl. 16.05 Setningarathöfn í
Efstaleiti 3: Þóra Einarsdóttir
sópran, Ágúst Ólafsson barítón og
píanóleikararnir Eva Þyri Hilm-
arsdóttir og Helga Bryndís Magn-
úsdóttir frumflytja ný sönglög efir
Atla Heimi Sveinsson. Aðgangur
ókeypis og allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir. Tónleikarnir verða
í beinni útsetningu á Rás 1.
Kl. 19.30 Opnunartónleikar í
Eldborg Hörpu: Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands frumflytur þrjú ný
íslensk verk eftir Gunnar Andreas
Kristinsson, Pál
Ragnar Pálsson
og Davíð Brynj-
ar Franzson auk
þess sem flutt er
verk eftir Gerald
Barry. Einleik-
ari er Una
Sveinbjarnar-
dóttir fiðluleik-
ari en hljómsveitarstjóri Ilan Vol-
kov.
Kl. 22 í Kaldalóni. Frumflutt
verða níu ný verk, sem og eitt
eldra, eftir m.a.
Jesper Ped-
ersen, Úlfar
Inga Haralds-
son, Hallvarð
Ásgeirsson Her-
zog, Lydíu Grét-
arsdóttur, Kjart-
an Ólafsson og
Pál Ívan Páls-
son. Hildigunnur Halldórsdóttir
leikur einleik á fiðlu og Úlfar Ingi
á kontrabassa auk þess sem Saga
Sigurðardóttir dansari kemur
fram á tónleikunum.
Myrkir
músíkdag-
ar settir