Morgunblaðið - 03.01.2013, Side 18
18 | MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að er alltaf rétti tíminn til
að breyta um lífsstíl,
hverfa frá því sem ekki
virkar og fara inn á nýjar,
hollari og skemmtilegri
brautir,“ segir Þorbjörg Hafsteins-
dóttir, hjúkrunarfræðingur og nær-
ingarþerapisti. „Upphaf árs er þó
góður tími til að snúa við blaðinu því
þá fáum við tækifæri til að líta um
öxl og vega og meta hvar við stönd-
um. Heilsan er það dýrmætasta sem
við eigum en við áttum okkur
kannski ekki á því fyrr en hún fer að
gefa sig, oft langt fyrir aldur fram.
Þá sést svart á hvítu hvernig við höf-
um ofboðið líkama og sál, meira og
minna meðvitað.
Auðvitað hefur hver og einn alltaf
val. Þú getur ákveðið að vera þar
sem þú ert núna og haldið áfram að
eldast alltof hratt; verða feitari,
stirðari og latari. Það er óumflýj-
anlegt ef þú ert á vondum stað en
ákveður að breyta engu. Það kostar
talsvert að sóa lífinu þannig, en ef þú
ert til í að borga reikninginn þá er
það vitaskuld þín ákvörðun. Þetta er
þín lífssýn og hún á rétt á sér, alveg
eins og mín.“
Vafasöm mantra
Aðspurð kveðst Þorbjörg ekki
fylgjandi því að fólk breyti um lífsstíl
með heilsuátaki. „Getum við ekki
verið sammála um að taka þetta orð,
átak, út úr málinu þegar það er not-
að í þeim skilningi að hlúa að sér?
Það kyndir undir þann misskilning
að það sé barátta og stríð og svaka-
lega erfitt að bæta heilsuna og hugsa
vel um sig.“
Hún segir það vissulega geta ver-
ið áskorun fyrir suma að losa sig úr
úreltu mynstri, breyta matarvenjum
og byrja að hreyfa sig. „Ég er þó
með skilaboð til þeirra sem hafa
hingað til kosið að gera ekkert í sín-
um málum og finnst það eitt erfitt að
lesa þessar línur: Það krefst mikillar
orku að gera ekki neitt. Margir hafa
í huganum samið sína eigin sögu,
sem gæti til dæmis heitið Hundrað
ástæður fyrir því að breyta engu, og
þar við situr. Fullyrðingarnar verða
að vafasamri möntru sem lifað er
eftir.“
Leiðin út úr neikvæðu mynstri er í
raun sáraeinföld, að mati Þor-
bjargar. „Skrifaðu sögu þína upp á
nýtt og breyttu fullyrðingunum yfir í
ég kann, ég get, ég vil. Snúðu við
blaðinu og komdu þér á óvart. Það er
enginn að ætlast til þess að það sé
gert á nokkrum dögum. Ég skrifaði
bókina 10 árum yngri á 10 vikum til
að sýna hvernig hægt er að koma sér
í gott form á tveimur og hálfum
mánuði. Það hættir auðvitað ekkert
þar en það tekur um það bil 10 vikur
að sættast við breytingarnar, venj-
ast nýjum mat, losna við sykurfíkn-
ina og svo framvegis.“
Orka og jafnvægi
Hún breytti sjálf um lífsstíl og tal-
ar því af eigin reynslu. „Það er langt
síðan að ég tók ákvörðun um að
halda fullri orku, vera áhugasöm um
lífið og lifa því vakandi og meðvituð.
Ég fjalla einmitt um þetta í nýjustu
bókinni minni, 9 leiðir til lífsorku,
hvað þú ert í rauninni fær um að öðl-
ast ef og þegar þú velur að borða
rétt og hreyfa þig. Þú uppskerð svo
margt; orku, meðvitund, hugrekki,
skýra hugsun og jafnvægi.
Ég er ekki að tala um að fólk gjör-
breyti yfir í einhverjar fram-
andlegar fæðutegundir sem það ekki
þekkir, heldur velji gott hráefni og
borði hollan mat í hæfilegum
skömmtum. Sjálf er ég klárlega pró-
teintýpa og verð að fá minn skammt
af fiski eða góðu kjöti á hverjum
degi. Ég borða jafnframt mikið af
hráfæði og bý mér til ávaxta- og
grænmetisdjús oft í viku.“
Þorbjörg er búsett í Kaupmanna-
höfn, þar sem hún starfar sem nær-
ingarþerapisti og lífsstílsráðgjafi.
Hún segir margt hafa áunnist hér-
lendis á sviði heilsueflingar, þó að
árangurinn mætti vera betri. „Ég
vildi að ég hefði töfrasprota og gæti
galdrað fram löngun hjá íslensku
þjóðinni til að hlúa betur að sér og
þykja vænt um sig. Þá á ég ekki við
eigingjarna sjálfselsku heldur að
fólk finni til væntumþykju og þakk-
lætis fyrir líkama sinn og lífið. Ef
þetta er til staðar þá leitumst við
ósjálfrátt við að næra okkur á alvöru
mat, góðum og næringarríkum.
Það er auðvitað margt í neyslu-
venjum og matarræði okkar Íslend-
inga sem við þurfum að laga. Það er
til dæmis hægt að skemmta sér og
njóta nærveru fjölskyldu og vina án
þess að sulla í áfengi. Það má vel
Komdu þér á óvart
Þorbjörg Hafsteindóttir
næringarþerapisti segir
það mun auðveldara en
margir haldi að snúa við
blaðinu og taka upp hollari
lífshætti.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ósiðir Þorbjörg Hafsteinsdóttir segir margt í matarræði og neysluvenjum okkar Íslendinga sem við þyrftum að laga; það sé til dæmis hægt að skemmta sér án þess að sulla í áfengi.
Mánuðurinn sem þú snýrð við
blaðinu, skref fyrir skref.
1. Drekktu meira vatn, 8 stór glös
af vatni daglega, byrjaðu í dag.
2. Fækkaðu kaffibollunum um
einn.
3. Borðaðu tvær gulrætur og eina
rauða papriku, til viðbótar við
daglega grænmetisskammtinn.
4. Skrifaðu niður hvað þú borðar
yfir daginn.
5. Skrifaðu á ný hvað þú borðaðir
í dag.
6. Skoðaðu matarlistana frá því í
gær og fyrradag. Settu rauðan
hring utan um allt brauð, kökur,
mat sem inniheldur sykur, sæl-
gæti og gos. Festu blöðin á ís-
skápinn.
7. Skiptu út öllu brauði í morg-
unmatnum. Borðaðu í staðinn
hreint skyr með ferskum eða
frystum bláberjum, möndlus-
pónum, smá hunangi og rjóma.
8. Skrifaðu niður hvernig þér líð-
ur, á skalanum 1-10: magi og
melting, orka, svefn, liðir og
skrokkur, höfuð og einbeiting.
Stígðu á vigtina og skráðu lík-
amsþyngd.
9. Ef vinnustaðurinn er innan við
1,5 km frá heimili þínu skildu
bílinn eftir heima og njóttu þess
að ganga.
10. Útvegaðu þér betri skó sem
henta til lengri gönguferða.
11. Fækkaðu kaffibollunum aftur
um einn. Prófaðu að drekka
þess í stað 1 bolla af grænu tei.
12. Borðaðu salat í hádeginu, með
kjúklingi, eggjum eða fiskmat.
13. Kauptu þér fjölvítamín, til
dæmis Eve frá NOW fyrir kon-
ur, Adam fyrir karla. Taktu
jafnframt D3-vit, 2000 iu, þó þú
takir lýsi.
14. Búðu til hollan orkubita í milli-
mál; ósaltar hnetur, möndlur,
kakónibbur og goji-ber. Bland-
aðu í skál og skiptu niður í 50-
75g poka sem þú mátt borða
daglega, einn poka á dag.
15. Skrifaðu niður hvernig þér líð-
ur á skalanum 1-10, eins og á 8.
degi, finnurðu fyrir jákvæðri
breytingu? Ef já, skrifaðu það á
blað og festu á ísskápinn.
16. Borðaðu sætar kartöflur með
kvöldmatnum í staðinn fyrir
þær hefðbundnu.
17. Brostu til allra sem verða á vegi
þínum í dag, líka til þeirra sem
þú þekkir ekki.
18. Pantaðu prufutíma hjá einka-
þjálfara í ræktinni eða prófaðu
einn jógatóma, þú þarft að
styrkja vöðvana núna.
19. Blandaðu þér próteinhristing í
morgunmat. Uppskriftir er m.a.
að finna í bókinni Matur sem
yngir og eflir.
20. Vonda samviskan sem er að
naga þig út af þessu máli sem
þú átt að vera að búin/n að
ganga frá? Gerðu það í dag.
21. Kláraðu kaffidæmið, bara 1
bolli á dag. Fáðu þér hins vegar
einn bolla í viðbót af grænu tei.
22. Prófaðu, í staðinn fyrir ís í eft-
irrétt, að fá þér frosin villt blá-
ber með 30g af 85% dökku
súkkulaði í litlum bitum, van-
illudufti og smá sætuefni og
pínu rjóma eða möndlurjóma.
23. Skiptu út hefðbundna brauðinu í
eftirmiðdaginn og fáðu þér 1
sneið af 100% heilkorna-, spelt-,
rúg- eða byggbrauði. Borðaðu
með reyktan silung, harðsoðin
omega-egg og tómat, hummus
eða cheddar-ost og grænmeti.
24. Gerðu eitthvað skemmtilegt
með fjölskyldunni, utandyra.
Göngutúr í Heiðmörk, sund,
skautar eða hvað sem þér dettur
í hug.
25. Byrjaðu að taka inn Magnesium
Citrat á kvöldin, 400 mg dag-
skammtur.
26. Hvað er langt síðan þú heimsótt-
ir mömmu, eða ömmu eða afa?
Láttu verða af því í dag.
27. Skrifaðu niður allt það sem þú
borðar yfir daginn. Settu hring
31 heillaskref – eitt á dag