Morgunblaðið - 18.04.2013, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2013
Lára Halla Sigurðardóttir
larahalla@mbl.is
Ár hvert sækir sama grágæsin Blön-
dósinga heim og vekur koma hennar
ætíð kæti hjá heimamönnum. Gæsin,
sem er kvenkyns, var merkt við lög-
reglustöðina í bænum árið 2000
ásamt 113 öðrum gæsum. Gæsin,
sem er svokölluð heiðursgæs bæj-
arins, er nokkuð gæf og á hún sér
fastan dvalarstað á túnunum við
Heilbrigðisstofnunina, áður héraðs-
hælið.
Hún spígsporar gjarnan fyrir ut-
an íbúðir eldri borgara, þeim til mik-
illar gleði, að sögn Jóns Sigurðs-
sonar, fréttaritara Morgunblaðsins.
Þetta er því í fjórtánda skipti, að
minnsta kosti, sem gæsin lætur sjá
sig hér landi. Hún er sú síðasta úr
hópnum sem skilar sér enn heim frá
Bretlandseyjum, að því best er vitað.
Síðast sást til hennar um 5. júlí í
fyrra. „Þá var hún frekar tætingsleg
og þar að auki bæði afkvæma- og
makalaus,“ segir Jón. Þetta þótti
benda til þess að hún væri á síðasta
snúningi. Annað kom á daginn því
nú er hún mætt á svæðið, þrátt fyrir
hrakspár, með karl sér við hlið.
Heimahagarnir tóku ekki vel á
móti heiðursgæs sinni því nú er
snjór og kalt á Blönduósi. Talið er að
gæsin hafi vetursetu við austur-
strönd Bretlandseyja.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Velkomin heim Grágæsin fræga sést hér á túni fyrir utan Heilbrigðisstofun Blönduóss ásamt maka sínum.
Heiðursgæs Blöndu-
óss komin til landsins
Fjórtánda skipti hennar í bænum Gleður heimamenn
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Handagangur í öskjunni Krían lætur iðulega sjá sig hér á landi eftir 20.
apríl ár hvert og er því væntanleg á næstu dögum.
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
„Hann hefur það nokkuð gott.
Hann er með slitin liðbönd í hné,
skrámaður og svolítið lemstraður
líka,“ segir Jökull Bergmann, sem
rekur fyrirtækið Arctic Hele Ski-
ing sem annast þyrluskíðaferðir á
Tröllaskaga, um ástand leiðsögu-
mannsins sem lenti í snjóflóði í
fyrrakvöld. Hann segir leiðsögu-
manninn einn þann reyndasta hér á
landi á þessu sviði og með mikla
reynslu af þyrluskíðaferðaleiðsögn
frá Kanada. Hann mun ekki fara á
skíði aftur í vor að sögn Jökuls en
þó er talið að hann nái sér að fullu
og geti farið á skíði strax á næstu
vertíð.
„Þeir voru að bíða eftir að hann
kannaði aðstæður í brekkunni. Þeir
voru á öruggum stað og fundu ekk-
ert fyrir flóðinu nema að horfa upp
á það,“ segir Jökull um fjóra
bandaríska ferðamenn á vegum
fyrirtækisins sem voru ásamt
fjallaleiðsögu-
manni á skíðum í
fyrrakvöld þegar
snjóflóð féll á
leiðsögumanninn
á Sauðanesi. Jök-
ull segir ekkert
ama að ferða-
mönnunum og
þeir hafi fljótt
verið komnir
heim í kvöldmat.
Hann segir snjóflóð vera eitt-
hvað sem þyrluskíðaferðamenn
þurfi að takast á við oft og tíðum á
hverjum vetri.
Að sögn Jökuls liðu 23 mínútur
frá því flóðið féll og þangað til leið-
sögumaðurinn var kominn á
sjúkrahúsið á Akureyri, en hann
var á þyrlu ekki langt frá og flutti
manninn til Akureyrar.
Jökull segir að verkferlar fyrir-
tækisins hafi allir staðist og sam-
skipti við 112, sjúkrahúsið og flug-
turn hafi verið með miklum
ágætum.
Var kominn á spít-
ala 23 mínútum
eftir að flóðið féll
Með slitin liðbönd í hné Þurfa að
takast oft á við snjóflóð á hverjum vetri
Jökull
Bergmann
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Jákvæðu fréttirnar sem Árni Jó-
hannsson, forstöðumaður mann-
virkjasviðs hjá Samtökum iðnaðar-
ins, getur nefnt er að verið sé að
byggja heldur fleiri íbúðir, hús og
hótel og þá hleypi framkvæmdir við
fangelsi á Hólmsheiði og Hús ís-
lenskra fræða við Háskóla Íslands
lífi í verktakamarkaðinn. Fram-
kvæmdir við Vaðlaheiðargöng og
Norðfjarðargöng hefjist líka brátt.
„En það er nánast kyrrstaða í öðru
en þessum byggingarframkvæmd-
um,“ segir Árni og undir það taka
forsvarsmenn tveggja stórra verk-
takafyrirtækja sem rætt var við í
gær.
Árni bendir á að framkvæmdir
við Búðarhálsvirkjun séu um það
bil að klárast og lítið annað í píp-
unum, nema þá helst framkvæmdir
á Bakka við Húsavík. Ef allt fari
þar á besta veg muni jarðvinna
hefjast þar í haust og framkvæmdir
hefjast með vorinu 2014 en alls
þurfi að byggja fyrir um 40 millj-
arða. „Stóru fyrirtækin eru meira
eða minna að næra sig erlendis,“
segir Árni.
Fá verkefni í Noregi
Staðan hjá Suðurverki er í sjálfu
sér góð, segir Guðmundur Jónsson,
verkefnisstjóri hjá fyrirtækinu.
Suðurverk er m.a. að leggja nýjan
Vestfjarðaveg um Kjálkafjörð og
Mjóafjörð og er með verkefni á
Búðarhálsi og í Noregi í samvinnu
við Ístak. Þá átti fyrirtækið lægsta
tilboð í gerð Norðfjarðarganga í
samvinnu við Metrostav. „Við get-
um ekki kvartað en almennt er
þetta frekar dauft,“ segir hann.
Verkefnastaðan hjá Íslenskum
aðalverktökum hefur verið ágæt en
Karl Þráinsson, forstjóri ÍAV, segir
þó að bransinn sé almennt dapur á
Íslandi. Mörgum verkefnum er nú
að ljúka, s.s. viðbyggingu við Há-
skólatorg og frystigeymslu á
Granda. Á móti kemur að fram-
kvæmdir við Vaðlaheiðargöng hefj-
ast brátt og í Noregi bíður
þeirra að öllum líkindum
20 milljarða króna jarð-
gangaverkefni, Solbak-
ken-göngin.
Stóru fyrirtækin næra sig erlendis
Bygging fangelsis og fræðahúss hleypa lífi í markaðinn
Jarðgöng á Íslandi og Noregi Almennt dapur bransi
Svo virðist sem nokkrar farfuglategundir séu seinna á ferðinni í ár en oft
áður. Kalt hefur verið í Evrópu síðustu vikur og er það talin vera skýring á
seinkomu fuglanna. „Auðvitað hefur það áhrif,“ segir Brynjúlfur Brynj-
ólfsson, fuglaáhugamaður á Höfn í Hornafirði. „Ef þú þarft að fita þig fyr-
ir svona ferð og allt er frosið, þá leggur þú ekki af stað.“
Hann segir sandlóuna vera eina af þeim tegundum sem er heldur
seinna á ferðinni en venjulega. „Við höfum ekki séð sandlóu ennþá,“ seg-
ir Brynjúlfur. „Ég spái því að krían komi fljúgandi með sumarið 24. apríl,“
segir hann og slær á léttari strengi.
Seinni á ferðinni
KULDINN Í EVRÓPU SEINKAR KOMU FARFUGLANNA
Vegagerðin hefur 12,5 milljarða á
fjárlögum 2013 til viðhalds vega og
nýframkvæmda. Á þessu ári renna
flestar krónur í Norðfjarðargöng
eða 1,2 milljarðar og í breikkun Suð-
urlandsvegar á Hellisheiði, 1,1 millj-
arður. Framkvæmdir við Vaðlaheið-
argöng eru ekki teknar með enda
eru göngin grafin af Vaðlaheið-
argöngum hf., reyndar með
láni frá ríkinu.
Rögnvaldur
Gunnarsson, forstöðumaður fram-
kvæmdadeildar Vegagerðarinnar,
segir að miðað sé við að viðhald á
bundnu slitlagi kosti þrjá milljarða
árlega en nú sé 2,2 milljörðum varið
í þann lið, af samtals 5 milljörðum
sem ætlaðir eru til viðhalds vega.
Til nýframkvæmda eru ætlaðir
tæplega 7,5 milljarðar. Fram-
kvæmdir við Vestfjarðaveg kosta
um milljarð á þessu ári og 540
milljónir renna í veginn á milli
Dettifoss og Norðausturvegar.
Um 900 milljónir kostar að
leggja bundið slitlag á ýmsa tengi-
vegi, svo nokkur af helstu verkefn-
unum séu nefnd.
Hefðu þurft meira í viðhald
FÆR 12,5 MILLJARÐA TIL VIÐHALDS OG NÝFRAMKVÆMDA
Það geta allir
notað golfkortið
Til eru tvær gerðir af golfkortinu,
einstaklingskort og fjölskyldukort.
Einstaklingskort kostar kr. 9.000
Fjölskyldukort kostar kr. 14.000 og gildir fyrir
tvo fullorðna og tvö börn 16 ára og yngri.
30
Golfvellir
1 kort
Golfkortið veitir fría spilun á 28
golfvelli víðsvegar um landið.
Að auki gildir kortið
2 fyrir 1 á nokkra velli.
Allar nánari upplýsingar má
finna á heimasíðu okkar
www.golfkortid.is
www.golfkortid.is www.golfkortid.is