Morgunblaðið - 18.04.2013, Blaðsíða 46
46 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2013
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Neskaupstaður Elmar Rafn fæddist
18. júlí kl. 22.57. Hann vó 4.200 g og
var 54 cm langur. Foreldrar hans eru
Aðalbjörg Ósk Guðmundsdóttir og
Stefán Einar Elmarsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Fríða Rún fæddist 23. júlí
kl. 19.52. Hún vó 4.335 g og var 53 cm
löng. Foreldrar hennar eru Auður
Reynisdóttir og Daníel Freyr Gunn-
arsson.
Íþróttirnar eru bæði áhugamál og lífsstíl. Ég stundaði fótboltannlengi, bæði sem leikmaður og þjálfari, og enn í dag fylgist ég velmeð og fer á leiki. Síðan er frábært eftir vinnudaginn að fara út
skokka, ganga eða í hjólatúr. Þannig losar maður um streitu og finnur
lausnir á viðfangaefnum,“ segir Þórarinn Ingólfsson, aðstoð-
arskólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hann er Eyjamaður,
fæddur 1958. Hann kom ungur á fastalandið, fór í Menntaskólann að
Laugarvatni og síðar Íþróttakennaraskólann þar. Þau Anna Guð-
mundsdóttir, eiginkona hans, settust að á Selfossi um 1980.
Fjölbrautaskóli Suðurlands var stofnaður 1981. Þórarinn var meðal
fyrstu starfsmanna skólans og hefur starfað þar óslitið síðan. „Það er
gaman að starfa með fólki, sem er ólíkt eins og það er margt,“ segir
Þórarinn sem tók við stjórnunarstarfi í skólanum fyrir um tíu árum.
„Ég sakna þess að vera ekki í sömu tengslum við nemendur og áður
var. Vissulega fylgist maður með krökkunum, en stærstur hluti
starfsins er almennt utanumhald,“ segir Þórarinn.
„Já, og svo gengur tónlistin eins og rauður þráður í gegnum alla
mína tilveru. Ég bæði fer á tónleika og gríp stundum í gítar,“ segir
Þórarinn en þau Anna eiginkona hans eiga tvo syni. Ingólf tónlistar-
mann, Ingó Veðurguð, en yngri er Guðmundur, leikmaður með knatt-
spyrnuliði Sarpsborg 08 í Noregi. sbs@mbl.is
Þórarinn Ingólfsson er 55 ára í dag
Skólamaður „Þannig losar maður um streitu og finnur lausnir á við-
fangsefnum,“ segir Þórarinn Ingólfsson sem er 55 ára í dag.
Íþróttir, skólinn og
grípur í gítarinn
Fjölskylda
Ásdís giftist 28.3. 1970 Einari
Gunnari, f. 10.6. 1926, d. 7.2. 1972,
hrl. og sýslumannsfulltrúa á Ísafirði,
Á
sdís Kvaran fæddist við
Sólvallagötuna í
Reykjavík 18.4. 1938 og
ólst þar upp. Hún lauk
stúdentsprófi frá MR
1961 og embættisprófi í lögfræði frá
HÍ 1972, stundaði síðar framhalds-
nám í lögfræði við Kaupmannahafn-
arháskóla 1994-95 og í Evrópurétti
við Háskólann í Bonn 1995-96.
Ásdís var um skeið búsett í Mos-
fellssveit og var íslenskukennari við
Gagnfræðaskóla Mosfellssveitar
1973-84. Hún hóf síðan störf hjá
Skattstofunni í Reykjavík og var lög-
fræðingur þar á rannsóknadeild virð-
isaukaskatts þar til fyrir fimm árum.
Ásdís hefur alla tíð haft mikinn
áhuga á sögu Íslands og bók-
menntum, sér í lagi fornbókmennt-
unum og íslenskri ljóðlist síðustu ald-
ar. Hún er söngelsk með afbrigðum
og sér í lagi fróð um íslensk sönglög
og sönglagatexta, enda hrókur alls
fagnaðar þar sem fólk tekur lagið.
Ásdís las ævisögu Kristínar Dahl-
sted í Ríkisútvarpið fyrir rúmum ára-
tug en sagan var skráð af Hafliða
Jónssyni og var nú nýlega endur-
útgefin. Væri ekki úr vegi að út-
varpsmenn endurflyttu þennan lest-
ur Ásdísar sem mæltist sérlega vel
fyrir á sínum tíma.
Ásdís Kvaran lögfræðingur – 75 ára
Á Ísafjarðarárunum Ásdís og Einar Gunnar ásamt dótturinni Hjördísi. Myndin er tekin árið 1971.
Söngglaða ekkjufrúin
Í Apavatnsför Ásdís á flandri á Suðurlandi með sínum kæra vini, Þorsteini
heitnum Gylfasyni heimspekingi.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isGLER OG SPEGLAR 54 54 300 • smiðjuvegi7 • kópavogi
sólvarnargler • þakgler
sandblásið gler • k-gler • hillur
milliveggir • handrið • skjólveggir
sjálfhreinsandi gler • o.fl. o.fl.SÍðAn 19
69
ALLT
í gleri
30%
afsláttur
SPEGLA
dagarSEndum
um ALLT LAn
d
vottuð framleiðsla