Morgunblaðið - 18.04.2013, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 18.04.2013, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2013 ✝ Kristín Ást-hildur Jóhannesdóttir kölluð Dídí, fædd- ist á Gauksstöðum í Garði 10. apríl 1928. Hún lést á dvalar- og hjúkrunar- heimilinu Grund 3. apríl 2013. Foreldrar henn- ar voru Jóhannes Jónsson, formaður og útvegs- bóndi á Gauksstöðum og kona hans, Helga Þorsteinsdóttir frá Melbæ í Leiru. Dídí ólst upp á Gauksstöðum í stórum systk- inahópi, þau eru: Þorsteinn, f.1914, d. 1995, Kristín, f. 1915, d. 1982, Jón, f. 1916, d. 1995, Gísli, f. 1918, d. fyrir átti Svanfríður börnin Sig- ríði, Egil og Ingibjörgu Örlygs- börn. 2) Jóhannes Gaukur, f. 26. apríl 1950, kvæntur Stefaníu Karlsdóttur, þeirra synir eru Jakob Pétur og Bjarni Magnús. 3) Þorlákur, f. 18. desember 1952, kvæntur Ingu Þórð- ardóttur, þeirra börn eru Þur- íður og Björn Birgir. 4) Pétur Már, f. 25. september 1956, var kvæntur Hafdísi Ævarsdóttur, þeirra synir eru Ævar og Þor- steinn. 5) Matthildur Margrét, f. 4. ágúst 1961, var gilft Úlfari Þór Marinóssyni, dóttir þeirra er Una Kristín. Barna- barnabörnin eru ellefu og barnabarnabarnabörn eru tvö. Dídí og Pétur byrjuðu bú- skap sinn á Árbraut 17, (Bræðraborg) Blönduósi og fluttu 1965 í nýbyggt hús sitt að Árbraut 15 og hafa búið þar síð- an. Útför Kristínar Ásthildar, Dídíar, fer fram frá Fossvogs- kirkju í dag, 18. apríl 2013, kl. 15. 1919, Sveinbjörg, f. 1919, d. 2006, Ást- ríður, f. 1921, d. 1988, Gísli Steinar, f. 1924, Jóhannes Gunnar, f. 1926, d. 2001, Sigurlaug, f. 1931, d. 1933, Sigurlaug Erla, f. 1933, Matthildur, f. 1935, d. 1959 og Einar, f. 1937, d. 1995. Þann 28. nóvember 1948 gift- ist Dídí eftirlifandi eiginmanni sínum, Pétri Þorlákssyni. For- eldrar hans voru Þorlákur Jak- obsson og Þuríður Einarsdóttir. Þau eignuðust fimm börn. Þau eru 1) Þorsteinn, f. 13. maí 1949, kvæntur Svanfríði Blön- dal, þeirra dóttir er Lára, en Elsku mamma og amma. Okkur langar til að kveðja þig með fáeinum orðum. Nú ertu komin á nýjan stað og vonandi líður þér betur en þína síðustu daga hér. Er við kveðj- um þig langar okkur að þakka þér fyrir allt það sem þú gafst af þér á meðan þú lifðir. Við munum ávallt minnast þín sem fallegrar konu sem stóð fyr- ir sínu, það sem þú tókst þér fyr- ir hendur það gerðir þú vel og það var alltaf stutt í hláturinn hjá þér. Þú varst alltaf boðin og búin til að hjálpa og við erum þér ævinlega þakklátar fyrir allt það sem að þú kenndir okkur. Þú varst okkur ómetanleg. Í kveðjuskyni látum við hér fylgja með litla vísu sem þér þótti svo vænt um, eftir hann Þorgeir Kjartansson frænda þinn. Það er eins og þúsund kórar syngi með þéttum hreim og alvaldið sé með. Og það er eins og klukknaveröld klingi við kátan draum sem nóttin hefur léð. Ég sakna þín og sólin hefur kvatt og sorgin býr við hjartastað í mér. Ég segi þér vina líka soldið satt ég sef um nætur djúpt í brjósti þér. (Þorgeir Kjartansson.) Takk, elsku mamma og amma, fyrir allt, við söknum þín. Hvíl í friði í alheimi. Þínar Gréta Pétursdóttir og Una Kristín Úlfarsdóttir. Það var fyrir 37 árum sem leiðir okkar Dídíar lágu saman. Hún var þá að vinna á símstöð- inni á Blönduósi og ég í sumar- vinnu hjá frænda mínum við sím- stöðina í Bólstaðarhlíð. Þetta var meðan enn var hringt með sveif, þrjár langar og stutt eða eitt- hvað í þeim dúr. Öll símtöl út úr sveitinni þurftu að fara í gegnum Blönduós. Við Dídí urðum fljótt vinkonur og spjölluðum mikið saman. Hún var svo hress og skemmtileg, hafði smitandi hlát- ur sem kom öllum í gott skap og frá mörgu að segja. Mér fannst hún glæsileg kona, átti falleg föt elskaði skó og naut þess að punta sig. Hún sagði mér sögur af krökkunum sínum sem hún var endalaust stolt af. Svo átti hún von á sínu fyrsta barna- barni, það var gleðigjafinn hann Jakob Pétur sem fæddist þá um sumarið en síðan átti þeim eftir fjölga næstu árin. Dídí og Pétur áttu fallegt heimili á Blönduósi, ég man hvað mér fannst mikið til þess koma þegar ég heimsótti hana. Ekki datt mér í hug þá að þau hjón ættu eftir að verða tengdafor- eldrar mínir og ég tíður gestur á þeirra góða heimili. Dídí var fé- lagslynd kona og hafði gaman af að spila. Hún var líka mikil keppniskona og keppti í brids um árabil. Keppnisskapið kom víðar fram. Hún hafði mikinn metnað fyr- ir hönd barna sinna. Sem dæmi um það voru á þessum árum Jói og Donni miklir veiðimenn, veiddu bæði fugla og fiska. Oftar en ekki var afli þeirra bræðra sameiginlegur. Dídí lét sér það ekki nægja, hún þurfti að vita hver veiddi hvað og hvað hinir hefðu veitt. Vakti þetta gjarnan kátínu. Ung kom Dídí til náms við Kvennaskólann á Blönduósi eins og systur hennar tvær á undan. Allar kynntust þær eiginmönn- um sínum þar og settust að. Þrátt fyrir langa búsetu á Blönduósi mátti finna á Dídí að ræturnar lágu á bernskuslóðun- um, hún hugsaði suður fyrir heiðar eins og hún sagði oft eða að Gauksstöðum í Garði þar sem hún ólst upp. Síðustu mánuðina dvaldi hún á Dvalarheimilinu Grund. Hún hefur nú kvatt þessa jarðvist, komin til ásvina sinna sem á undan fóru og taka á móti henni. Ég kveð Dídí með söknuði og þakka henni sam- fylgdina Pétri og fjölskyldunni votta ég samúð mína. Hafdís Ævarsdóttir. Húnvetningar voru svo lán- samir að eiga um skeið Kvenna- skóla á Blönduósi. Þennan skóla sóttu stúlkur af öllu landinu til að nema kvenlegar dyggðir og urðu margar þeirra til að auka mannauð héraðsins. Laust fyrir miðja öldina komu þrjár systur frá Gauksstöðum í Garði hver á eftir annarri í Kvennaskólann á Blönduósi og snéru ekki heim aftur. Fyrst Sveinbjörg sem giftist Þórði bónda í Sauðanesi, síðan Ástríð- ur, móðir mín, sem giftist Torfa bónda á Torfalæk, og síðast Kristín Ásthildur, kölluð Dídí, sem giftist Pétri Þorlákssyni, bifvélavirkja á Blönduósi. Sagt var að amma og afi á Gauksstöðum hafi neitað fleiri systrum um að fara í Kvenna- skólann á Blönduósi. Húnvetn- ingar hefðu fengið nógu margar af hinum föngulegu og gjafvaxta dætrum þeirra. Það var náið samband á milli systranna og heimili Dídíar og Péturs ákveðinn miðpunktur á Blönduósi. Þar hittust þær oft í kaupstaðaferðum og gerðu út- tekt á fjölskyldu og öðru sam- ferðafólki, gleði þess og amstri. Frá þessum stundum er ennþá ómur af dillandi hlátri Dídíar frænku. Þangað komu líka margir í mat og kaffi sem áttu leið á verkstæðið til Péturs með bilaðan bíl eða vél. Systurnar tóku virkan þátt í uppeldi barna hver annarrar þó upplifun okkar frændsystkin- anna hafi ekki verið sú á þeim tíma. Fyrir okkur var hinn náni samgangur eðlilegur þáttur til- verunnar. Þær gerðu líka margt til að rækta tengsl stórfjölskyld- unnar og sjá til þess að frænd- fólkið þekktist. Ættarmótin hin síðari ár voru þeim til mikillar ánægju og geyma margar mynd- ir bros og blik í auga er þær litu yfir stórfjölskylduna á þeim stundum. Ég dvaldi hjá þeim hjónum, Dídí og Pétri, einn vet- ur vegna skólagöngu í unglinga- skóla við mjög gott atlæti. Nú hefur Dídí kvatt eftir lang- vinn veikindi þar sem Pétur ann- aðist hana löngum stundum af mikilli natni. Lífssýn þeirra systra var skýr. Þeim fannst dauðinn rök- réttur endir á lífsstarfinu þegar afkomendurnir voru teknir við amstri hversdagsins. Þegar þær kvöddu voru þær tilbúnar að yf- irgefa þetta tilverustig og full- vissar um tilvist annars og betra, þar sem ný og spennandi við- fangsefni biðu. Við Jón bróðir og fjölskyldur þökkum langa og gefandi sam- fylgd árin öll og sendum fjöl- skyldu Dídíar samúðarkveðjur. Jóhannes Torfason. Kristín Ásthildur Jóhannesdóttir ✝ Sæunn Jóns-dóttir fæddist í Hafnarfirði 7. des- ember 1934. Hún lést á heimili sínu 11. apríl 2013. Foreldrar henn- ar voru Jón Sig- urðsson, f. 21.9. 1910, d. 31.12. 1993, og Fanney Eyjólfsdóttir, f. 9.7. 1914, d. 3.7. 1989. Systkini Sæunnar eru: 1) Gréta, f. 24.9. 1937, d. 9.9. 2007, maki Gunnar Konráðsson, börn þeirra eru Konráð, Jón og Gunnar. 2) Sigurður Lárus, f. 9.4. 1943, maki Klara Sig- unn Jóhanni Skarphéðinssyni, f. 12.2. 1946. Foreldrar hans eru hjónin Skarphéðinn Björnsson, d. 17.2. 1998, og Sigurlaug Jó- hannsdóttir. Dóttir Sæunnar og Jóhanns er Sigurlaug, f. 3.10. 1971, giftist Sigþóri Árnasyni, þau slitu samvistum. Börn þeirra eru: 1) Hildur, f. 22.7. 1992. 2) Brynjar, f. 10.11. 1998. 3) Arnar, f. 20.5. 2001. Sæunn Jónsdóttir fæddist í Hafnarfirði og bjó þar alla tíð. Stundaði hún almenna skóla- göngu og vann hin ýmsu störf, lengst af hjá Hafnarfjarðarbæ, fyrst á bæjarskrifstofunum og síðan á heilsugæslu bæjarins alls í rúma fjóra áratugi. Útför Sæunnar verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 18. apríl 2013, og hefst athöfnin klukkan 13. urgeirsdóttir, d. 7.11. 2007, börn þeirra eru Sig- urgeir, Fanney og Guðrún Halla. Sæunn giftist Daníel Stefánssyni, þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Jón Karl, f. 7.1. 1957. Sambýliskona hans er Dian Marlina. Sonur þeirra er Alex Tómas, f. 7.12. 2002. 2) Eva, f. 1.6. 1958, gift Pétri Björnssyni. Dætur þeirra eru Sæunn Björk, f. 25.9. 1992 og Berglind Birna, f. 13.10. 1995. Hinn 24.12. 1970 giftist Sæ- Elsku besta mamma mín og vinkona mín, ég get ekki trúað því að ég sitji hérna og sé að skrifa kveðjuorð til þín, mamma þú varst mér svo mikið, við vor- um alltaf saman og gerðum svo mikið saman, við gátum talað um allt, og nú hef ég þig ekki lengur hjá mér. Þú hefur alltaf verið við hlið mér, hjálpað mér og leiðbeint mér í gegnum lífið. Og nú í öllum þessum breyt- ingum hjá mér þá þarf ég að hafa þig hjá mér, en ég reyni að trúa því að þú hafir þurft að fara til að hjálpa mér og börn- unum mínum í gegnum erfið- leikana og ætlir að styrkja okk- ur sem engill á himnum sem alltaf verður hjá okkur. Elsku mamma, ég skal hugsa um pabba og hafa hann hjá okk- ur þó að ég geti ekki lofað að ég muni elda sama góða matinn og þú eða brotið þvottinn jafn vel saman og þú gerðir og straujað skyrturnar, en ég mun gera mitt besta. Alltaf varstu boðin og búin til að gera allt sem ég bað þig um, alltaf með brosi og hlýjum faðmi. Alltaf tilbúin að taka á móti strákunum og hafa þá hjá þér þegar þeir voru veik- ir eða ekki var skóli, þeir eiga svo margar og góðar minningar með þér því þú gafst þeim svo mikið. Hildur mín saknar þín svo mikið því við vorum svo mikið saman við þrjár og alls staðar var talað um okkur sem ættliðina þrjá. Missir okkar er svo mikill, þú varst besta mamma og amma sem nokkur getur hugsað sér. Elsku mamma, guð geymi þig, ég kveð þig í hinsta sinn en minning þín mun ávallt vera í hjarta mér og fylgja mér og börnunum mínum. Þú varst alltaf svo nærgætin og skilningsrík, umhyggjusöm og hjartahlý. Þú varst skjól mitt og varnarþing. Við stóðum saman í blíðu og stríðu, vorum sannir vinir. Mér þótti svo undur vænt um þig, elsku mamma mín. (Sigurbjörn Þorkelsson.) Þín dóttir, Sigurlaug (Silla). Elsku mamma, amma og tengdamóðir. Það er svo erfitt að setjast niður og skrifa kveðjuorð, eng- inn getur fyllt það skarð sem þú skilur eftir þig en við þökkum fyrir þær minningar sem við eigum með þér og munum geyma þær og rifja þær upp með þér þegar við hittumst á ný. Það er ekki hægt að segja annað en að þú hafir verið ein- staklega hjartahlý manneskja sem vildir öllum vel. Söknuðurinn er svo mikill en við vitum að það er vel tekið á móti þér af foreldrum þínum og öðrum ættingjum og vinum. Í þessum örfáu orðum kveðj- um við þig í hinsta sinn og minnumst þín ávallt eins og þú varst. Við elskum þig og vitum að þú átt eftir að gæta okkar í ná- inni framtíð. Elsku Jói okkar, megi Guð styrkja þig í þessari miklu sorg og gefa þér þrek til að vinna úr henni með okkur. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þín dóttir og fjölskylda, Eva, Pétur, Sæunn Björk og Berglind Birna. Elsku besta amma mín, þú varst langbesta amma í heimi. Mér þótti svo vænt um þig, þú varst svo góð við mig að það var ekki eðlilegt. Þú saumaðir allt fyrir mig sem ég gerði gat á. Ég man alltaf þegar við fórum í útilegu og hlógum saman, þegar ég var veikur mátti ég alltaf koma til þín og við spiluðum og hlógum saman. Þú eldaðir klár- lega besta kjúkling í öllum heiminum. Elsku amma mín, næstu mörk sem ég skora og næstu leikir sem ég vinn eru fyrir þig og ég veit að þú munt alltaf fylgjast með mér. Ég skal passa afa fyrir þig. Takk fyrir allt sem þú hefur gert og ert að fara að gera fyrir mig. Þinn besti Arnar. Elsku besta amma mín, ég sakna þín svo mikið og trúi ekki að þú sért farin, hver á núna að vera okkur til halds og trausts og styrkja okkur eins og þú gerðir langbest? Þú varst svo frábær amma, algjörlega sú besta sem til var, það var allt hægt að tala um við þig og hægt að kíkja við hvenær sem var, þú varst alltaf með svar við öllu og við vorum alltaf velkomin til þín. Þú varst svo hraust og sterk og hvattir mig til að vera það líka og ég veit að einn daginn verð ég það. Þú varst mín besta saumakona og gast reddað öllu og varðst aldr- ei þreytt á því að þurfa að laga svona mikið fyrir svona klaufa eins og mig. Það þurfti ekki mikið til að skemmta þér og þú varst alltaf svo glöð og góð við allt og alla, ég hélt þú yrðir hundrað ára og þá hefðum við átt mörg, mörg ár í viðbót því það var svo margt sem ég átti eftir að sýna þér, upplifa með þér og þú áttir eftir að kenna mér en ég vona að þú fylgir mér frá öðrum stað og heldur áfram að vera til staðar fyrir okkur. Þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og hversu ást- rík og góðhjörtuð þú varst, ég elska þig alltaf og trúi því og veit að þú ert stærsti vernd- arengillinn minn. Elskulega amma er dáin, angrið sára vekur tár, amma, sem var alla daga okkur bezt um liðin ár, amma sem að kunni að kenna kvæðin fögru og bænaljóð, amma, sem að ævinlega okkur var svo mild og góð (Guðrún Jóhannsdóttir) Þín bestasta Hildur Elsku besta amma mín, þú varst klárlega langlangbesta amma í heimi. Ég man að þú varst alltaf svo hlý og góð. Ég kallaði þig alltaf rúsínuna mína því þú varst algjör rúsína með svolítið krumpaðar kinnar. Ég man það vel þegar þú sýndir okkur Tomma og Jenna, við horfðum örugglega milljón sinn- um á það, samt var það alltaf jafn gaman. Alltaf þegar ég kom í heim- sókn fékk ég jarðarberjasvala og suðusúkkulaði. Þú eldaðir líka líklega besta mat í heimi hvort sem það var fiskur í raspi eða togarasteik. En þó var kjúk- lingurinn alltaf bestur, líklega á heimsmælikvarða. Alltaf þegar ég var veikur mátti ég koma og við horfðum annaðhvort á Tomma og Jenna eða þá að við spiluðum, þú kenndir mér svo mörg spil og marga kapla. Alltaf þegar komið var gat á buxurnar lagaðir þú það. Ég man líka þegar við vor- um að gista hjá þér þá hugsaðir þú um okkur eins og við værum verðmætasta gull í öllum heim- inum, komst á fimm mínútna fresti til að athuga hvort við værum sofnaðir og svo þegar við loksins sofnuðum þá kíktirðu á okkur þegar þú fórst á klósettið. Ég man líka þegar við fórum með ykkur í útilegur, þá spil- uðum við oft á spil eða fórum í kubb og þá vannst þú alltaf. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og það var æð- islegt að hafa þig í lífi mínu þó að það hafi bara verið 14 ár og ég hefði viljað hafa þau miklu fleiri. Ég veit að þú er besti engill í öllum heimi og ég mun sakna þín að eilífu. Þú varst besta kona í öllum heimi. Og ég mun passa afa fyrir þig. Þitt barnabarn, Brynjar. Í dag kveðjum við hinstu kveðju kæra æskuvinkonu, Sæ- unni Jónsdóttur. Við tengd- umst vinaböndum á æskuárum í vesturbæ Hafnarfjarðar og hefur sú vinátta haldist æ síð- an. Síðustu árin hittumst við reglulega til að rifja upp góðar minningar og njóta samfélags. Við þökkum samfylgdina og samveru liðinna ára. Ég þakka fyrir mig og minna hönd. Við mættum stöðugt hjá þér kærleik þýðum. Það var sem okkur byndu systra- bönd, frá bernskustund og öllum seinni tíðum. (Sumarliði Guðmundsson) Samúðarkveðjur sendum við fjölskyldunni allri og biðjum Guð að blessa þau hvert og eitt. Ragnheiður, Guðbjörg og Sigrún. Sæunn Jónsdóttir ✝ Ástkær eiginmaður, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, BJÖRN ÞORSTEINSSON fv. framkvæmdastjóri fræðslu- og menningarsviðs Kópavogs, Víðihvammi 10, Kópavogi, sem lést á líknardeild Kópavogs sunnudaginn 14. apríl, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 23. apríl kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Minningarsjóð líknardeildar í Kópavogi. E. Sigurlaug Indriðadóttir, Kristín M. Aðalbjörnsdóttir, Indriði Björnsson, Rikke Pedersen, Kristín Björnsdóttir, Edward B. Rickson og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.