Morgunblaðið - 18.04.2013, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.04.2013, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2013 Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is „Í áliti meirihluta ítölunefndar eru 50 málsgreinar. Landgræðslan gerir mjög alvarlegar athugasemdir við yfir 40 þeirra og telur þær bæði rangfærslur og rangar forsendur sem þeir nýta til þess að komast að niðurstöðu,“ segir Sveinn Runólfs- son landgræðslustjóri, sem hefur farið fram á við atvinnu- og nýsköp- unarráðherra að ítölumat Almenn- inga verði tekið upp að nýju. „Ámælisvert að hundsa matið“ „Það sem okkur hjá Landgræðsl- unni finnst ámælisvert er að í lög- unum um fjallskil og fleira stendur að ítölunefnd skal byggja á beitar- þolsmati eftir því sem við verður komið. Meirihluti ítölunefndar getur að engu um þetta beitarþolsmat sem lá fyrir í árslok 2011,“ segir Sveinn. Hann segir meirihlutann hafa þetta að engu og færi engin rök fyrir því að byggja sitt mat ekki á því. „Sjónarmið Landgræðslunnar gengur út á að samkvæmt lögum fer Landgræðsla ríkisins með gróður- vernd í landinu og það er þá mjög sérstakt ef Landgræðslan sem slík á ekki hagsmuni að gæta,“ segir Sveinn en upprekstrarhafar hafa nefnt að miðað við stjórnsýslu- og afréttalögin eigi einungis lögvarðir hagsmunaaðilar að málinu rétt á að kæra niðurstöðuna til ráðherra og það séu upprekstrarhafar og forsæt- isráðuneytið, sem fer með eignar- hald á þjóðlendum í landinu. Spurður að því hvort land- eigendur á svæðinu fái í ár styrk úr Landbótasjóði til að vinna að upp- græðslu á svæðinu segir Sveinn svo vera en að óvíst sé hvort það verði í framtíðinni að ákvarðanir séu teknar árlega. „Við munum taka afstöðu til þess núna í vikunni hvort þessi yfirítölu- nefnd verði kölluð saman. Það sem farið er fram á er að þessu verði skotið til nefndar sem ráðherra þarf þá að kveða saman,“ segir Arnór Snæbjörnsson, lögfræðingur í at- vinnuvega- og nýsköpunarráðuneyt- inu, spurður um málið í gær. Enn sé verið að úrskurða hvort þeir sem hafi farið fram á endurupptöku séu aðilar máls samkvæmt skilgreiningu laganna. Ráðuneytinu hafa borist nokkrar kröfur um endurupptöku, meðal annars frá Náttúruverndar- samtökum Íslands. Landeigendur hafa farið fram á við ráðuneytið að málinu verði vísað frá. Krefjast endurupptöku á ítölumati Almenninga Ljósmynd/Sveinn Runólfsson Afréttur Fé gekk á Almenningum í fyrra sem er afréttur Vestur-Eyfellinga.  Deilt er um hverjir teljist aðilar að málinu Almenningar » Ítölunefnd skilaði af sér niðurstöðu í mars. » Meirihluti hennar vill heimila takmarkaða beit í áföngum næstu árin. » Landgræðslan hefur kært úrskurðinn til ráðherra og seg- ir afréttinn óbeitarhæfan. Náttúrustofa Norðausturlands hefur vaktað fiðrildi með ljós- gildrum frá árinu 2007. Í vikunni voru slíkar gildrur settar upp við Náttúrurannsóknastöðina á Skútustöðum við Mývatn og í Ási í Kelduhverfi. Aðalsteinn Örn Snæþórsson, líf- fræðingur á Víkingavatni og um- sjónarmaður fiðrildavöktunar NNA, lét snjóinn við Skútustaði ekki stöðva vísindin er hann kom gildrunni þar fyrir svo hægt væri að mæla fjölda og tegundir sum- argestanna. Reyndar tókst ekki að miða út nákvæma rétta stað- setningu gildrunnar sökum mikils snjóskafls svo hún fær að sitja á toppi hans þar til vorar fyrir norðan. Gildrurnar eru settar upp á sömu stöðum og á sama tíma á hverju ári. Þær eru síðan tæmdar vikulega og er aflinn sem úr þeim fæst greindur til tegundar. Til og með ársins 2012 höfðu 40 tegundir fiðrilda komið í gildr- urnar. Ljósmynd/Yann Kolbeinsson Vetur Aðalsteinn Örn Snæþórsson, lét snjóinn ekki stöðva vísindin Fiðrildagildrur í fönninni nyrðra  Ljósgildrur við Skútustaði og í Ási
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.