Morgunblaðið - 18.04.2013, Qupperneq 19
inflúensu, RS og nóróveiru, en ekki
bar minna á ýmsum öðrum sjúkdóm-
um. Þanþol er hins vegar svo lítið orð-
ið að mjög erfitt var við að ráða. Slíkt
er ekki aðalsmerki öflugrar heilbrigð-
isþjónustu,“ skrifaði Sigurður í
Læknablaðið.
Rauðir þræðir í stefnu flokkanna
Athyglisvert er að þrátt fyrir átök
eru ákveðnir liðir sem ganga eins og
rauður þráður í gegnum stefnuskrár
flestra flokka og framboða að þessu
sinni. Minnt er á nauðsyn forvarna,
að landsbyggðin fái viðeigandi þjón-
ustu, hún sé sem mest í heimabyggð.
En þegar kemur að einkavæðingu,
sem þegar er veruleg, sbr. stofur
heimilislækna, mætast stálin stinn.
VG vill ekkert slíkt, Hægri grænir
vilja auka hana.
Fróm orð eru viðhöfð um að allir
skuli njóta sömu þjónustu, óháð bú-
setu og efnahag. En flestir taka flokk-
arnir fremur dræmt í hugmyndina
um nýjan Landspítala, sem oft er
nefndur hátæknisjúkrahús. Sumir
vilja slá hugmyndina af.
Það sem einkum hefur staðið í
mönnum er annars vegar kostnaður-
inn og hins vegar staðarvalið. Tug-
milljarðar króna, sem verja á í fyrri
áfanga hússins, liggja ekki á lausu hjá
þjóð sem borgar nú um 90 milljarða
króna árlega í afborganir af erlend-
um lánum ríkisins. Einnig er rifjað
upp að nær föst regla er að opinberar
framkvæmdir af þessum toga fara
langt fram úr áætlunum. En á móti er
bent á að með tilkomu nýja hússins
verði reksturinn mun hagkvæmari en
í því gamla. Hægt verði að sameina
megnið af starfseminni á einum stað.
Sparnaður í rekstri næstu áratugi
muni skipta milljörðum króna.
En staðarvalið þykir mörgum vafa-
samt, allt of mikið byggingarmagn
verði á svæðinu við Hringbraut. Það
muni þrengja að byggð sem fyrir sé,
einnig þoli samgöngukerfið ekki um-
ferðaraukninguna sem hljóti að verða
á svæðinu.
Umdeilt Tölvuteikning af nýjum Landspítala, hátæknisjúkrahúsi sem fyrirhugað er að reisa á næstu árum við Hringbraut í Reykjavík.
19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2013
Alþýðufylkingin (R) býður fram
í báðum Reykjavíkurkjör-
dæmum. Flokkurinn vill að
heilbrigð-
isstarfsemi
verði fé-
lagslega rek-
in eða á veg-
um hins
opinbera. All-
ir fái, án end-
urgjalds og
að mestu í
heimahéraði,
þá þjónustu
sem þeir þurfi og tækni/
þekking leyfi.
Húmanistaflokkurinn (H)
býður einnig fram í báðum
Reykjavíkurkjördæmunum.
Flokkurinn vill heilbrigðisþjón-
ustu án endurgjalds, að hún sé
nálægt neytendum og leggur
ekki áherslu á að reistar verði
stórar sjúkrahúsbyggingar.
Landsbyggðarflokkurinn (M),
sem aðeins býður fram í Norð-
vesturkjördæmi, vill fresta
byggingu hátæknisjúkrahúss
og þess í stað efla heilbrigðis-
og sérfræðiþjónustu á lands-
byggðinni og heilbrigðistofn-
unum sem fyrir eru.
Sturla Jónsson (K) býður sig
fram í Reykjavík suður. Hann
vill taka peninga sem nú er
varið í listamannalaun og einn-
ig fé sem ráðherrar fá til að
nota í einstök verkefni, svo-
nefnda „skúffupeninga“, til að
styrkja heilbrigðiskerfið.
Þjónusta án
endurgjalds
MINNI FRAMBOÐ
Sárt! Aðgerð á
slysadeild.
www.kia.com
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-0
0
6
2
Nýr Kia cee’d er kraftmikill, sparneytinn, rúmgóður og enn betur búinn
en nokkru sinni. Hann eyðir aðeins 4,1 l/100 km í blönduðum akstri og
fær því frítt bílastæði í Reykjavík í 90 mínútur í senn.
Eigum bíla til afgreiðslu strax! Komdu og reynsluaktu.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
* M.v. 50% útborgun eða uppítökubíl að sambærilegu verðmæti og bílasamning ERGO í 84 mánuði.
9,7% óverðtryggðir vextir. Árleg hlutfallstala kostnaðar 10,67%.
Komdu og prófaðu
sparneytinn Kia cee’d
Verð frá 3.390.777 kr. Kia cee’d dísil
Aðeins 28.777 kr. á mánuði í 84 mánuði*