Morgunblaðið - 18.04.2013, Qupperneq 56
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 108. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Dætur Ara og Páls fljúga saman …
2. Einfari að verki í Boston?
3. „Ekkert í boði sem ég ræð við“
4. Minntust ekki á maka Jóhönnu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Stuttmyndin Hvalfjörður eftir Guð-
mund Arnar Guðmundsson hefur ver-
ið valin til þátttöku í aðalkeppni kvik-
myndahátíðarinnar í Cannes í flokki
stuttmynda. Hátíðin hefst 15. maí og
lýkur hinn 26. Guðmundur er hand-
ritshöfundur myndarinnar og leik-
stjóri og framleiðir myndina ásamt
Antoni Mána Svanssyni. Meðfram-
leiðendur eru Danirnir Darin Mailand-
Mercado og Jacob Oliver Krarup,
Rúnar Rúnarsson og Sagafilm.
3.500 stuttmyndir frá 132 löndum
voru sendar inn til keppni og níu
valdar úr. Hvalfjörður segir af sam-
bandi tveggja bræðra sem búa á
litlum sveitabæ með foreldrum sín-
um og fá áhorfendur að skyggnast
inn í heim þeirra út frá sjónarhorni
yngri bróðurins og fylgja honum í
gegnum örlagaríka daga sem marka
þáttaskil í lífi bræðranna, eins og
segir í tilkynningu.
Hvalfjörður valinn í
aðalkeppni í Cannes
Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg
verður ekki haldin yfir hvítasunnu-
helgina í ár eins og verið hefur hin
síðustu ár heldur 15.-17. ágúst. Hátíð-
in fer sem fyrr fram á Patreksfirði og
verða áherslur á henni í ár að ein-
hverju leyti frábrugðnar fyrri árum.
Lögð verður m.a. meiri áhersla á
heiðursgest hátíðarinnar og líklegt
að heill dagur verði
helgaður honum og
verkum hans, að
sögn Tinnu Ottesen,
eins Skjaldborg-
arstjóra. Hver heið-
ursgesturinn
verður í ár liggur
ekki fyrir.
Skjaldborgarhátíðin
haldin í ágúst
Á föstudag Gengur suðaustan 13-20 m/s með rigningu, hvassast
við ströndina, en sums staðar slydda í fyrstu. Hægari og þurrt á
N- og A-landi fram á kvöld. Hlýnandi veður, hiti 3 til 8 stig um kvöldið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg norðlæg eða breytileg átt og birtir
yfirleitt til, en norðvestan 8-13 m/s og él með NA-ströndinni og
skúrir SA-til. Hiti 2 til 7 stig S-til en vægt frost fyrir norðan.
VEÐUR
Deildarmeistarar Grindvík-
inga tóku í gærkvöld for-
ystu í einvíginu gegn bikar-
meisturum Stjörnunnar um
Íslandsmeistaratitilinn í
Dominos-deild karla í körfu-
knattleik. Grindvíkingar
fóru á kostum á heimavelli
sínum í Röstinni og fögnuðu
stórsigri, 108:84. Annar úr-
slitaleikur liðanna fer fram
í Ásgarði í
Garðabæ ann-
að kvöld. »4
Grindavík pakkaði
Stjörnunni saman
Valur og Fram máttu bæði sætta sig
við tap á heimavelli í undanúrslitum
N1-deildar kvenna í handknattleik í
gær. Valur tapaði fyrir Stjörnunni í
Vodafone-höllinni og er 2:1 undir í
einvíginu og Fram tapaði fyrir ÍBV á
heimavelli sínum í Safa-
mýrinni en Fram leiðir
2:1. »2-3
Fram og Valur töpuðu
bæði á heimavelli
Manchester United gæti
tryggt sér 20. Englandmeist-
aratitil á mánudaginn en til
þess þarf liðið að vinna Aston
Villa á heimavelli og stóla á að
Manchester City tapi fyrir
Tottenham á sunnudag. City
minnkaði forskot United niður
í 13 stig í gær en fimm um-
ferðum er ólokið. »1
Verður United meist-
ari á mánudaginn?
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Ef við hefðum verið á einhverjum af
gömlu nýsköpunartogurunum með
tveimur lífbátum aftan á ásamt davíð-
um og mastursstögum að framan og
aftan þá hefðum við aldrei haft það.
Þá hefðum við farið sömu leið og Júlí
tveimur árum fyrr,“ segir Guð-
mundur Ásgeirsson um veiðiferð
síðutogarans Freys RE 1 á Ný-
fundnalandsmiðum fyrir rúmlega 52
árum.
Tíu sjómenn úr 30 manna áhöfn
Freys í umræddum túr eru á lífi og
hittust níu þeirra í hádegismat í Vík-
inni – sjóminjasafni í Reykjavík í
gær. Guðmundur hóaði mönnunum
saman en flestir höfðu ekki hist í
rúma hálfa öld. Þeir voru sammála
um að þeir hefðu aldrei lent í öðrum
eins aðstæðum og voru á Nýfundna-
landsmiðum í febrúar 1961 og þökk-
uðu góðu sjóskipi fyrir að ekki fór
verr.
Aðrir segja ekki fyrir verkum
„Það var ekkert fjallað um þetta og
við vildum ekki gera mikið úr þessu,“
rifjar Guðmundur upp, en hann var
fyrsti stýrimaður á togaranum. „Við
byrjuðum að veiða út af Reykjanesi
en það var ekkert fiskirí. „Ég held að
við verðum að fara til Nýfundna-
lands,“ sagði Guðni Sigurðsson skip-
stjóri við mig en ýmis samtök og fleiri
höfðu varað við því eftir að Júlí fórst
með allri áhöfn og margir íslenskir
togarar lentu í miklum erfiðleikum.
„Ég læt ekki kvenfélagskonur og
skrifstofufólk sem vinna frá klukkan
níu til fimm segja hvar við eigum að
fiska.“ Þar með hífðum við upp trollið
og héldum á Nýfundalandsmið, þar
sem við lentum síðar í þessum darr-
aðardansi.“
Guðmundur segir að veðrið hafi
verið sæmilegt í fyrstu, smá gjóla, en
allur sjór sem hafi pusast á skipið hafi
frosið. Því hafi ís strax byrjað að hlað-
ast á skrokkinn. „Við létum veiðarnar
samt ganga fyrir og vorum ekkert að
eyða orkunni í það að berja af honum
ísinn,“ segir Guðmundur.
„Áður en við gættum að okkur var
kominn 50 til 60 sentimetra ís utan á
öllum skrokknum sem endaði með
því að öll lensport stífluðust. Eftir því
sem hvessti meira ísaðist skipið hrað-
ar, ekki sást út um neinn glugga í
brúnni nema hann væri opinn og
frammi á bakka stóðum við ofar en
handriðið. Ísinn hlóðst upp alls staðar
þar sem hann gat tollað og þó við
værum með axir höfðu þær ekkert að
segja. Þær dugðu ekki á þetta, að
beita þeim var eins og að pissa í skó-
inn sinn og áður en við vissum af var
skipið orðið eins og dauðadrukkinn
maður. Verandi lunningarfullur af sjó
og yfirísaður í miklum öldugangi
mátti Freyr taka á öllu sínu til þess
að sigra náttúruöflin. Það rann ekk-
ert út af honum heldur lagðist hann á
hliðina og reyndi að velta sjónum af
sér. Svo komu brot og þá hentist
hann á hina hliðina.
Við sigldum í suðaustur og þegar
komið var í Golfstrauminn var sjór-
inn orðinn hlýr og ástandið lagaðist.
Við gátum farið á dekk að berja ís og
gera skipið sjóklárt á ný en þegar við
komum heim 2. mars var enn ís á
því.“
Í darraðardansi á miðunum
Skipverjar á
togaranum Frey
rifja upp veiðitúr
Morgunblaðið/Kristinn
Áhöfn Fremri röð f.v.: Benedikt Brynjólfsson, Jónas Franzson, Guðmundur Ásgeirsson og Ólafur K. Ólafsson.
Aftari röð f.v.: Einar Ásgeirsson, Páll Vilhjálmsson, Bogi Þórðarson, Jón Rafn Sigurjónsson og Eggert Gíslason.
Reynslusigling Freyr á Weser-fljóti við Bremerhaven í Þýskalandi.