Morgunblaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2013
VELKOMINN Í BATA SMÁRALIND
Full búð af nýjum vörum
Vertu vinur á
Styrmir Gunnarsson bendir á aðflestir stjórnmálamenn tali eins
og eftir sömu nótunum. Það er svo
sannarlega rétt varðandi „RÚV“
þar sem um það er jafnan fjallað af
þingmönnum með
því að flytja ræðu
frá árinu 1935 eða
svo um að stofnunin
sé ljós í myrkri hins
harðbýla lands, mal-
arvega þess og
óbrúaðra stórfljóta:
Vigdís Hauks-dóttir alþingis-
maður vekur vax-
andi athygli fyrir
óhefðbundinn mál-
flutning þar á meðal
um Ríkisútvarpið.
Hvernig væri pólitíkin ef allirstjórnmálamenn töluðu eins?
Leiðinleg.
Hins vegar eru viðbrögð RÚVumhugsunarefni. Ætla mætti
að fréttastofan sæi ástæðu til að
eiga ítarlegt viðtal við Vigdísi t.d. í
Speglinum, (í fjarveru Kastljóss)
þar sem hún gæti gert ítarlega
grein fyrir sjónarmiðum sínum.
Slíkt viðtal við þingmanninn værimjög forvitnilegt efni auk þess
sem fólk á rétt á að kynnast sjón-
armiðum Vigdísar á annan veg en í
sundurklipptum bútum úr sam-
tölum við hana í Bylgjunni og RÚV
að geðþótta RÚV.
Hvers vegna á RÚV ekki slíktviðtal við Vigdísi? Það er
„faglegt“. Telur RÚV sig ekki reka
„faglega“ fréttastofu?
Er RÚV ekki opinn vettvangurfyrir fólkið í landinu?“
Styrmir
Gunnarsson
Virðir ekki
sjálfsögð leiðindi
STAKSTEINAR
Vigdís
Hauksdóttir
Veður víða um heim 15.8., kl. 18.00
Reykjavík 12 skýjað
Bolungarvík 13 skýjað
Akureyri 14 alskýjað
Nuuk 7 skýjað
Þórshöfn 12 þoka
Ósló 18 léttskýjað
Kaupmannahöfn 18 heiðskírt
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 20 léttskýjað
Lúxemborg 23 heiðskírt
Brussel 22 léttskýjað
Dublin 18 skúrir
Glasgow 18 alskýjað
London 22 léttskýjað
París 27 heiðskírt
Amsterdam 21 léttskýjað
Hamborg 22 heiðskírt
Berlín 22 heiðskírt
Vín 23 léttskýjað
Moskva 18 skýjað
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 36 léttskýjað
Barcelona 27 skýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Róm 31 léttskýjað
Aþena 28 heiðskírt
Winnipeg 20 léttskýjað
Montreal 20 léttskýjað
New York 22 léttskýjað
Chicago 21 skýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
16. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:24 21:41
ÍSAFJÖRÐUR 5:15 21:59
SIGLUFJÖRÐUR 4:58 21:43
DJÚPIVOGUR 4:50 21:14
Benedikt Sig-
urðsson hefur
verið ráðinn að-
stoðarmaður
Sigurðar Inga
Jóhannssonar,
sjávarútvegs- og
landbún-
aðarráðherra.
Hann hóf störf í
ráðuneytinu í
gær.
Benedikt hefur starfað sem
sviðsstjóri ytri- og innri samskipta
Actavis á Íslandi undanfarin ár og
sat einnig í framkvæmdastjórn
fyrirtækisins.
Hann var áður aðstoðarmaður
formanns Framsóknarflokksins,
Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-
sonar, fjölmiðlafulltrúi Kaupþings
banka, en lengst af starfaði hann
sem fréttamaður á fréttastofu
Sjónvarpsins.
Benedikt hefur BA-gráðu í
sagnfræði frá Háskóla Íslands.
Hann er í sambúð með Dagnýju
Baldvinsdóttur, hjúkrunarfræðingi
og starfsmanni Actavis, og þau
eiga saman þrjú börn.
Í byrjun júní var Helga Sig-
urrós Valgeirsdóttir ráðin aðstoð-
armaður Sigurðar Inga Jóhanns-
sonar, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.
Ráðinn að-
stoðarmaður
ráðherra
Benedikt
Sigurðsson
Framkvæmdir á nýrri göngu- og hjólaleið yfir Elliða-
árósa eru vel á veg komnar og búið er að setja upp
burðarvirki fyrir tvær hengibrýr. Önnur brúin tengir
bakka Elliðaár en hin fer yfir voginn við Geirsnef.
Áætluð verklok eru í lok september að sögn Björns
Þórðarsonar hjá Ístaki.
Björn segir smíði hengibrúa sem þessara vera nokk-
uð vandasama, en ganga þó vel. „Þetta er nokkuð sér-
stök smíð þar sem brýrnar koma til með að hanga í
burðarvirkinu,“ segir Björn. Með nýju tengingunni
styttist leiðin milli Grafarvogs og miðborgar umtals-
vert eða um 0,7 km. Lengd brúnna er um 36 metrar og
eru göngu- og hjólastígarnir um 280 metrar. Burðar-
rammar brúnna ná upp í 18 metra hæð.
Morgunblaðið/Ómar
Hengibrú Komin eru upp burðarvirki fyrir tvær hengibrýr. Gert er ráð fyrir aðskilnaði gangandi
og hjólandi umferðar með það í huga að stuðla að bættu umferðaröryggi og gera leiðina greiðari.
Tvær hengibrýr
yfir Elliðaárósa