Morgunblaðið - 16.08.2013, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2013
þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335
caruso.is · caruso@caruso.is
við Erum líka á facebook
Hádegisseðill • Mánudag til föstudags kl. 11.30-14.00
Njóttu þess að borða
góðan mat í hádeginu
Rómantískur og hlýlegur
veitingastaður á þremur
hæðum í miðbæ Reykjavíkur
- Súpa dagsins með heimabökuðu brauði .......................... kr. 790
- Kjúklingasúpa með grænmeti, chilly og núðlum ........... kr. 1.290
- Sjávarréttasúpa Caruso................................................ kr. 1.350
- Kjúklingasalat m. hunangsgljáðum kjúklingastrimlum .. kr. 1.390
- Tómatsalat m. mozzarella og ruccolasalati í jurtaolíu .... kr. 1.250
- Salat Templada m. hvítlauksristuðum nautastrimlum .... kr. 1.650
- Caruso chef´s salat ...................................................... kr. 1.290
- Caruso kjötlasagna...................................................... kr. 1.390
- Spaghetti carbonara .................................................... kr. 1.390
- Hvítlauksristaðar risarækjur Risotto ............................. kr. 1.450
- Ferskasta sjávarfang dagsins ....................................... kr. 1.670
- Pítsa með tveimur áleggstegundum að eigin vali .......... kr. 1.390
- Pítsasamloka með kjúkling, pepperoni og salati ........... kr. 1.390
- Ristað lambafille með villisveppum og parmesan.......... kr. 2.890
- Blandaður ítalskur krapís með ávöxtum.......................... kr. 950
- Panna Cotta með ávöxtum og jarðarberjasósu................. kr. 950
Hjá okkur
er alltaf
notalegt
bæði í
hádeginu
og á kvöldin
Komdu og gerðu frábær kaup!
LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK / SKEIFAN 11
VERSLANIR UM LAND ALLT
samsungsetrid.is
www.ormsson.is
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
„Sem formaður í hverfisráðinu verð
ég að segja að ég verð ekki sáttur
fyrr en sú einfalda endurhönnun göt-
unnar sem íbúar hafa verið að biðja
um verður að
veruleika. Þessi
bráðabirgðalausn
dugir ekki,“ segir
Gísli Marteinn
Baldursson, for-
maður hverfis-
ráðs Vesturbæj-
ar, um skipulag
Hofsvallagötu en
verið er að leggja
lokahönd á tíma-
bundnar breyt-
ingar á götunni þessa dagana.
Gísli Marteinn, sem er borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins auk þess
að eiga sæti í umhverfis- og skipu-
lagsráði, leggur áherslu á að um
bráðabirgðalausn sé að ræða en út-
færslan hafi hinsvegar komið sér á
óvart. „En það sem er gott við hana
[bráðabirgðalausnina] er að hún
hægir á umferðinni, það er óumdeilt.
Nákvæmlega það hvernig lausnin lít-
ur út er í sjálfu sér smekksatriði,
sjálfur hefði ég ekki hannað hana
svona sjálfur og ég sé marga galla á
þessari útfærslu. En minn fókus er á
endanlegu lausnina og ég vil fá hana
sem fyrst,“ segir Gísli Marteinn og
minnir á að núverandi borgarstjórn-
armeirihluti hafi lýst því yfir að
bráðabirgðalausnin muni ekki tefja
fyrir þeirri varanlegu. Þá hafi Jón
Gnarr einnig lofað að framkvæmdir
við varanlega lausn á Hofsvallagötu
myndu hefjast á kjörtímabilinu.
Endanleg götumynd sem fyrst
„Ég hefði helst viljað sleppa þess-
ari bráðabirgðaframkvæmd og fara
beint í þá endurgerð götunnar sem
stendur til. Sem formaður hverfis-
ráðs Vesturbæjar hef ég ýtt mjög á
það og óskað eftir því að endanleg
hönnun komi til sem allra fyrst,“ seg-
ir Gísli Marteinn, sem mjög hefur lát-
ið sig skipulagsmál borgarinnar
miklu varða.
Gísli minnir á að hingað til hafi
hverfisráðið haldið uppi ríku samráði
við íbúa í hverfinu um endanlega
hönnun á Hofsvallagötunni. Á tveim-
ur fjölmennum íbúafundum hafi
komið fram skýr krafa íbúa um að
hægt yrði á umferð í götunni, hún
þrengd og gerð öruggari. „Markmið
hverfisráðsins er að reyna að gera
Hofsvallagötuna hættuminni, gera
hana að borgarprýði hérna inni í
hverfinu svo hún verði meira eins og
róleg breiðgata með gróðri. Einnig
að gatan verði þrengd, þar verði
hjólastígar, bekkir og þess háttar.
Slíkt yrði gert þannig að gatan fengi
að halda fallegum og virðulegum blæ
en samt sem áður væri umferð hæg-
ari en áður. Enginn hefur hinsvegar
beðið um fuglabúr og fánastangir,“
segir hann um metnað hverfisráðsins
fyrir framtíðargötumynd Hofsvalla-
götu.
Á fundi umhverfis- og skipulags-
ráðs á miðvikudag var ákveðið að
blása til íbúafundar um hinar tíma-
bundnu en umdeildu bráðabirgða-
lausn.
Nýti sér mannauðinn
Um 40 íbúar á Hagamel og Greni-
mel sendu Gísla Marteini bréf í byrj-
un mánaðarins og gerðu athuga-
semdir við framkvæmdirnar ásamt
því að koma með tillögur að úrbótum.
„Ég treysti því að þessi meirihluti
skoði allar tillögur að úrbótum og nú
er búið að ákveða að halda íbúafund
um málið í næstu viku. Á fundi um-
hverfis- og skipulagsráðs í vikunni
brýndi ég meirihlutann til þess að
nýta sér mannauðinn sem er í hverf-
inu. Auðvitað eiga menn að taka tillit
til þess ef íbúar benda á einhverja
annmarka,“ segir Gísli að lokum.
Í hádeginu í gær var lagður fram
undirskriftalisti í Melabúðinni til að
mótmæla framkvæmdunum. Í viðtali
við mbl.is um miðjan dag sagði Pétur
Guðmundsson verslunarstjóri að
flestir ef ekki allir viðskiptavinir
hefðu skrifað undir.
Segir bráðabirgða-
lausn ekki duga
Hægir á umferð Hefði viljað varanlega endurgerð
Morgunblaðið/Ómar
Meiningar Framkvæmdum á Hofsvallagötu lýkur í dag en íbúar í hverfinu
fá að láta álit sitt á þeim í ljós á fundi sem ráðgert er að halda í næstu viku.
Gísli Marteinn
Baldursson
Veitingahúsum ber að hafa matseðil með verði við inngöngudyr sínar svo
neytendur geti kynnt sér vöruúrval og verð áður en þeim er vísað til borðs.
Fulltrúar Neytendastofu könnuðu málið og í flestum tilvikum var matseðill
við inngang eða á 92 veitingastöðum af 97. Þeir fimm staðir sem ekki höfðu
matseðil við inngang voru Kopar, Lebowski Bar, Sushi samba, Íslenska
hamborgarafabrikkan og Grillhúsið. samkvæmt frétt á vef Neytendastofu.
Í júlí sl. fóru fulltrúar Neytendastofu á 97 veitingastaði á höfuðborg-
arsvæðinu í þeim tilgangi að athuga hvort farið væri eftir reglum um verð-
merkingar. Skoðað var hvort matseðill með verðupplýsingum væri við inn-
göngudyr og hvort magnupplýsingar drykkja kæmu fram. Erfitt getur
verið að átta sig á verðinu ef magns er ekki getið. Til þess að neytendur
geti betur áttað sig á verðinu á að gefa upp magn á drykkjarföngum auk
verðs. Á 14 veitingastöðum vantaði magnupplýsingar á verðskrá drykkja.
Flest veitingahús fara að reglum