Morgunblaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2013 Nú eru að hefjast að nýju viðræður milli Ísraels og Palestínu í Washington að frum- kvæði bandaríska ut- anríkisráðherrans Johns Kerry. Margir spyrja sig hver til- gangurinn sé, hvort minnsti möguleiki sé á árangri en markmiðið er sagt lokasamningur um frið. Lokasamningur í friðarviðræðum aðilanna, sem legið hafa niðri í þrjú ár, hlýtur að byggjast á ályktunum Sameinuðu þjóðanna um að Ísrael skili landinu sem hertekið var 1967. Samkomulag sem ekki gerði það væri ekki í samræmi við alþjóðalög og því lítils virði. Ísland hefur við- urkennt Palestínu sem sjálfstætt og fullvalda ríki innan landamæranna frá því fyrir hernámið í Sex daga stríðinu 1967. Þetta hafa hin löndin á Norðurlöndunum ekki gert, held- ur ekki flest NATO- og ESB-ríkin né Ísrael, Bandaríkin og einstöku fylgiríki þeirra. Stór meirihluti ríkja heims viðurkennir hins vegar Pal- estínu og það gera Sameinuðu þjóð- irnar enda þótt Palestína hafi ekki fengið fulla aðild vegna andstöðu Bandaríkjanna og Ísraels. Harðlínumenn í stjórn Í fréttum er stundum talað um harðlínumenn í Ísrael sem Netan- yahu forsætisráðherra og stjórn hans eigi í togstreitu við. Það er far- ið að gleymast að Netanyahu er sjálfur harðlínumaður og hefur löngum verið í sérstöku uppáhaldi hjá landránsliðinu og þeim sem ganga vilja lengst í að ræna landi frá Palestínumönnum á Vest- urbakkanum, þar með talinni Jerú- salem. Þessi stjórn hefur haldið landráni til streitu og hert á fjölgun gyðinga í hernumdu landi Palest- ínumanna, þvert á alþjóðalög. Meira að segja Bandaríkjastjórn hefur of- boðið og verið með tilburði í þá átt að halda aftur af Netanyahu og fé- lögum, þótt ekki væri nema til að koma á viðræðum að nýju. Kerry velur síonista sem að- alsamningamann Nú er að sjá hvort Kerry reynist þess megnugur að koma fram sem raunveruleg- ur sáttasemjari. Bandarískir hags- munir í arabaríkjunum krefjast þess. Þar eru uppi kröfur um rétt- læti fyrir Palestínu. Kerry hefur sýnt tilþrif í þá átt. En það er ekki auðvelt hlutverk þegar Bandaríkja- þing er eins og það er. Og það lofar varla góðu að hann velur Martin In- dyk sem aðalsáttasemjara Banda- ríkjanna, nema hvað sá á heldur betur að þekkja til. Indyk er fyrr- verandi sendiherra í Ísrael og raun- ar sem gyðingur með ísraelskan rík- isborgararétt. Indyk var maður Clintons í Camp David-viðræðunum árið 2000 sem voru illa undirbúnar og niðurstöður þeirra endalaust not- aðar gegn Arafat og Palest- ínumönnum. Þær áttu að sanna að Arafat vildi ekki frið sem var vel heppnað áróðursbragð, þvert á staðreynd málsins. Palestínumenn hafa fyrir löngu gert sér grein fyrir því að friður og friðsamlegar leiðir eru framtíðarsýn þeirra, en leiðin er löng. Indyk er ekki nógu mikill harð- línumaður fyrir Netanyahu Til þess að sýna þessari viðleitni Bandaríkjastjórnar meiri jákvæðni en kannski er ástæða til má benda á að vandamálið við friðarviðræður er Ísrael og síonisminn sem þar ræður ríkjum. Þar hefur ekki verið neinn vilji til raunverulegra friðarsamn- inga. Eins og fyrri daginn þarf meiri háttar átak til að draga Ísr- aelsmenn að borðinu. Martin Indyk er sjálfur síonisti sem vann um ára- bil fyrir hinn alræmda þrýstsihóp AIPAC sem heldur Bandaríkjaþingi í járngreipum í krafti fjármagns, veitir fé til þingmanna og sér til þess að þeir greiði atkvæði í þágu Ísraels. Iðulega eru skoðanir AI- PAC öfgakenndari en ríkjandi við- horf í Ísrael. Þrátt fyrir þetta er In- dyk gagnrýndur af harðlínugyðingum, meðal annars fyrir að hafa bent Obama á að hafa yrði hliðsjón af landamærunum frá 1967 ef koma ætti á friðarvið- ræðum. Þjóðin mun hafa lokaorðið Palestínumenn eiga fárra kosta völ eins og fyrri daginn og ekki styrkir það stöðu þeirra hvernig landið er klofið á milli tveggja fylk- inga, Fatah og Hamas, en þau síð- arnefndu koma ekki nálægt þessum viðræðum. Abbas er undir gríð- arlegum þrýstingi frá arabaríkjum auk Bandaríkjanna til að koma að samningaborði, þrátt fyrir að land- ránið haldi áfram. Forsetinn hefur þó lýst því yfir að ef samkomulag næst þá verður það lagt undir þjóð- ina sem hefur lokaorðið. Hvort þessar viðræður sem eru nú að hefjast verði í raun friðarvið- ræður eða einungis skálkaskjól fyrir Ísrael til að draga mál á langinn og halda landráninu áfram á eftir að koma í ljós. Kerry utanríkisráð- herra gerir ráð fyrir að þær taki níu mánuði og á meðan mun hann einn hafa rétt til að greina frá gangi mála í samráði við aðilana. Þótt engar forsendur virðist fyrir jákvæðri niðurstöðu þegar litið er til stjórnmálaástandsins í Ísrael og á Bandaríkjaþingi, þá leyfist að halda því til haga að til eru al- þjóðalög og ályktanir Sameinuðu þjóðanna. Fyrr eða síðar mun rétt- lætið verða ofan á. Þá kemur frið- urinn. Friðarviðræður – eða hvað? Eftir Svein Rúnar Hauksson » Lokasamningur í friðarviðræðum að- ilanna hlýtur að byggj- ast á ályktunum Sam- einuðu þjóðanna um að Ísrael skili landinu sem hertekið var 1967. Sveinn Rúnar Hauksson Höfundur er læknir og formaður Fé- lagsins Ísland-Palestína. Fréttamaður Rík- isútvarpsins var ný- lega dæmdur í Hæstarétti til greiðslu miskabóta og málskostnaðar fyrir að hafa sakað mann um refsiverða háttsemi í aðalfrétta- tíma sjónvarpsins, án þess að geta rennt stoðum undir þær fullyrðingar. Var það í annað sinn sem fréttamaðurinn var dæmdur fyrir slíkt brot á hegningarlögum, og í annað sinn sem dómarar töldu að hann hefði ekki verið í góðri trú um sannleiksgildi ummæla sinna. Útvarpsstjóri ákvað þá, að í stað þess að fréttamaðurinn sætti viðurlögum af hálfu vinnuveitanda síns, skyldi séð til þess að hann biði „engan fjárhagslegan skaða“ af málinu. Með öðrum orðum taldi útvarpsstjóri sig bæran til að ákveða að miskabæturnar og málskostnaður bæði fréttamanns- ins og gagnaðila skyldi greiddur af almannafé. Þarf vart að taka fram að útvarpsstjóri hafði enga lagaheimild til að taka slíka ákvörðun. Nú hefur útvarpsstjóri seilst enn lengra og staðfest að hann hyggist láta skattgreiðendur kosta dýra málshöfðun fréttamannsins fyrir Mannréttindadómstól Evr- ópu til þess að bera brigður á dóm Hæsta- réttar. Væri það í fyrsta sinn að opinbert hlutafélag, þar sem ráðherra fer með 100% eignarhlut rík- isins, stæði að máls- höfðun gegn íslenska ríkinu á kostnað al- mennings. Líkt og í öðrum hlutafélögum er stjórn Ríkisútvarpsins yfir framkvæmdastjórann sett. Æðsta vald félagsins er hins vegar í höndum hluthafafundar. Þar sem fráfarandi stjórn Ríkisútvarpsins hefur látið þetta háttalag starfs- manns síns óátalið ber mennta- málaráðherra skylda til að boða til hluthafafundar og stöðva ólög- mæta meðferð almannafjár. Að öðrum kosti bregst hann skyldum sínum og stendur sjálfur að máls- höfðun gegn íslenska ríkinu sem hann er í forsvari fyrir. Menntamálaráðherra grípi í taumana Eftir Hilmar Þorsteinsson Hilmar Þorsteinsson »Nú hefur útvarps- stjóri seilst lengra og telur sig geta látið skattgreiðendur kosta málshöfðun til að bera brigður á dóm Hæsta- réttar. Höfundur er lögmaður. Rauðager ði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Vatnskælar á frábæru verði 30-40% Afsláttur • Keyptann og eigðann • Ekkert mánaðargjald • Lítið viðhald • Sjá nánar á heimasíðu Kælitækni www.kaelitaekni.is Humarhúsið 101 Reykjavík · humarhusid@humarhusid.is Amtmannsstíg 1 sími: 561·3303 Þegar njóta á kvöldsins... mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.