Morgunblaðið - 16.08.2013, Side 29
Nú geta
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2013
falleg minning á fingur
www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
16
6
6
Giftingarhringar
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 29 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Um þessar mundir
berast okkur fréttir af
slæmu gengi kríu-
varps um stóran hluta
landsins. Þessar frétt-
ir eru að verða árviss
viðburður líkt og frétt-
ir af stórkostlegum ár-
angri fiskveiðistjórn-
unar okkar Íslendinga
sem sagður er njóta
ómældrar aðdáunar
vítt og breitt um veröldina.
„Eins dauði er annars brauð“
segir máltækið og margir sjá sára-
bætur í uppgangi sílamávs og ann-
arra vargfugla sem þrífast sem
aldrei fyrr á óförum kríunnar og fá
jafnvel ábót í formi hamborgara eða
andarunga sem aldir eru upp á
tjörninni í bakgarði Alþingishúss
okkar Íslendinga.
Það er stutt frá Alþingi niður á
Skúlagötu þar sem Hafrann-
sóknastofnun er til húsa og þó út-
sýnið út á flóann sé vissulega til-
komumeira en friðsæll Austurvöllur
virðist það ekki hafa nein merkj-
anleg áhrif á andríki vinnustað-
arins. Ef til vill er ástæðan sú að
mönnum er ætlað að horfa á aðra
skjái en gluggana sem snúa út á fló-
ann.
Geta Íslendingar hætt að veiða
sandsíli? Nei það er ekki hægt að
hætta því sem ekki er
verið að gera. Ef
ástand sandsílastofns-
ins er mönnum að
kenna stafar það af
öðru en veiði.
Hvernig geta Ís-
lendingar stuðlað að
betri stöðu sandsíla-
stofnsins?
Með því að veiða
meira af afræningjum
hans. Eigum við þá að
veiða meira af kríu og
lunda?
Það væri ámóta árangursríkt og
að brjóta hitamæli til að lækna sótt-
hita.
Kríur og lundar eru væntanlega
um 5.000 tonn á Íslandsmiðum um
1/3 hluta ársins.
Ungþorskur gæti verið um
500.000 tonn á sama svæði. Aðrir
ungfiskar svipað eða meira.
Makríll líklega 2.000.000 tonn
undanfarin ár, étandi 3.000.000
tonna af fæðu meðan hann dvelur í
íslenskri lögsögu (Sv.Sv., Hafró).
Eitthvað af því er sandsíli.
Það að veiða ekki meira af fiski á
Íslandsmiðum en gert er í dag er
ekki bara heimska. Það er líka
mannvonska gagnvart lífríki í fæ-
ðukreppu. Og þegar möguleg at-
vinnusköpun aukinna veiða er skoð-
uð í samhengi við efnahags- og
atvinnuástand þjóðarinnar und-
anfarin ár einskorðast mann-
vonskan ekki lengur við lífríkið.
Undirritaður er í sumar búinn að
sjá nóg af hausstórum holdg-
rönnum þorskum og ýsum sem ekki
tekur því að bera flökunarhníf í, til
að leggja til verulega auknar veiðar
beggja tegundanna. Hvað makríl-
inn varðar ættu 300.000 tonn að
vera lágmarks skaðabætur, eða um
10% þeirrar fæðu sem stofninn er
talinn taka hér við land.
Það getur ekki þjónað hags-
munum Íslendinga að reka lífríki
hafsins eins og orkusóandi elliheim-
ili þar sem afraksturinn er í vax-
andi mæli vannærðar horrenglur.
Ekki þjónar það heldur hags-
munum Íslendinga að breyta Ís-
landsmiðum í beitarlönd erlendra
stórþjóða eins og nú eru gerðar
kröfur um. Við erum einfaldlega
ekki aflögufærir frekar en krían og
lundinn.
Lifið heil.
Sultur og mannvonska
Eftir Sveinbjörn
Jónsson »Hvernig geta Íslend-
ingar stuðlað að
betri stöðu sandsíla-
stofnsins? Með því að
veiða meira af afræn-
ingjum hans.
Sveinbjörn Jónsson
Höfundur er uppfinningamaður og
fyrrverandi trillukarl.
Eitt af merkilegu
versum Biblíunnar er
þessi fullyrðing að:
„Orðið varð hold.“ Jóh.
1: 14.
Fram til þessa hefur
það verið skilið þannig
að líkami Jesú Krists
var holdið eða lík-
aminn sem innihélt allt
Guðs Orð. Meira að
segja er tilveran okkar
umbreytt Orð Guðs. Fyrst talaði
Guð og þá umbreyttist sú orka í efni
sem varð jörð, loft, vatn og hvað
annað sem fyrir augu okkar ber.
Lotutafla efnafræðinnar sýnir okk-
ur fram á tengsl frumefnanna og
mismunandi orkustöðu þeirra.
Nú hefur það verið skýr kenning
kristinnar trúar og kristinnar kirkju
að Jesús Kristur hafi verið syndlaus
og hinn fullkomni maður í augum
Guðs og manna. Þegar gyðingarnir
komu með þungar ásakanir á hann
sem guðlastara þá spurði hann þá:
„Hver getur sannað á mig synd?“
(Jóh.8:46) Svarið hefur verið aug-
ljóst í 2.000 ár. Pílatus lýsti hann
saklausan því „enga sök finn ég hjá
honum!“ Jafnvel þó svo að ýmsir
haldi því fram að hann hafi verið
uppreisnarmaður gegn rómversku
valdi þá hafa þær fullyrðingar ekki
reynst á rökum reistar.
Nú er öldin önnur. Borgarstjór-
inn steig fram í Amsterdam og
kynnti Jesú sem nútíma mann.
Hann var gerður að homma,
íklæddur transklæðum og glímdi við
kynáttuvanda. Séran í Guðríð-
arkirkju tók í sama streng og
íklæddi Jesú í sömu búninga með
regnbogafánann og baráttumann
fyrir mannréttindum.
Þetta er augljóst vitni um hið
þveröfuga sem kristin kirkja hefur
boðað. Því er þessi framsetning Sér-
unnar í Guðríðarkirkju guðlast og
til mikillar hneisu fyrir guðfræðina
sjálfa að doctor í teologiu skuli ekki
vita betur.
En skoðum annað í samhengi við
þetta. Biblían segir að hann var
„gjörður að synd“! Er það ekki
kjarni málsins að hinn saklausi,
hinn hreini og Orð Guðs var ataður
auri, skömm og smánaður bæði við
krossdauða sinn og er enn af-
skræmdur af syndurum á líkan
hátt?
Það er í okkar hönd-
um hvernig við með-
höndlum Orð Guðs.
Annaðhvort er það
okkur til sektar eða
sýknu. Ég trúi á þenn-
an fullkomna Jesú sem
dó fyrir hommana,
lesbíurnar og afvega-
leidda presta svo þeir
megi snúa frá villunni
og íklæðast réttlætinu.
Líkt og Orðið varð
hold þá getur þú
breyst í „Orðið“! Þá
breytast viðhorf manna og við för-
um frá synd og inn í réttlæti. Orð
Guðs kveikir á samúðarrofanum og
þó svo að við segjum að menn séu
undir valdi syndar þá er það ekki
sagt vegna þess að við hötum menn
heldur til að hjálpræðið megi verða
sköpunarafl til ummyndunar. Þá
verðum við nýir menn. Það er gert
með Orði Guðs!
Illskan og spillingin tekur einnig
á sig líkamlega mynd. Sagt er í
hinni helgu bók: „Því að ekki kemur
dagurinn nema fráhvarfið komi
fyrst og maður syndarinnar birtist.
Hann er sonur glötunarinnar sem
setur sig móti Guði og rís gegn öllu
því sem kallast Guð eða helgur
dómur.“ 2.Þess.2: 3-4. Af þessu má
sjá að hið illa mun einnig verða
„hold“ eða líkami.
Fráhvarf frá kristinni trú og við-
horfum birtist í Guðríðarkirkju og
hefur nú tekið völdin í Reykjavík.
Þess vegna bendi ég á að þetta frá-
hvarf er því uppsprettan sem leiðir
fram nýjan líkama, son glötunar-
innar. Hann mun verða áþreifan-
legur á svipaðan hátt og Jesús var
áþreifanlegur.
Hvatning mín er sú, taktu mark á
Orði Guðs, trúðu á Jesú Krist og þá
muntu eiga hlutdeild í hans fyrir-
heitum – þar er björt framtíð.
Orðið varð hold
Eftir Snorra
Óskarsson
» Jesús Kristur er
kynntur til sögunnar
á allt annan hátt en
prestar kristinnar
kirkju gera í dag.
Snorri Óskarsson
Höfundur er safnaðarhirðir í Hvíta-
sunnukirkjunni á Akureyri og hefur
stundað kennslu í 40 ár bæði í Vopna-
firði, Vestmannaeyjum og Akureyri
en er óæskilegur starfskraftur í
grunnskóla vegna trúarviðhorfa
sinna.