Morgunblaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 52
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 228. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Gia Allemand er látin
2. Ljónið sem fór að gelta
3. Maðurinn með mávinn …
4. Kistan flutt í gömlum slökkvibíl
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ragnheiður, ný íslensk ópera eftir
Gunnar Þórðarson tónskáld og rit-
höfundinn Friðrik Erlingsson, verður
frumflutt í kvöld kl. 20 í Skálholts-
kirkju í Biskupstungum. Óperan verð-
ur flutt í konsertformi á þrennum
tónleikum, í kvöld, annað kvöld og á
sunnudaginn undir stjórn Petri Sak-
ari. Jafn umfangsmikill tónlistar-
viðburður hefur aldrei verið settur
upp í kirkjunni áður, flytjendur eru 90
talsins, þ.e. Kammerkór Suðurlands
sem telur 30 söngvara, 50 manna
sinfóníuhljómsveit og níu einsöngv-
arar auk hljómsveitarstjóra. Ein-
söngvarar eru Þóra Einarsdóttir sem
syngur hlutverk Ragnheiðar, Eyjólfur
Eyjólfsson, Viðar Gunnarsson, Jó-
hann Smári Sævarsson, Alina Dubik,
Bergþór Pálsson, Guðrún Ólafsdóttir,
Jóhann Kristinsson og Björn Ingiberg
Jónsson. Óperan er byggð á ástar- og
örlagasögu Ragnheiðar Brynjólfs-
dóttur, biskupsdóttur í Skálholti
(1641-1663).
Óperan Ragnheiður
frumflutt í kvöld
Megas verður sérstakur gestur 3
klassískra og 2 prúðbúinna á tón-
leikum þeirra í kvöld á Café Flóru í
Laugardal. 3 klassískar og 2 prúð-
búnir eru söngkonurnar Björk Jóns-
dóttir, Jóhanna V. Þórhallsdóttir og
Signý Sæmundsdóttir, pí-
anóleikarinn Bjarni Þór
Jónatansson og bassa-
leikarinn Gunnar
Hrafnsson. Á tónleik-
unum verða m.a. flutt
lög eftir Gunnar Þórð-
arson og Megas
og hefjast þeir
kl. 21.
Megas með klassísk-
um og prúðbúnum
Á laugardag Norðan 3-8 m/s, skýjað og lítils háttar væta norð-
antil á landinu. Bjart með köflum sunnanlands, en stöku skúrir síð-
degis. Hiti 6 til 16 stig, mildast á Suðurlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan og norðvestan 3-8 með vætu vestan-
og síðar norðanlands, en bjart með köflum suðaustan- og aust-
anlands. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast á austanverðu landinu.
VEÐUR
Stúlknalið Íslands, skipað
þeim Elísabetu Einarsdóttur
og Berglindi Gígju Jóns-
dóttur, varð í gær Norður-
Evrópumeistari 19 ára og
yngri í strandblaki með 2:1-
sigri á norsku pari í úrslita-
leik í Drammen.
Eftir jafna viðureign
höfðu Elísabet og
Berglind yf-
irburði í
oddahrinu.
»1
Meistarar í
strandblaki
Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr
Nesklúbbnum, heldur af landi brott á
næstunni til þess að undirbúa sig fyr-
ir úrtökumót í Georgíuríki í Banda-
ríkjunum í september. Að
því loknu mun hann vera
við æfingar og keppni
í Norður-Karólínu þar
sem hann var áður við
nám. Í framhaldinu
heldur hann til Frakk-
lands og fer þá í úr-
tökumót fyrir Evr-
ópumótaröðina í
október. »4
Ólafur Loftsson verður
á ferð og flugi í haust
Bogdan Bondarenko frá Úkraínu lét
meiðsli á fæti ekki slá sig út af laginu
heldur varð hann heimsmeistari í há-
stökki karla í gær, stökk 2,41 metra
og alls ekki fjarri því að slá 20 ára
gamalt heimsmet í greininni. „Ég
fann fyrir meiðslum í öðrum fætinum
og reyndi að komast eins létt frá
keppninni og ég gat,“ sagði Bonda-
renko eftir keppnina. »1
Reyndi að komast létt
frá keppninni og vann
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Jón Heiðar Gunnarsson
jonheidar@mbl.is
Knattspyrnufólk framtíðarinnar
mun leika listir sínar í Víkinni í
Fossvoginum um helgina. Þar
stendur knattspyrnudeild Víkings
fyrir krakkamóti í knattspyrnu í
samvinnu við Arion banka og Eddu
útgáfu. Mótshaldarar segja að þetta
sé fjölmennasta fótboltamót lands-
ins en reiknað er með 1.900 iðk-
endum til keppni.
„Við skipuleggjum mótið með
þeim hætti að hver og einn leik-
maður er í þrjá klukkutíma á svæð-
inu og þess vegna getum við tekið á
móti öllum þessum fjölda,“ segir
Ólafur Ólafsson, íþróttafulltrúi Vík-
ings. Alls keppa 300 lið á mótinu frá
21 félagi en sum félög senda mörg
lið til keppni á meðan önnur senda
eingöngu eitt.
Allir keppendur mótsins eru í 8.,
7. og 6. flokki karla og kvenna.
Yngstu iðkendurnir eru 4 ára gaml-
ir en þeir elstu 8 ára og því eru
margir að stíga sín fyrstu skref í
keppni á knattspyrnuvellinum.
Leikið er í fimm manna liðum og
allir leikmenn fá glaðning með sér
heim að móti loknu ásamt verð-
launapeningi. „Hér er leikgleðin við
völd og allir eru sigurvegarar.“
Keppa á 18 völlum
Ólafur segir undirbúning ganga
vel en hann hefur í ótal mörg horn
að líta þessa dagana að eigin sögn.
„Þetta er mikil vinna enda fer mót-
ið fram á 18 völlum, dómara-
fjöldi hleypur á um 150
manns og öllum
þessum börn-
um fylgja að
sjálfsögðu líka
foreldrar og aðrir vandamenn.“
Aðalvelli Víkinga verður skipt
upp í 3 keppnisvelli, 6 vellir verða
á gervigrasinu og 9 vellir á æf-
ingasvæðinu. „Þetta er mikið skipu-
lag og við treystum mikið á sjálf-
boðavinnu og félagið er sem betur
fer ríkt af góðu fólki sem er tilbúið
til að vinna gott starf endurgjalds-
laust.“
Fjölgun á milli ára
Mótið fer nú fram þriðja árið í
röð en þátttakendum hefur fjölgað
mikið frá ári til árs. Árið 2011 voru
iðkendur um 800, árið 2012 voru
þeir um 1.200 og í ár er búist við
1.900 keppendum. „Þessi mikla
aukning á milli ára sýnir að við er-
um að gera eitthvað rétt,“ segir
Ólafur en liðin koma hvaðanæva af
landinu.
Mótið fer fram á æfingasvæði
Víkings í Fossvogi og hefst kl. 9 á
morgun, laugardag.
Fjölmennasta mót ársins
Yngstu iðkend-
urnir stíga sín
fyrstu skref
Morgunblaðið/Eggert
Efniviður framtíðar Um 1.900 börn munu etja kappi í knattspyrnu á krakkamóti Víkings í Fossvogi um helgina. Mikið
skipulag ríkir í kringum mótið enda fara leikar fram á 18 knattspyrnuvöllum og um 150 dómarar mæta á svæðið.
„Við erum staðsett í miðri Reykjavík og þess vegna er mikil áskorun að
koma öllum þessum bílum fyrir,“ segir Kjartan Hjaltested, bílaumferðar-
og móttökustjóri hjá Víkingi.
„Ég hef leyst þetta hingað til og ég mun standa eins og
herforingi á gatnamótum alla helgina og stýra umferð-
inni.“
Kjartani finnst frábært að sjá lið koma á mótið hvaðanæva
af landinu og nefnir í því tilliti Vestmannaeyjar, Ísafjörð og Egils-
staði.
Hann telur framtíð íslenskrar knattspyrnu vera bjarta en er
ósáttur við gengi núverandi landsliðs.
„Eftir helgina getum við án efa sagt að við eigum efnivið í lands-
lið sem mun vinna andstæðinga sína 10-0 eftir 10 ár.“
Áskorun að stýra umferð
LANDSLIÐ FRAMTÍÐARINNAR MUN RÚLLA YFIR ANDSTÆÐINGA
Kjartan
Hjaltested
Ljósmynd/Atli Rúnar Halldórsson