Morgunblaðið - 21.09.2013, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.09.2013, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013 Malín Brand malin@mbl.is Gamlar snjóþrúgur, frum-stæðar talstöðvar, appel-sínugular húfur oggroddalegir mann- broddar leynast sennilega víða í bíl- skúrum og á háaloftum hér á landi. Munir sem tengjast sögu Flug- björgunarsveitarinnar eru á meðal þess sem Jónas Guðmundsson, með- limur sveitarinnar, er á höttunum eftir þessi dægrin, því hann er að kortleggja sögu FBSR, Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík. Öllu mikilvægara en að fá muni er þó að fá sögur. Munnmælasögur, ritaðar heimildir eða sögur á hvers kyns formi geta komið að gagni því þeir voru býsna magnaðir, karlarnir sem í kjölfar Geysisslyssins stofn- uðu Flugbjörgunarsveitina í nóv- ember árið 1950. Stofnfélagar voru 29 og á stofnfundinum var eftirfar- andi samþykkt: „Fundurinn ályktar að markmið félagsins sé fyrst og fremst að aðstoða við björgun manna úr flugslysum og leita að flugvélum sem týnst hafa. Í öðru lagi að hjálpa þegar aðstoðar er beðið og talið er að sérþekking og tæki félagsins geti komið að gagni. Þetta markmið Flugbjörgunar- sveitarinnar stendur óbreytt í dag. Saga sem verður að segja Eftir 27 ár í Flugbjörgunar- sveitinni segir Jónas Guðmundsson að starfið sé bæði lífsstíll og áhuga- mál. Þess vegna finnur hann knýj- andi þörf til að gera það sem hann getur til að skrá gömlu sögurnar niður og deila þeim með fólki. Fáir stofnfélagar eru enn á lífi og því ekki seinna vænna að hefjast handa áður en sögumennirnir kveðja þessa jarðvist. „Ef ekkert er gert í þessu núna þá hverfa fyrstu tveir eða þrír ára- tugirnir úr sögunni,“ segir Jónas. Hann þarf þó ekki að byrja algjör- lega á grunninum því búið er að byggja hann. Þeir Einar Oddgeirs- son og Grétar Felixson, félagar í sveitinni til margra áratuga, söfn- uðu vel í sarpinn á árum áður, en nú er komið að Jónasi að taka við kefl- inu og er stefnt að því að gefa sög- Með tuttugu kílóa tal- stöð og snjóþrúgur Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík var stofnuð árið 1950 og er ein elsta björgunar- sveit landsins. Fjölmargar sögur eru til af köppum sem börðust við náttúruöflin löngu fyrir tæknivæðinguna og undanfarin ár hafa menn verið að safna þessum sögum saman til að birta í bók um sögu sveitarinnar. Hvernig unnu björgunar- sveitir eiginlega fyrir tíma talstöðva, GPS-tækja og Gore-Tex? Björgunarstörf Flugsveit varnarliðsins vann oft náið með Flugbjörg- unarsveitinni. Þessi mynd var tekin um 1980. Morgunblaðið/RAX Söguritarinn Jónas Guðmundsson safnar nú sérstökum sögum af afrekum. Allri fjölskyldunni er boðið frítt í bíó í dag kl 17:30 en þá ætlar Bíó Paradís að bjóða á sýningu á myndinni „Mamma, ég elska þig.“ Myndin er sýnd á Evrópskri kvikmyndahátíð 2013, sem haldin er dagana 19. – 29. september í Bíó Paradís. Á undan sýningunni verða tónleikar og veit- ingar í boði. Myndin hefst kl 18 og verður hún sýnd með íslenskum texta. Lettneska myndin „Mamma, ég elska þig“ fjallar um ungan dreng, Raimond, sem mætir ýmsum áskor- unum í lífinu, þar sem hann þarf að standa á eigin fótum þar sem hann á í flóknum og viðkvæmum samskipt- um við móður sína. Myndin hefur unnið til verðlauna, meðal annars sem besta barnamyndin á kvik- myndahátíð í Berlín 2013 og verð- launa evrópskra barnakvikmynda- samtaka á kvikmyndahátíðinni í Zlin. Myndin hentar börnum frá 10 ára. Vefsíðan www.bioparadis.is Myndin Þroskasaga drengsins Raimonds sem mætir ýmsum áskorunum. „Mamma, ég elska þig“ Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Sögufélagið bjóða borgarbúum og öðrum gestum í bókmennta- og sögu- göngu um miðborg Reykjavíkur í dag laugardag undir leiðsögn Jóns Karls Helgasonar. Hann hefur nýlega sent frá sér bókina Ódáinsakur: Helgifesta þjóðar- dýrlinga, en þar er fjallað um það hvernig minning markverðra einstaklinga, ekki síst skálda og listamanna, hefur verið ræktuð opinberlega hér á landi á síðari öld- um. Deilur um þjóðardýrlinginn Halldór Laxness Safnast verður saman við Hljóm- skálann kl. 15 og byrjað á því að heim- sækja myndhöggvarann Bertel Thor- valdsen og þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson. Þaðan verður gengið meðfram Tjörninni niður á Austurvöll og svo áfram að Stjórnarráðinu við Lækjargötu og að Þjóðmenningarhús- inu við Hverfisgötu, en göngunni lýk- ur í Þingholtunum þar sem finna má nýlegt minnismerki um Bríeti Bjarn- héðinsdóttur. Athygli verður beint að sögu þessara og fleiri minnismerkja á svæðinu en einnig rifjuð upp saga beina Jóns Arasonar og þær deilur sem nýlega urðu um þjóðardýrlinginn Halldór Laxness. Gangan tekur um eina og hálfa klukkustund. Ekki þarf að bóka þátttöku, aðeins mæta við Hljómskálann stundvíslega og njóta þess að ganga um borgina og fræðast í leiðinni um skáld, listamenn og bar- átturfólk sem hún hefur alið. Endilega... ...farið í bóka- göngu í dag Bríet Bjarnhéðinsdóttir Jón Karl Helgason Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. D-vítamínbættur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.