Morgunblaðið - 21.09.2013, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013
Um 700 vísindamenn sækja árs-
fund Alþjóðahafrannsóknaráðsins
(ICES) í Hörpu í Reykjavík í næstu
viku. Þar verður í meira en 450
erindum og á veggspjöldum fjallað
um 20 efnisflokka á sviði haf- og
fiskirannsókna, en jafnframt
verða flutt nokkur framsögu- og
yfirlitserindi. Hafrannsókna-
stofnun er íslenskur gestgjafi ráð-
stefnunnar.
Framsöguerindi ráðstefnunnar
við setningarathöfn á mánudag
flytur Ragnar Árnason, prófessor
við Háskóla Íslands, og mun hann
gefa yfirlit um fiskveiðar og fisk-
veiðistjórnun á heimsvísu, hvað
hefur áunnist og hvaða áskoranir
eru framundan.
Ráðgjöf við stjórnun
ICES samanstendur af 20 þjóð-
um við Norður-Atlantshaf, Norð-
ursjó og í Eystrasalti. Ráðið var
stofnað árið 1902 og er það talið
með elstu starfandi fjölþjóða-
samtökum í heiminum, segir í til-
kynningu, en Ísland gerðist aðili
árið 1938.
Starfsemin byggist á þátttöku
um fjögur þúsund vísindamanna
frá um 300 stofnunum. Ráðið veitir
stjórnvöldum og alþjóðlegum stofn-
unum ráðgjöf varðandi stefnumót-
un og stjórnun. Á vegum ráðsins
starfa um 120 sérhæfðar vinnu-
nefndir, sem m.a. fjalla árlega um
ástand fiskstofna við Ísland.
Af efnisflokkum sem starfsmenn
Hafrannsóknastofnunar koma
sérstaklega að má nefna: Sam-
keppni og samspil uppsjávarfiska í
Norður-Atlantshafi með sérstakri
áherslu á síld, makríl og kolmunna,
stefnumótun varðandi sjálfbærar
nýtingarreglur, eðlis- og efnafræði
súrnunar sjávar, tækninýjungar til
rannsókna á útbreiðslu fiska og at-
ferli, sjófræði og straumakerfi
Norðurhafa.
Þá verður einnig fjallað um við-
brögð vistkerfa sjávar við veð-
urfarsbreytingum og skipulag
strandsvæða. aij@mbl.is
700 vísindamenn ræða um fisk og haf
Fjölmennur ársfundur Alþjóðahaf-
rannsóknaráðsins haldinn í Reykjavík
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson er
nú við loðnuleit og mælingar norður af
landinu. Alls óvíst er um loðnuveiðar í
vetur þar sem lítið fannst af ungloðnu
í fyrrahaust og síðasta vetur.
Samkvæmt upplýsingum Þorsteins
Sigurðssonar, sviðsstjóra nytja-
stofnasviðs Hafrannsóknastofnunar,
er leiðangurinn til að afla upplýsinga
um veiðistofninn farinn fyrr en áður.
Vonir standa til að hafís hamli síður
rannsóknum og minna sé af honum
heldur en þegar kemur fram í síðari
hluta októbermánaðar. Auk þess hefst
haustrall stofnunarinnar 2. október og
þessi verkefni trufla þá ekki hvort
annað.
Í grænlenska lögsögu
Árni Friðriksson byrjaði leiðang-
urinn norður af Melrakkasléttu og
vann sig vestur fyrir Kolbeins-
eyjarhrygginn og þaðan í norðurátt.
Reikna má með að fullorðna loðnan
geti verið á norðlægari slóðum og inni
í grænlenskri lögsögu. Síðan er ætl-
unin að fara með landgrunnskantinum
suður á bóginn á þeim slóðum fáist
upplýsingar um yngri loðnuna.
Þær upplýsingar sem liggja fyrir
benda til þess að veiðistofn vetrarins
sé lítill. Í ráðgjöf Hafrannsóknastofn-
unar segir: Loðnuvertíðin 2013/2014
ætti að byggjast á árgöngunum frá
2011 og 2010. Þar sem mjög lítið
mældist af ókynþroska loðnu haustið
2012 eru ekki forsendur til að leggja
til upphafsaflamark fyrir vertíðina
2013/2014. Hafrannsóknastofnun
leggur til að loðnuveiðar verði ekki
heimilaðar fyrr en tekist hefur að
mæla stofninn og niðurstaðan gefi til
kynna að óhætt verði að leyfa veiðar
að teknu tilliti til að 400 þús. tonn
verði skilin eftir til hrygningar, eins
og aflaregla kveður á um. aij@mbl.is
Leita loðnu
norður af
landinu
Loðnuleiðangur
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson
Upphafskvóti
ekki gefinn út
Nýráðningar í fiskiðjuverum HB
Granda í ágústmánuði og það sem
af er september eru alls um 60
talsins, þar af eru um 35 í Reykja-
vík og um 25 á Akranesi. Þá hefur
fyrirtækið fjárfest í nýjum og full-
komnum fiskvinnslubúnaði.
Fram kemur á heimasíðu fyr-
irtækisins að fyrirsjáanleg er mikil
aukning í ferskfiskvinnslu í fisk-
iðjuverum HB Granda í Reykjavík
og á Akranesi á nýhöfnu fisk-
veiðiári. Stafar hún af aukningu
kvóta í tegundum eins og þorski,
ufsa og karfa og því að stjórn-
endur félagsins hafa ákveðið að
fækka frystitogurum og leggja
aukna áherslu á útgerð ísfisktog-
ara.
Ferskfiskútflutningur á vegum
HB Granda hefur aukist á þessu
ári í samanburði við fyrri ár. Að
jafnaði hafa ferskir flakabitar sem
samsvara um hálfri milljón máltíða
verið fluttir utan í viku hverri
undanfarnar vikur. aij@mbl.is
HB Grandi ræður
um 60 starfsmenn
Nánari upplýsingar á www.rsk.is
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
skattur.is
Til forráðamanna hlutafélaga,
einkahlutafélaga og annarra skattskyldra
lögaðila um skil á skattframtali 2013
Þrátt fyrir að framtalsfrestur sé runninn út
eru þau félög sem enn eiga eftir að skila
skattframtali 2013 ásamt ársreikningi hvött
til að gera það hið allra fyrsta.
Skattframtali á alltaf að skila, jafnvel þó
að engin eiginleg atvinnustarfsemi eða
rekstur hafi verið til staðar hjá félaginu
á árinu 2012.
Félög eiga jafnframt að skila ársreikningi
til Ársreikningaskrár.
Hægt er að skila skattframtali og
ársreikningi rafrænt á www.skattur.is.
Framtalsfrestur
félaga er liðinn
Minnt er á að í október fer fram álagning
opinberra gjalda lögaðila 2013 vegna rekstrarársins 2012.