Morgunblaðið - 21.09.2013, Blaðsíða 33
FRÉTTIR 33Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013
AFP
Frístundabóndinn Oliver Langheim, betur þekktur sem
Graskers-Olli, heldur utan um 320 kg grasker af teg-
undinni Atlantic Giant í garði sínum í Fuerstenwalde í
austurhluta Þýskalands.
Langheim segir að graskerið þyngist um allt að fjög-
ur til fimm kg á dag en stærsta grasker sem vitað er
um var einnig af tegundinni Atlantic Giant og vó alls
911,3 kg.
Þyngist um fjögur til fimm kíló á dag
Túnis. AFP. | Konur frá Túnis hafa
ferðast til Sýrlands til að heyja „kyn-
lífs-jíhad“ en það gera þær með því
að svala líkamlegum þörfum ísl-
amskra stríðsmanna. Þetta sagði
Lotfi ben Jeddou, innanríkisráð-
herra Túnis, við túníska þingmenn á
fimmtudag.
Ben Jeddou sagði konurnar
sænga hjá tugum manna en að því
loknu snéru þær þungaðar heim.
Hann nefndi ekki hversu margar
túnískar konur hefðu ferðast til Sýr-
lands í þessum tilgangi, né heldur
hversu margar hefðu snúið aftur
óléttar en samkvæmt túnískum fjöl-
miðlum nema þær hundruðum.
Jihad al-nikah, eða kynferðislegt
heilagt stríð, sem leyfir kynlíf utan
hjónabands með fleiri en einum að-
ila, er álitið lögmæt tegund heilags
stríðs af sumum harðlínu salafistum.
Hundruð túnískra manna hafa
gengið í fylkingar jíhadista í Sýr-
landi sem berjast gegn Sýrlands-
stjórn og vilja forsetann Bashar al-
Assad frá völdum. Ben Jeddou, sagði
þó að tekist hefði að koma í veg fyrir
að um 6.000 ungmenni hefðu horfið
til Sýrlands í þessum tilgangi.
Fréttir hafa borist af því að þús-
undir Túnisbúa hafi gengið til liðs við
jíhadista í Afganistan, Írak og Sýr-
landi síðustu 15 ár, og ferðast þang-
að gegnum Tyrkland eða Líbíu.
Abu lyadh, leiðtogi Ansar al-
Sharia, stærstu hreyfingar salafista í
Túnis, er grunaður um að hafa skipu-
lagt árásirnar á sendiráð Bandaríkj-
anna í landinu í fyrra.
Heyja „kynlífs-
jíhad“ í Sýrlandi
Koma aftur
óléttar, segir inn-
anríkisráðherrann
AFP
Stríð Ráðherrann sagði ekki hversu
margar konur hefðu snúið aftur.
Kynferðisofbeldi
» Ban Ki-moon, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, sagði í febrúar að
kynferðisofbeldi væri útbreitt í
Sýrlandi.
» Sérlegur fulltrúi SÞ um kyn-
ferðisofbeldi í átökum sagði að
allir aðilar að átökunum í land-
inu hefðu gerst sekir um kyn-
ferðisofbeldi og að fjölda
kvenna og stúlkna hefði verið
rænt.
Viltu læra bridge?
Bridgesambandið getur útvegað leiðbeinendur fyrir hópa,
fyrirtæki og skóla, og einnig forgefin spil. Guðmundur Páll
Arnarson starfrækir Bridgeskólann, þar geta þeir lært sem eru
að stíga sín fyrstu skref í bridge og einnig þeir sem vilja bæta
við kunnáttu sína.
Námskeið verða í Bridgeskólanum í allan vetur, þau fyrstu
hefjast 23. september, hvert þeirra yfirleitt átta skipti.
Upplýsingar hjá Guðmundi Páli s. 895427 eða gpa@talnet.is.
Bridgefélög og klúbbar eru starfræktir um allt land – upplýsingar á bridge.is
Bridgesamband Íslands – Síðumúla 37 – 108 Reykjavík – sími 587 9360 – www.bridge.is
Bridge gerir lífið skemmtilegra
Árlegt alþjóðlegt stórmót
Icelandair Reykjavík
Bridgefestival fer fram dagana
23.-26. janúar 2014,
skráning á bridge@bridge.is
Landslið Íslands í bridge hefur náð langt í alþjóðlegum mótum,
það vann síðast Norðurlandameistaratitil í maí 2013.