Morgunblaðið - 21.09.2013, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 21.09.2013, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þetta er ekki góður dagur til að taka ákvarðanir um útgáfumál, ferðalög eða lög- fræði. Finnist þér þar liggja fiskur undir steini skaltu bregðast við sem svo sé. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú finnur til þakklætis í garð vinnu- félaga þíns í dag. Hann/hún þráir spennu, sem er í lagi, ef hann/hún setur sjálfa/n sig ekki á hausinn. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Tjáðu þig óaðfinnanlega eða láttu ekkert uppi um plön þín. Hafðu gætur á öllum atriðum, sérstaklega smáa letrinu, og haltu fjármálapappírum til haga. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú gerir uppreisn gegn ofríki ein- hvers. Ekki tvínóna við hlutina heldur gakktu hreint til verks, reyndu að útiloka allt annað. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Í dag er rétti dagurinn fyrir þig til að biðja um hvað sem er. Umræður verða líf- legar, skemmtilegar og áhugaverðar. Mundu að góð heilsa er gulli betri. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú nærð mjög vel saman við vissa manneskju sem gæti gert aðra afbrýðisama. Gefðu þér tíma til að rækta sálarlíf þitt en gættu þess að forðast öfgar. 23. sept. - 22. okt.  Vog Dagurinn hentar einstaklega vel til þess að hefja nýtt verkefni í vinnu. Margt er sagt í öfund og afbrýðisemi en þú skalt láta vera að detta niður á það plan. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ættir að freista þess að skapa þér meira svigrúm svo þú getir athafn- að þig að vild. Ef þú ert ekki viss, skaltu ekki komast að samkomulagi um eitthvað. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Hugsaðu vandlega þinn gang áð- ur en þú hættir þér út í umræður um við- kvæm persónuleg mál. Kannski fyllistu til- finningasemi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Leggðu þitt af mörkum með því að sýna skilning og umburðarlyndi, því allir vilja fá viðurkenningu. Hann/hún verður raunar í dálitlum vandræðum með að slíta sig frá eig- in hugarheimi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Nú er komið að því að þú upp- skerð laun erfiðis þíns. Varaðu þig á fólki sem vill stjórna samræðunum. Þú munt ná miklu betra jafnvægi, líkamlegu og andlegu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Lífið er endalaust val og þú kemst ekki hjá því frekar en aðrir að gera upp hug þinn til manna og málefna. Reyndar er frá- leitt að nota innkaup sér til huggunar. ÍVísnahorni á fimmtudag misrit-aðist limra eftir Sigurð Jónsson tannlækni og píanóleikara og er beðist velvirðingar á því. Á göngu sinni sá hann mann, sem hann kannaðist við, hlaupa með hund sinn: Hann sækir víst fjölmargan fundinn, fer þar í ótalmörg stundin. En ef ekki fer ‘ann á fundi þá er ‘ann úti að hlaupa með hundinn. Kristbjörg Freydís Steingríms- dóttir segir frá því, að maður hafi komið til sín í draumi og ásakað sig fyrir að hafa talað illa um föður sinn látinn. Hún kannaðist ekki við það, enda þekkti hún hvorugan manninn, og svaraði: Hver sem gerir öðrum orð auka vill hans kynngi, rær á aðeins annað borð og alltaf fer í hringi. Kristbjörg mundi vísuna, þegar hún vaknaði, – en „ég er ekki sátt við aðra hendinguna,“ skrifar hún. „Veit ekki hvaða kynngi þetta er. Ég hefði aldrei ort svona í vöku.“ Ármann Þorgrímsson hugar að framhaldslífi: Átti við miðil einlæg kaup, um andana vildi fróðleik safna, hitti þar slíkan lygalaup að leirburði engum við má jafna. Ég veit ekki hvort það svarar fróðleiksþörf Ármanns að rifja upp stöku eftir Örn Arnarson: Og andarnir drekka eins og svín á æðra tilverustigi. Annar eins maður og Oliver Lodge fer ekki með neina lygi. Hér er yrkisefni Ármanns „fastur punktur“: Allt mér sýnist aftur kolruglað, útreikningar flestir sýna það. Ég tel þó samt að treysta megi að tunglið ennþá sé á réttum stað. Björn Ingólfsson grípur á efninu með athugasemdinni „m.ö.o.“: Allt er líf vort illa sett í ógeðslegri krísu, þó má líta ljósan blett langt frá jörð að vísu. Skemmtun var aflýst fyrir norð- an og af því tilefni yrkir Hjálmar Freysteinsson: Þegar fréttir þær ég heyri þurrum tárum græt: Verða mun á Akureyri engin Dirty Night. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af draumum, punktum og æðra tilverustigi Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hafa miðstöðvar- ofnana stillta eins og hún vill hafa þá. VASAÞJÓFUR BREYTTU ÁHYGGJUM ÞÍNUM Í REIÐI! ALLTAF OPIÐ MÚG-ÆSARAR EHF. VIÐ HJÁLPUM ÞÉR! ER ALDURS- MARTRÖÐIN MÍN SIGTI? JAHÁ! ÉG TÁKNA ... SKO ... HÉRNA ... ÆI ... BÍDDU ... EKKI SEGJA MÉR ÞAÐ ... MINNIÐ MITT? JÁ! JÁ! MINNIÐ ÞITT! ÞAÐ ER VISSULEGA DÝRT, EN ÉG HELD SAMT AÐ VIÐ ÆTTUM AÐ SKIPTA YFIR Í TRÉÞAK. ÉG HEF HEYRT AÐ DREKAR BORÐI EKKI TRÉ. Réttir, réttir og aftur réttir. Vík-verji ætlar ekki að láta rétt- ardaginn í dag fram hjá sér fara. Því fátt er eins skemmtilegt og að sjá væna dilka (en þeir eru víst ekki svo vænir í ár sökum einstaks veðurfars það sem af er ári) og hitta mann og annan. Hann verður að viðurkenna að réttirnar gegna stærra hlutverki sem mannamót í hans augum en einskær áhugi á íslensku sauðkindinni. Kannski hefur það eitthvað með ald- urinn sem er að færast yfir Víkverja að gera, en hann hefur orðið töluvert meiri áhuga á að rækta frændgarðinn núna en hefur verið síðustu ár. x x x Því skal hins vegar ekki neitað aðþað að smala kindum á vel þjálf- uðum hesti er með því skemmtilegra sem Víkverji gerir. Það er nefnilega ólíkt skemmtilegra en að smala hest- um á hesti (sem er líka unaðslegt) að því leyti að góður smalahestur er allt- af einu skrefi á undan þér í hugsun og fer fyrir kindahópinn oftar en ekki án þess að þú sért svo mikið sem búinn að gefa honum eina ábendingu þess efnis. Oft er nóg að líta í átt til kind- arinnar sem vill lauma sér í burtu og viti menn, gæðingurinn heldur af stað og rekur hana aftur í hópinn. x x x Það er líka alltaf eitthvað heillandivið að sjá fjallkónginn og smala- mennina, veðurbarða og sátta við sitt eftir margra daga smalamennsku á fjöllum. Þar sem frelsið, víðáttan og náttúran búa. x x x Sauðkindin hefur verið mikið í um-fjölluninni upp á síðkastið og einkum í fyrra, og hefur það vart far- ið fram hjá nokkrum manni. Veðr- áttan hefur verið óblíð þar sem sauð- féð hefur fennt og látið lífið fyrir vikið. Sauðfjárbændur sem misst hafa féð sitt eru ekki í öfundsverðri stöðu. Það er rétt svo að bændur hafi náð inn síðustu hánni af túnunum, og nú er allt að fara á kaf í snjó. Dæmi eru um að á Suðurlandi hafi hvass- viðrið verið svo mikið síðustu daga að bændur treystu sér ekki til þess að raka saman hánni vegna hættu á að hún myndi fjúka út í skurð. En þessu taka flestir eins og hverju öðru hundsbiti. víkverji@mbl.is Víkverji Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir. (Hebreabréfið 13:8)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.