Morgunblaðið - 21.09.2013, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013
ÚR BÆJARLÍFINU
Sigmundur Sigurgeirsson
Árborg
Eyrarbakki hefur verið undir-
lagður kvikmyndagerðarfólki und-
anfarið þar sem farið hafa fram
upptökur á atriðum í norsku kvik-
myndinni Død Snø 2. Tökum á að
ljúka í dag en í gær var þar á ferð
forláta skriðdreki í grennd við
þekkt bæjareinkinni eins og Húsið
og kirkjuna. Vel á annað hundrað
manns hafa verið við tökurnar og
því augljóslega vakið athygli bæj-
arbúa, ekki síst uppvakningar í
blóðugum hermannabúningum.
Fulltrúar Saga Film, sem er í sam-
starfi við framleiðendur mynd-
arinar, heimsóttu leikskólann Brim-
ver í gær og færðu skólanum fimm
hjól að gjöf, en með gjöfinni vildu
aðstandendur myndarinnar þakka
fyrir góðar móttökur heimamanna á
meðan á tökum hefur staðið.
Bæjarstjórn Árborgar þurfti að
greiða þrisvar sinnum atkvæði til að
komast að niðurstöðu um hver hlyti
Frumkvöðlaviðurkenningu Árborg-
ar 2013, en niðurstaðan varð loks að
þau kæmu í hlut Fjallkonunnar –
sælkerahúss á Selfossi, sem hóf
starfsemi við Austurveginn í sumar.
Þar er að finna vörur beint frá býli
og annað forvitnilegt, en kaupmenn
þar og eigendur eru mágkonurnar
Elín Una Jónsdóttir og Sigrún Ósk-
arsdóttir. Fimm aðrir aðilar voru
tilnefndir til umræddra frumkvöðla-
verðlauna; Ferðaþjónusta Siggeirs
á Stað, Fischersetur, Selfossbíó,
Tryggvaskáli restaurant og Konu-
bókastofa á Eyrarbakka.
Ásókn í byggingarlóðir á Sel-
fossi virðist vera að aukast ef marka
má fjölda þeirra umsókna sem
skipulags- og byggingarnefnd
sveitarfélagsins hefur verið að af-
greiða undanfarið. Minnti ástandið
á síðasta fundi nefndarinnar nokkuð
á fyrri tíma þar sem það kom í hlut
sýslumanns að draga nafn heppinna
umsækjenda um sumar lóðirnar.
Engu að síður er talsvert framboð
af lóðum á Selfossi, þótt sumar séu
vinsælli en aðrar. Bærinn hefur
eignast nokkrar lóðir og landspildur
í landi Gráhellu, suðaustan núver-
andi byggðar, en þar hefur engin
hreyfing verið í gatnagerð um ára-
bil. Sveitarfélagið gerði samning við
dótturfélag Íslandsbanka vegna
þessa og verður ráðist í fram-
kvæmdir þar fljótlega.
Í dag má segja að sé lokadagur
sumaríþrótta á Selfossi. Bæði er
haldið síðasta golfmót sumarsins á
Svarfhólsvelli og síðasti leikur
karlaliðs Selfoss fer fram á heima-
velli í dag þar sem tekið verður á
móti Tröllaskagamönnum úr KF.
Hlynur Geir Hjartarson, fram-
kvæmdastjóri golfklúbbsins, segir
veður hafa sett svip sinn á ásókn
gesta á völlinn í sumar. Telst honum
til að nærri 1.000 færri hringir hafi
verið spilaðir í sumar en sumarið
2012. Völlurinn hafi verið í góðu
ástandi en 30 til 40 illviðrisdagar
draga mikið úr ásókn fólks í að elta
litla hvíta bolta. Í kvöld verður svo
haldið lokahóf meistaraflokks
knattspyrnudeildar Ungmenna-
félags Selfoss. Óhætt er að segja að
kvennaliðinu hafi tekist betur til
þetta sumarið en karlaliðinu, en
ætla má að farið verði yfir helstu
ástæður þess yfir steikinni í Hvíta-
húsinu.
Morgunblaðið/ Sigmundur Sigurgeirsson
Eyrarbakki Vel á annað hundrað manns hafa verið við tökurnar og því augljóslega vakið athygli bæjarbúa.
Uppvakningar á ferðinni
Nefnd um eitt greiðsluþátttökukerfi í
heilbrigðisþjónustu hefur fundað
fjórum sinnum á síðustu þremur vik-
um um leiðir til að
jafna kostnað
sjúklinga af heil-
brigðisþjónustu,
óháð því hvernig
hún er veitt. For-
maður nefndar-
innar er Pétur H.
Blöndal, þing-
maður Sjálfstæð-
isflokks. Hann
segir mörg
greiðsluþátttökukerfi við lýði í dag og
að jafna þurfi kostnað sjúklinga af
læknisþjónustu, óháð því hvort þeir
séu lagðir inn á sjúkrahús eða ekki.
Misrétti sem þarf að leiðrétta
„Þeir sem eru innritaðir á sjúkra-
hús greiða ekki fyrir sérfræðiþjón-
ustu og ýmsar rannsóknir og mynda-
tökur. Þeir sem koma á göngudeild
eða af öðrum ástæðum til sama spít-
ala borga fyrir t.d. sneiðmyndatöku,
heimsókn til sérfræðinga, og svo
framvegis, á þeim sama spítala.
Þarna tel ég að sé ákveðið misrétti,
að fólk sé að borga misjafnlega mikið
fyrir nákvæmlega sömu þjónustu,
eftir því hvort það er innritað á
sjúkrahús eða ekki,“ segir Pétur og
leggur áherslu á að nefndin sé ekki
búin að ræða þessi mál til lykta, né
heldur sé hún sammála um leiðir.
„Ég legg til að spítalar falli inn í
sama tryggingakerfi eins og allur
kostnaður sjúklinga og verði þá mætt
með þaki, þ.e.a.s. að það gildi einu
hvort menn fara í röntgenmyndatöku
á spítala eða utan, hvort þeir séu inn-
ritaðir eða ekki, að allur kostnaður
falli með sama hætti inn í þetta kerfi
og sé tryggður með þeim hámörkum
sem þar verða sett upp.“
„Mótsagnakennd“ ályktun
Spurður út í ályktun félags VG í
Suðvesturkjördæmi, sem birt er að
hluta hér fyrir neðan, segir Pétur
hana vera mótsagnakennda.
Hann bendir þannig á að vegna
framfara í heilbrigðisþjónustu sé t.d.
orðið fátíðara að sjúklingar leggist
inn á sjúkrahús vegna uppskurðar.
Vegna þessa þurfi t.d. krabbameins-
sjúklingar sem ekki eru innritaðir á
sjúkrahús í mörgum tilfellum að
greiða fyrir rannsóknir, lyf og sér-
fræðiþjónustu. Nefndinni sé ætlað að
tryggja að sjúklingar sem eru mikið
veikir og til lengri tíma greiði ekki
mun meira en aðrir. „Ég hef ekki
ennþá skilið af hverju það að liggja
inni á spítala eigi að vera ókeypis og
allt sem því tengist, en séu menn utan
spítala nánast í sömu stöðu þurfi þeir
að borga.“ baldura@mbl.is
Sjúklingar sitji
við sama borð
Nefnd ræðir ný greiðsluþátttökukerfi
Pétur Blöndal
Þátttakendur í sumarlestri Bóka-
safns Seltjarnarness lásu alls
16.573 blaðsíður og var þeim merka
áfanga fagnað með uppskeruhátíð í
Bókasafninu nýlega þar sem rithöf-
undurinn Kristín Helga Gunn-
arsdóttir heiðraði börnin með nær-
veru sinni og las fyrir þau.
Sumarlestur Bókasafnsins hófst
árið 1997 og hefur sífellt verið að
sækja í sig veðrið en í ár voru lesn-
ar alls 246 bækur. Þátttakendur
voru 59 börn á aldrinum 6 til 12
ára. Börnin áttu að þræða perlu á
festi fyrir hverja lesna bók og var
hálsfestin orðin hin myndarlegasta.
Að sumarlestri loknum hlutu þrír
heppnir lesendur bókaverðlaunin,
Aníta Rós Karlsdóttir, Ari Ósk-
arsson og Brynja Karítas Thorodd-
sen. Á myndinni eru þátttakendur í
sumarlestri Bókasafns Seltjarn-
arness ásamt Sigríði Gunn-
arsdóttur skipuleggjanda.
Mikil þátttaka í
sumarlestrinum
Heimssýn –
hreyfing sjálf-
stæðissinna í
Evrópumálum
hélt aðalfund á
Hótel Reykjavík
Natura í fyrra-
dag.
Á fundinum
var Vigdís
Hauksdóttir, al-
þingismaður,
kjörin formaður samtakanna, en
hún er fyrsta kona sem gegnir því
embætti. Einnig fjölgaði konum í
stjórn úr 6 í 11.
Alls sitja 44 einstaklingar í stjórn
samtakanna. Jón Bjarnason, fyrr-
verandi ráðherra, var kjörinn vara-
formaður
Vigdís Hauksdóttir
kjörin formaður
Vigdís
Hauksdóttir
Laufey Steingrímsdóttir prófessor,
Guðrún Hallgrímsdóttir mat-
vælaverkfræðingur og Sólveig
Ólafsdóttir sagnfræðingur leiða
gönguferð um miðborg Reykjavík-
ur laugardaginn 21. september þar
sem matur, saga og menning
verða meginefnið.
Gangan hefst á horni Að-
alstrætis og Túngötu kl. 11 og
henni lýkur við gömlu höfnina.
Gengið verður um gamla græn-
metisgarða, stakkstæði, veit-
ingastaði og verslanir liðins tíma.
Allir eru velkomnir.
Miðbæjarganga
STUTT
Félagar í VG samþykktu ályktun
vegna hugmynda sem ræddar hafa
verið í ofangreindri nefnd:
„Almennur félagsfundur VG í
Suðvesturkjördæmi, haldinn í
Kópavogi 19. september, mótmæl-
ir harðlega fram komnum hug-
myndum um gjaldtöku fyrir legu-
sjúklinga á sjúkrahúsum landsins.
Fram hefur komið í nýútkominni
skýrslu á vegum Krabbameins-
félags Íslands að gjaldtaka í heil-
brigðiskerfinu hafi farið stig-
vaxandi á undanförnum áratugum
og standi nú í 20% af heilbrigðis-
útgjöldum. Ofan af þessari öfug-
þróun þarf að vinda í stað þess að
bæta í. Heilbrigðisþjónustuna á að
fjármagna úr almannasjóðum en
ekki upp úr vösum sjúklinga.“
Sæki ekki féð til sjúklinga
ÁLYKTUN FÉLAGA Í VG