Morgunblaðið - 21.09.2013, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 21.09.2013, Qupperneq 39
UMRÆÐAN 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013 Ég greindist með mergsjúkdóm í júní 2009. Ég vil vekja athygli á því að það er nauðsynlegt fyrir karlmenn að hitta aðra í sömu sporum í kjölfar grein- ingar. Það er kú- vending á lífinu að greinast alger- lega óvænt, and- leg líðan sveiflast upp og niður og samskipti við maka og fjöl- skyldu breytast. Andlega líðan lærði ég að bæta með fræðslu, lík- amsrækt og hugleiðslu. Ég skráði mig á námskeið í Ljósinu fyrir greinda karlmenn ári eftir greiningu. Ég fékk upplýsingar á fundunum um það að greinast með alvarlegan sjúkdóm frá fólki sem virtist hafa þekkingu og áhuga á því. Ekki endi- lega sjúkdómnum sjálfum heldur þekkingu og þjálfun til að auka lífs- gæði mín eftir greiningu. Þá fékk ég mikið út úr samverunni í hópnum. Allir voru á svipuðum stað, með sömu vonir og væntingar. Það var líka hlegið smá. Eftir að hafa tekið þátt í fræðslufundunum fór ég að nýta mér önnur úrræði Ljóssins eins og líkamsrækt í Hreyfingu og heilsu- eflingarnámskeið. Ég fann miklar framfarir bæði líkamlega og and- lega. Fyrir mig var endurhæfingin í Ljósinu eins og að koma að stóru hlaðborði og um að gera að velja sér af því. Karlanámskeiðin eru fín byrj- un, maður fær góðar upplýsingar og vinnur svo úr þeim. Mér finnst hóp- urinn líka frábær þegar menn fara að kynnast. Mikil samheldni, skiln- ingur og glens.“ Ég hvet alla karlmenn sem hafa greinst að kynna sér fræðslufundi sem verða á dagskrá í haust í Ljós- inu, Langholtsvegi 43, eins og und- anfarin ár. Næsta fundaröð hefst mánudaginn 23. september kl. 17.30. Fundaröðin er tíu vikna löng og karl- arnir hittast einu sinni í viku. Mark- miðið er að þátttakendur fái upp- byggjandi fræðslu og hafi gagn og gaman af að hitta aðra í sömu að- stæðum. Sjá einnig www.ljosid.is. EINAR MAGNÚSSON Lífsgæðin og Ljósið Frá Einari Magnússyni Einar Magnússon Annað slagið eru mál um byggingu á nýjum Landspítala í um- ræðunni og erfitt fyrir fólk að átta sig á hvað verið er að bauka í þessu skúmaskoti rík- isins. Fyrirtækið er stærsta ríkisfyrirtækið í landinu og virðist vera rekið í um 100 húsum á 17 stöðum með 187 innganga, 23 heimilisföng við 16 götur. Velkomin til Landspítala-háskólasjúkrahúss. Erfitt er að átta sig á hvort einhver hefur yfirsýn yfir allt þetta flæmi og hvort ástand í sjúkrahúsmálum okkar muni batna eða versna við að stækka byggingamagnið á lóðinni upp í um 166.650 fm, 141.000 fm fyrir sjúkra- hús og 35.000 fm fyrir Háskóla Ís- lands. Í heildina gerir deiliskipulagið ráð fyrir að mögulegt heildar- byggingamagn á lóðinni gæti orðið 236.319 fm. Varla þarf að rekja aðdraganda þessa nýja verkefnis en undirbún- ingur þess hefur staðið í mörg ár og lítið vitað um hvenær því gæti lokið. Verkefnið gengur út á að stækka og byggja við Landspítala- háskólasjúkrahús og rífa hluta af eldri bygg- ingum. Spítalinn hefur verið í miklu fjársvelti lengi svo að daglegar fréttir af vandamálum spítalans nísta inn í bein hjá þjóðinni. Rætt er um hvort fólk sé að deyja inni á spítalanum vegna fjárskorts. Í svari velferð- arráðherra við fyr- irspurn Birnu Lár- usdóttur kom fram að áætlaðar nýframkvæmdir séu 77 þúsund fer- metrar og eigi að kosta samtals um 47 milljarða á verðlagi október 2012. Þetta eru ca. 610.000 kr. á hvern fer- metra. Algengt er að opinberar fram- kvæmdir fari um 20 til 40% fram úr áætlun og miðað við til dæmis 30% framúrkeyrslu yrði þessi tala ca. 793 þúsund kr. á hvern fermetra. Ef verð- bólga er ca. 5% á ári og það tekur ca. 5 ár að ljúka þessum áfanga þá gæti lokatalan miðað við verðlag 2018 ver- ið um 900 þús/fm. Umræddir 77 þús. fermetrar mundu samkvæmt því kosta 70 milljarða í uppgjöri verksins. Miðað við þessa 166.650 fm sem áætlað er að byggja samtals þá gæti sú framkvæmd í heildina miðað við verklok 2023 kostað um 160 milljarða í lokauppgjöri. Þetta eru talsvert hærri tölur en fólk hefur verið að tala um. Sem almennur borgari og áhuga- maður um verklegar framkvæmdir hafði ég samband við verksmiðju í Bandaríkjunum sem framleiðir sjúkrahús, teiknar og selur fullbúin sjúkrahús með öllum nýjasta búnaði og afhendir um allan heim. Þeirra tölur í svona sjúkrahús – með öllum nýjasta búnaði eru um 20% lægri en þær tölur sem hafa ver- ið birtar á vefsíðu nýja hátækni- sjúkrahússins. En það er ekki bara það. Reynsla þeirra er að í mörgum tilfellum þar sem þeir hafa komið að málum þá hafa þeir getað minnkað byggingamagn frá upphaflegum áætlunum og í einu versta tilfellinu gátu þeir minnkað áætlað bygg- ingamagn um 2/3 eða 67% án þess að skerða afköst á nýjum spítala. Það er ekki líklegt að hægt sé að minnka gerðar áætlanir um nýjan spítala hjá okkur um 2/3, en ef þetta væri til dæmis minnkað um 40% og bygging- arkostnaður lækkaður um 20% þá mundi heildarkostnaður lækka úr um 160 milljörðum í um 77 milljarða eða lækka um 83 milljarða. Í öllu falli virðist manni að það gæti verið hugs- anlega unnt að lækka heildar- kostnaðinn um 50 til 100 milljarða. Þetta er enginn smá peningur og spurning hvort hægt sé að líta fram hjá svona gríðarlegum mismun í verði og útfærslum – sérstaklega ef í boði væri jafngóður – eða álíka afkasta- mikill spítali? Það er einnig annað mjög mikil- vægt atriði í öllu þessu máli. Ástæðan fyrir öllum þeim þyngslum sem eru við breytingar og eða endurnýjun á húsnæði íslenskra sjúkrahúsa – lík- lega svipað ástand á Norðurlöndum – er að við byggjum allt of sterkar og viðamiklar byggingar sem eiga að endast í aldir. Það er enginn barna- leikur að taka svona byggingar og breyta þeim eða fjarlægja. Hátækni- sjúkrahús – eins og verið er að tala um er með alla nýjustu tækni þegar það er á teikniborðinu. Nokkrum ár- um síðar þegar það hefur verið byggt þá eru komin ný lækningatækni o.s.frv. Til að viðkomandi hátæknisjúkra- hús standi undir nafni þarf stöðugt að vera að uppfæra aðstöðuna og bún- aðinn í samræmi við nýjustu tækni í heilsubransanum. Þetta er nær óvinnandi verk ef húsnæðið er svo massíft og allt steypt saman í stóran klasa að það er engin leið að hrófla við neinu nema rífa allan spítalann meira og minna og trufla aðrar deildir spít- alans. Því virðist skynsamlegra að byggja meira í sjálfstæðum og viðráð- anlegum einingum – helst hámark tveggja hæða og léttbyggðari bygg- ingar en tíðkast á Íslandi og sem hægt væri að fjarlægja og end- urbyggja hratt og ódýrt þegar þessar byggingar hafa lokið hlutverki sínu. Þær eru oftar en ekki sniðnar utan um tiltekna starfsemi sem læknar og aðrir sérfræðingar mæla fyrir um og þegar ný lækningatækni ryður sér til rúms þá þarf að breyta og laga hratt fyrir sem minnstan pening. Mín tillaga er því sú að hætta öllum framkvæmdum við Hringbraut og opna algerlega nýtt byggingasvæði fyrir þetta nýja sjúkrahús ríkisins og finna til þess stað með mikið af flötu og góðu landi. Eftir Sigurð Sigurðsson Sigurður Sigurðsson »Með því að minnka byggingamagn um 40% og lækka bygging- arkostnað um 20% mundi heildarkostnaður lækka um 80 milljarða. Höfundur er M.Phil (cand. phil.) byggingaverkfræðingur. Er hægt að spara 80 milljarða? Bréf til blaðsins Íbúðir með öllum búnaði í Ventura Glæsilegar íbúðir í Ventura Country Club Orlando. Með íbúðunum fylgir allur búnaður þ.e. húsgögn, eldhústæki, þvottavélar og þurrkarar. Einnig fylgir allt lín og borðbúnaður ásamt skrautmunum. Íbúðirnar eru staðsettar í lokuðu og vöktuðu hverfi nálægt flugvellinum í Orlando. Í hverfinu er 18 holu golfvöllur, stór sundlaug, tennisvellir, klúbbhús með WiFi, veitingastaður með þjónustu, golfvöru verslun, leiksvæði, göngustígar, hjólastígar, æfingasalur og fleira. Frá Ventura er stutt í skemmtigarðana, ströndina, miðbæ Orlando, miðbæ Disney, verslana- miðstöðvar og þjónustu. Nánari upplýsingar veitir Pétur Sigurðsson fasteignasali. 199m² íbúð með þre- mur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, stofu, borðstofu,bílskúr og svölum. Verð USD 140.000 möguleiki á að seljandi aðstoði við fjármögnun. 83m² íbúð með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, stofu og eldhúsi ásamt svölum. Verð USD 65.000 má greiða í IKR þá 8.000.000 kr. Upplýsingar fást hjá Pétri Sigurðssyni, fasteignasala Petur@Floridahus.is, á vefnum www.Floridahús.is og í síma: +1-321-263-5096. The Viking Team, Realty, 105 Kaiser Ln, Longwood, FL, 32750 USA Minni grindin tekur allt að 10 kg. Verð kr. 5.100. Stærri grindin tekur allt að 20 kg. Verð kr. 9.440. Bæði úti og inni 2 stærðir ÞURRKGRINDUR Opið virka daga frá 9-18 og laugardaga frá 10-16 Laugavegi 29 - sími 552 4320 www.brynja.is - brynja@brynja.is Lykilverslun við Laugaveginn frá 1919 Áratuga þekking og reynsla

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.