Morgunblaðið - 21.09.2013, Page 43

Morgunblaðið - 21.09.2013, Page 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013 ✝ Haukur Har-aldsson fædd- ist í Brautarholti á Langholti 5. júlí 1927. Hann lést á Heilbrigðisstofn- uninni Sauðárkróki 9. september 2013. Foreldrar hans voru Haraldur B. Stefánsson, f. 6. janúar 1902, d. 25. júní 1969, og Jó- hanna Gunnarsdóttir, f. 12. maí 1901, d. 24. janúar 1986. Bræður Hauks eru; Stefán, f. 1930, Sigurður, f. 1936, og Bragi, f. 1942, og andvana fædd stúlka 1946. Haukur kvæntist 3. mars 1956 Erlu Maggý Guðjóns- dóttur, f. 3. september 1932. Erla er dóttir Guðjóns Jósafats- sonar frá Krossanesi og Þór- eyjar Sigtryggsdóttur frá Hóli á Skaga. Börn þeirra: 1) Eyþór Guðjón, fæddur 10. desember 1955, býr í Reykjavík. 2) Jó- hanna, fædd 8. mars 1959, sam- býlismaður hennar er Kristján Agnar Ómarsson, f. 19. febrúar 1962. Sonur þeirra er Haukur, f. 4. apríl 1989, unnusta hans er Ylfa Rún Sigurðardóttir, fædd 21. ágúst 1992. Þau búa í Reykjavík. Haukur ólst upp við almenn sveitastörf á búi foreldra sinna. Hann útskrifaðist sem búfræðingur frá Hólaskóla 1947. Einnig sótti hann vertíðir, m.a. til Keflavíkur og Vestmannaeyja, og vann við vöru- og rútubílaakstur. Eftir að Haukur flutti á Sauðár- krók hóf hann störf hjá Fiskiðju Kaupfélags Skagfirðinga og vann við akstur, keyrði með fólk í og úr vinnu, keyrði fisk frá dagróðrarbátum í frysti- húsið og vann við landanir úr togurum og annað í rekstri Fiskiðjunnar. Haukur stundaði samhliða þessu búskap með tengdaföður sínum, voru þeir með kindur. Haukur vann síðar í byggingavinnu hjá kaupfélag- inu í nokkur ár. Síðustu starfs- árin vann hann í sútunarverk- smiðju Loðskinns á Sauðárkróki. Haukur spilaði brids með Bridgefélagi Sauðárkróks ásamt konu sinni. Eftir að hann hætti störfum ferðuðust þau hjónin með eldri borgurum víða um land og hafði hann ánægju af því. Útför Hauks fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag, 21. september 2013, kl. 14. Ástkær faðir minn er horfinn á braut og hér sit ég og ótal minn- ingar koma upp í hugann. Ein af mínum fyrstu minningum um föð- ur minn er þegar þeir afi voru með kindabúskap og ég fékk að fara með í fjárhúsin. Margt var það í fari pabba sem vakti aðdáun mína. Hann var alveg ótrúlega vinnusamur og duglegur og þurfti helst alltaf að hafa eitthvað að gera. Sjaldan féll honum verk úr hendi. Úthaldið og orkan virtist alveg óendanlegt. Og aldrei heyrði ég hann kvarta, það var ekki til í hans huga. Pabbi hafði yndi af söng, og söng m.a. í kirkju- kórnum og ferðaðist með kórnum innanlands og einu sinni til Dan- merkur. Á seinni árum söng hann með kór eldri borgara. Hann hafði góða bassarödd. Einnig starfaði hann í félagsstarfi eldri borgara Störin á flánni er fölnuð og nú fer enginn um veginn annar en þú. Í dimmunni greinirðu daufan nið og veizt þú ert kominn að vaðinu á ánni … (Hannes Pétursson) Það má víða lesa í ljóðum að áin eða fljótið er tákn um skil tveggja heima. Faðir minn hefur lagt á vaðið á ánni og sú sýn sem ég hef á hann núna er að hann standi á bakkanum hinum megin, heil- brigður og hraustur, eins og ég þekkti hann best. Ég sé hann fyrir mér í bláum vinnuslopp með húfu á höfði og tilbúinn að hefja þar störf. Á hinum bakka árinnar gilda önnur lögmál en við þekkj- um og þar eru aðrar víddir sem eru okkur ókunnar. Pabbi var mikið náttúrubarn og unni mjög sveitinni og öllu lífi. Hann bjó alla sína tíð í Skagafirði og var mjög heimakær maður. Sorgarský hafa hrannast upp, en allir verða að bera sínar sorgir, þar er ekkert undanfæri. Þar verður hver að efla sinn þrótt. En það er sól bak við skýin og hún mun ná að skína í gegn að nýju. Sæl verður gleymskan undir grasi þínu byggð mín í norðrinu því sælt er að gleyma í fangi þess maður elskar. Ó, bláir eru dalir þínir byggð mín í norðrinu. (Hannes Pétursson) Vertu Guði falinn, pabbi minn, hafðu þökk fyrir allt. Þinn sonur Eyþór. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Nú ertu búinn að kveðja okkur, pabbi minn, eftir erfið veikindi, þú trúðir því ætíð að eitthvað tæki við þegar við hyrfum héðan. Það var gaman að alast upp á Króknum hjá ykkur mömmu og alltaf gott að koma í heimsókn norður. Þið bjugguð okkur Eyþóri gott og notalegt heimili. Það var gaman að fara með þér niður á sand að fiska. Þú veiddir alltaf fiskinn á undan mér. Seinna bættist Haukur nafni þinn við og veiddi maríufiskinn sinn á sandinum. Það var gaman að sitja með ykkur mömmu í fallega garðinum ykkar og njóta gróðursins. Þú hugsaðir alltaf vel um húsið, garð- inn og bílinn og sást um að allt væri á sínum stað. Áhugamálið þitt var söngurinn. Það var erfitt að finna þann texta í sálmabókinni sem þú kunnir ekki, enda söngst þú með kirkjukórnum í mörg ár og áttir góðar minningar þaðan. Á seinni árum söngst þú svo með kór eldri borgara á Sauðárkróki. Þegar ég fermdist í Sauðár- krókskirkju beið mín heima stór kassi frá ykkur mömmu. Mig ór- aði ekki fyrir hvað hann innihéldi. Ég spurði þig að því hvað væri í honum, þú svaraðir: Kíktu bara. Upp úr kassanum kom þessi dýr- indis harmonikka. Ég var fljót að ná lögum á hana eftir eyranu og var fallega lagið Alparós það fyrsta. Á þessum tíma áttu fáir harmonikku. Þið endurtókuð svo leikinn á fimmtugsafmælinu mínu með nýrri harmonikku. Áhugamál ykkar mömmu seinni árin var bridsspila- mennska. Það var oft slegið í borðið á Freyjugötunni og þið unnuð stundum til verðlaunapen- inga. Með þessum orðum kveð ég þig og þakka öll góðu árin með þér. Við Kristján og Haukur minn- umst þín með þakklæti og virð- ingu. Þín dóttir, Jóhanna Hauksdóttir. Fellur enn úr frænda liði, fýkur í gömul spor. Nú gengur þú, bróðir, Guðs í friði, hann gefi þér eilíft vor. Þeim fækkar ört hér á þessari jarðvist sem slitu barnsskónum á þriðja tug síðustu aldar. Haukur var vorsins barn, hann fæddist 5. dag júlímánaðar árið 1927 í Braut- arholti í Seyluhreppi hinum forna og lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 9. september. Hann ólst upp við búskaparhætti þess tíma er þekktust þegar hestar voru notaðir til ferðalaga jafnt sem aðfanga og orfið og ljárinn var borinn í gras og það má segja að hann og hans samferðamenn hafi getað munað tímana tvenna. Ég minnist þess að oft fórum við í göngur í Háheiði í Staðarfjöllum. Þá voru ekki frekar en nú upp- hituð hús eða matur á leið okkar heldur var sest á þúfu og snætt nesti úr hnakktösku, oft í misjöfn- um veðrum. Ég minnist þess líka þegar gangnamenn urðu að snúa við uppi í Reykjaskarði í stórhríð og fara heim. Þrátt fyrir það eru minningarnar allar bjartar frá æskudögum okkar. Haukur var snemma sterkbyggður og bú- störfin áttu allan hans hug, hann var búfræðingur frá Bændaskól- anum á Hólum 1947, en hann vildi prófa fleira. Hann vann í vegagerð á Öxnadalsheiði, var á vertíðum í Vestmannaeyjum, tók meirapróf bifreiðarstjóra og ók rútubílum um tíma. Hann kynntist konuefni sínu, Erlu Maggý Guðjónsdóttur frá Sauðárkróki, og saman settu þau bú á Freyjugötu 36 þar sem heimili þeirra stóð alla tíð síðan. Hann starfaði lengst af sem bif- reiðastjóri hjá Fiskiðju Sauðár- króks og Útgerðarfélagi Skag- firðinga sem KS rak. Síðustu árin sem hann var á vinnumarkaði vann hann hjá Loðskinn á Sauð- árkróki. En bóndaeðlið vék aldrei frá honum, hann átti heyhlöðu og fjárhús og hafði kindur sem hann heyjaði fyrir inni á Sauðártúni. En loks urðu þessi áhugamál hans að víkja fyrir vaxandi atvinnu á Króknum. Haukur hafði góða söngrödd og næmt tóneyra enda var stundum tekið lag í gamla bænum í Brautarholti þó kannski aldrei eins og þegar Sigurður Skagfield kom heim frá námi og söng fyrir aldraða foreldra sína í suðurhúsinu, þá héldum við bræð- ur, sem ekki vorum stórir þá, að þekjan færi af bænum, þvílíkur fannst okkur krafturinn vera. Einnig kom Stefán Íslandi ævin- lega til foreldra okkar þegar hann átti leið um Skagafjörð. Þingstað- ur sveitarinnar var í Brautarholti frá 1915 og þar til Miðgarður tók til starfa og var því oft gestkvæmt á bænum. Ef að gömlu torfbæirn- ir hefðu mátt mæla þá hefðu þeir frá mörgu getað sagt, en nú hefur tíminn breitt yfir þessar og aðrar minningar eins og moldin sem breiðir yfir okkur að lokum. Með- an Haukur bjó í sveitinni söng hann í Karlakórnum Heimi og eft- ir að hann flutti til Sauðárkróks söng hann með Karlakór Sauðár- króks og kirkjukórnum á staðnum og síðast með kór Eldri borgara í Skagafirði. Erla mín, ég þakka ykkur fyrir stundirnar sem þið áttuð með okkur Mörtu minni, ég votta þér, börnum ykkar, barnabarni og tengdasyni mína dýpstu samúð og bið Guð að styrkja ykkur í sorg- inni. Kæri bróðir, ég þakka þér veg- ferðina í 83 ár og óska þér góðrar ferðar yfir á land eilífðarinnar þar sem ég veit að bíða þín vinir í varpa og þar sem við munum hitt- ast aftur á ný. Stefán Gunnar Haraldsson, Víðidal. Við andlát Hauks bróður brjót- ast fram ótal minningar um liðnar samverustundir. Honum var ávallt annt um mína líðan allt frá því ég var barn í Brautarholti, því hann var stóri bróðir og ég yngst- ur. Þar sem ég var meira og minna öll mín unglings- og námsár á heimili Hauks og eftirlifandi mág- konu minnar, hennar Erlu Mag- gýjar, á Freyjugötu 36 stend ég í mikilli og ævarandi þakkarskuld við þau hjón fyrir allt sem þau hafa gert fyrir mig gegnum tíðina. Á Freyjugötunni var á þessum árum ávallt mjög gestkvæmt, ekki síst á vorin og haustin. Gestir framan úr sveit og utan af Skaga, og allt þar á milli. Þá var oft mjög glatt á hjalla og sérstaklega tekið vel á móti öllum í mat og drykk. Haukur gat verið mjög spaugsam- ur og sérstaklega næmur á fyndin atvik úr daglegu lífi og þá var mik- ið hlegið og brosað út að eyrum. Einnig minnist ég margra skemmtilegra stunda með Hauki við fjárbúskapinn, en hann stund- aði hann í mörg ár samhliða störf- um sínum fyrir Kaupfélag Skag- firðinga. Ásamt Guðjóni, tengdaföður sínum, sinnti hann búskapnum af mikilli natni og hirti mjög vel um sínar skepnur. Ég fékk að taka þátt með fjölskyld- unni í heyskapnum, einnig hirð- ingu og svo í réttum á haustin. Þá var oft glatt á hjalla í góðum hópi, og ógleymanlegar stundir. Þá fórum við margar veiðiferðir saman í lax og silung. Kenndi hann mér ungum stráknum ým- islegt um silungsveiði og ekki var hann sérlega ánægður nema vel veiddist. Hann var allt frá unga aldri duglegur veiðimaður á fugl og fisk enda var mataröflun hon- um í blóð borin og allt var þetta til heimilisnota. Hann kunni vel að meta allan rammíslenskan mat og naut hans vel. Mér þótti mikið gaman að taka þátt í þessu öllu með þér, Haukur, þegar ég gat og fyrir það þakka ég. Á Freyjugötunni hef ég því ætíð verið heimagangur og höfum við notið mikillar gestrisni þeirra hjóna, hvort sem efnt var til þorra- blóts eða kaffiveislu í litla eldhús- inu. Fyrir þær samverustundir allar þökkum við og ótal aðrar heimsóknir sem við látum í minn- ingarsjóðinn. En árin færðust yfir og Elli kerling gleymir engum, lífskraftar láta á sjá og slakna um síðir. Það er gangur lífsins. Haukur átti því láni að fagna að standa keikur með sitt þar til fyrir fáum mánuðum að eitthvað brast og heilsu hrakaði mjög hratt. Þá kom styrkur Erlu Maggýjar vel í ljós, sem reyndist honum hjálpar- hella til hinstu stundar. Elsku Haukur bróðir, ég vil þakka þér fyrir allt og allt. Hvíl í friði. Elsku Erla, Eyþór, Jóhanna, Kristján, Haukur jr. og Ylfa. Við hjónin vottum ykkur öllum okkar dýpstu samúð og biðjum ykkur allrar blessunar. Bragi Haraldsson. Kæri bróðir. Mig langar að senda þér nokk- ur kveðjuorð nú er leiðir skilur. Er ég lít til baka og minnist bernskuára okkar, þegar við vor- um að alast upp í Brautarholti, þá er minningin björt. Ég minnist þín sem hins stóra, sterka bróður enda aldursmunur 9 ár. Uppvöxtur okkar var með svip- uðum hætti og þá var algengur í byggðum landsins, börn fóru að hjálpa til við bústörfin strax og þau höfðu aldur og krafta til. Þú varst snemma liðtækur á því sviði og minnist ég þess m.a. að ungur fórst þú að slá með orfi og ljá – og er fram liðu stundir varðst þú af- burðasláttumaður og harðdugleg- ur að hverju sem þú gekkst. Já, árin liðu, þú fórst að heiman í þína fyrstu vinnu sem var vegavinna hjá Rögnvaldi Jónssyni á Öxna- dalsheiði í 2 sumur. Þaðan komst þú með stælta vöðva og sigg í höndum eftir malarmokstur o.fl. Síðan lá leið þín í Hólaskóla og út- skrifaðist þú sem búfræðingur ár- ið 1947. Eftir það stundaðir þú ýmis störf, m.a. rútubílaakstur hjá sérleyfishafa Siglufjörður-- Sauðárkrókur. Þá var nýbúið að opna veg yfir Siglufjarðarskarð. Haukur hafði yndi af söng, enda ágætur söngmaður; bassam- aður. Hann var m.a. 4 ár í Karla- kórnum Heimi. Eftir að hann flutti til Sauðárkróks söng hann með Karlakór Sauðárkróks, Kirkjukór Sauðárkróks í áraraðir og með kór eldri borgara. Haukur var meira en meðal- maður á hæð, samsvaraði sér vel, hraustur maður sem vann öll sín verk af vandvirkni og trú- mennsku. Geymdi aldrei það til morguns sem hægt var að gera í dag. Hann var heilsuhraustur fram undir það síðasta en heilsu hans hrakaði fyrir um ári. Á jóladag 1951 opinberuðu þau trúlofun sína Erla Maggý og hann. Flutti hann þá til Sauðár- króks. Einstök gestrisni ríkti hjá þeim hjónum og gott var að heim- sækja þau á Freyjugötuna – þar var ávallt sest að veisluborði. Ég vil að lokum kveðja bróður minn með innilegu þakklæti fyrir öll liðnu árin. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem) Við Þóra og fjölskylda okkar sendum þér, Erla Maggý, og fjöl- skyldu þinni innilegar samúðar- kveðjur. Þinn bróðir, Sigurður. Þú kvaddir þegar blómin fóru að falla og fölva haustsins sló á sumarskraut. Þú hafðir gengið götu þína alla og gæfu notið hér á lífsins braut. Það syrtir að og söknuðurinn svíður, hann svíður þó að dulin séu tár en ævin okkar eins og lækur líður til lífsins bak við jarðnesk æviár. Og tregablandin hinsta kveðjan hljómar svo hrygg við erum því við söknum þín, í hugum okkar stjarna lífs þíns ljómar, sem ljós á vegi í brjóstum okkar skín. Við biðjum að þér ljóssins englar lýsi og leiði þig hin kærleiksríka hönd í nýjum heimi æ þér vörður vísi, sem vitar inn í himnesk sólarlönd. Þér sendum bænir upp í hærri heima og hjartans þakkir öll við færum þér. Við sálu þína biðjum guð að geyma, þín göfga minning okkur heilög er. (Guðrún Elísabet Vormsdóttir) Þín frænka, Sigríður Stefánsdóttir. Haukur föðurbróðir minn hef- ur kvatt á sínu 87. aldursári. Minningabrot streyma fram. Meðalmaður á hæð, frekar stór- gerður. Stórstígur eins og margur í ættinni. Kurteis og ákveðinn. Hló alltaf innilega. Sérstakar kverkaræskingar sem ég og fleiri í ættinni höfum erft okkar eigin útgáfu af. Fæddur í sveitinni en gerðist Króksari og bjó í gamla bænum. Bjó mín fyrstu 10 æviár í næsta húsi við þau Hauk og Erlu á Freyjugötunni, húsinu þar sem þau bjuggu alla tíð, og Erla gerir enn. Fyrsta minningin er ég um það bil átta ára og Haukur að koma heim úr vinnunni í Fiskiðj- unni, í háu appelsínugulu klofstíg- vélunum. Kirkjukórinn. Ég oft við aftan- söng á aðfangadag með pabba sem líka söng í kórnum. Mig minnir að Haukur hafi sungið bassa. Einlægur bridge-áhugi þeirra hjóna Hauks og Erlu. Þau spiluðu allan veturinn í klúbbnum og áreiðanlega meira en það. Mín fyrsta laxveiðiferð með Hauki frænda og pabba í Staðar- ána. Ég líklega um 12 ára. Man eins og það hefði gerst í gær. Haukur stýrði aðgerðum. Veitt á maðk og þrír stórir laxar komu á land. Allir úr Melshyl. Í það minnsta þrír merkiskett- ir, „heimilismenn“ á Freyjugöt- unni, hver á eftir öðrum. Man nöfnin Brandur og Snælda. Allir fengu gott atlæti en voru misgeð- góðir. Fór oft með soðna ýsu að heiman til að fæða þessa meistara þegar Haukur og Erla voru að heiman. Fjöruveiðar. Hvað skyldi Haukur hafa farið margar ferðir niður á sand til að veiða silung í soðið. Hann öfundaði mig mikið sumarið þegar ég veiddi meira en 500 fiska. Um margra ára skeið var fyrsta ávarpið til mín: „Hefur þú farið að veiða nýlega?“ og eftir að ég flutti suður: „Tókst þú ekki stöngina með?“ Síðustu páskar. Ég með dreng- ina mína í heimsókn hjá Hauki og Erlu til að þakka fyrir ferming- argjöfina. Haukur skenkti kaffi og límonaði og hélt uppi samræðum. Erla kom með tertu. Mér fannst hann bara hress. En í sumar hall- aði hratt undan fæti og „Elli kerl- ing“ náði tökum. Það eru góðar minningar sem fylgja Hauki frænda. Erla, Eyþór, Jóhanna, Kristján og Haukur, innilegar samúðarkveðjur frá mér og minni fjölskyldu. Góður Guð geymi Hauk frænda, hann hvíli í friði. Helgi Bragason. Haukur Haraldsson ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, ÁSGERÐAR LILJU HOLM, Skessugili 7, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks görgæsludeildar Sjúkrahúss Akureyrar fyrir góða umönnun. Jóhannes Helgi Gíslason og fjölskylda. ✝ Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARSIBIL ÞÓRÐARDÓTTUR, Hólavegi 9, Sauðárkróki. Kristín Guðmannsdóttir, Eiríkur Ingi Björnsson, Guðbjörg Guðmannsdóttir, Böðvar Hreinn Finnbogason, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.