Morgunblaðið - 21.09.2013, Qupperneq 45
MINNINGAR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Berjarimi 36, 222-5902, Reykjavík, þingl. eig. Atli Sigmar Hrafnsson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 25. september 2013
kl. 14:00.
Fannarfell 4, 205-2390, Reykjavík, þingl. eig. Aldís Guðbj. Sigur-
sveinsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn
25. september 2013 kl. 14:30.
Fífurimi 42, 204-0449, Reykjavík, þingl. eig. Svanhildur Ragnarsdóttir,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og
Tollstjóri, miðvikudaginn 25. september 2013 kl. 13:30.
Funahöfði 7, 204-3015, Reykjavík, þingl. eig. Sigríður Marteinsdóttir,
gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur, Reykjavíkurborg og Vörður
tryggingar hf., miðvikudaginn 25. september 2013 kl. 10:00.
Hraunbær 6, 204-4460, Reykjavík, þingl. eig. Anna Margrét Magnús-
dóttir og Branislav Dragojlovic, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður,
miðvikudaginn 25. september 2013 kl. 11:30.
Hraunbær 138, 204-5127, Reykjavík, þingl. eig. Ómar Hugi Egilsson,
gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., miðvikudaginn 25. september
2013 kl. 11:00.
Kirkjustétt 15, 226-2995, Reykjavík, þingl. eig. Þórhildur Þrándardóttir,
gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður verslunarmanna og Orkuveita
Reykjavíkur, miðvikudaginn 25. september 2013 kl. 16:00.
Suðurhólar 28, 205-0956, Reykjavík, þingl. eig. Ómar Hákonarson,
gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg, Suðurhólar 28, húsfélag og
Vátryggingafélag Íslands hf., miðvikudaginn 25. september 2013
kl. 15:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
20. september 2013.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Blikastaðir 2, 208-1893, Mosfellsbæ, þingl. eig. Blikastaðir ehf.,
gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., fimmtudaginn 26. september 2013
kl. 11:30.
Borgartangi 2, 208-3102, Mosfellsbæ, þingl. eig. Sigríður Sveinbjörns-
dóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Lífeyrissjóður verslunar-
manna, fimmtudaginn 26. september 2013 kl. 11:00.
Bugðutangi 2, 208-3247, Mosfellsbæ, þingl. eig. Eggert Þór
Sveinbjörnsson, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf., Mosfellsbær og
Vörður tryggingar hf., fimmtudaginn 26. september 2013 kl. 10:30.
Hamratangi 5, 221-6800, Mosfellsbæ, þingl. eig. Guðrún Helga
Kristjánsdóttir og Vicente Carrasco, gerðarbeiðendur Lífeyrissj.
starfsm. rík. A-deild og Mosfellsbær, fimmtudaginn 26. september
2013 kl. 10:00.
Háaleitisbraut 56, 201-4667, Reykjavík, þingl. eig. Volodymyr Dya-
chenko, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 26. septem-
ber 2013 kl. 13:30.
Leirubakki 36, 226-3424, Reykjavík, þingl. eig. Heimahagar ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 26. september 2013
kl. 15:30.
Mávahlíð 5, 203-0108, Reykjavík, þingl. eig.Thelma Guðrún
Jónsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn
26. september 2013 kl. 14:30.
Stigahlíð 26, 203-1020, Reykjavík, þingl. eig. Margrét Helga Ólafs-
dóttir, gerðarbeiðandiTollstjóri, fimmtudaginn 26. september 2013
kl. 14:00.
Sundlaugavegur 14, 201-8864, Reykjavík, þingl. eig. Björg Erlings-
dóttir, gerðarbeiðandi Drómi hf., fimmtudaginn 26. september 2013
kl. 15:00.
Úlfarsbraut 30, 230-7448, Reykjavík, þingl. eig. Gunnar Gunnarsson,
gerðarbeiðendur Frjálsi hf., Reykjavíkurborg, Sjóvá-Almennar
tryggingar hf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., fimmtudaginn
26. september 2013 kl. 16:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
20. september 2013.
Elskulegur faðir
minn hefði orðið 80 ára í dag,
21. september, og langar mig af
því tilefni að minnast hans með
nokkrum orðum.
Á þessum degi varst þú oft-
ast á Blönduósi og hringdum
við systur í þig og skáluðum við
þig í gegnum símann, sem við
gerum eflaust áfram, þar sem
hún er komin til Englands í
skóla, ég er þar sem ég er og þú
þar sem þú ert. Tilefnið er stórt
í dag en þessu höfðum við gam-
an af. En mikið sakna ég þín,
elsku pabbi minn, það eru orð
að sönnu, enginn veit hvað átt
hefur fyrr enn misst hefur.
Við áttum margar góðar
stundir saman í Póllandi,
heima, úti í skúr að bólstra, en
komumst ekki yfir allt. Einn
sófi uppi á lofti, hver veit nema
maður feti bara í þín fótspor og
læri bólstrun. Vantar bara rétta
meistarann til leiðsagnar.
Walter Helgi
Jónsson
✝ Walter HelgiJónsson hús-
gagnabólstrari
fæddist í Reykjavík
21. september 1933.
Hann lést á Land-
spítalanum í Foss-
vogi 1. desember
2009.
Útför Walters fór
fram í kyrrþey.
Það var ansi
tómlegt um jólin
að fá ekki að hafa
þig, nafni þinn
setti derhúfuna
þína á stólinn
þinn þar sem þú
varst vanur að
sitja og lét sem þú
værir hjá okkur,
sem þú eflaust
varst.
Þín er sárlega
saknað, það var alltaf svo gott
að geta leitað til þín, en svona
er lífið, ég óska að vonir þínar
og þrár hafi ræst og þið
mamma hafið fengið að hittast í
paradís, við fáum ýmsan skiln-
ing með árunum um ýmsa hluti
sem maður hafði ekki skilning á
áður.
Takk fyrir þann tíma sem við
fengum að njóta saman, elsku
pabbi minn, og þennan stór-
glæsilega karakter sem þú
varst, alltaf ungur í anda. Það
væri nú hægt að segja ótal
skemmtilegar sögur eins og í
draugasetrinu forðum o.fl., o.fl.
Enn og aftur, til hamingju með
daginn, elsku pabbi minn.
Vertu sæll og ég bið að
heilsa fólkinu okkar hinum
megin, þú átt eftir að koma
með sönnunina. Góða ferð.
Þín dóttir,
Ólöf Birna.
✝ Þórður Þórð-arson vélstjóri
fæddist í Ólafsvík
1. nóvember 1923.
Hann lést á Dval-
ar- og hjúkr-
unarheimilinu
Jaðri í Ólafsvík
14. september
2013.
Foreldrar hans
voru hjónin Þórð-
ur Kristjánsson, f.
23.7. 1891 á Rauðkollsstöðum í
Eyjahreppi, d. 28.9. 1980, og
kona hans Svanfríður Una
Þorsteinsdóttir, f. 21.12. 1888
á Brimilsvöllum í Fróð-
árhreppi, d. 8.5. 1960. Systkini
Þórðar: 1) sammæðra Anna L.
Guðmundsd. f. 26.5. 1915, d.
9.7. 1921. Alsystkini Þórðar: 2)
Ellert Kristján, f. 24.7. 1916,
d. 13.1. 1918, 3) Elín Kristín, f.
19.12. 1917, d. 21.6. 2006, 4)
Ebba, f. 13.10. 1919, d. 4.8.
1921, 5) Esther, f. 5.1. 1921, d.
6.7. 2007, 6) Ebba Anna, f.
12.12. 1921, d. 18.11. 1923, 7)
Aðalbjörg, f. 11.12. 1924, d.
28.3. 1925, 8) Sigrún, f. 5.6.
1926, 9) Rafn, f. 4.12. 1927, d.
13.7. 1996, 10) Hrafnkell, f.
3.1. 1929, d. 23.7. 1935, 11)
Lilja, f. 12.9. 1930, 12) Rakel,
f. 6.10. 1931, d. 23.12. 1975,
ur, f. 26.6. 1986. 6) Guðríður,
f. 10.1. 1963, gift Birni H.
Hilmarssyni, f. 9.5. 1960, synir
þeirra: a) Guðni, f. 26.9. 1995,
b) Hilmar, f. 7.6. 2000, c) Að-
alsteinn, f. 13.7. 2010. Þórður
og Aðalsteina eiga fjögur
barnabarnabörn.
Þórður lauk barna-
skólanámi í Ólafsvík, tók hið
minna mótoristanámskeið, eins
og það var kallað, hjá Fiski-
félagi Íslands. 1950 fór Þórður
á hið meira mótorista-
námskeið, einnig hjá Fiski-
félaginu. Þar var m.a. kennd
rafmagnsfræði sem hann hafði
mikinn áhuga á. Sem ungur
maður stundaði hann sjó-
mennsku, oftast sem vélstjóri.
Síðan lá leiðin í Vélsmiðjuna í
Ólafsvík. Þar brenndist hann
illa af bensíneldi í vinnuslysi.
Hann vann sem vélstjóri í
Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur.
Hann var sýningamaður í
bíóinu, einnig í stjórn Verka-
lýðsfélagsins Jökuls. 1963 fékk
hann starf sem vélstjóri á Lór-
anstöðinni á Gufuskálum og
varð síðar yfirvélstjóri, starf-
aði hann þar alls í 18 ár. Vann
hann við pípulagnir og sem
vélstjóri á ms. Brúarfossi og
fleiri skipum. Hann endaði
sinn starfsferil sem húsvörður
í Landsbanka Íslands í Ólafs-
vík og hætti þar 70 ára gam-
all. Þórður var félagi í Rot-
aryklúbbi Ólafsvíkur.
Útför Þórðar fer fram frá
Ólafsvíkurkirkju í dag, 21.
september 2013, kl. 14.
13) Unnur, f. 25.8.
1933.
Þórður kvæntist
20.12. 1947 Að-
alsteinu Sum-
arliðadóttur, f.
22.2. 1923, d. 29.4.
2013, frá Ólafsvík.
Foreldrar hennar
voru hjónin Sum-
arliði Sófanías
Árnason, f. 28.10.
1891 á Brim-
ilsvöllum í Fróðárhreppi, d.
17.4. 1930, og Petrína Guð-
ríður Pétursdóttir, f. 10.8.
1892 á Brimilsvöllum, d. 9.11.
1987. Börn Þórðar og Að-
alsteinu: 1) Egill, f. 20.7. 1948,
giftur Yoko A. Þórðarson, f.
2.4. 1941. 2) Þórður, f. 8.5.
1950, giftur Kari H. Raa, f.
10.6. 1948, sonur þeirra:
Christian, f. 21.11. 1983. 3)
stúlka, f. 23.2. 1952, d. 25.2.
1952. 4) Karítas Anna, f. 24.2.
1956, sambýlismaður Guðjón
Elisson, f. 3.2. 1958, börn Kar-
ítasar eru a) Atli Már, f. 29.7.
1977, b) Árni, f. 3.9. 1984, c)
Anna Dís, f. 15.5. 1986, sonur
Guðjóns er Kristján, f. 2.2.
1979. 5) Svanfríður, f. 23.2.
1959, gift Birni Arnaldssyni, f.
13.1. 1954, synir þeirra: a)
Arnaldur, f. 9.8. 1979, b) Þórð-
Að missa foreldra sína með
rúmlega fjögurra mánaða milli-
bili er erfitt, en að sama skapi
ómetanlegt að hafa fengið að
njóta þeirra og þeirra skilyrð-
islausu ástar í öll þessi ár. Elsku
pabbi minn, hann saknaði
mömmu svo mikið að lífið var
honum erfitt eftir að hún féll frá
í vor. Núna er hann kominn til
hennar eins og hann þráði. Við
erum þakklát fyrir að hafa get-
að haldið upp á 90 ára afmæli
mömmu í febrúar og glaðst
saman, hlegið og sungið með
góðum vinum og fjölskyldu, tek-
ið fjölskyldumynd af öllum
hópnum sem strax er orðin okk-
ur ómetanlega dýrmæt. Þegar
ég minnist pabba kemur svo
ótal margt upp í hugann. Þegar
ég var lítil snérust leikir mínir
oft um það sem var að gerast
hjá pabba, t.d. þegar hann kom
af síldinni lék ég mér með húf-
una hans og þóttist vera að fara
á síld, gekk til allra fjölskyldu-
meðlima og kvaddi þá mjög al-
vörugefin með húfuna undir
hendinni.
Pabbi var ekki mikið að
skipta sér af uppeldi okkar
systkina, það fékk mamma að
glíma við að mestu leyti. En ef
ég þurfti aðstoð við reikning var
pabbi boðinn og búinn að hjálpa
mér, enda hafði hann mjög gam-
an af stærðfræði. Allt sem snéri
að tölum og rökhugsun átti vel
við hann. Enda 100% maður
sem vildi gera allt rétt, kæru-
leysi var ekki til í hans skapgerð
og kannski einmitt þess vegna
var hann oft of nákvæmur og
þoldi illa að gera mistök. Þung-
lyndi bankaði á dyrnar hjá hon-
um sem ungum manni og glímdi
hann við það í gegnum lífið, stóð
mamma alla tíð eins og klettur
við hlið pabba og hjálpaði hon-
um í gegnum erfiðu dagana
enda ekki talað um þetta í þá
daga og enga hjálp að fá og ekki
degi sleppt úr vinnu. Ekki fann
ég fyrir þessu á nokkurn hátt
sem barn. Þegar pabbi lá fyrir í
sófanum fannst mér svo nota-
legt að kúra hjá honum.
Alla tíð leit ég upp til pabba
og fannst hann fallegastur og
bestur. Gaf ég einhvern tímann
út þá yfirlýsingu að ég ætlaði að
giftast manni eins og pabba.
Hafði hann mikinn áhuga á úti-
vist og fjallgöngum, fór hann
létt með að skreppa upp á Enni
svona fyrir kvöldmatinn enda
mjög líkamlega hraustur alla
tíð. Hann hafði óbilandi áhuga á
ljósmyndun og tók mikið af
myndum sem eru algjör fjár-
sjóður í dag. Þegar pabbi varð
áttræður gáfum við honum
myndaskanna sem hann var
fljótur að læra á og skannaði
nokkur þúsund myndir og
brenndi á diska. Pabbi var mik-
ill tækjakarl og var spenntur
fyrir nýjungum, þegar hann
vann á Gufuskálum pantaði
hann ósamsettar stereógræjur
frá Bandaríkjunum og tengdi
saman sjálfur, þetta tæki er í
fullkomnu lagi enn í dag. Pabbi
var ekki duglegur að rækta
samband við systkini sín en
fylgdist vel með öllum og þá
sérstaklega systkinabörnum
sínum. Gladdist hann mjög þeg-
ar við nokkrar frænkur fórum
að hittast fyrir rúmlega tuttugu
árum og ganga á fjöll. Fylgdist
hann vel með okkur og vildi vita
hvernig gengi, þótti honum svo
vænt um að við skyldum halda
sambandi.
Mamma og pabbi hafa verið
stór hluti af lífi okkar Bjössa og
strákanna okkar. Gott er að
eiga góðar minningar, Guð
blessi elsku mömmu og pabba
minn.
Svanfríður Þórðardóttir.
Hvort sástu vorið veg þínum á,
vindur um nótt!
Hvað viltu því, hvort ég vorið sá?
kvað vinur um nótt.
Ég veit það ei. Því veldur mín þrá
og vakan hverfur ei augum mér frá,
vindur um nótt!
Hvort er það þú sem þreyir og bíður?
Já, það er ég!
Og kveður í þrá hverja stund er líður?
Já það er ég!
Og gáir hvort laufið á viðunum
vaknar
því vorið skal færa þér þann er þú
saknar?
Já, það er ég!
Lát vökuna dvína, vík burt þinni þrá,
kvað vindur um nótt.
Á leið minni að vísu ég vorið sá,
kvað vindur um nótt.
En lauf þess var dapurt og líkföl þess
brá
og ljóð, er andaði vörum þess frá –
Sem vindur um nótt.
(Jóhann Jónsson frá Ólafsvík)
Elsku afi og amma, takk fyrir
allt sem þið hafið gert fyrir okk-
ur. Við hefðum ekki getað átt
betri afa og ömmu.
Arnaldur og Þórður
Björnssynir.
Þórður Þórðarson móður-
bróður minn er búinn að kveðja
sína hinstu kveðju. Það var
þráður væntumþykju á milli
okkar. Ég fékk þennan þráð að
gjöf frá móður minni. Henni
þótti mjög vænt um bróður sinn
og talaði ætíð fallega um hann.
Það voru ekki mikil samskipti á
milli okkar fyrr en ég fullorðn-
aðist. Einn sólríkan dag í Lækj-
argötu þegar ég hitti hann á
göngu rauk ég á hann, heilsaði
honum glaðlega og kyssti á
kinnina, hann var bæði glaður
og hissa. Hann minntist þess-
arar kveðju oft þegar við hitt-
umst seinna meir. Öll okkar
samskipti eftir það einkenndust
af því að geta komið við hjartað
hvort í öðru. Það var engu lík-
ara en við værum í daglegum
samskiptum. Merkilegt að
kynnast frænda sínum á fullorð-
insárum og geta átt í samskipt-
um sem eingöngu einkenndust
af hjartahlýju. Ég er honum
Þórði frænda mínum afar þakk-
lát fyrir að hafa tekið mér svona
vel og skynjað þennan þráð
væntumþykju sem ég fékk í gjöf
frá móður minni.
Svo er um ævi
öldungmanna
sem um sumar-
sól fram runna;
hníga þeir á haustkvöldi
hérvistardags
hóglega og blíðlega
fyrir hafsbrún dauða.
(Jónas Hallgrímsson)
Ég votta börnum hans og
fjölskyldum þeirra mína innileg-
ustu samúð.
Heba Helgadóttir.
Þórður
Þórðarson
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is
má finna upplýsingar um inn-
sendingarmáta og skilafrest.
Einnig má smella á Morg-
unblaðslógóið efst í hægra horn-
inu og velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birt-
ingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi
ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, jafnvel þótt
grein hafi borist innan skila-
frests.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem aðstandendur
senda inn. Þar kemur fram hvar
og hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og hvenær út-
förin fer fram. Þar mega einnig
koma fram upplýsingar um for-
eldra, systkini, maka og börn, svo
og æviferil. Ætlast er til að þetta
komi aðeins fram í formálanum,
sem er feitletraður, en ekki í
minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja
mynd skal senda hana með æviá-
gripi í innsendikerfinu. Hafi
æviágrip þegar verið sent má
senda myndina á netfangið minn-
ing@mbl.is og gera umsjón-
arfólki minningargreina viðvart.
Minningargreinar