Morgunblaðið - 21.09.2013, Síða 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2013
Hér verður tveimur stór-merkum öfgarokksskífumsem eru nýkomnar út sleg-
ið saman í eina spikfeita grein,
annars vegar er um að ræða fyrstu
breiðskífu hinnar ógurlegu Car-
cass í sautján ár en hins vegar er
um að ræða fjórðu breiðskífu
nýsjálensku ný-dauðarokkssveit-
arinnar Ulcerate sem er í far-
arbroddi í þeim geiranum hvað
framþróun og hugmyndaauðgi
varðar. Báðar komu plöturnar út
föstudaginn 13. september. Segja
má að þessar sveitir séu tvær hlið-
ar á sama gæðapeningi, eini mun-
urinn er að tímamótgjörningar
Carcass áttu sér stað tuttugu árum
fyrr.
Snoðklipptir dauðarokkarar!?
Ég hafði verið að hlusta eitthvað
á Ulcerate og líkað vel en ég viður-
kenni að þegar ég sá mynd af
henni í fyrsta sinn jókst áhugi minn
til mikilla muna. Tónlistin framþró-
að dauðarokk; níðþungt og giska
tæknilegt en hér stóðu snoðklippt
ungmenni, rjóð í andlitum og
minntu fremur á harðkjarnasveit í
gaggó en þá hrikalegu rokksveit
sem maður nam úr hljóðrásunum.
Útlit segir oft ákveðna sögu, líkt og
þegar myndir af svartmálmssveit-
inni Liturgy frá Brooklyn sýndu
menn sem minntu fremur á latte-
þambandi hipstera en þá ófrýni-
legu og sveittu þungarokkara sem
fólk vill samsama þeirri tónlist. Allt
varð brjálað í þungarokksheimum
vegna þessa. Á líkan hátt hefur
Ulcerate gert skurk í nýdauða-
rokkinu og framfærsla þeirra nokk
einstök. Þar gildir þó mest hversu
frábærlega sveitin nær að brúa bil
ólíkra þátta. Meðlimir eru algerir
yfirburðamenn hvað tæknigetu
varðar, tónlistin á köflum stærð-
fræðileg en sú staðreynd keyrir
aldrei yfir tilfinningaþrungann,
ástríðuna og – já – fegurðina sem
er bundin í hana. Þetta er eins og
fyrri tíma Sigur Rós hefði hitt á
seinni tíma Gorguts á miðnæt-
urfundi. Fjórða platan kallast
Vermis og kemur í kjölfar hinnar
stórkostlegu The Destroyers of All
(2011) og ég hvet alla áhugamenn
um alvöru tónlistarsköpun til að
tékka á þessari sveit.
Meistararnir
Mér er minnisstætt þegar Sig-
valdi Ástríðarson (stundum nefnd-
ur Valli Dordingull) sagði við mig
með fullum þunga að Carcass væri
Ómþýð þykkildi
Ferskir Dauðarokkssveitin Ulcerate fer frjálslega með reglubókina.
að hans mati besta þungarokks-
sveit allra tíma og hefur sá mæti
maður hlustað á drjúgan skammt-
inn af slíkri list. Ég vissi upp á hár
hvað hann var að meina. Ferill
Carcass er með ólíkindum, sveitin
þróaðist á ljóshraða á tiltölulega
stuttum tíma og olli miklum
straumhvörfum í sínum geira,
gerði skurk mikinn svipað og Ulce-
rate. Upphaflega lék sveitin
„grind-core“ að hætti Napalm
Death en á tímamótaplötunni
Necroticism – Descanting the In-
salubrious (1991) hjó hún í alls
óþekktan knérunn; tónlistin mögn-
uð blanda af hráleika fyrri verka,
hefðbundnu dauðarokki og fram-
sæknu, tilraunaglöðu rokki sem er
skuldlaus eign Carcass. Á Heart-
work (1993) mátti enn heyra breyt-
ingar, áhrif frá melódískum tvígít-
arleik Iron Maiden lék um laga-
smíðarnar; aðgengilegt verk á
margan hátt en listræn heilindi al-
ger. Frábær plata. Carcass lagði
upp laupana eftir hina réttilega
nefndu Swansong (1996) en sneri
aftur árið 2008 og hefur leikið á
hljómleikum með reglubundnum
hætti síðan.
Platan nýja, Surgical Steel, er í
anda síðustu platnanna en sveitin
er nú skipuð upprunalegu meðlim-
unum Jeff Walker og Bill Steer
ásamt þeim Ben Ash gítarleikara
og Daniel Wilding trommuleikara
en hann er fæddur 1989, árið sem
önnur plata Carcass, Symphonies
of Sickness kom út. Gamalt – og
nýtt – svo sannarlega!
» [T]ónlistin á köfl-um stærðfræðileg en
sú staðreynd keyrir
aldrei yfir tilfinninga-
þrungann, ástríðuna og
– já – fegurðina sem er
bundin í hana
Vigt Carcass er ein áhrifamesta þungarokkssveit allra tíma.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
Tvær merkar öfgarokksskífur með Carcass og Ulcerate
eru komnar út Fánaberar hins nýja og hins gamla
Elín Hansdóttir og Theresa Him-
mer taka þátt í leiðsögn og ræða við
gesti um verk sín á sýningunni
Vísar – húsin í húsinu í Hafnarborg
á morgun, sunnudag, kl. 15.
Á sýningunni eru ný verk eftir
myndlistarmennina og arkitektana
Elínu, Ilmi Stefánsdóttur, Marcos
Zotes og Theresu, sem eiga það
sameiginlegt að vinna á mörkum
myndlistar og arkitektúrs þó þau
eigi að öðru leyti að baki ólíkan fer-
il. Sýningarstjóri er Anna María
Bogadóttir.
Listamenn með leiðsögn í Hafnarborg
Hús Elín Hansdóttir tekur þátt í leiðsögn.