Morgunblaðið - 01.10.2013, Qupperneq 2
Árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags
Íslands, Bleika slaufan, hefst í dag, en Kristján
Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra afhenti ung-
um fulltrúum ýmissa heilbrigðisstétta fyrstu
bleiku slaufurnar við hátíðlega athöfn í Hörpu í
gær. Fram kom í máli forstjóra Krabbameins-
félagsins að á næstunni verði hægt að taka upp
nýja aðferð við greiningu á leghálskrabbameini,
þökk sé fé sem safnast hefur í átakinu.
Október er mánuður Bleiku slaufunnar
Morgunblaðið/Rósa Braga
Árvekniátak Krabbameinsfélags Íslands hefst í dag en heilbrigðisráðherra afhenti fyrstu slaufurnar í gær
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
KEMUR HEILSUNNI Í LAG
EIN TAFLA Á DAG SYKURLAUSAR
LITLAR VÍTAMÍNTÖFLUR SEM GOTT ER AÐ GLEYPA
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Sala á mjólkurafurðum hefur aukist
mjög undanfarin misseri en Mjólk-
ursamsalan (MS) gerir ráð fyrir 7,7
milljóna lítra aukningu í mjólkursölu
innanlands á árunum 2012 til 2014.
Einar Sigurðsson, forstjóri MS, seg-
ir innanlandsmarkaðinn vera að
styrkjast verulega og þróunin hafi
verið óvenjuhröð síðustu mánuði. Þá
segir formaður Landssambands
kúabænda, Sigurður Loftsson, það
skynsamlegt að hækka greiðslu-
mark mjólkur fyrir næsta ár til að
fylgja sölunni eftir.
Frá ársbyrjun hefur sala á smjöri,
rjóma, ostum, drykkjarmjólk og
fleiri mjólkurafurðum aukist mjög.
Einar segir í samtali við Morgun-
blaðið að búast megi við verulegri
framleiðsluaukningu á næstu mán-
uðum. „Þetta er auðvitað ánægjulegt
fyrir fyrirtækið og okkur sem störf-
um hér en fyrst og fremst er um að
ræða verulegan ávinning fyrir
bændurna.“ Hann segir sölu á bæði
smjöri og osti hafa verið einkar
mikla, en einnig virðist sem neyt-
endur séu farnir að drekka
drykkjarmjólk og nýmjólk í meira
mæli en áður.
Eftirspurnin tekur við sér
„Þróunin er óvenjuhröð síðustu
mánuði. Eftirspurnaraukningin var
jöfn alveg frá árinu 2009 þangað til
núna, á seinni hluta árs 2013.“ Að-
spurður hvaða skýringu hann kunni
á þessari aukningu segir Einar
mikla áherslu hafa verið lagða á
vöruþróun og vörugæði. „Síðan er
verðið á þessum vörum hagstætt. Al-
mennt viðhorf til mjólkurvara hefur
einnig verið að styrkjast,“ segir Ein-
ar.
Samtök afurðastöðva í mjólkur-
iðnaði hafa lagt það til að Sigurður
Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, auki greiðslu-
mark mjólkur, sem er samanlagður
mjólkurkvóti bænda til framleiðslu
fyrir innanlandsmarkað, úr 116
milljónum lítra árið 2013 í 123 millj-
ónir lítra á næsta ári. Einar segir
ekkert því til fyrirstöðu að það verði
gert.
Undir það tekur Sigurður Lofts-
son: „Ég held að það sé skynsamlegt
að hækka greiðslumarkið þetta mik-
ið til þess að reyna að fylgja þessari
bröttu sölu eftir.“
Aðspurður hvort markaðurinn
ráði við þennan uppgang í sölunni
segir Sigurður að kúabændur eigi
vel að geta ráðið við hann að öllu
óbreyttu. „Maður veit samt aldrei
hverju náttúran tekur upp á, en við
ættum að ráða við þetta ef árferðið
verður eðlilegt.“
Þá segir í tilkynningu frá Mjólk-
ursamsölunni, sem send var út í gær,
að fyrirtæki í mjólkuriðnaði hafi
ákveðið að kaupa alla framleiðslu
bænda á fullu afurðastöðvaverði frá
byrjun októbermánaðar til áramóta.
Greiðslumark verði aukið
Sala á mjólkurafurðum hefur aukist mjög Forstjóri MS segir þróunina
ánægjulega Leggja til að greiðslumarkið verði aukið fyrir næsta ár
„Það er ánægju-
legt hvernig
vörum okkar er
tekið.“
Sigurður Loftsson „Þetta hefur
gríðarleg áhrif á
svæðið. Við erum
ekki einungis að
tala um þessa 32
starfsmenn sem
fengu uppsögn,
heldur allar út-
gerðir þeirra
rækjuskipa sem
eru hér á svæð-
inu og hafa byggt
afkomu sína á þessum veiðum,“ seg-
ir Finnbogi Sveinbjörnsson, formað-
ur Verkalýðsfélags Vestfirðinga, um
frumvarp sjávarútvegsráðherra um
kvótasetningu á úthafsrækju sem
lagt verður fram á Alþingi á næstu
vikum.
Í gær var öllum 32 starfsmönnum
rækjuvinnslunnar Kampa ehf. á Ísa-
firði sagt upp störfum, en ástæðan
er sögð vera frumvarp ráðherrans.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Finnbogi að ef frumvarpið verði að
lögum muni það kippa stoðunum
undan öflugri atvinnuuppbyggingu á
Vestfjörðum.
Samkvæmt frumvarpinu stendur
til að úthluta kvóta að 70% í hlutfalli
við fyrri kvótaeign en aðeins 30% í
hlutfalli við veiðireynslu á þeim
þremur árum sem veiðar á úthafs-
rækju hafa verið frjálsar. Þetta
myndi þýða að viðskiptabátar
Kampa fengju 8% af úthlutaðri afla-
hlutdeild í stað 28%.
„Ég ætla að vona að ráðherrann
sjái sig um hönd og þetta verði ekki
að veruleika,“ segir Finnbogi.
kij@mbl.is
„Gríðar-
leg áhrif
á svæðið“
Finnbogi
Sveinbjörnsson
Kampi segir upp
32 starfsmönnum
Karlmaðurinn
sem lést í bíl-
veltu í Keldu-
hverfi austan
Húsavíkur að-
faranótt laug-
ardagsins 28.
september síð-
astliðins hét
Sveinn Björns-
son og var 33 ára að aldri. Hann
var búsettur í Árdal í Kelduhverfi.
Sveinn var einn á ferð þegar slysið
varð, en mikil hálka var á vegum.
Sveinn lætur eftir sig tvö börn.
Lést í slysi í
Kelduhverfi
Hjónin Stefán Kristjánsson og Kolbrún Guð-
mundsdóttir hafa rekið Kaffivagninn við
Reykjavíkurhöfn í 30 ár eða frá árinu 1983. Nú
er hins vegar kominn tími til að leyfa öðrum að
spreyta sig við reksturinn að sögn Stefáns.
„Við vorum þriðju eigendur Kaffivagnsins og
kominn tími til að við tækjum okkur frí frá
rekstrinum, sem hefur gengið nokkuð vel hjá
okkur þau ár sem við höfum rekið Kaffivagn-
inn,“ segir Stefán en hann seldi Guðmundi Við-
arssyni reksturinn og tekur hann við honum í
dag. „Ég hlakka til að taka við rekstrinum enda
hafnarsvæðið eitt flottasta svæðið í borginni og
það verður mikil uppbygging hér og líf á næstu
árum,“ segir Guðmundur. Hann lofar því að
ekki verði miklar breytingar á staðnum.
„Gamli tíminn fær að halda sér og maturinn
verður heimilislegur og þjóðlegur. Ísland verð-
ur í hávegum haft á Kaffivagninum.“
Nýr eigandi Kaffivagnsins
Fyrri eigendur hætta
eftir 30 ár í rekstrinum
Morgunblaðið/Golli
Eigendur Stefán Kristjánsson og kona hans Kolbrún Guð-
mundsdóttir seldu Guðmundi Viðarssyni og konu hans Mjöll
Daníelsdóttur Kaffivagninn, þau eru til vinstri á myndinni.