Morgunblaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það hefur aldr-ei verið tekiðsaman hversu háum fjár- hæðum heimurinn sóaði til að undirbúa sig undir þær hamfarir sem kynnu að verða við „þúsalda“skiptin. Kannski eins gott, því það voru óhemjulegar fjárhæðir. Taldar í milljörðum á litla Íslandi. En þótt sagt sé hér „sóaði“ þá urðu fjármunirnir víða eftir í hagkerf- inu því margur hagnaðist á ótt- anum við óttann. Hinn samfelldi og markvissi áróður snerist ekki síst um „óvissuna“ á hinum miklu tímamótum. Þúsund árum áður gerðist ekkert hræðilegt nema þá það að Íslendingar gerðust kristnir án þess að fjalla um mál samkyn- hneigðra sem dróst því í þúsund ár. En þá voru engar tölvur. Þess vegna var engin hætta á ferðum. En þúsund árum síðar var heimurinn orðinn háðari tölvunni en dópistinn eitrinu. Og óvissan snerist ekki síst um það að tölvurnar mundu ekki vita hvaðan á sig stæði veðrið þegar fara þyrfti úr öðru árþúsundinu yfir á það þriðja. Fulltrúar og umboðsmenn skattgreiðenda nær og fjær létu heldur betur snýta sér í aðdrag- anda tímamótanna, því enginn vildi bera þá ábyrgð að hafa ekki undirbúið sig og sína þjóð undir þessar hugsanlegu hamfarir af mannavöldum. Sem sagt að tölv- urnar kynnu ekki að telja nema upp á þúsund. Þegar aldaskiptin urðu (sumir náðu að deila um hvenær þau urðu í raun) og ekk- ert gerðist hafði allur þorrinn ríka hagsmuni af því að taka ekki eftir því að ekki nokkur skap- aður hlutur gerðist. Einhverjir hefðu sjálfsagt reynt að halda því fram að það hafi einmitt verið vegna allra nefndanna í þús- undatali og allra tölvufræðing- anna í hundraða þúsunda tali sem sent höfðu alla reikningana í tugmilljóna tali að ekkert gerð- ist. Nú eru fimm ár liðin frá því að efnahagsblaðran sprakk um víða veröldina og með sérstökum einkahvelli uppi á Íslandi. Og vegna þessa afmælis eru ýmsir á tánum umfram það sem venju- legt er. Rétt eins og höfð er sér- stök gát gagnvart hryðjuverka- mönnum 11. september hvert ár. Hagfræðingurinn Krugman hefur hlotið hin sérstöku verð- laun sænska seðlabankans, sem afhent eru á nóbelshátíðinni (og því kennd við sprengjugerð- armanninn Nóbel, þótt honum hefði aldrei dottið í hug sjálfum að verðlauna ónákvæmnisvísindi af því tagi, enda kostar hans sjóður þau ekki). Krugman er mjög frískur fræðimaður og hik- ar ekki við að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, þótt þau kunni að vera á ystu nöf fræðanna. Í pistli í New York Times í gær segir Krugman að fautaleg framganga repúblikana á Bandaríkjaþingi kunni að leiða til mikillar fjár- málakreppu, sem kunni að verða mun alvarlegri en kreppan fyrir fimm árum, þegar banki Lehman Brothers féll með brestum og fjöldi annarra banka og enn fleiri tórðu einungis vegna fjárausturs „hins opinbera“. Repúblikanar setja það skil- yrði fyrir því að þeir samþykki enn eina hækkun á skuldaþaki Bandaríkjanna að Obama fresti gildistöku heilbrigðisáætlunar- innar (Obamacare) um eitt ár. Ekki eru efni til að leggja hér neitt mat á kosti eða galla þess- arar tillögu repúblikana en ýms- ir utan þess flokks hafa lagst á sömu sveif, þar með talið for- ystumenn verkalýðsfélaga sem ekki vilja heyra eða sjá þann flokk. Krugman fer mikinn gegn repúblikönum enda aldrei átt pólitíska samleið með þeim. Nú mundi utanbæjarmaður ætla að sé fullyrðing Pauls Krugmans rétt og efnahagur veraldarinnar sé allur undir þá myndi Banda- ríkjaforseti telja að skárra væri að fresta þessu óskamáli sínu um ár fremur en horfa framan í slík ósköp. Síðast þegar samsvarandi deila stóð á milli þingmeirihluta repúblikana og forseta sem lok- aði ríkissjoppunni, eins og það er orðað í umræðunni (þótt það eigi aðeins við um lítinn hluta þess), riðu repúblikanar ekki feitu hrossi þaðan. Því gætir óróleika innan þess flokks núna og marg- ir þingmanna hans vilja ekki stíga skrefið til fulls. Kannski vill Krugman leggja sitt lóð á vogarskálar forsetans. Guggni repúblikanar þarf hinn vaski fræðimaður ekki að hafa áhyggjur af sínum heimsenda- spám. En óháð þessu atriði og óháð fimm ára afmæli ófaranna miklu þá eru áhyggjuefnin víða. Púðurtunnan fyrir botni Mið- jarðarhafs er á sínum stað og púðrinu hefur verið haldið þurru. Pakistan og Afganistan eru á sínum stað og gera má trú- verðuga heimsendaspá um það sem þar muni gerast á næstu ár- um. Ítalía er enn í pólitískum sandstormum og sér ekki út úr augum. Og Grikkland. Nefndu það ekki ógrátandi. Þar hefur þjóðarframleiðslan fallið um 23 prósent! Atvinnuleysið er komið í 28 prósent og gríska millistétt- in er farin „að róta í ruslatunn- um eftir mat“ segir í nýlegri grein. Samt (enda) býr sú þjóð við allrameinabótina, sjálfa evr- una. Vera má að eitthvað sé til í þeim stórasannleik fjölmiðla að repúblikanar í Bandaríkjunum séu vondu karlarnir með svörtu hattana en demókratar þeir góðu með hvítu hattana. En það má skyggnast víðar en til hinna fyrrnefndu vilji menn lyfta um- ræðunni á kreik í tilefni tíma- mótanna. Efni í heimsenda- spár er víða að finna }Krugman kveður að B íltúr. Já, það er merkilegt hvað lítil orð geta stundum fengið mikla merkingu og sveipast æv- intýraljóma þegar litið er til baka. Úr heimasveit minni á Selfossi ég margar góðar minningar um ýmsar skemmri ferðir, til dæmis í þorpin niðri við ströndina, rúnt um Flóann eða austur í Fljótshlíð. Í hverri ferð var eitthvað nýtt og spennandi að sjá og ég trúi að margir geti svipaða sögu sagt. En eru svona lystireisur komnar úr tísku? Stundum birtast í minningargreinum svip- myndir úr bíltúrum fjölskyldna í Reykjavík til dæmis austur í Hveragerði. Margir fóru þang- að til að kaupa ís í Eden eða skoða apann í gróðurskála Michelsen. En það ber að taka fram að aldingarðurinn brann og sirkusdýrið er dautt en þá ætti að vera auðvelt að finna eitt- hvað annað áhugavert til að skoða. Dagur um liðna helgi var afskaplega ljúfur. Tólf ára gamall frændi fór með mér í bíltúr og fyrsti áfangastað- urinn var Gljúfrasteinn í Mosfellsdal. Falleg málverk og ljósmynd af Auði og Halldóri Laxness eftir Ragnar Ax- elsson vöktu athygli stráksa, sem og sérkennilegur talandi skáldsins í hljóðleiðsögn um húsið. Á Þingvöllum fórum við yfir fjallanöfnin og litum á blátærar gjárnar, þar sem álfur aðskiljast. Svo var gengið að bústað forsætisráð- herra og velt upp þeirri spurningu hvaða góðum málum við myndum reyna að koma til leiðar fyrir fólkið í landinu fengjum við að vera Sigmundur Davíð – og með veld- issprota í hendi, þótt ekki væri nema brot úr degi. Á leiðinni yfir Lyngdalsheiði var rifjuð upp sagan af Kóngsveginum, brautinni sem lögð var árið 1907 þegar Friðrik VII. Dana- konungur heimsótti Ísland. Heimsókn á sveitabæ, hvar voru kýr, kálfar og svín, var áhugaverð og eins orkuverið á Nesjavöllum, en þar var staldrað við á leiðinni í bæinn. Bensín, samlokur, kakómjólk og pylsa á N1. Jú, ætli ferðin leggi sig ekki á fjögur þúsund krónur. Velja má öllum útgjöldum viðmið og sannarlega rífur í þegar bensínlítrinn kostar um 240 krónur og snatt og snúningar innan- bæjar eru bensínfrekir í meira lagi. Bíllinn er hins vegar ekki jafn frekar á fóðrum í lang- keyrslum svo þetta ferðalag varð ódýrt gaman. Verður samt í dýru gildi haft, því krakkar eru að upplagi forvitnir og vilja fræðast um um- hverfi sitt og fá frekari svör t.d. við því sem bryddað er upp á í skólanum. Bíóferð, tölvuleikir, íþróttaleikur, keila, tívolí í Smára- lind, pítsa, Hamborgarafabrikkan á afmælisdegi og fleira viðlíka er góð dægradvöl, sem kostar barnafjölskyldur ekki mikið. Þetta sem nefnt er hér að framan er hins vegar allt tilbúinn veruleiki. Ferðalag um raunheima náttúru, sögu og merkra atburða getur svo sannarlega höfðað til krakka og er uppbyggileg afþreying. Því finnst mér svo sannarlega kominn tími til að aftur verði til virðingar haft þetta skemmtilega fyrirbæri sem kallað er sunnudags- bíltúr. sbs@mbl.is Sigurður Bogi Sævarsson Pistill Sunnudagsbíltúr í september STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is S koðanakönnun um stað- setningu nýs 120 her- bergja hótels í Vest- mannaeyjum lýkur á morgun, 2. október. Könnunin fer fram á vef Vestmanna- eyjabæjar (www.vestmannaeyjar.is) og eru fimm kostir í boði. Þeir eru að nýtt hótel verði reist á nýja hrauninu við innsiglinguna í Vestmannaeyja- höfn, við Eldheima við rætur Eld- fells, í brekku neðan við Hána rétt hjá Spröngunni, þar sem hús Fisk- iðjunnar stendur við Ægisgarð, eða í Löngulág milli Hallarinnar og Fram- haldsskóla Vestmannaeyja. Fyrirtækið H-Eyjar ehf. hefur undirbúið byggingu hótels í Vest- mannaeyjum. Forsvarsmenn H-Eyja ehf. eru þeir Einar Sigurjón Valdi- marsson viðskiptafræðingur og Guð- bjarni Eggertsson hdl. Í maí í vor efndi Vestmannaeyjabær til skoð- anakönnunar um hugmynd sama fyr- irtækis um byggingu hótels á lóð í Hásteinsgryfju ofan við Hásteinsvöll. Þriðjungur Eyjamanna tók þátt í þeirri könnun og voru 44% fylgjandi hótelbyggingu í Hásteinsgryfju en 56% voru því andvíg. Í framhaldinu hafnaði bæjarstjórn Vestmannaeyja umsókn H-Eyja ehf. um lóðina í Há- steinsgryfju. Vestmannaeyjabær fékk ráð- gjafarfyrirtækið Alta ehf. til að meta staðsetningarkostina fyrir hótel sem nú er kosið um. Skýrsla Alta ehf. er aðgengileg í gegnum vef bæjarins. Gert er ráð fyrir því að 120 herbergja hótelið verði fjögurra hæða og 12 metra hátt. Gólfflöturinn verði 5.280 m2. Í skýrslu Alta eru myndir sem gefa hugmynd um sjónræn áhrif slíkrar byggingar á ýmsum stöðum í Vestmannaeyjum. Treysta þarf samgöngurnar En er þörf fyrir svo mikla aukn- ingu á gistirými í Vestmannaeyjum? „Það getur alveg orðið þörf fyrir aukið gistirými hér þegar samgöng- urnar eru komnar í lag,“ sagði Krist- ín Jóhannsdóttir, ferða- og menning- armálafulltrúi Vestmannaeyjabæjar. „Það er rosalega erfitt að geta ekki verið á kafi í verkefninu Ísland allt árið. Það er bara ekki búið til fyrir Vestmannaeyinga á meðan þessar lokanir eru í Landeyjahöfn. Sam- göngurnar þurfa að komast í lag allt árið.“ Kristín benti á að nú væri unnið að stækkun Hótels Vestmannaeyja. Auk þess er boðið upp á fleiri gisti- möguleika á Heimaey. Langflestir ferðamenn til Eyja koma með Herj- ólfi og sagði Kristín ekki ljóst hvern- ig skiptingin væri á milli heima- manna og innlendra og erlendra ferðamanna í farþegahópnum. Þrátt fyrir svipaðan fjölda ferðamanna nú og í fyrra olli veðrið því að margir höfðu skemmri viðdvöl í Eyjum í sumar en í fyrrasumar, að sögn Kristínar. T.d. voru fleiri gestir en færri gistinætur á tjaldsvæðinu nú. Einkum hefðu Íslendingar stopp- að stutt og farið annað í betra veður. Kristín sagði að ótryggar sam- göngur í Landeyjahöfn yllu ferða- þjónustunni vanda. Tryggja þyrfti að Herjólfur færi a.m.k. eina ferð á dag, t.d. síðdegis, til Þorlákshafnar væri ófært í Landeyjahöfn. Með því móti gæti ferðaþjón- ustufyrirtæki sent fólk til Eyja að morgni í trausti þess að geta kom- ið því aftur upp á land samdægurs. Sama ætti við um heimamenn sem jafnvel færu nú með tveggja daga fyrirvara úr Eyjum til að vera öruggir með að ná flugi til útlanda. Kanna hug til hótels í Vestmannaeyjum Valkostir fyrir hótel í Vestmannaeyjum Loftmyndir ehf. Nýja hraunið Eldheimar Sprangan Fiskiðjan Langalág Farþegar með Herjólfi eru 3,1% færri það sem af er ári en á sama tíma í fyrra, að sögn Gunnlaugs Grettissonar, rekstr- arstjóra Herjólfs. Farþegarnir eru orðnir tæplega 250.000. „Það munar mest um mun færri farþega í júlí nú en voru í fyrra. Þar er veðrinu fyrst og fremst um að kenna. Júlí er samt stærsti mánuðurinn á árinu hjá okkur. Árið í fyrra var metár,“ sagði Gunnlaugur. Hann sagði að rætt hefði verið um siglingar í Þorláks- höfn ef ófært væri í Land- eyjahöfn. Útgerð skipsins væri bundin af samningi sem setti henni ákveðin takmörk. „Við reynum að þjónusta þetta eins vel og við getum og hefur tekist það prýði- lega,“ sagði Gunnlaugur. Ívið færri farþegar nú TÆPLEGA 250.000 FAR- ÞEGAR MEÐ HERJÓLFI Gunnlaugur Grettisson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.