Morgunblaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 32
32
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Fyrsta kvikmynd bandaríska leik-
stjórans og handritshöfundarins Ani
Simon-Kennedy, Dagar grámans,
Days of Gray upp á ensku, verður
frumsýnd í Gamla bíói á föstudags-
kvöldið. Þetta er kvikmynd án orða
sem tekin var að öllu leyti upp hér á
landi í fyrra, með íslenskum leik-
urum. Hljómsveitin Hjaltalín samdi
tónlistina sem leikin er í myndinni
og mun hljómsveitin flytja tónlistina
á frumsýningunni.
Leikstjórinn segir söguna gerast í
svo fjarlægri framtíð að hún sé
næstum því orðin eins og fortíðin.
Er henni lýst sem tímalausri upp-
vaxtarsögu ungs drengs sem hittir
stúlku sem lifir í einangrun. Er þau
yfirvinna óttann gagnvart hvort
öðru myndast óvenjuleg vinátta
milli þeirra. Með aðalhlutverk í
myndinni fara Davíð Laufdal Arn-
arson, Diljá Valsdóttir og Viktoría
Rós Antonsdóttir. Meðal annarra
leikara eru Guðmundur Ingi Þor-
valdsson, Bryndís Petra Bragadótt-
ir og Margrét Helga Jóhannsdóttir.
„Myndin gerist á tíma þegar
tungumál eru ekki lengur til og það
er eins og menn hafi snúið aftur til
upphafsins. Því vildum við taka
myndina í eins ósnortnu landslagi
og unnt væri og Ísland var kjörinn
vettvangur,“ segir Simon-Kennedy.
Hún bætir við að þær Cailin Yatsko
kvikmyndatökumaður hafi fengið
mikla hjálp frá íslenskum vinum við
að finna tökustaði sem væru mátu-
lega eyðilegir. „Að lokum fundum
við hárrétta húsið að taka upp í og
tókum mestmegnis upp á Reykja-
nesi og á Þingvöllum. Þetta var
stórkostleg leið til að kynnast land-
inu.
Jarmandi sauðfé við tökur
„Við tókum myndina upp á tólf
dögum í ágúst í fyrra. Það var býsna
stíft en klipparinn grófklippti mynd-
ina jafn óðum. Að því loknu fínk-
lipptum við myndina og fengum
Hjaltalín þá útgáfu að semja við.“
Simon-Kennedy segir að starfs-
fólk við myndina hafi verið banda-
rískt að þriðjungi, annar þriðjungur
hafi verið Frakkar og loks Íslend-
ingar. Hún segir að leikur barnanna
hafi verið afar góður og nátt-
úrulegur. Þá hafi það hjálpað í þess-
um hröðu tökum að ekki þurfti að
taka upp nein hljóð. „Það var líka
eins gott því það var mikið af jarm-
andi sauðfé í kringum húsið þar sem
við tókum mest upp,“ segir hún og
hlær. „Það heyrðist afar hátt í þeim
en áheyrendur heyra það ekki.“
Glögglega kemur fram að hljóm-
sveitin Hjaltalín er í lykilhlutverki.
„Við Cailin sáum Hjaltalín á tón-
leikum í Prag fyrir þremur árum,
þegar við vorum þar við nám, og þá
hófst þetta ferli allt,“ segir Simon-
Kennedy. „Ég kolféll fyrir tónlist-
inni og fannst hún vera eins og kvik-
mynd í tónum. Ég fór strax að
hugsa um myndefni sem gæti pass-
að við lögin.“ Hrifningin vatt upp á
sig og þegar þær stöllur höfðu
stofnað framleiðslufyrirtæki í New
York, gerðu þær myndband við tón-
listina á plötu hljómsveitarinnar,
Terminal, og meðlimir sveitarinnar
hrifust síðan af þeirri hugmynd að
semja tónlist við þessa kvikmynd
sem tók einnig að mótast. Það er
tónlistin sem hljómsveitin mun nú
flytja „læf“ á frumsýningunni.
Days of Gray verður sýnd í New
York í nóvember og síðan er ætl-
unin að reyna að koma henni á sem
flestar hátíðir. „Á kvikmynda-, tón-
listar- og listahátíðir,“ segir Simon-
Kennedy. „Og vonandi sem oftast
við lifandi undirleik Hjaltalín.“
„Stórkostleg leið til
að kynnast landinu“
Hjaltalín leikur undir frumsýningu Daga grámans
Morgunblaðið/Rósa Braga
Leikstjórinn „Ég kolféll fyrir tónlistinni og fannst hún vera eins og kvik-
mynd í tónum,“ segir Ani Simon-Kennedy um kynni sín af tónlist Hjaltalín.
Tekin á Íslandi
» Hljómsveitin Hjaltalín leikur
undir frumsýningu Days of
Gray á föstudag.
» Íslenskir leikarar fara með
öll helstu hlutverk í myndinni
sem er í fullri lengd en án orða.
» Kvikmyndin var tekin á tólf
dögum í lítt snortinni íslenskri
náttúru.
Ferðafrömuðurinn SimonSpies og skattalögfræð-ingurinn Mogens Glistrupvoru litríkir menn og
áberandi í dönsku samfélagi á 7. og
8. áratug síðustu aldar. Spies seldi
Dönum sólarlandaferðir til Mallorca
í hrönnum á meðan hann sjálfur lifði
mjög svo skrautlegu gjálífi sem að-
eins virtist auka veltu fyrirtækisins.
Glistrup varð landsfrægur á svip-
stundu snemma árs 1971 þegar hann
í sjónvarpsviðtali sagði þá sem sviku
undan skatti gera föðurlandi sínu
jafnmikið gagn og þeir sem börðust í
andspyrnuhreyfingunni á móti nas-
istum í síðari heimsstyrjöld. Í fram-
haldinu stofnaði hann Framfara-
flokkinn og vann stórsigur í þing-
kosningunum 1972. Þessir tveir
litríku karakterar voru vinir og sam-
starfsfélagar um tíma meðan Glist-
rup sá um skattamál Spies. Leik-
stjórinn Christoffer Boe hefur
augljóslega heillast af sögu þeirra,
enda bitastæð, og viljað miðla henni
til nýrra kynslóða.
Myndin hefst árið 1984 þegar
Simon Spies liggur fyrir dauðanum á
sama tíma og Mogens Glistrup situr
af sér dóm vegna skattsvika. Í fram-
haldinu eru rifjuð upp samskipti fé-
laganna tveggja á tímabilinu frá
1965 til 1984. Í hvert sinn sem stokk-
ið er fram í tíma er skotið inn gömlu
myndefni sem gefur góða tilfinningu
fyrir tíðarandanum. Undir lok
myndar gefur einnig að líta nokkrar
raunverulegar ljósmyndir af þeim
félögum ásamt blaðaúrklippum sem
gera skil stjórnmála- og afbrotaferli
Glistrups sem sjálfur lést 2008.
Pilou Asbæk (sem flestir ættu að
kannast við sem spunameistarann
Kasper Juul úr sjónvarpsþáttunum
Borgen) fer með hlutverk Simons
Spies meðan Nicolas Bro túlkar
grandvara fjölskyldumanninn Mog-
ens Glistrup. Asbæk dregur upp
sannfærandi mynd af siðblindum
manni sem er fluggáfaður og sjarm-
erandi, en vílar ekki fyrir sér að mis-
nota annað fólk í eigin þágu. Bro
smellpassar í hlutverk Glistrups og
tekst raunar að gera hann viðkunn-
anlegri en sjálf fyrirmyndin var.
Augljóst er að mikið hefur verið
lagt upp úr gervum leikaranna og
allt látbragð þeirra sem og raddbeit-
ing fangar fyrirmyndirnar listavel.
Þeim Asbæk og Bro er þó nokkur
vandi á höndum, því fyrirmyndir
þeirra í lifanda lífi voru nánast eins
og skrípamyndir af sjálfum sér og
því væri freistandi fyrir áhorfendur
sem ekki muna eftir þessum tíma að
afskrifa leik þeirra sem ýktan og at-
burðarásina sem ótrúverðuga.
Raunar hefðu handritshöfundar
mátt eyða meiri orku í að gefa inn-
sýn í hvað mótaði þá Spies og Glist-
rup sem persónur og hvað batt þá
saman sem vini, í stað þess að sýna
enn eina sukkveisluna með ber-
brjósta stúlkum. Til lengdar urðu
slíkar senur örlítið þreytandi. Trine
Pallesen fer fallega með hlutverk
hinnar trúföstu Lene Glistrup og
Jesper Christensen er skemmtilega
bitur sem Bergsøe dómari.
Spies & Glistrup hefur talsvert
skemmtanagildi og rifjar upp áhuga-
verða tíma. Auðvitað ber að varast
að taka allt sem um þá félaga er sagt
sem heilagan sannleika. Hins vegar
er það ekkert nýtt að raunveruleik-
inn er oft ótrúlegri en skáldskapurin
og þessi mynd ber þess glöggt
merki, enda eru ótrúlegustu og fjar-
stæðukenndustu atriðin yfirleitt
sannleikanum samkvæmt.
Veistu ef þú vin átt
RIFF – Háskólabíó
Spies & Glistrup / Kynlíf, eiturlyf og
skattar bbbmn
Leikstjóri: Christoffer Boe. Handrit:
Christoffer Boe og Simon Pasternak.
Aðalleikarar: Pilou Asbæk, Nicolas Bro,
Trine Pallesen og Jesper Christensen.
Danmörk, 2013. 110 mín. Flokkur: Fyrir
opnu hafi.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Skrípamyndir Pilou Asbæk og Nicolas Bro í hlutverkum sínum sem ferða-
frömuðurinn Simon Spies og skattalögfræðingurinn Mogens Glistrup.
Rætt verður um krabbameinslækningar á málþingi á
Hótel Borg í kvöld kl. 20 sem haldið er í tengslum við
sýningu myndarinnar Indian Summer. „Myndin sýnir
leikstjórann Simon Brook og hinn þekkta franska
krabbameinslækni Thomas Tursz og sjúkling hans á
för þeirri um Indland. Markmið þeirra er að endur-
uppgötva lyfið sem gagnaðist honum vel í baráttunni
við mein sitt,“ segir í tilkynningu. Þátt taka auk Brook
þeir Magnús Karl Magnússon frá lífvísindadeild HÍ og
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Aðgangur er ókeypis.
Er hægt að finna lækningu?
Simon Brook
RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2013