Morgunblaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2013 Í tilefni af því að liðin eru 70 ár frá því Þristinum TF-NPK var rennt út úr verksmiðju Douglas í Bandaríkj- unum efna DC-3 Þristavinir til af- mælishátíðar í Flugsafninu á Ak- ureyri í dag, þriðjudaginn 1. október klukkan 17 til 19. Hátíðin er öllum opin. Greint verður frá tilurð og sögu DC-3 hjá bandarísku Douglas verk- smiðjunum, þessari þekktu flugvél sem þjónaði í farþega- og flutninga- flugi um heim allan fyrir og eftir síðari heimsstyrjöld. Þá verður fjallað um hlutverk Þristsins í sam- göngu- og landgræðslusögu Íslend- inga og sýnd mynd um Þristinn í landgræðslu. Flugvélin var skráð á Íslandi árið 1946 og heitir núna Páll Sveinsson. Á síðasta æviskeiði sínu í formlegri vinnu sinnti hún land- græðslu í 33 sumur og lauk því verkefni árið 2006. Nú er hún í umsjá DC-3 Þristavina og notuð til sýningar- og kynningarflugs. Haldið upp á 70 ára afmæli Þristsins Cluster Excellence: Strategy and Steps for Development Miðvikudag 2. október á Grand hótel Reykjavík Rannís efnir til ráðstefnu um stjórnun klasa í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Rannsóknasetur um stefnu og samkeppnishæfni við HÍ. Ráðstefnan fer fram á ensku. Ráðstefnustjóri: Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís. DAGSKRÁ 8:00 Skráning og kaffi 8:30 Opnunarávarp Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra 08:40 Cluster Excellence: Strategy and Steps for Development Runólfur Smári Steinþórsson, Rannsóknasetri um stefnu og samkeppnishæfni við Háskóla Íslands 09:00 Icelandic Cluster Management and Future of Clusters Hákon Gunnarsson, Íslenska jarðvarmaklasanum 09:15 Management with Cluster Excellence: How to Design a Competitive Strategy for Clusters? Ekin Taskin, Director,Aegean Exporters’ Associations 09:30 Cluster Programmes in Iceland, Experience and Support Hannes Ottósson, Nýsköpunarmiðstöð Íslands 09:45 Kaffihlé 10:05 Cluster Activities and Output Aylin Gel, Cluster manager of ESSIAD-Association of the Aegean Industrialists and Businessmen of Refrigeration 10:35 Cluster in Renewable Energy Bartłomiej Piotrowski, Subcarpathian Renewable Energy Cluster 11:00 Cluster Policy in Iceland, the way ahead Elvar KnúturValsson,Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti 11:15 Afhending “Bronze Label of the European Cluster Excellence Initiative“ Viðurkenning til íslenskra klasastjóra fyrir árangur Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands 11:35 The Strengths and Weaknesses of Icelandic Clusters Þorvaldur Finnbjörnsson, Rannís 11:50 Spurningar og umræða Ráðstefnan er öllum opin og án endurgjalds. Áhugasamir skrái sig á rannis@rannis.is H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Júlíus Vífill Ingvarsson, oddviti Sjálf- stæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, hefur lagt fram tillögu í borgarráði þess efnis að Reykjavík- urborg taki upp samning milli borg- arinnar og ríkisins vegna vegafram- kvæmda og almenningssamgangna næstu tíu ára. „Samningur ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá síðasta ári um að efla almennings- samgöngur næstu tíu árin felur í sér að vegaframkvæmdum á svæðinu verði frestað á sama tíma. Frestun samgöngumannvirkja í Reykjavík í heilan áratug mun hafa mikil og al- varlega áhrif á umferðaröryggi og neikvæð áhrif á þróun og vöxt borg- arinnar,“ segir Júlíus og bendir á að í Reykjavík sé að finna hættulegustu gatnamót landsins. „Umferðarslys kosta samfélagið tugi milljarða á ári og Reykvíkingar eiga þá kröfu að hluta af vegafé landsins sé varið í betri samgöngur í borginni.“ Samkvæmt upplýsingum Umferð- arstofu voru 43,07 prósent alvarlegra slysa á höfuðborgarsvæðinu á árun- um 2007 til 2011og 46,18 prósent slysa þar sem meiðsl voru minnihátt- ar. Samgöngubætur úr skipulagi „Í nýju aðalskipulagi sem var að koma úr auglýsingu hafa fimm mis- læg gatnamót verið tekin út sem gert er ráð fyrir í eldri aðalskipulags- áætlun,“ segir Júlíus. Alls bárust um 200 athugasemdir við aðalskipulagið og segir Júlíus það vera undarlega niðurstöðu ef framkomin mótmæli hafi ekki orðið til þess að skipulaginu verði breytt. „Ef það á að auka um- ferð til vesturhluta borgarinnar verð- ur að gera ráð fyrir mislægum gatna- mótum og stokki til að tryggja umhverfis- og loftgæði. Til þess þarf fé til vegaframkvæmda frá ríkinu og ég hef fulla trú á því að innanríkisráð- herra vilji taka upp samninginn sem núna er milli borgarinnar og ríkisins og fara betur yfir hann með okkur.“ Fimm hættulegustu gatnamótin Reykjavík sker sig úr þegar kemur að hættulegum gatnamótum. Af 20 hættulegustu gatnamótum landsins eru 16 í Reykjavík, þar af fimm þau hættulegustu. „Þegar við skoðum þetta nánar sjáum við að þarna eru 19 af 20 gatnamótum svokölluð gatna- mót á plani, þ.e. ljósastýrð,“ segir Ólafur Kr. Guðmundsson hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB. Hann bendir á að bætt samgöngumannvirki og vegir séu lykillinn að því að draga úr slysum. „Kostnaður samfélagsins af umferðarslysum er 36-40 milljarð- ar á ári. Þegar horft er til áranna 2001 til 2010 urðu umferðaróhöpp á Íslandi 74.761, þar af 13.455 slys þar sem slys urðu á fólki.“ Ekki náðist í Dag B. Eggertsson, formann borgarráðs, eða Pál Hjalta- son, formanns umhverfis- og skipu- lagsráð, í gær. Alvarleg áhrif á öryggið  Frestun vegaframkvæmda í Reykjavík næstu 10 árin ekki viðunandi að mati Sjálfstæðisflokksins  Hættulegustu gatnamót landsins eru nærri öll í Reykjavík Morgunblaðið/Golli Samgöngur Reykjavíkurborg gerði samning við ríkið um að fresta vega- framkvæmdum næstu 10 ár fyrir aukið fé í almenningssamgöngur. Ásmundur Pálsson lög- fræðingur lést á Land- spítalanum 29. sept- ember sl., 85 ára að aldri. Ásmundur fæddist á Eiðum í Eiðaþinghá í Suður-Múlasýslu hinn 5. apríl 1928, sonur hjónanna Páls Her- mannssonar, bónda og alþingismanns, og Dag- bjartar Guðjónsdóttur húsfreyju. Ásmundur gekk í barna- og unglingaskóla á Eiðum en útskrifaðist síðan sem stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1949. Hann lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1958. Ásmundur vann mest- an sinn starfsferil hjá Olíufélaginu Skeljungi í Reykjavík en lét af störf- um 1994. Ásmundur var einn af fremstu bridsspil- urum landsins og tók síðast þátt í bridsmóti nú í sumar. Hann varð Íslandsmeistari í tví- menningi í tíu skipti, síðast árið 2005, og níu sinnum Íslandsmeist- ari í sveitakeppni. Hann spilaði fyrst í landsliði Íslendinga ár- ið 1960 og átti þar fast sæti næstu tvo áratug- ina. Ásmundur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Ingunn Ágústsdóttir. Hún lést 27. janúar 1982. Þau Ás- mundur eignuðust þrjú börn, Pál, Dagbjörtu Thelmu og Sigríði. Síðari eiginkona Ásmundar er Unnur Kon- ráðsdóttir og lifir hún mann sinn. Andlát Ásmundur Pálsson Stjórnendur Heilsugæslustöðv- arinnar á Akureyri hafa sent frá sér athugasemd vegna ummæla Birgis Gunnarssonar, forstjóra Reykjalundar, í blaðinu sl. laug- ardag, þess efnis að heilsugæslu- stöðinni hafi verið „kippt inn“ í jafnlaunaátak stjórnvalda í fram- lögum til heilbrigðisstofnana, þrátt fyrir að sú stofnun sé rekin samkvæmt þjónustusamningi við Akureyrarbæ. Athugasemdin er eftirfarandi: „Stjórnendur Heilsugæslustöðv- arinnar á Akureyri vilja taka und- ir það sjónarmið í viðtalinu að jafnlaunaátakið eigi að ná til fleiri heilbrigðisstofnana en bara hreinna ríkisstofnana en því miður hefur hvorki Heilsugæslustöðin á Akureyri né Akureyrarbær fengið þetta bætt eins og fullyrt er í við- talinu né heldur fengið neitt skrif- legt um að þetta verði bætt. Þang- að til að það bréf berst eða greiðslan berst munum við halda áfram að óska eftir því við ráðu- neytið að fá þetta greitt.“ Stendur við orð sín Birgir Gunnarsson segist í sam- tali við Morgunblaðið standa við það sem eftir sér sé haft í blaðinu sl. laugardag. „Ég stend við það sem ég hef sagt varðandi þetta og hef heimildir fyrir því,“ segir hann. Athugasemd frá stjórnendum Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri Ljósmynd/Heilsugæslan Ak. Akureyri Heilsugæslustöðin í bænum er við Hafnarstræti á Akureyri. Eldur kviknaði í vinnuvél á flug- stöðvarsvæðinu á Keflavíkur- flugvelli í fyrradag. Lögreglan á Suðurnesjum var kvödd á vett- vang og er talið að upptök elds- ins hafi verið í öðru framljósi vél- arinnar, því bruninn hafði orðið mestur umhverfis það. Vélin var kyrrstæð og mann- laus þegar eldurinn kom upp. Hann var slökktur með hand- slökkvitæki. Eldur í vinnuvél á flugstöðvarsvæði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.