Morgunblaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2013 Gunnar Rögnvaldsson er hugs-andi yfir þingmönnum „sem leggja til að peningaprentvélar ís- lenska lýðveldisins séu seldar …“:    Enginn rík-issjóður með fullu viti selur und- an sér þær peninga- prentvélar sem fel- ast í því að prenta út úr þeim þá pen- ingaseðla sem nátt- úruauðlindir þjóð- arinnar hafa gefið okkur.    Það eru mýmörg tilfelli þar semsala á ríkiseignum almennings borgar sig aldrei. Eitt þannig til- felli er sjálf skattheimtan. Að selja hana væri geggjun.    Allir geta verið því sammálanema að það sé einmitt fram- tíðarsýn stjórnmálamanna að beita skattheimtunni það hart í þágu þeirra sjálfra, að náttúruauðlindin – sem skattheimtan eys peningum upp úr – hverfi úr landinu. Að þjóðin í þjóðareign pakki saman og fari.    Það mun hún gera, sé komiðfram við hana sem eins konar ómálga skítapakk. Að selja pen- ingaprentvélar náttúruauðlinda Ís- lendinga væri því sem næst geðbil- un.    Þegar þannig áætlanir eru farn-ar að grafa um sig meðal þjóðkjörinna stjórnmálamanna lýð- veldisins er óhætt að segja að upp- lausn þess lýðveldis færist í nánd og hefji aðsig. Að helvíti evru- svæðis hafi jafnvel verið flutt inn í Heklufjall.    Stjórnmálamenn lýðveldisins áþannig buxum verða ekki landsvirkjaðir, því þeir eru banka- hrundir. Í rúst og bankaðir niður.“ Gunnar Rögnvaldsson Reisir landsvirki STAKSTEINAR Veður víða um heim 30.9., kl. 18.00 Reykjavík 9 skýjað Bolungarvík 5 skýjað Akureyri 5 rigning Nuuk 5 skúrir Þórshöfn 11 þoka Ósló 12 léttskýjað Kaupmannahöfn 12 skýjað Stokkhólmur 8 skýjað Helsinki 5 heiðskírt Lúxemborg 15 léttskýjað Brussel 16 heiðskírt Dublin 13 þoka Glasgow 15 skýjað London 17 heiðskírt París 17 alskýjað Amsterdam 15 heiðskírt Hamborg 12 heiðskírt Berlín 12 léttskýjað Vín 13 skýjað Moskva 1 skýjað Algarve 22 skýjað Madríd 22 skýjað Barcelona 26 léttskýjað Mallorca 26 léttskýjað Róm 22 léttskýjað Aþena 25 skýjað Winnipeg 15 léttskýjað Montreal 18 léttskýjað New York 20 heiðskírt Chicago 18 léttskýjað Orlando 28 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 1. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:38 18:58 ÍSAFJÖRÐUR 7:45 19:01 SIGLUFJÖRÐUR 7:28 18:43 DJÚPIVOGUR 7:08 18:27 Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir og Ro- bert Wade, prófessor, sendu í gær frá sér yfirlýsingu til háskólasamfé- lagsins og yfir- stjórnar Háskóla Íslands, vegna samskipta sinna við Hannes Hólmstein Giss- urarson prófess- or. Hannes hafði áður óskað eftir því að þau Sigur- björg og Wade bæðust afsökun- ar á því að hafa haft rangt eftir honum tiltekin ummæli í ýmsum erlendum tíma- ritum. Hannes ritaði síðan á bloggsíðu sína hinn 25. september að Sigurbjörg hefði „bréflega boðist afsökunar á til- vitnuninni og boðist til að leiðrétta villu sína í þeim blöðum og tímarit- um, sem hafa birt hana. Viðurkennir hún, að þeim Wade hafi orðið á mis- tök […]“ Í yfirlýsingunni frá Sigurbjörgu og Wade í gær segir að formleg af- sökunarbeiðni hafi ekki verið veitt, heldur bíði hún hins vegar birtingar, og ef og þegar af því verður muni hún birtast á þeim vettvangi sem hún eigi heima á. Jafnframt segir í yfirlýsingunni: „Mál af þessu tagi er mjög alvarlegt og íslenska háskóla- samfélaginu ber að taka það föstum tökum. Með því að senda þetta mál sem hér um ræðir til meðferðar hjá lögfræðingi hefur prófessor Hannes í samskiptum sínum við dr. Sigur- björgu farið langt út fyrir öll aka- demísk velsæmismörk.“ bmo@mbl.is Ósátt við skrif Hannesar  Afsökunarbeiðni ekki birt ennþá Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir Hannes Hólm- steinn Gissurarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.