Morgunblaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2013 „Hann er augljóslega byrjaður að hressast,“ segir Hulda Birna Al- bertsdóttir, umhverfisskipulags- fræðingur hjá Náttúrustofu Vest- fjarða, um ófleygan fálka sem fannst í vegkantinum á milli Kollafjarðar og Kirkjubóls á Ströndum miðvikudag- inn 25. september sl. Greint var frá björguninni á vef Náttúrustofu Vestfjarða um helgina. Þar kom fram að Guðmundur Ágústsson og Valur Þórðarson hefðu fangað fuglinn og komið honum til Náttúrustofu Vestfjarða í Bolungar- vík enda er það í leiðinni hjá Guð- mundi. Sagt var að auðvelt hefði ver- ið að hlaupa fuglinn uppi. Hann hefði verið grútarblautur og því fengið bað í tvígang við komuna til Bolungar- víkur. Skoðun hefði leitt í ljós að fuglinn væri mjög horaður, særður á báðum vængjum og fæti en vegna bólgu væri ekki hægt að meta stöð- una að svo stöddu. Hulda Birna segir að fálkinn hafi tekið vel til matar síns. Hann hafi fitnað og láti í sér heyra, en óljóst sé um framhaldið. „Hann fær nóg að éta, fitnar og honum líður betur,“ segir Hulda Birna, en talið er að fálkinn sé aðeins nokkurra mánaða gamall. Gera megi ráð fyrir að honum verði sleppt þeg- ar og ef hann jafnar sig. „En það er ekki búið að taka neinar ákvarðanir,“ segir hún. steinthor@mbl.is Fálka bjargað á Ströndum Ljósmynd/Hulda Birna Albertsdóttir Líf Fálkinn dafnar vel í Náttúrustofu Vestfjarða í Bolungarvík.  Er í góðu yfirlæti hjá starfsfólki á Náttúrustofu Vestfjarða  Særður á báðum vængjum og fæti en farinn að hressast Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt 53 ára gamlan karl- mann í tveggja og hálfs árs óskil- orðsbundið fangelsi. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa brotið kyn- ferðislega gegn þremur drengjum, öllum fæddum árið 1998. Brotin voru framin á árunum 2011 og 2012. Manninum var gert að sök að hafa viðhaft kynferðislega áreitni við drengina gegnum samskipta- forritið MSN, með tölvupósti og notkun facebook, en til vara fyrir brot gegn blygðunarsemi drengj- anna. Honum var gert að greiða þeim á bilinu 150.000 til 900.000 krónur í miskabætur. Dæmdur fyrir kyn- ferðisbrot gegn þremur drengjum Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameins- félagsins til að berjast gegn krabbameini hjá konum. Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný með bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir taka fagnandi á móti þér. Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl! „Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október. Styrkjum starfsemi Krabbameins- félagsins Hreyfill/Bæjarleiðir er styrktaraðili árvekniátaks Krabbameinsfélagsins í október og nóvember Tökum bleikan bíl! Björn Már Ólafsson bmo@mbl.is „Við teljum að forsendubrestur hafi orðið varðandi meðal annars gjald- skrána og þá styrki sem koma með þessu verkefni. Síðan höfum við hjá landshlutasamtökunum orðið vör við að það sé verið að aka á þessum leið- um þrátt fyrir einkaleyfi á akstri,“ segir Sigurður V. Ásbjarnarson, bæj- arstjóri Fjallabyggðar, en aðalfundur Eyþings, sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, álykt- aði nýverið um að endurskoða verði framlög vegagerðarinnar til almenn- ingssamgangna og breyta verði gjaldskrám og afsláttarkjörum. Fyrirhugaðir fundir í vikunni „Þetta er verkefni sem við verðum að vinna með Vegagerðinni og ráðu- neytinu. Þetta er núna í vinnslu, það eru fundir fyrirhugaðir á miðviku- daginn þar sem þetta verður rætt. Síðan erum við að skoða þetta í tengslum við fjármálaráðstefnuna á fimmtudaginn og föstudaginn og er- um að búa okkur undir hana,“ segir Sigurður. Áætlanir hafa ekki staðist Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Almenningssamgöngur Strætó fer á milli bæja víða á landsbyggðinni.  Endurskoða for- sendur verkefnisins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.