Morgunblaðið - 01.10.2013, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulif
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2013
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins
vonast til þess að samráðsvett-
vangur um samkeppnismál sem
viðskiptaráðherra hefur áhuga á
að setja á fót leiði til þess að fleiri
láti sig samkeppnismál varða. „Það
er í mínum huga helsti kostur
samráðsvettvangs sem þessa; að
fleiri leggist á árar með Sam-
keppniseftirlitinu um að farið sé að
lögum. Hér á ég bæði við atvinnu-
lífið og önnur stjórnvöld. Þess
vegna þykir mér þetta jákvætt
skref,“ segir Páll Gunnar Pálsson,
forstjóri Samkeppniseftirlitsins, í
samtali við Morgunblaðið.
Fram hefur komið í fjölmiðlum
að Ragnheiður Elín Árnadóttir
viðskiptaráðherra vilji að Sam-
keppniseftirlitið fái leiðbeinandi
hlutverk í meira mæli en nú er.
Viðskiptaráð átti frumkvæði að því
að stofnaður yrði formlegur sam-
ráðsvettvangur milli viðskiptalífs,
atvinnuvegaráðuneytisins og Sam-
keppniseftirlitsins um samkeppn-
ismál. Ragnheiður Elín segir í
frétt Ríkisútvarpsins að fyrirtæki
hafi kvartað yfir því að erfitt sé að
fá leiðbeiningar í samkeppnismál-
um. Til að mynda hafi fyrirtæki í
markaðsráðandi stöðu, sem ætli
sér að fara í einhver verkefni og
vilji vita hvort það sé í lagi, fengið
þau svör að láta bara á það reyna.
„Það er skynsamlegt að byrgja
brunninn áður en barnið dettur of-
an í eftir því sem kostur er,“ segir
Páll Gunnar. „Við reynum að leið-
beina markaðnum t.d. með því að
gefa út ítarlegar ákvarðanir er
varða samkeppnismál og brot. Við
verðum hins vegar ávallt að vera
reiðubúin að framfylgja lögum og
reglum þegar svo ber undir. Í
þessum efnum þarf að finna gott
jafnvægi. Framkvæmdastjóri hjá
OECD lagði á það ríka áherslu í
pallborði á fundi á okkar vegum á
föstudaginn var að Samkeppniseft-
irlit yrði að hafa tennur.“
– Þú hefur varað við því að láta
markaðnum í té of miklar upplýs-
ingar þar sem það geti leitt til
þess að stjórnvöld handstýri mörk-
uðum, t.d. með því að segja fyr-
irfram hver sé markaðsráðandi,
það geti dregið úr frumkvæði at-
vinnulífsins og sé óframkvæman-
legt. „Það er vissulega svigrúm
fyrir hendi til að byrgja brunninn,
líkt og ég sagði áðan, en það er
mjög mikilvægt að Samkeppniseft-
irlitið sé ekki sett í þá stöðu að
stýra fyrirtækjum. Það gæti unnið
gegn hagsmunum sem á að vernda
og unnið gegn nýbreytni og nýjum
hugmyndum, ef það á stýra því
hvernig fyrirtæki hegði sér áður
en þau hafa tekið einhverjar
ákvarðarnir.“
Fleiri hugi að samkeppni
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir að samráðsvettvangur sé jákvætt skref
Ráðherra vill að Samkeppniseftirlitið fái leiðbeinandi hlutverk í meira mæli
Morgunblaðið/Eggert
Páll Gunnar Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir helsta kost samráðsvett-
vangsins að fleiri muni leggjast á árar um að farið sé að lögum.
Samkeppniseftirlitið
verður að hafa tennur
» Viðskiptaráð átti frumkvæði
að því að stofnaður yrði form-
legur samráðsvettvangur milli
viðskiptalífs, atvinnuvegaráðu-
neytisins og Samkeppniseft-
irlitsins um samkeppnismál.
» Viðskiptaráðherra segir að
fyrirtæki hafi kvartað yfir því
að erfitt sé að fá leiðbeiningar í
samkeppnismálum.
» Framkvæmdastjóri hjá
OECD segir að Samkeppniseft-
irlit verði að hafa tennur.
Seðlabanki Kína
og Seðlabanki Ís-
lands hafa end-
urnýjað
gjaldmiðla-
skiptasamning
sín á milli.
Upphaflegi
skiptasamning-
urinn var undirritaður 9. júní 2010
og var tilgangur hans að efla tví-
hliða viðskipti landanna og styðja
við beina fjárfestingu, ásamt því að
efla fjármálaleg tengsl. Fjárhæð
samningsins er 66 milljarðar króna
eða 3,5 milljarðar kínverskra
júana, að því er fram kemur í til-
kynningu en greint var frá fjárhæð-
inni þegar samningurinn var
kynntur 2010.
Samningurinn gildir í þrjú ár og
verður mögulegt að endurnýja
hann að þeim tíma liðnum.
SÍ endur-
nýjar samn-
ing við Kína
66 milljarða gjald-
miðlasamningur
● Hrund Rudolfsdóttir hefur verið ráðin
nýr forstjóri Veritas-samstæðunnar frá
og með 15. október nk. Hreggviður
Jónsson, sem verið hefur forstjóri fé-
lagsins frá stofnun, tekur við stöðu
stjórnarformanns frá sama tíma. Veri-
tas-samstæðan samanstendur af móð-
urfélaginu, Veritas, ásamt fjórum
rekstrarfélögum sem starfa á sviði
þjónustu við heilbrigðisgeirann á Ís-
landi. Velta samstæðunnar á síðasta ári
var rúmir 15 milljarðar króna og starfs-
menn um 180. Hrund hefur setið í
stjórn Veritas frá 2009, síðustu fjögur
ár hefur hún starfað sem fram-
kvæmdastjóri starfsþróunar hjá Marel.
Hún var framkvæmdastjóri hjá Mile-
stone/Moderna Finance frá 2006-2009
og þar áður rekstrarstjóri og síðar
framkvæmdastjóri hjá Lyfjum & heilsu
frá 2001-2006.
Hrund forstjóri Veritas
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
+12.-1
++/.-/
,+.033
,-.-0+
+0.0,3
+44.42
+.,440
+02.+2
+5,.14
+,+.-/
+12.25
++/.3+
,+.1-0
,-.+3
+0.0/1
+44./,
+.,4/3
+02./
+54.41
,+0.0455
+,+.45
+15.-4
++/./2
,+.1/,
,-.+11
+0.143
+43.-1
+.,3+
+05.,2
+54.02
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Afgangur af vöruskiptum fyrstu átta
mánuði ársins var 31,1 milljarðar
króna en á sama tíma fyrir ári var
afgangurinn hins vegar 40,2 millj-
arðar króna. Vöruskiptajöfnuðurinn
var því ríflega 9 milljörðum króna
minni á þessu ári.
Þetta kemur fram í nýjum tölum
Hagstofu Íslands, en samtals námu
vöruútflutningstekjur á tímabilinu
393,8 milljörðum króna en á móti
voru fluttar inn vörur fyrir 362,6
milljarða fyrstu átta mánuði ársins.
Vöruskiptaafgangur í ágústmán-
uði nam 2,9 milljörðum miðað við
13,8 milljarða afgang í ágústmánuði
árið 2012. Innflutningurinn í síðasta
mánuði var sá minnsti í krónum talið
síðan í ágúst í fyrra.
Greining Íslandsbanka segir að
lakari vöruskiptaafgang milli ára
megi einkum rekja til óhagstæðrar
verðþróunar á helstu útflutnings-
afurðum Íslands, sjávarafurðum og
áli. Á fyrstu átta mánuðum þessa árs
hefur verð sjávarafurða verið um
5,6% lægra og verð áls 5,1% lægra á
heimsmarkaði en raunin var á þessu
tímabili í fyrra.
„Bæði innflutningur og útflutn-
ingur hafa skroppið saman á milli
ára í magni mælt, sem hlýtur að telj-
ast nokkurt áhyggjuefni, enda hvílir
aukinn hagvöxtur á annars vegar
auknum útflutningi og hins vegar
meiri innlendri eftirspurn sem end-
urspeglast ætti í auknum innflutn-
ingi,“ segir í greiningu bankans.
Hins vegar eru jákvæðar vísbend-
ingar um aukningu á innflutningi
ýmissa fjárfestingarvara.
Ljóst er að afgangur af vöru- og
þjónustujöfnuði í ár verður borinn
uppi af þjónustuviðskiptum í miklu
ríkari mæli en áður. Greining Ís-
landsbanka segir útlit fyrir að vöru-
skiptaafgangur verði um 50-60 millj-
arðar miðað við 77,3 milljarða 2012.
Vöruskiptaafgangur
minnkar um 9 milljarða
Morgunblaðið/ÞÖK
Útflutningstekjur Minni útflutningur skýrist af óhagstæðri verðþróun á
mörkuðum. Álverð er til að mynda 5,1% lægra en á sama tímabili 2012.
31 milljarðs afgangur það sem af er ári
Verðbólga mæld á tólf mánaða
tímabili var 1,1% á evrusvæðinu í
september og hefur ekki verið jafn
lítil síðan í febrúar 2010. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Eurostat
er það einkum lækkun á orkuverði
sem skýrir lækkunina. Í ágúst
mældist ársverðbólgan 1,3%. Um
bráðabirgðatölur er að ræða.
Fyrir ári mældist ársverðbólgan
2,6% á evrusvæðinu en verðbólgu-
markmið Seðlabanka Evrópu eru
2%.
Sérfræðingar telja ólíklegt að
verðbólga aukist á næstunni nema
olíuverð hækki mikið.
Verðbólgan
aðeins 1,1%
Helgar
Alvöru
Nú er kominn tími á alvöru helgar-brunch
brunch
Steikt beikon
Spælt egg
Steiktar pylsur
Pönnukaka með sírópi
Grillaður tómatur
Kartöfluteningar
Ristað brauð
Ostur
Marmelaði
Ávextir
kr. 1740,- pr. mann
Barnabrunch á kr. 870
Ávaxtasafi og kaffi eð
a te fylgir.
H
ug
sa
sé
r!
H
ug
sa
sé
r!
Grillhúsið Sprengisandi og Tryggvagötu
Phone + 354 527 5000 www.grillhusid.is
Ótrúlega gómsæt byrjun
á góðum degi!
Alla laugardaga og su
nnudaga
frá kl. 11.30 til kl. 14
.30