Morgunblaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2013 Haustsól í Kópavogi Roðagylltum blæ sló á sindrandi himininn sem var einstaklega fallegur á að líta í gærkvöldi þegar sólin hneig til viðar. Sjónarspil sólsetursins gleður ávallt sálartetrið. Ómar Ari Matt- híasson, hag- fræðingur og fram- kvæmdastjóri, hefur rann- sakað þann kostnað sem Íslendingar bera vegna áfengis- og vímuefnaneysl- unnar. Hann skoðar kostn- að vegna heilbrigðisþjón- ustu, löggæslu, vinnutaps, félagsþjónustu og allra þeirra þátta sem áfengis- og vímuefnaneyslan hefur áhrif á. Niðurstaðan er ótrúleg. Niðurstaða Ara er að kostnaður samfélagsins sem hlýst af áfengis- og vímuefnaneyslunni sé 70 milljarðar króna á ári. 70.000.000.000 krónur. Á einu ári. SÁÁ hefur þjónustað þá sem eiga við áfengis- og vímuefnavandann að stríða í 36 ár með góðum ár- angri. Þúsundir manna og kvenna hafa fengið bót sinna meina með aðstoð SÁÁ og margir eiga sam- tökunum líf sitt að þakka. Það er hiklaust hægt að segja að SÁÁ hafi á ein- hvern hátt snert allar fjöl- skyldur í landinu. Samt er það svo að ríkið hefur skorið niður framlög til SÁÁ hægt og rólega ár eftir ár. Því meira sem SÁÁ hefur lagt til starf- seminnar því meira hefur ríkið gengið á lagið og skorið niður framlög og í mörg ár hafa samtökin þurft að borga með þjónustunni úr eigin vasa. Það er auðvitað erf- itt en það hefur gengið með samstilltu átaki sjálf- boðaliða og þjóðarinnar allrar sem alltaf hefur sýnt þakklæti gagnvart samtökunum í verki. Álfa- sala SÁÁ er gott dæmi um það. En þrátt fyrir öfluga varnarbaráttu er nú svo komið að SÁÁ gæti þurft að hefta aðgang sjúklinga að þjónustunni meira en nokkru sinni áður í 36 ára sögu samtakanna. Í desember verða liðin 30 ár frá því Vogur, með- ferðarsjúkrahús, var vígt. SÁÁ hóf nú fyrr í þessum mánuði byggingu á við- byggingu við Vog sem er hugsuð til að mæta kröf- um veikustu einstak- lingana. Þessar fram- kvæmdir munu kosta 117 milljónir. Eins og fyrr segir spar- ast miklir fjármunir með hverjum einasta sjúklingi sem tekst að bjarga. Svo ég tali nú ekki um þá sjálfsögðu skyldu sem við hljótum öll að hafa í hjart- anu til að hjálpa þeim sem líður illa og þjást. Það er augljóst að ríkið á ekki að- eins að hætta við að skera niður framlög til SÁÁ, heldur á að auka þau til muna. Þannig sparar ríkið mest. Og sjúklingunum og fjölskyldum þeirra líður betur. Ég ætla að endurtaka það sem ég sagði áðan: Kostnaðurinn við áfengis- og vímuefnavandann í dag er 70 milljarðar. Þetta segir sig sjálft, er það ekki? Ég vil hvetja alla sem vettlingi geta valdið, bæði ríkisvald og þjóðina alla, til að rétta fram hjálp- arhönd nú þegar mikið liggur við og leggja SÁÁ lið á næstu vikum og mán- uðum. Það gerum við ekki aðeins með frjálsum fram- lögum, heldur með því að láta í okkur heyra. Áfram Vogur! Eftir Rúnar Frey Gíslason » Því meira sem SÁÁ hefur lagt til starfseminnar því meira hefur ríkið gengið á lagið og skorið niður framlög og í mörg ár hafa samtökin þurft að borga með þjónustunni úr eigin vasa. Rúnar Freyr Gíslason Höfundur er samskipta- fulltrúi SÁÁ. Áfram Vogur Nýfallinn er dóm- ur í Hæstarétti sem staðfestir að greiðslur úr íslensk- um þrotabúum mið- ist við lögeyri lands- ins, íslenskar krónur. Dómurinn er þörf áminning um að allir eiga að vera jafnir fyrir lögum. Þjóðin hefur sýnt erlendum kröfuhöfum föllnu bankanna mikla þolinmæði. Sú óvissa sem hefur fylgt þeirri bið- lund, t.d. gjaldeyrishöft og óvissa um eignarhald fjár- málastofnana, er orðin þjóðinni mjög dýr. Nú er mál að linni. Framtíðin Þegar leitast er við að skoða framtíð fyrirtækja er horft ann- ars vegar á framtíð rekstrarins og hins vegar á byrði efnahags- reikningsins. Ef fyrirtæki eru bæði með lélegan rekstur og ónýtan efnahag er fátt sem kem- ur þeim til hjálpar. Ef hins vegar reksturinn er góður en skuld- setning of mikil þá er þess virði að bæta úr málum. Íslendingar búa við þá stöðu að framtíð landsins er björt, og hef ég skrifað bók sem skýrir ítarlega þá sýn, en klafi skulda er of mikill. Með öðrum orðum þá er vel hægt að vinna sig út úr vandanum. Það sem hins vegar er ekki hægt að sætta sig við er að Íslendingar séu látnir mæta afgangi þegar kemur að upp- gjöri hrunsins. Erlendir kröfuhafar gömlu bankanna njóta sérréttinda um- fram Íslendinga. Gömlu bank- arnir, sem enn er ekki búið að setja í þrot, eru undan- þegnir skattalög- um og lögum um gjaldeyrismál. Það eru því bara fyrirtæki og ein- staklingar á Ís- landi sem vinna að verðmæta- sköpun sem þurfa að standa straum af kostnaði samfélagsins en kröfuhafar gömlu bankanna eru undanþegnir því. Þeir kröfu- hafar eru nánast eingöngu er- lendir aðilar sem keyptu kröfur sínar eftir hrunið en hafa for- réttindi umfram innlenda aðila sem skapa verðmæti og sinna skyldum sínum og hafa gert það bæði fyrir og eftir hrun. Erlendir kröfuhafar, með hjálp innlendra almannatengla og lögfræðinga, settu upp leikrit í London í síðustu viku, undir yf- irskriftinni „Iceland Investment Forum“, til að reyna að fá stjórnvöld til að tala af sér er- lendis. Ástæðan er sú að þeir eru hræddir um að eignir þeirra á Íslandi verði ekki áfram und- anþegnar íslenskum lögum. Þeir vilja því reyna að fá fram um- ræðu alþjóðlega um að þeir þurfi að þola eignaupptöku og svo fá dómara t.d. í London til að frysta erlendar eignir gömlu bankanna, til að koma í veg fyrir slíkan „órétt“. Þeir sleppa að nefna að Íslendingar eru gestir í eigin landi, þeir sem raunveru- lega njóta forréttinda eru er- lendir aðilar sem eru undan- þegnir lögum um skatta og skilaskyldu gjaldeyris. Slíkar undanþágur má alltaf afnema og slíka mismunun á að afnema. Allir eiga að vera jafnir fyrir lög- unum. Stjórnendur Landsbankans, sem segja að höftin verji bank- ann, misskilja illilega stöðuna. Höftin pína Íslendinga og und- anþága erlendra kröfuhafa ver þá fyrir áföllum. Höftin verja því ekki bankann, starfsmenn hans eða viðskiptavini, heldur einfaldlega erlenda kröfuhafa bankans. Að læra af reynslunni Nýfallinn dómur Hæstaréttar sýnir hvers konar afleikur það var hjá íslenskum embættis- og stjórnmálamönnum að semja við erlenda kröfuhafa Landsbank- ans um greiðslur og uppgjör í erlendri mynt í desember 2009. Íslenskir embættismenn hafa litla reynslu og enga sérþekk- ingu af því að semja við erlenda kröfuhafa. Sú sára reynsla sem þjóðin hefur af IceSave og samningum íslenskra embættis- manna um uppgjör gömlu bank- anna hlýtur að kenna okkur að erlendir sérfræðingar eru nauð- synlegir, bæði til að tryggja trú- verðugleika Íslands út á við og hagsmuni okkar til framtíðar. Eftir Heiðar Guðjónsson »Höftin verja því ekki bankann, starfsmenn hans eða viðskiptavini, heldur einfaldlega erlenda kröfuhafa bankans. Heiðar Guðjónsson Höfundur er hagfræðingur. Gestir í eigin landi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.