Morgunblaðið - 01.10.2013, Qupperneq 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2013
✝ Erla Sigurð-ardóttir, ljós-
móðir, fæddist í
Reykjavík 12. mars
1934. Hún lést á
Landspítala - há-
skólasjúkrahúsi 19.
september 2013.
Foreldrar henn-
ar voru Ingibjörg
Guðrún Lovísa Sig-
urðardóttir, f. á
Ísafirði 29. sept-
ember 1910, d. 12. ágúst 1966,
og Sigurður Ágúst Þorláksson,
f. á Brunnhóli í Mýrarhreppi 10.
ágúst 1905, d. 31. júlí 1977.
Systkini Erlu eru Sigríður Ze-
bitz, f. 1. apríl 1936, Árni Ágúst
Sigurðsson, f. 11. desember
1937, d. 18. apríl 2002, Theó-
dóra Aldís Sigurðardóttir, f. 22.
apríl 1939, og María Sigurð-
ardóttir Arnar, f. 17. apríl 1942.
Erla giftist Sigfúsi Jónssyni,
verslunarmanni, f. 2. febrúar
1930, d. 14. janúar 1999. Þau
giftu sig 2. febrúar 1960. Börn
þeirra eru: 1) Jón
Sigfússon, f. 2. maí
1961. Sambýliskona
Unnur Jónsdóttir,
f. 13. júní 1960, og
2) Inga Dóra Sig-
fúsdóttir, f. 13. júlí
1967. Eiginmaður
Símon Sigvaldason,
f. 31. maí 1962.
Barnabörn Erlu
eru sex talsins:
Hildur, Hulda, Erla
María, Erla, Sonja og Alanta.
Barnabarnabarn Erlu er Sigrún
María.
Erla var fædd og uppalin í
Reykjavík. Hún útskrifaðist úr
Ljósmæðraskóla Íslands árið
1959 og starfaði sem ljósmóðir í
meira en fjóra áratugi. Lengst
af starfaði hún á Fæðingarheim-
ili Reykjavíkur en einnig í all-
mörg ár á fæðingardeild Land-
spítala Íslands.
Útför Erlu fer fram frá Há-
teigskirkju í dag, 1. október
2013, og hefst athöfnin kl. 15.
Það er með ólýsanlegum trega
og eftirsjá sem við kveðjum ynd-
islega mömmu okkar, Erlu ljós-
móður, eins og hún var gjarnan
kölluð. Það skarð sem hún skilur
eftir verður aldrei fyllt.
Svo sárt. Svo margir sem
sakna. Fjölskyldan hennar; syst-
urnar, vinkonurnar allar, ömmu-
stelpurnar og allir hinir, sem urðu
þeirrar gæfu aðnjótandi að kynn-
ast Erlu og þeir voru fjölmargir.
Hún snerti líf svo margra. Á
löngum og farsælum ferli sínum
sem ljósmóðir hjálpaði hún þús-
undum barna í heiminn; sennilega
sem samsvarar heilum árgangi ís-
lensku þjóðarinnar. Hún sagði
gjarnan að öll börnin sem hún
tæki á móti væru bæði falleg og
vel gefin, sem lýsti vel einstakri
hlýju hennar og visku en ekki síð-
ur þeirri alúð sem hún lagði í
starfið sitt, sem var henni svo
kært. Hver kona og hvert barn
sem hún annaðist eignuðust stað í
hjarta hennar. Vinir okkar systk-
inanna kölluðu hana „mömmu
Erlu“ og vinir barnanna okkar
„ömmu Erlu“. Hún var alltum-
lykjandi; hlý, einstök, hnyttin og
vitur. Það voru forréttindi að fá að
alast upp við umönnun slíkrar
konu. Það var hún sem kenndi
okkur systkinum að ást og um-
hyggja eru aðaldrifkraftur þessa
heims. Það er lítið varið í reglur
sem ekki fylgir stuðningur og
skynsemi. Mikið ótrúlega munum
við sakna hennar. Hún var lyk-
ilmanneskjan í lífi okkar og lífs-
fylling okkar og svo margra ann-
arra.
Elsku mamma okkar. Takk
fyrir allt sem þú varst fyrir okkur
og gafst okkur. Við munum halda
í heiðri allt það sem þú kenndir
okkur. Í þínum anda munum við
leggja okkur fram við að rækta
mannskilning okkar og samhygð
og leyfa okkur að finna til með
þeim sem standa höllum fæti.
Inga Dóra Sigfúsdóttir
og Jón Sigfússon.
Jæja amma mín, þá er bara
komið að þessu. Hún er náttúru-
lega hálf fáránleg hugmyndin um
að þú sért ekki hér til að sjá til
þess að heimurinn snúist nú
örugglega rétt, eins og Hildur
orðaði það svo vel um daginn. Á
sama tíma finnst mér gott að
hugsa til þess hvað þú skildir vel
við allt hér og hvernig síðustu
dagar hafa verið eins og þú hefðir
líklega planað þá sjálf. Í kvöld fór-
um við ömmustelpurnar þínar í
Sóltún, pöntuðum pítsu og höfð-
um það kósý. Alanta litla fékk
hjálp frá Erlu við að skrifa þér
bréf og horfði svo á Latabæ í rúm-
inu þínu. Við töluðum aðeins um
það við hana að nú værir þú komin
til afa og nú væri örugglega gam-
an hjá ykkur því það væri svo
langt síðan þið hittust síðast. Þeg-
ar ég spurði hana hvað hún héldi
að þið væruð að gera núna uppi
hjá Guði var hún ekki lengi að
svara: „Kannski hoppa í pollum?“
Ekki lítið sem ég hef gaman af
þeirri hugmynd og sé ykkur tvö
fyrir mér, á áttræðis- og níræð-
isaldri, hoppandi í pollum saman.
Í fluginu á leiðinni heim frá Ástr-
alíu hafði ég góðan tíma til að
leyfa huganum að reika og rifja
upp allskonar skemmtilegar
minningar. Ein af síðustu minn-
ingunum mínum um þig er þegar
við sátum saman í rúminu mínu
og brutum saman fötin mín til að
setja í tösku fyrir Ástralíu. Eftir
nokkrar tilraunir áttuðum við
okkur á því að best væri að rúlla
fötunum upp því þá komst mest
fyrir í töskunni. Þegar ég pakkaði
svo sömu fötunum niður í töskuna
á leiðinni heim frá Ástralíu kom
ég ekki nema hluta af þeim ofan í
sömu töskuna. Það var eitt af
mörgum skiptum sem mér hefði
þótt gott að hafa þig hjá mér. Af
öðrum góðum minningum þykir
mér gott að hugsa um allar stund-
irnar þegar ég var að gera mig til
heima á leiðinni eitthvert út. Þeg-
ar ég hugsa til baka þá einhvern
veginn varst þú alltaf á staðnum.
Þú hjálpaðir mér að velja kjól fyr-
ir síðustu árshátíðina mína í HR
eftir að ég var búin að máta
nokkra og settir svo „final-touch-
ið“ með selskapsveskinu sem þú
gafst mér sem þú hafðir sjálf átt.
Og þegar þú hjálpaðir mér að
festa xD næluna í kjólinn minn
fyrir kosningavökuna í vor því ég
var sjálf með blautt naglalakk.
Ein skemmtilegasta minningin
mín úr Sóltúninu var síðan
snemma þessa árs þegar ég sat
frammi í stofu eitt kvöldið að læra
og þú varst eins og svo oft áður
komin upp í rúm að tala í símann.
Líklegast hefurðu verið að tala við
eina systurina eða vinkonu þína
en þú hlóst svo mikið að þú náðir
varla andanum. Ég vona mikið að
ég verði eins hamingjusöm og
glöð og þú þegar ég verð komin á
áttræðisaldur. Elsku amma mín,
ég er þakklát fyrir að hafa náð í
skottið á þér og fyrir að hafa feng-
ið að halda í mjúku, hlýju höndina
þína. Takk fyrir að taka á móti
mér í þennan heim og takk fyrir
að leyfa mér að vera með þér þeg-
ar þú kvaddir hann. Takk fyrir að
bíða eftir mér. Ég elska þig.
Þín vinkona,
Erla María.
Elsku amma mín, orð geta ekki
lýst hversu sárt það er að þú sért
ekki hjá okkur. Í átján ár hefur þú
verið minn klettur í lífinu. Mín
stoð og stytta í einu og öllu. Þú
varst sú sem ég gat alltaf treyst á
sama hvað. Hvort sem það var að
panta fyrir mig á veitingastöðum
eða keyra með mér til Keflavíkur
um miðja nótt því ég þorði ekki
ein. Það tæki mörg ár að rifja upp
góðu stundirnar sem við áttum
saman, eru einfaldlega of margar.
Það sem situr efst í huga mér eru
allar stundirnar sem við áttum
saman í Sóltúni. Þegar við sátum
saman inni í stofu og vorum að
lesa og spjalla langt fram á nótt.
Einnig þegar við vorum saman úti
í Kaliforníu og New York. Þú
varst alltaf að stússa svo mikið
með okkur og varst ekki bara
amma heldur líka vinkona. Þú
stóðst alltaf með okkur hvort sem
við áttum rétt á því eða ekki. Þú
hringdir líka á hverju kvöldi til að
passa upp á að allir væru örugg-
lega komnir heim og allt væri eins
og það ætti að vera. Ef það leið
dagur án þess að ég talaði við þig
þá fékk ég óþægindatilfinningu í
líkamann og byrjaði ósjálfrátt að
ímynda mér að eitthvað slæmt
hefði komið fyrir. Þú varst alltaf í
kringum okkur og það var svo
notalegt. Við gátum líka alltaf
komið til þín þegar við vorum eitt-
hvað ósátt út í mömmu og pabba.
Þú skilur eftir þig stórt gat í
hjörtum allra sem urðu svo
heppnir að fá að kynnast þér. Þú
varst engin venjuleg manneskja,
elsku amma mín. Það verður líka
aldrei neinn sem kemur í þinn
stað. Þegar mesti sársaukinn er
farinn munu sitja eftir fallegustu
og ljúfustu minningarnar. Það
eiga allir sínar manneskjur í lífinu
og það var ekki af tilviljun að þú
varðst mín. Ég elska þig af öllu
hjarta. Hér er ljóð til þín.
Þitt gefandi eðli, þín góðláta hönd
geymdi okkar hjörtu, batt eilífðarbönd.
Nú böndin ei bresta þó upp fari önd
og berist svo tær yfir frelsarans lönd.
Við kveðjum þig sátt en minningin skýr
skín ljóst sem viti er leið okkar stýr.
Þinn kærleikur vafði svo heill og
svo hlýr,
hann í hjarta okkar lifir og að eilífu býr.
(Héðinn Unnsteinsson)
Þín nafna,
Erla.
Elsku amma Erla, eða amma
Skipó eins og við kölluðum þig
alltaf.
Mín fyrstu kynni af þér voru
hinn 15. ágúst 1986. Daginn sem
ég fæddist. Ég var svo heppin að
þú varst ljósmóðirin sem tókst á
móti mér. Naflastrengurinn var
vafinn þétt um hálsinn á mér svo
ég blánaði í framan en þú varst
ekki lengi að kippa mér upp og
klippa á hann.
Þú horfðir á mig taka fyrsta
andardrátt minn og ég var hjá þér
þína síðustu stund. Lífið er svo
ósköp undarlegt en um leið svo
fagurt.
Minningar mínar um þig og afa
Sigfús frá því í æsku eru svo ótal-
margar. Ég man eftir því að hafa
leikið lausum hala í Skipholtinu og
fengið að gera næstum allt sem
mér datt í hug. Eitt kvöldið sem
ég var í pössun langaði mig að búa
til sullumall í eldhúsinu. Ég
blandaði saman hveiti, lyftidufti,
vatni, karrýi og fleiru. Ég fór al-
sæl að sofa, angandi af karrýlykt.
Engar hugmyndir voru of skrítn-
ar í Skipholtinu. Ég fékk að vera
barn. Ég gleymdi mér og var
frjáls, umlukin væntumþykju og
hlýju ykkar afa.
Stundirnar í Skorradalnum
voru yndislegar. Ég sé þig fyrir
mér á veröndinni þar sem við gát-
um hlaupið til þín og fengið eitt-
hvað að drekka, stundum nammi
og jafnvel amerískt tyggjó sem afi
hafði keypt í sölunefndinni. Þetta
var rosalegt sport.
Á seinni árum ævi minnar hef-
ur þú verið ein besta vinkona mín.
Þú hefur látið þig öll mín mál
varða og alltaf verið með hlutina á
hreinu.
Ég sakna þess að hringja í þig á
daginn eða hitta þig og drekka
kaffi saman. Það var alltaf svo
gott að tala við þig og fá ráð. Þú
tvínónaðir ekki við hlutina og
sagðir alltaf þína skoðun. Oft óma
setningar í huga mínum sem þú
hefur sagt og hafa nýst mér vel.
Árið 2008 fórum við saman til
Kína í heimsókn til Erlu Maríu
systur. Við fórum í alls þrjú flug í
röð og mér er það minnisstætt að
á flugvellinum í Hong Kong fékk
ég blóðsykursfall og þú fékkst
mig til að drekka appelsínusafa.
Þarna var ég rétt rúmlega tvítug
og þú amma mín, svo hraust og
lést það ekki á þig fá að þurfa að
fljúga þvert yfir hnöttinn.
Í fyrra áttum við yndislegar
stundir í New York en þar vorum
við í septembermánuði í um þrjár
vikur. Við keyptum jólagjafir, ým-
ist röltum um eða hóuðum í leigu-
bíl, drukkum nóg af kaffi, hlógum,
borðuðum ís og drukkum léttvín
með matnum. Þetta var ómetan-
legur tími með þér, elsku amma,
sólin skein og okkur leið vel.
Nú ári síðar hefurðu kvatt, afi
Sigfús kom að sækja þig. Þú elsk-
aðir afa alltaf svo mikið og mér er
það minnisstætt að þú sagðist allt-
af vera gift kona, jafnvel þó hann
hafi kvatt okkur fyrir mörgum ár-
um.
Ég gæti skrifað svo margt
elsku amma mín en ætla þess í
stað að njóta þess að kveikja á
kertum á kvöldin og hugsa til þín.
Ég brosi svo oft yfir daginn, þeg-
ar mér verður hugsað til þín. Þú
varst líka svo hnyttin og sniðug.
Þú komst mér svo oft til að hlæja
og sjá lífið með öðrum augum.
Nú kveð ég þig amma mín og
þakka þér fyrir allt sem þú hefur
fært mér.
Minning þín lifir svo sannar-
lega áfram í gegnum okkur sem
elskuðum þig svo mikið.
Þín,
Hulda.
Þitt bros og blíðlyndi lifir
og bjarma á sporin slær,
það vermir kvöldgöngu veginn,
þú varst okkur stjarna skær.
Þitt hús var sem helgur staður,
hvar hamingjan vonir ól.
Þín ástúð til okkar streymdi
sem ylur frá bjartri sól.
Við þökkum þá ástúð alla,
sem okkur þú njóta lést,
í sorgum og sólarleysi
það sást jafnan allra best.
Þín milda og fagra minning
sem morgunbjart sólskin er.
Þá kallið til okkar kemur,
við komum á eftir þér.
(F.A.)
Þessi orð skáldsins eru lýsandi
um systur mína sem nú hefur
kvatt þennan heim eftir erfiða
baráttu við illvígan sjúkdóm. Mik-
ill söknuður og eftirsjá er að þess-
ari elstu systur minni, heimsókn-
ir hennar voru tíðar á heimili
okkar, símtölin enn fleiri, sam-
verustundirnar ógleymanlegar.
Hún leiddi mig sem barn og ég
hana síðan sem fullorðna konu.
Erla systir var ljósmóðir að
mennt og starfaði við það í meira
en fjóra áratugi. Í minningunni
finnst mér eins og hún hafi alltaf
verið á vakt, því að aldrei man ég
eftir því að hún væri ekki tilbúin
að hjálpa þegar til hennar var
leitað utan vinnutíma hennar.
Hún var líka svo gæfusöm í sínu
starfi að aldrei bar skugga á og
alltaf gat hún farið glöð og sátt
heim að loknum degi. Það hefur
svo sannarlega sagt mér mikið
um umönnun hennar við allar
konur sem nutu aðhlynningar
hennar, að ósjaldan var hún
kysst og föðmuð á almannafæri
af konum sem hún hafði tekið á
móti börnum hjá og það jafnvel
hjá fleiri en einni kynslóð kvenna
í sömu fjölskyldu. Það sagði við
mig vinkona mín sem var ein
þessara kvenna, að hún hefði haft
gullhendur.
Mannleg samskipti voru henni
eðlislæg. Hún átti auðvelt með að
kynnast fólki og ná sambandi við
það, hvort sem um var að ræða
vini eða vinkonur ömmustelpna
sinna eða þá vini eða kunningja
fjölskyldunnar sem hún hitti í
boðum eða bara tilfallandi í heim-
sóknum til annarra. Hún talaði
við alla sem jafningja og auðvitað
vissi hún allt um þau að hálftíma
liðnum, hún átti svo auðvelt með
að ná til allra. Erla systir var
einnig bóngóð, hvernig sem á
stóð hjá henni var hún ávallt til í
búðarferð, eða á kaffihús, en það
þótti henni einstaklega skemmti-
legt.
Systir mín var yndisleg kona,
hún var heittelskuð og dáð af
börnunum sínum, tengdabörnum
og börnum þeirra sem hún var í
daglegu sambandi við. Söknuður
þeirra er mikill og okkar systr-
anna og fjölskyldna okkar. Börn-
unum hennar og fjölskyldu
þeirra bið ég hjartans blessunar
og styrks til að komast í gegnum
erfiða tíma. Góði Guð, legg þú
elsku systur mína að brjósti þér.
María (Mæja) systir.
Ljósmóðurstarfið er eitt göf-
ugsta og mikilvægasta starf í ver-
öldinni að mati þess sem þetta
skrifar því að hvað er göfugra en
að taka á móti nýju lífi, hlúa að
því og búa svo um að öryggi ný-
fædds barns sé tryggt unz það er
falið í hendur móður? Mágkona
mín, Guðrún Erla, sem hér er
kvödd með meiri trega en orð fá
lýst gegndi þessu starfi um
margra áratuga skeið og þau eru
ófá nýfædd börnin sem hafa
fengið einstaka blíðlega móttöku
af hendi þessarar einstöku konu
og litið ljósið í fyrsta sinn og ekki
síst birtuna sem endurspeglaðist
í kærlegri og blíðri ásýnd hennar
Erlu eins og hún var jafnan nefnd
af þeim sem þekktu hana.
Erla var full af kærleika og
gæsku, var ávallt til staðar fyrir
manninn sinn, Sigfús Jónsson,
sem hún missti fyrir fjórtán ár-
um, börnin sín tvö og maka
þeirra, svo og barnabörnin öll
sem hún umvafði af umhyggju
sinni, var þeim stoð og stytta í
blíðu og stríðu. Hún var í reynd
óhemju dugleg við að aðstoða
sína nánustu með oddi og egg, al-
veg fram á síðustu stund ævi
sinnar, en varð að lokum að láta
undan í því stríði sem við munum
öll heyja seint um síðir.
Erla var elzt alsystkina sinna
og sem slík gegndi hún ákveðnu
forystuhlutverki og var hinum
systkinunum til fyrirmyndar í
eljusemi og vinnuhörku. Sem vin-
sæl ljósmóðir þurfti hún oft að
sinna kalli utan vinnutíma, því að
konur sem höfðu einu sinni átt
barn undir handleiðslu hennar
sóttust eftir að fá hana aftur við
fæðingu síðari barna. Segir það
sitt um vinsældir hennar sem
ljósmóður. Eftir að hún hætti
ljósmóðurstarfinu helgaði hún
fjölskyldu sinni alla krafta sína,
en hún taldi aldrei eftir sér að
bjóða fram hjálp sína, þetta var
henni í blóð borið, kærleikurinn
og umhyggjan ofar öllu.
Mér þótti ákaflega vænt um
þessa mágkonu mína, það var
unnt að hafa í flimtingum við
hana og hún tók öllu gríni með
jafnaðargeði og ég held að hún
hafi undir niðri haft gaman af því.
Léttleikinn var í fyrirrúmi hjá
henni og hún kvaddi ávallt með
bros á vör. Það var gott að fá hana
í heimsókn og heimsókna hennar
verður sárlega saknað.
Nú er hún Guði falin, en minn-
ingin um kærleiksríka konu lifir
meðal eftirlifenda, barna hennar,
tengdabarna, barnabarna, systra
og fjölskyldu þeirra, svo og allra
þeirra sem þekktu hana. Samúð
mín er með þeim öllum. Megi þau
öll fá styrk í sorginni í orðum
frelsara okkar, Jesú Krists: „Sæl-
ir eru sorgbitnir, því að þeir
munu huggaðir verða.“
Birgir Arnar.
Erla, mín elskulega vinkona,
er dáin. Ógnarhraðinn í kringum
veikindi hennar gera það að verk-
um og ég er engan veginn búin að
átta mig á brottför hennar, ég
sakna Erlu ofsalega.
Við Erla kynntumst í febrúar
1963 um borð í Gullfossi, þar vor-
um við í skemmtiferð með eigin-
mönnum okkar. Maðurinn minn,
hann Villi, sem var brunavörður,
hafði kynnst Erlu sem starfaði
sem ljósmóðir á Fæðingarheim-
ilinu er hann kom þangað með
fæðandi konur. Við hjónin náðum
öll strax vel saman. Þegar við
stoppuðum í Kaupmannahöfn var
mikill kuldi og svo einkennilega
vildi til eftir búðarferð einn dag-
inn að við Erla mættum með ná-
kvæmlega eins loðhúfur. Mikið
gátum við hlegið að þessu. Það
var alltaf skemmtilegt að vera
með Erlu og við vinkonurnar gát-
um bókstaflega hlegið út í eitt.
1997 missti ég minn mann og
ári seinna missti Erla Sigfús sinn.
Þau höfðu verið einstaklega sam-
rýnd og samstiga hjón. Við Erla
tókum þarna upp vinkonusam-
band sem aldrei bar skugga á. Við
nutum lífsins saman, fórum í ut-
anlandsferðir, glöddumst í leik-
húsklúbbi, matarklúbbi og áttum
ótal dásamlegar ferðir í sumar-
hús Erlu í Skorradal, alltaf gam-
an.
Erla varð vinkona allra í minni
fjölskyldu. Lítill sonarsonur minn
sagði eitt sinn: „Amma, eruð þið
Erla systur – þið eruð alveg eins.“
Sama má segja um mig, ég kynnt-
ist yndislegu fjölskyldunni henn-
ar Erlu. Einstakt kærleikssam-
band var milli Erlu og barnanna
hennar og barnabarna. Já, við
Erla vorum miklar vinkonur í öllu
okkar lífi. Erla hjálpaði mér oft í
búðinni minni Hárprýði og síð-
ustu árin heyrðumst við nær dag-
lega. Þegar ég flutti í sumar var
Erla mætt, alltaf boðin og búin að
hjálpa, ráðagóð og björt. Börnin
mín í Noregi hafa öll verið að
hringja og hugsa til Erlu. Erla
hafði nefnilega einstakt lag á að
umvefja alla með hlýju sinni og
elsku. Þau senda hjartans sam-
úðarkveðjur. Sambýlismaður
minn, Pétur, minnist allra góða
stunda með Erlu vinkonu og
sendir bestu kærleikskveðjur.
Ég kveð Erlu, mína yndislegu
vinkonu, með söknuði og hjartans
þökk fyrir allt og allt.
Birna Björnsdóttir.
Starfsfélagar og vinir við Fæð-
ingarheimili Reykjavíkur þakka
Erlu allar ljúfar og ógleymanleg-
ar samverustundir í tugi ára og
fela hana sem og fjölskyldu henn-
ar og ástvini alla í umsjá almætt-
isins um alla framtíð.
Blessuð sé minningin um ein-
staka konu, sem við söknum sár-
lega.
Sérstök kveðja frá Söndru með
djúpri þökk fyrir umhyggju alla
frá fyrstu stund.
Hulda.
Erla
Sigurðardóttir
HINSTA KVEÐJA
Það hefur verið mér mik-
il gjöf og blessun að hafa
átt Erlu ljósmóður að vini
og verndara í 40 ár og bar
þar aldrei skugga á. Ég og
börnin mín fimm eigum
minningar um yndislega
konu sem ávallt sendi birtu
á veginn.
Elsku Erla, þú munt
ávallt lifa í hjörtum okkar.
Þín vinkona
María Marteinsdóttir.
Lengi hefur ljósan þörf
linað þjáning sára,
fögur unnið fórnarstörf
fjóra tugi ára
Loks hún mömmu leggur hjá
lítinn reifastranga,
þá er ljósa björt á brá
brosið hýrt á vanga
(G.M.B.)
Oft hef ég hugsað hlý-
lega til hennar Erlu minn-
ar, hversu góð og blíð ljós-
móðir hún var.
Ég bið henni og ástvin-
um hennar Guðs blessunar.
Sigurlaug
Sveinbjörnsdóttir.