Morgunblaðið - 01.10.2013, Page 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2013
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Á þessum diski er ég einn með
kassagítarinn og spila öll mín
uppáhalds Bítlalög,“ segir Björn
Thoroddsen djassgítarleikari með
meiru, um nýjan disk sinn, Bjössi
Thor og Bítlarnir. Diskurinn kem-
ur formlega út á fimmtudag og þá
heldur Björn útgáfutónleika í Saln-
um og hefjast þeir klukkan 20. Út-
gáfutónleikarnir marka jafnframt
upphaf þriggja daga Jazz- og
blúshátíðar Kópavogs sem Björn
stýrir.
„Á tónleikunum mun ég kynna
plötuna en á henni eru mörg þekkt
lög,“ segir hann og telur upp:
„Help“, „Lady Madonna“, „When
I’m 64“, „I’ll Follow the Sun“, „I’m
a Looser“ … Þetta eru lög frá öll-
um tímabilum Bítlanna, allt klass-
íkerar. Þetta eru lögin sem maður
heyrði í gamla daga í Kanaútvarp-
inu.
Platan varð þannig til að fyrir
um ári hlustaði Óttar Felix Hauks-
son á mig leika Bítlalagapróg-
ramm og kom síðan að máli við
mig og sagði: Við verðum að gefa
þetta út! Ég tók ekkert sér-
staklega undir það, enda Bítlarnir
viðkvæmt umræðuefni,“ segir
Björn og hlær, en málin þróuðust
engu að síður þannig að platan er
komin út. Björn fékk fyrstu ein-
tökin í hendur í gær.
„Ég hef gert töluvert af því er-
lendis að leika einn á þennan hátt
á kassagítarinn. Ég fer til dæmis
strax eftir hátíðina á laugardag út
til Atlanta í Bandaríkjunum að
spila.“ Björn hefur verið mikið á
faraldsfæti undanfarin ár og þá
ekki síst fyrir vestan haf, þar sem
hann leikur reglulega á tónleikum.
„Eru gítarfenómen“
En fyrst er dagskrá í þrjú kvöld
í Salnum; á föstudagskvöld er
komið að Gítarhátíð Bjössa Thor.
„Þá komum við fjórir fram, frá
sitthvoru landinu. Frá Kanada
kemur Tim Butler, frá Bandaríkj-
unum Trevor Gordon Hall og loks
frá Englandi Craig D’Andrea.
Þessir menn eru gítarfenómen –
maður þarf að fara í sturtu eftir að
hlusta á þá!“ Björn hlær og bætir
við að þetta séu miklir snillingar
og tveir síðastnefndu séu ungir að
árum, eitthvað um þrítugt, en hafi
engu að síður unnið til allskyns
verðlauna fyrir leik sinn.
„Kvöldinu er stillt þannig upp að
hver spilar sína efnisskrá. Kassa-
gítarinn verður í forgrunni og allt
gert við hann sem hægt er að gera.
Við erum allir ólíkir spilarar og
það mun heyrast. Áður hefur verið
rafmagnsgítarstemning í Gít-
arveislunni en nú ákvað ég að hafa
hana allt öðruvísi. Þessir ungu
menn sýna hvað er í gangi í dag;
þeir nálgast hljóðfærið á annan
hátt en flestir. Það er upplifun að
heyra það.“
Á laugardagskvöld verður loks
komið að blúsveislu undir yf-
irskriftinni „Kanada vs. Kópavog-
ur“. Björn segir að Blústríó Tims
Butler verði leiðandi í dagskránni,
en auk Butlers er það skipað þeim
Óskari Birni Bjarnasyni og Ólafi
Þór Kristjánssyni. Þeir munu leika
fræga slagara eftir Johnny Wint-
her, Jimi Hendrix og fleiri en síðan
taka að tínast á svið gestir sem
tengjast Kópavogi. „Þar má meðal
annars nefna Tryggva Hubner gít-
arleikara og Björgvin Birki Björg-
vinsson, sem er mjög efnilegur gít-
arleikari, Kristján Hreinsson
„Skerjafjarðarskáld“ sem er samt
Kópavogsbúi í húð og hár, og þá
syngur Rannveig Ásgeirsdóttir
bæjarfulltrúi blús.“
Þegar Björn er spurður að því
hvort hann grípi ekki líka í gít-
arinn kveðst hann muni vera eitt-
hvað að „þvælast“ þarna. „Ég
stekk inn ef einhver þarf á mér að
halda. En þetta verður stemnings-
kvöld.“
Winnipeg, Saskatoon, Denver
Eins og fyrr segir hefur Björn á
undanförnum árum oft komið fram
á hátíðum í Kanada og Bandaríkj-
unum en í Winnipeg stjórnaði
hann einnig fyrr á árinu gít-
arveislu, sambærilegri við þá í
Salnum. Hún vakti mikla lukku og
er fyrirhugað framhald þar á, í maí
á næsta ári.
„Það er sama formið nema þessi
hátíð er á útlensku! Hún gekk það
vel að það var uppselt í stórt leik-
hús og nú eru viðræður í gangi um
samskonar gítarhátíðir í tveimur
borgum til. Ég verð með eina í
sumar í Saskatoon í Sasketshawan
og þá eru yfirgnæfandi líkur á að
ég stjórni gítarhátíð í Denver í
Colorado í apríl. Þetta virkar eins
og hér, ég er gestgjafinn og einn af
aðalhljóðfæraleikurunum. Auðvit-
að er mikið af mjög flinkum spil-
urum á þessum svæðum, en það
bara herðir mann.“ Hann brosir.
En þetta er ekki upp talið, því
einnig eru í gangi viðræður um að
Björn stýri slíkri hátíð í New Or-
leans. Það á eftir að skýrast.
Árlegt í Bergen
„Fyrr á þessu ári var ég síðan
með gítarveislu í Bergen í Noregi,
á listahátíð borgarinnar, segir
hann.“ Hún gekk líka afar vel og
var uppselt. „Það er verið að ræða
að þetta verði að árlegum viðburði
og ég verði við stjórnina,“ segir
Björn.
Gítarveislur hans eru því að
hlaða utan á sig og í tengslum við
það er sífellt meiri eftirspurn eftir
leik Björns. „Ég er einmitt á leið-
inni til Atlanta að leika Bítlapróg-
rammið. Það er gaman að vera
kallaður úr Kópavoginum til lands-
ins sem fann upp öll gítartrikkin,“
segir gítarleikarinn fingrafimi.
Gítarhátíðir í Kópa-
vogi og víða um lönd
Björn Thoroddsen og Bítlalögin Gítarveislur hans víða
Morgunblaðið/RAX
Fingrafimur „Kassagítarinn verður í forgrunni og allt gert við hann sem
hægt er að gera,“ segir Björn Thoroddsen um gítarveisluna í Salnum. Hann
kom fram á tónleikum í Menntaskólanum í Kópavogi í gær.
www.gilbert.is
ÍSLENSK ÚR FYRIR ÍSLENDINGA
Humarhúsið
101 Reykjavík · humarhusid@humarhusid.is
Amtmannsstíg 1 sími: 561·3303
Þegar njóta á
kvöldsins...