Morgunblaðið - 28.10.2013, Síða 1

Morgunblaðið - 28.10.2013, Síða 1
M Á N U D A G U R 2 8. O K T Ó B E R 2 0 1 3  250. tölublað  101. árgangur  LESTRARVINIR AÐSTOÐA BÖRN VIÐ LESTUR VERULEIKINN EINS OG SKRÝTINN SKÁLDSKAPUR VILL FERÐA- ÞJÓNUSTU Í FJARSKIPTAHÚS SÖNN ÍSLENSK SAKAMÁL, 26 VÍK Í MÝRDAL 12BRÚA KYNSLÓÐABILIÐ 10 ÁRA STOFNAÐ 1913 Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Atvinnuleysi meðal þeirra sem eru með há- skólamenntun minnkar hægar en þeirra sem eru með minni menntun. Fyrir hrunið árið 2008 var algengt að hlutfall þeirra sem voru með háskólamenntun á atvinnuleysisskrá væri 10-12% en eftir hrun hefur hlutfallið hægt og bítandi þokast upp á við og hefur aldrei verið hærra en í september sl., eða um 22%. Mjög hefur dregið úr atvinnuleysi undan- farna mánuði en langmest hjá þeim sem eru með minnstu menntunina. Einnig hefur dregið úr atvinnuleysi þeirra sem eru með háskóla- próf, en ekki nærri því eins mikið. Í september voru 1.430 með háskólanám á atvinnuleysisskrá af alls 6.480. Af þeim sem eru með háskólapróf voru flest- ir viðskiptafræðingar eða 213, næst flestir höfðu lokið lögfræðinámi eða 76 og 56 höfðu lokið kennaranámi. Um 44% þeirra sem voru skráðir atvinnulausir í september voru aðeins með grunnskólapróf en hlutfallið hefur verið 50% og oft ríflega það undanfarin ár. Útskrifaðir um áramót, enn í atvinnuleit Dregið hefur úr atvinnuleysi meðal við- skiptafræðinga en fjöldi atvinnulausra sem hafa numið lögfræði hefur aukist og hafa þeir aldrei verið fleiri en í september sl. eða 76. Framkvæmdastjóri stórrar lögfræðiskrif- stofu sem Morgunblaðið ræddi við benti á að mun meira væri um að lögfræðingar sem hefðu útskrifast í janúar hefðu sótt um vinnu nú í haust. Slíkt hefði ekki þekkst áður. Háskólamenntaðir sitja eftir  Hægar dregur úr atvinnuleysi háskólamenntaðra en atvinnuleysi þeirra sem eru með minni menntun  Dregur úr atvinnuleysi meðal viðskiptafræðinga en aldrei fleiri með lögfræðigráðu atvinnulausir Atvinnuleysi meðal viðskipta- fræðinga og lögfræðinga Heimild: Vinnumálastofnun Jan. 2007 Sept. 2013 400 300 200 100 0 Lögfræðingar Viðskiptafræðingar „Veggjakrot hefur aukist mikið að undanförnu í flestum hverfum borgarinnar,“ segir Kjartan Magn- ússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík, en borgarfulltrúar flokksins lögðu fram tillögu á fundi borgarráðs þann 17. október um að aðgerðir gegn veggjakroti yrðu hertar. „Á síðasta kjör- tímabili fór fram mikið átak sem náði hámarki 2008 og mikill árangur vannst í baráttunni gegn veggja- kroti. Í kjölfar efnahagskreppunnar var þarna skor- ið niður og nú duga framlögin rétt fyrir lágmarks- hreinsun,“ segir Kjartan. Árið 2012 var um 24 milljónum króna varið í hreinsun á veggjakroti en til samanburðar má geta þess að árið 2008 nam upphæðin um 156 milljónum króna. Guðmundur Vignir Óskarsson, verkefnisstjóri á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, tel- ur líklegt að upphæðin í ár verði undir 24 milljónum. „Í ár hefur heldur verið dregið saman miðað við árið í fyrra.“ MVeggjakrot farið »4 Veggjakrot eykst í borginni Krotað á veggi í flestum hverfum borgarinnar  Meira í flestum hverfum Minna sett í hreinsunarstarf Morgunblaðið/Golli Eignaspjöll Undirgöngin við Miklubraut hafa orðið veggjakroturum að bráð eins og mynd sem tekin var í gær sýnir. Á árunum 1997 til 2011 hækkaði hlutfall þeirra sem stunduðu nám í félagsvís- indum, s.s. viðskiptafræði og lögfræði, úr 31% í 37%. Á sama tíma hækkaði hlutfall þeirra sem stunduðu nám í verkfræði- og raunvísindagreinum úr 16% í 18%. Á árunum 2007-2013 hafa Háskóli Ís- lands og Háskólinn í Reykjavík útskrifað samtals um 800 lögfræðinga. Flestir í félagsvísindi HÁSKÓLANÁM Á ÍSLANDI MSkipa sér sjálfir »6 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Um áramót verð- ur sjúkrabílum í Búðardal, Hvammstanga og Ólafsvík fækkað, úr tveimur á hverjum stað í einn. Ef einn bíll er í útkalli er eng- inn varabíll til staðar. Þórður Ingólfsson hér- aðslæknir hefur áhyggjur af stöð- unni. „Hér eru vegalengdir miklar og tímafrekt getur verið að komast á milli staða og þess vegna höfum við áhyggjur af því ef fækka á sjúkrabíl- um á svæðinu. Meðalútkall er eitt- hvað í kringum fjórir klukkutímar í dag og þau geta farið upp í allt að átta tíma. Þess vegna teljum við mikilvægt að hafa hér sjúkrabíl til vara.“ Þórður segist ekki hafa nákvæma tölu yfir þau tilvik þegar báðir bíl- arnir eru í útkalli en þau séu nokkur á ári. „Við sendum aldrei varabílinn út nema um bráðatilvik sé að ræða. Eins, ef það verða alvarleg bílslys, getum við þurft að senda tvo bíla á vettvang enda flytja sjúkrabílar al- mennt ekki fleiri en einn alvarlega slasaðan sjúkling í einu.“ Áhyggjur íbúa komu fram á fundi í kjördæmaviku Alþingis sem Har- aldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var á. Hann segist skilja áhyggjur íbúa. „Við eig- um ekki að gefa neinn afslátt af lág- marksöryggi og þurfum að finna þessu máli farsæla lausn.“ Enginn varabíll tiltækur  Miklar vegalengdir og tímafrek útköll Þórður Ingólfsson Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Landeigendafélagið Geysir ehf., sem á meirihluta lands við Geysi í Hauka- dal, hyggst á fyrri hluta næsta árs hefja innheimtu gjalds af ferða- mönnum sem sækja svæðið. Í til- kynningu um þessi áform er ástæð- an sögð vera sú að með öðru móti verði ekki farið í nauðsynlegar og kostnaðarsamar úrbætur á svæðinu. Garðar Eiríksson, ritari Geysis ehf., segir að ekki sé búið að ákveða hve hátt gjaldið verður. Segir hann að um hálfan milljarð króna þurfi til uppbyggingar á svæðinu og gerir hann ráð fyrir því að innlendir jafnt sem erlendir ferðamenn verði rukk- aðir. Landeigendafélag Geysis ehf. var stofnað í september í fyrra. Að því standa allir landeigendur Hauka- dalstorfunnar og eiga þeir 65% en ís- lenska ríkið á 35%. Að sögn Garðars hefur ríkinu verið tilkynnt um áformin en ríkið er ekki aðili að land- eigendafélaginu. Spurður um við- brögð ríkisins segir hann þau hafa verið „hógvær“. „Ég myndi segja að viðbrögð þeirra hefðu verið hlut- laus,“ segir Garðar. Gjald fyrir að skoða Geysi  Innheimta hefst fyrri hluta árs 2014 Morgunblaðið/Sigurgeir S. Geysir Áform eru um gjaldtöku.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.