Morgunblaðið - 28.10.2013, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2013
H
a
u
ku
r
5
.1
3
Finnur Árnason
rekstrarhagfræðingur
finnur@kontakt.is
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
Tveir Subway staðir á Benidorm. Velta 100 mkr. og góður hagnaður.•
Miklir möguleikar fyrir duglega aðila að opna fleiri staði á svæðinu.
Danskt iðnfyrirtæki, með sölukerfi um alla Evrópu, sem auðvelt er að•
flytja til Íslands. Ársvelta 600 mkr. Góðar hagnaður. Mjög hagstætt
verð.
Heildverslun með sérhæfðar byggingavörur. Rótgróið fjölskyldufyrirtæki,•
en eigandi vill fara að draga sig í hlé sökum aldurs. Stöðug velta
síðustu árin um 300 mkr. og góð framlegð.
Fiskvinnsla í útflutningi á ferskum fiski. Mjög snyrtileg vinnsla í eigin•
húsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Stöðug velta 230 mkr og EBITDA 16%.
Öflugt ferðaþjónustufyrirtæki á landsbyggðinni óskar eftir meðfjárfesti til•
að fjármagna áframhaldandi uppbyggingu.
Vel tækjum búið verktakafyrirtæki og vélaleiga sem starfar í•
byggingageiranum.
Spennandi hótelverkefni að Arnarholti á Kjalarnesi. Möguleiki á allt að•
100 herbergjum í nýju hóteli. Hagstæður leigusamningur.
Adventure Car Rental. Vinsæl bílaleiga í fullum rekstri með 25 velbúna•
jeppa í útleigu. Fullbúið verkstæði, tvo lén, tvær heimasíður og fullkomið
bókunarkerfi.
Stórt þvottahús og efnalaug með móttökustaði víðsvegar um•
höfuðborgarsvæðið.
Pisa Guesthouse & Restaurant í Lækjargötu með 14 herbergjum og•
ítölskum veitingastað í eigin húsnæði. Hagstæð áhvílandi lán.
TÍSKU
MARKAÐUR
POP-UP
OPNUNARTÍMI:
MÁN.-FÖS: 13-18 - LAU.12-16
Verð:
1.900 - 9.900
MÖRKINNI 6 -108 REYKJAVÍK
Enn meiri verðlækkun!
MC PLANET
VÖRUMERKIÐ HÆTTIR!
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
Access Iceland – Gott aðgengi er
vottunarkerfi sem Harpa Cilia Ing-
ólfsdóttir, framkvæmdastjóri Að-
gengis, hefur byggt upp undanfarin
ár.
Kerfið virkar þannig að Access
Iceland tekur út húsnæði fyr-
irtækja, stofnana, safna og þar fram
eftir götunum og metur hvernig að-
gengi er háttað fyrir fólk með mis-
munandi fatlanir. Húsnæði er tekið
út með tilliti til sjö þátta, en meðal
þess er aðgengi fyrir hjólastóla og
aðbúnaður fyrir þá sem heyra illa,
blinda og sjónskerta og svo fram-
vegis. Á vefsíðunni gottadgengi.is er
hægt að nálgast upplýsingar um að-
gengi að þeim stöðum og bygg-
ingum sem hafa verið tekin út af
fyrirtækinu.
„Fyrirtækið átti upphaflega að
vera almennt ráðgjafarfyrirtæki um
aðgengismál. Við vorum komin
ágætlega af stað með það, en fannst
vanta möguleikann á að geta komið
upplýsingum til notenda,“ sagði
Harpa.
Hún fór því á stúfana og kannaði
hvort það væri til einhver aðferð til
að koma þessum upplýsingum á
framfæri. Hún rakst á God adgang í
Danmörku og notast nú við kerfi frá
þeim.
Snýst fyrst og fremst um fólk
Harpa segir Access Iceland not-
ast við merki til að tákna hvernig
aðgengi sé að hverjum stað
fyrir hvaða hóp. „Mér fannst
erfitt að útskýra fyrir fólki
með því að nota bara merkin
sjálf. Þess vegna fengum við
fólk til að sýna það, því þetta
snýst fyrst og fremst um
fólk.“ Þannig má nefna sem
dæmi að Edda Heiðrún
Backman er við hlið merkis
sem táknar aðgengi fyrir
hjólastóla, og Diddú fyrir
fólk með skerta heyrn.
Aðgengi snýst fyrst
og fremst um fólk
Access Iceland tekur út húsnæði fyrir aðgengi fatlaðra
Morgunblaðið/Ómar
Gott aðgengi? Harpa (t.v) og Aðalbjörg Guðgeirsdóttir, starfsmaður Acc-
ess Iceland (t.h.), í Grasagarðinum. Brúin í garðinum er illfær hjólastólum.
Harpa segir Access Iceland alls ekki gera kröfu um að allt sé fullkomið
hjá þeim sem þau taka út.
„Ef það er þrep einhvers staðar sem hindrar aðgengi, þá er betra að
vita af því og þú gerir þá ráðstafanir í kring-
um það ef þú ert til dæmis í hjólastól. Ef þú
ert einn á ferð velurðu kannski stað með
betra aðgengi, en lætur það ekki skipta máli
ef þú ert með einhverjum sem getur hjálpað
þér.“
Hún segir því miður ákveðna tregðu til að
taka þátt ef húsnæði sé ekki fullkomið. „Það
er óþarfa hræðsla við það, því það er betra
fyrir fólk að hafa þessar upplýsingar og vita
að hverju maður gengur frekar en að lenda í
vandræðum á staðnum,“ sagði Harpa.
Vissa betri en óvissa
TAKA ÚT AÐGENGI FATLAÐRA