Morgunblaðið - 28.10.2013, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.10.2013, Blaðsíða 12
SUÐURLAND DAGA HRINGFERÐ VÍK Í MÝRDAL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2013 Brúarsmíði er skemmtilegt viðfangsefni, ekki síst þeg- ar í hópnum eru duglegir karlar. Við ætlum að berjast í þessu í vetur alveg eins og veður leyfir. Helst komast eitthvað fram úr áætlun en verklok eru áætluð í sept- emberbyrjun á næsta ári. Þetta hefur farið vel af stað og ég vænti þess að alla brúarstöplana getum við steypt í nóvember. Nákvæmari tímasetningu get ég ekki gefið þér,“ segir Guðbjartur Hafsteinsson, verkstjóri hjá Eykt hf. Eyktarmenn eru nú komnir á fullt skrið með smíði nýrrar brúar yfir Múlakvísl, sem er nokkuð fyrir aust- an Víkurþorp. Kemur hún í stað eldri brúar sem tók af í flóði í júlí 2011. Ný bráðabirgðabrú var þá reist í henn- ar stað á aðeins einni viku sem þótti afreksverk. Alla tíð hefur þó verið ljóst að reisa þyrfti varanlegt mann- Hönnuð til að standast álag  Ný 300 metra löng brú yf- ir Múlakvísl  Eykt byggir Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Útsýni Horft yfir Múlakvísl og sandinn þar sem ný brú er í smíðum um þessar mundir. Í baksýn er Hjörleifshöfði. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Reynisfjall er óvenjulegur staður; náttúran stórbrotin og útsýnið óviðjafnanlegt. Ég tel að fjallið geti orðið spennandi viðkomu- staður ferðafólks, til dæmis ungs fólks sem leggur stund á nátt- úruvísindi. Fyrir það er Ísland sem ein stór kennslustofa í jarð- fræði,“ segir Þráinn Sigurðarsson í Vík í Mýrdal. Þau Æsa Gísla- dóttir eiginkona hans hafa um langt árabil rekið farfuglaheimilið í Norður-Vík. Hugur Þráins hefur þó lengi staðið til frekar umsvifa og að geta komið inn í ferðaþjón- ustuna með nýmæli. Nú er sá draumur nærri því að rætast. Hernaðarlega mikilvægt Í síðari heimsstyrjöldinni voru Bretar með varðstöð í Vík í Mýrdal og má af því ráða að stað- urinn hafi haft talsverða hern- aðarlega þýðingu. Það var svo árið 1966 sem á Reynisfjalli, sem er vestan og sunnan við Víkurþorp, var reist 350 fermetra steinsteypt hús þar sem var rekin lóranstöð allt til ársins 1977. Með lóran- tækninni var m.a. fylgst með flug- umferð á Norður-Atlantshafi. Svo fór hins vegar í fyllingu tímans að tækni þessi úreltist og þá var stöðinni lokað. Sveitarfélagið eign- aðist húsið, seldi síðar einkaaðilum sem aftur seldu það Þráni fyrir fjórum árum. Hann ætlar nú að hefja endurgerð þess og helst ljúka henni fyrir vorið. Segir það munu verða fyrirhafnarsamt og kosta sitt. Hitt komi á móti að húsið sé í góðu ásigkomulagi, enda úr góðu efni byggt. Engar brekkur jafn brattar „Þetta er staður mikilla möguleika,“ segir Þráinn. Fyrir það fyrsta segir hann að spenn- andi sé að aka úr Víkurþorpi um sneiðinga upp á fjallið. Einstaka Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Reynisfjall Þráinn Sigurðsson við gömul lóranstöðina sem hann ætlar nú að breyta, bæta og byggja upp. Uppstreymi og útsýni Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Reynisdrangar Horft af fjallinu niður á svipsterka og fallega drangana.  Vill ferðaþjónustu í fjarskiptahús  Yfirgefin lóranstöð á Reynisfjalli  Möguleikar á mikilfenglegum stað Víkurprjón í Vík var stofnað árið 1980. Á þeim 33 árum sem síðan eru liðin hefur fyrirtækinu vaxið fiskur um hrygg og á þess vegum er umfangsmikil starfsemi í Vík, auk saumastofu á Suðurnesjum og verslunum víða um land. Eignarhaldsfélagið Drífa í Garðabæ keypti Víkurpr- jón í fyrra og er það nú líklega þekktara undir nafninu Icewear. „Við rekum núna sokkaverksmiðju, prjóna- og saumastofu hér í Vík og erum hér einnig með 400 fer- metra verslun þar sem við seljum framleiðslu okkar og ýmislegt annað,“ seg- ir Örn Sigurðsson, rekstrarstjóri Víkurpr- jóns. „Stundum erum við spurð að því hvort við flytjum mikið af framleiðslu okkar út. Reyndar gerum við ekki mikið af því sjálf, en 90% við- skiptavina okkar eru erlendir ferðamenn og þeir sjá um að fara með vöruna úr landi.“ Jákvæðni, samheldni og traust Að sögn Arnar er ullarvaran sú framleiðsla sem mest selst en útivistarfatnaðurinn undir merki Icewear hefur verið að sækja í sig veðrið. „Áður seld- um við langmest á veturna en eftir að vetrarferða- mennskan efldist er salan jafnari yfir árið.“ Hjá Víkurprjóni í Vík starfa samtals um 40 manns við framleiðslu og í verslun og er fyrirtækið stærsti einkarekni vinnustaðurinn í bænum. Örn segir Vík góðan stað til fyrirtækjarekst- urs. „Samfélagsgerðin er þannig að öllum finnst þeir bera ábyrgð á því að vel gangi. Hér ríkir jákvæðni, samheldni og traust og það er besti jarðvegurinn fyrir fyr- irtæki. Svo er einstaklega gott fólk hérna.“ annalilja@mbl.is Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Víkurprjón Í Vík er 400 fermetra verslun sem selur vörur Víkurprjóns. Góður jarðvegur fyrir rekstur í Vík Örn Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.