Morgunblaðið - 28.10.2013, Page 4

Morgunblaðið - 28.10.2013, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2013 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Alicante á næsta ári komið í sölu Nú er tækifæri til að bregðast skjótt við og næla sér sæti á frábærum kjörum! Netverð frá kr. 25.900 Flugsæti á mann aðra leiðina með sköttum. frá kr. 25.900 María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Guðmundur Vignir Óskarsson, verk- efnastjóri á umhverfis- og skipu- lagssviði Reykjavíkurborgar, segir enga spurningu um það að veggja- krot hafi aukist upp á síðkastið. „Eftir hrun dró mjög úr fjár- magni til hreinsunarstarfs en eðli veggjakrots er þannig að ef það fær að þróast óáreitt þá vill það magnast og því er mikilvægt að vinna jöfnum höndum gegn því. Reykjavíkurborg hefur kappkost- að að halda sínum eignum hreinum en síðan eru einkaeignir og álags- svæði sem hafa farið jafnt og þétt úr böndunum,“ segir Guðmundur. Árið 2012 var um 24 milljónum króna varið í hreinsun á veggjakroti en til samanburðar má geta þess að árið 2008 nam upphæðin um 156 milljónum króna. Guðmundur telur líklegt að upphæðin í ár verði undir 24 milljónum. „Í ár hefur heldur verið dregið saman miðað við árið í fyrra. Farsælasta leiðin til þess að komast af með sem lægstan kostnað er að vinna skipulega og heildstætt að verkefninu. Loks þarf að gera greinarmun á veggjakroti og vegg- list og það er umræða um það að varpa þurfi betur ljósi á hvar þessi mörk liggja. Það hefur orðið aukning á vegg- list í borginni með velþóknun borg- ara enda er hún leyfisskyld en veggjakrot á ekkert skylt við t.d. myndverk á húsum og það er mik- ilvægt að halda veggjakroti í skefj- um,“ segir Guðmundur. Getum lært af öðrum Kjartan Magnússon, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir veggjakrot vera al- þjóðlegt vandamál og að víða um heim sé farið í átak gegn því. „Það hefur hins vegar lítið farið fyrir slíku átaki hér í Reykjavík und- anfarin ár. Kaupmannahöfn og Helsinki eru borgir sem staðið hafa vel að málum og við getum lært mik- ið af þeim í þessum málum. Þrennt er talið skila árangri í þessari baráttu; að mála strax yfir veggjakrot en rannsóknir sýna að krotvargar gefast fljótt upp á að krota þar sem málað er strax yfir. Svo þarf að leggja áherslu á for- varnarstarf og jákvæðan áróður gegn veggjakroti í samvinnu við skóla, íþróttafélög og aðra aðila sem sinna æskulýðsstarfi. Loks skal leggja vinnu í að finna afkastamestu krotvargana og láta þá sæta ábyrgð, t.d. með greiðslu skaðabóta en reynslan sýnir að stærstan hluta krotsins má rekja til fárra ein- staklinga. Stundum er því haldið fram að borgaryfirvöld eigi ekki að beita sér gegn veggjakroti því það sé listræn tjáning einstaklinga en staðreyndin er sú að veggjakrot er sett á eignir í óþökk eigenda og er því um eigna- spjöll að ræða og ber að taka á þess- um málum þannig,“ segir Kjartan. Veggjakrot far- ið jafnt og þétt úr böndunum  Mikið skorið niður í framlögum borgarinnar til hreinsunarstarfs Morgunblaðið/Golli Krot Veggjakrot er víða vandamál. Guðmundur Vignir Óskarsson Kjartan Magnússon Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Illugi Gunnarsson menntamálaráð- herra íhugar það alvarlega að af- nema skerðingar á auglýsingum hjá Ríkisútvarpinu (RÚV) en lækka þess í stað framlag ríkissjóðs til stofnunarinnar um 215 milljónir króna. Að sögn Páls Magnússonar útvarpsstjóra myndi það þýða að enn vantaði 100 milljónir upp á að sú ákvörðun ráðherrans að skila RÚV ekki útvarpsgjaldinu að fullu yrði bætt. Það sé þó betra en ekkert. Illugi segir að með þeim lögum sem samþykkt voru um RÚV í vor hafi möguleikar þess til að afla sér auglýsingatekna verið skertir. „Í staðinn átti að koma 715 milljóna króna hækkun á framlagi frá ríkinu, sem síðan var fært niður í 215 millj- ónir í fjárlagafrumvarpi,“ segir hann í samtali við mbl.is. „Ég mun leggja það fyrir þingið að þeir fjár- munir verði dregnir til baka, en lög- um um RÚV breytt þannig að það hafi þá aftur tækifæri til að afla sér þessara tekna sjálft á markaði. Ég vil frekar nota þessa peninga í til dæmis menntakerfið,“ segir hann. Páll Magnússon segir það vera of snemmt fyrir sig að lýsa skoðun sinni á þessum áformum. Enn eigi hann eftir að sjá útfærslu á þeim. Í gildandi lögum frá því í vor var gert ráð fyrir að frá næstu áramót- um rynni útvarpsgjaldið óskert til stofnunarinnar en á móti tæki hún á sig skerðingu á kostunar- og auglýs- ingatekjum upp á 400 milljónir, að sögn Páls. „Staðan er þannig að gert er ráð fyrir að útvarpsgjaldið skili rúmlega 3,9 milljörðum en þar af fari 500 milljónir ekki til RÚV, heldur í aðrar þarfir ríkissjóðs,“ bendir hann jafnframt á. „Ef þessi skerðing sem fyrirhuguð er á kostunar- og auglýsingatekjum Rík- isútvarpsins verður öll tekin til baka, þá vantar enn 100 milljónir upp á að bætt sé sú ákvörðun að skila RÚV ekki út- varpsgjaldinu að fullu. Það er þó auðvitað betra en ekkert.“ Morgunblaðið/Ernir RÚV Um áramót eiga að óbreyttu að taka gildi ákvæði laga um RÚV sem hámarka til dæmis lengd auglýsingatíma. Enn myndi vanta 100 milljónir upp á  Vill rýmka auglýsingatíma og lækka framlag ríkissjóðs „Mér finnst það fráleit hug- mynd,“ segir Ari Edwald, for- stjóri 365 miðla, aðspurður hvernig honum lítist á áform menntamálaráðherra um að rýmka auglýsingaheimildir RÚV. „Mér þykir það með ólík- indum að Illugi Gunnarsson ætli að reisa sér þann minn- isvarða í stjórnmálum að slá skjaldborg um sukkið á Rík- isútvarpinu.“ Hann segir að tekin hafi ver- ið tiltölulega lítil skref í rétta átt þegar auglýsingaheimild- irnar voru skertar með laga- breytingu síðasta vor. Því séu það vonbrigði að menntamálaráðherra ætli að rýmka heimildarnar að nýju. „Af hverju ætti RÚV ekki að geta tekist á við tekjulækkanir eins og til dæmis Landspít- alinn?“ „Fráleit hugmynd“ FORSTJÓRI 365 ÓSÁTTUR Illugi Gunnarsson Páll Magnússon Ma Kai, varaforsætisráðherra Kína, fundaði með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra og Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Ís- lands, í heimsókn sinni á Íslandi um helgina. Sigmundur tók á móti Ma Kai í Þjóðmenningarhúsinu á laugardag- inn en morguninn eftir hitti Ma Kai Ólaf á Bessastöðum. Á fundinum með forsetanum var meðal annars rætt um vaxandi samvinnu Íslands og Kína um nýtingu jarðhita og rannsóknir á bráðnun íss og jökla á norðurslóðum og á Himalajasvæð- inu. Ma Kai fer af landi brott í dag. kij@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Ma Kai Varaforsætisráðherra Kína skrifar í gestabókina í Þjóðmenningarhúsinu. Ma Kai sótti Ísland heim um helgina „Því ber að fagna hve vel lögreglan sinnir þessum málum núna. Bæði er búið að dæma í vændiskaupamálum og auk þess er verið að fylgja eftir vísbendingum sem fyrir liggja um mögulegt vændi á þessum kampa- vínsstöðum,“ segir Guðrún Jónsdótt- ir, talskona Stígamóta, í kjölfar þess að fimm voru um helgina úrskurð- aðir í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn lögreglunnar um ætlaða sölu og milligöngu vændis af hálfu forsvarsmanns og starfsmanna kampavínsklúbbsins Strawberries í miðbæ Reykjavíkur. Fram kemur í tilkynningu frá lög- reglunni að ásamt handtökunum hafi einnig verið gerðar húsleitir á öðrum stöðum sem taldir eru tengjast eig- anda staðarins. Eins var staðurinn innsiglaður og honum lokað. „Í að- gerðum lögreglu voru fjórir starfs- menn handteknir og jafnframt eig- andi staðarins. Þá voru þrír einstaklingar handteknir grunaðir um kaup á vændi,“ segir m.a. í til- kynningu frá lögreglunni. vidar@mbl.is Fimm í gæsluvarð- hald í vændismáli  Fagnar aðgerðum lögreglunnar Morgunblaðið/Golli Strawberries Fimm í varðhald. Ari Edwald

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.