Morgunblaðið - 28.10.2013, Side 8

Morgunblaðið - 28.10.2013, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2013 Nóatúni 4 Sími 520 3000 www.sminor.is Bakstursofn HB 23AB221S (hvítur) Einnig fáanlegur í stáli. Keramíkhelluborð ET 651NE17E Pakkatilboð (ofn og helluborð): 189.900 kr. stgr. Fullt verð: 259.800 kr. Fyrir nokkrum vikum sagði JónGnarr Kristinsson borg- arstjóri að hann væri „algjörlega fullviss um það að [Reykjavík- urflugvöllur] þarf að fara.“ „Annað kemur ekki til greina,“ sagði hann.    Síðan virðistþað hafa gerst að hann og litli sam- starfsflokkurinn hafa áttað sig á að þessi afstaða gæti kostað töluvert af atkvæðum í borgarstjórnarkosn- ingunum á næsta ári. Í framhaldinu er skrifað undir samkomulag.    Samkomulagið gera borg-arfulltrúar meirihlutans í við- leitni til að láta skera sig niður úr snörunni fyrir kosningarnar. Í raun veitir samkomulagið flugvellinum þó aðeins gálgafrest og er gagnlegt eftir því.    Samkomulagið felur í sér að flug-brautum verður fækkað um eina en að norður-suðurbraut, sem er forsenda fyrir flugvallar- starfseminni, fái að vera til 2022 í stað 2016 eins og fjarstæðukennd aðalskipulagstillaga Besta flokks- ins og Samfylkingarinnar, sem aldrei gat komið til framkvæmda, gerði ráð fyrir.    Á meðan á að „fullkanna aðrakosti [en Vatnsmýrina] fyrir framtíðarstaðsetningu flugvallar á höfuðborgarsvæðinu.“    Hversu oft og lengi ætli slíkkönnun hafi farið fram og hverju öðru en áframhaldandi óvissu um framtíð flugvallarins er hægt að bæta við með þessari sex ára frestun?    Og óvissu sem er frestað umstundarsakir, er hún ekki eftir sem áður óvissa? Óvissunni frestað um skamma hríð STAKSTEINAR Veður víða um heim 27.10., kl. 18.00 Reykjavík 3 skýjað Bolungarvík 1 snjókoma Akureyri 3 alskýjað Nuuk -1 snjókoma Þórshöfn 8 skúrir Ósló 11 skúrir Kaupmannahöfn 12 skúrir Stokkhólmur 12 skýjað Helsinki 10 skúrir Lúxemborg 12 léttskýjað Brussel 13 léttskýjað Dublin 12 skúrir Glasgow 11 skúrir London 16 léttskýjað París 15 skýjað Amsterdam 13 léttskýjað Hamborg 13 léttskýjað Berlín 17 skýjað Vín 17 léttskýjað Moskva 11 skýjað Algarve 25 heiðskírt Madríd 21 heiðskírt Barcelona 26 heiðskírt Mallorca 25 léttskýjað Róm 21 léttskýjað Aþena 17 heiðskírt Winnipeg 2 skýjað Montreal 6 alskýjað New York 12 heiðskírt Chicago 9 skýjað Orlando 23 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 28. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:59 17:25 ÍSAFJÖRÐUR 9:16 17:18 SIGLUFJÖRÐUR 8:59 17:01 DJÚPIVOGUR 8:32 16:51 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Stefán Gunnar Gunnarsson telur það mikla mildi að ekki skuli hafa farið verr þegar sprenging varð út frá etanólarni á heimili hans á laug- ardag. Sjö fjölskyldumeðlimir voru umhverfis arininn þegar spreng- ingin varð og læsti eldur sig í klæði þeirra allra. „Ég var með símann í höndunum að hringja á Neyðarlín- una um leið og ég velti barnabarni mínu eftir götunni til að slökkva eldinn sem hafði læst sig í hann. Fyrstu viðbrögð voru að fara út og draga börnin með okkur. Við rúll- uðum þeim eftir götunni til að slökkva í þeim. Þá kom í ljós að við konan vorum einnig logandi og við slökktum í okkur,“ segir Stefán um fyrstu andartökin eftir að spreng- ingin varð. Að sögn Stefáns helltist niður etanól þegar hann var að fylla á ar- ininn. Hluta þurrkaði hann upp en útlit er fyrir að hluti vökvans hafi runnið í falskan botn undir arn- inum. „Þessi falski botn virkaði að sögn lögreglunnar eins og sprengi- hólf. Etanólið verður gaskennt þeg- ar það hitnar og svo komst eldur í þetta. Við það varð sprenging og et- anólið skvettist um allt,“ segir Stef- án um atvikið. Um var að ræða rúm- an lítra af logandi etanóli sem þeyttist yfir heimilisfólk. „Stofan varð eitt eldhaf og eldurinn læsti sig í allt tau sem þarna var. Fötin okkar loguðu en við náðum að slökkva í okkur áður en etanólið brann upp utan á fötunum,“ segir Stefán. Fjór- ir í fjölskyldunni fengu annars stigs bruna á höndum og fótum en þrír eins stigs brunasár. Stefán er slökkviliðsmaður en segir að það hafi ekki gagnast sér sérstaklega í þessum aðstæðum. Sjálfsbjarg- arviðleitninni hafi frekar verið um að þakka. Hringdi á Neyðarlínuna um leið og hann slökkti í logandi barninu  Mikil mildi að ekki fór verr í etanólsprengingu  Eldhaf í stofunni Morgunblaðið/Eggert Etanólarinn Stefáns var keyptur í gegnum smáauglýsingavefinn bland.is og hafði verið notaður einu sinni fyrir sprenginguna. Fyrir réttum fjórum árum benti Brunamálastofnun á eld- hættu af slíkum örnum ef ekki væri rétt með þá farið. Fyrir um tveimur árum varð slys á veit- ingastaðnum Austur þar sem starfsmaður brann illa á hendi og handlegg þegar eldur bloss- aði upp í etanóleldstæði. Brann illa við eldstæði VARASAMIR ARNAR Í því samkomulagi sem íslenska ríkið, Reykjavíkurborg og Icelandair Gro- up skrifuðu undir á föstudag er hvatt til þess að aðilar fylgi eftir auglýstu deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir stækkun alþjóðlegu flugstjórn- armiðstöðvarinnar í Vatnsmýri. Umsókn Isavia um stækkun á mið- stöðinni er sem stendur til umfjöll- unar í borgarráði Reykjavíkur en verkefnið felur í sér 2.600 fermetra stækkun á núverandi húsnæði, sem er rúmlega 3.100 fermetrar að stærð. Áætlaður kostnaður við verkefnið nemur tæpum milljarði króna og greiða notendur þjónustunnar, fyrst og fremst flugfélög á Norður- Atlantshafi, stærstan hluta hans. Friðþór Eydal, talsmaður Isavia, segir samkomulagið milli ríkis og borgar fagnaðarefni, enda sé framtíð miðstöðvarinnar nú tryggð. Hann bendir jafnframt á að starfsemi flug- stjórnarmiðstöðvarinnar sé „algjör- lega óháð“ staðsetningu Reykjavík- urflugvallar. kij@mbl.is Samkomulagið „fagnaðarefni“  Enn til umfjöllunar í borgarráði Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.