Morgunblaðið - 28.10.2013, Síða 14

Morgunblaðið - 28.10.2013, Síða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2013 Draghálsi 14 - 16 110 Reykjavík Sími 4 12 12 00 www.isleifur.is Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þróunin hefur verið svo hröð að þegar litið er yfir markaðinn í dag má sjá greinilegan mun á frammi- stöðu þeirra sem náðu að fanga krafta samfélagsmiðlanna, og hinna sem komu ekki auga á þau tækifæri sem samfélagsmiðarnir bjóða upp á. Þetta segir Oliver Luckett og gefur sem dæmi kosningabaráttu Besta flokksins í síðustu borgarstjórnar- kosningum. „Flokkurinn vann stór- sigur í kosningunum og byggði það nær alfarið á réttri notkun sam- félagsmiðla. Flokkurinn var langt frá því að vera eins vel fjármagn- aður og andstæðingarnir en náði að koma skilaboðunum áleiðis í gegn- um miðla eins og Facebook.“ Luckett er fyrirlesari á ráðstefn- unni You Are in Control (www.yo- uareincontrol.is) sem fram fer í Bíó Paradís dagana 28 til 30. október. Luckett er meðstofnandi fyrirtæk- isins theAudience sem sérhæfir sig m.a. í að hjálpa stórstjörnum banda- ríska skemmtanageirans að ná há- marksávinningi út úr samfélags- miðlum. Hagkvæmt og hnitmiðað Að sögn Luckett eru samfélags- miðlar sterkasta tækið sem fólk og fyrirtæki hafa til að ná til almenn- ings. Kostir samfélagsmiðlanna fel- ist ekki síst í því að ef rétt er að málum staðið má þar ná með mjög hnitmiðuðum og um leið hagkvæm- um hætti til rétta hópsins. „Það er eðli hefðbundnu miðlanna; sjón- varps, útvarps og dagblaða, að þar fer mikið af auglýsingafjármagninu til spillis. Ef ég t.d. auglýsi vöru ætlaða konum í sjónvarpi þá eru karlmenn helmingurinn af þeim áhorfendum sem ég er að borga fyr- ir að ná til. Í öðrum tilvikum er markhópurinn hreinlega ekki að nota gömlu miðlana: að auglýsa unglingamynd í dagblaði er ekki lík- legt til að skila árangri því að unga fólki er að nota allt aðra miðla.“ En umfram allt bjóða samfélags- miðlarnir upp á að ná allt öðrum og nánari tengslum við almenning. Þar reynir á að kunna nokkur einföld undirstöðuatriði til að virkja eigin- leika þessara miðla og ná að koma skilaboðunum sem víðast. Luckett ætlar í erindi sínu að deila sjö reglum sem varða leiðina að árang- ursríkum herferðum á samfélags- miðlum. Hann segir að það hjálpi að líta á samfélagsmiðlaheiminn eins og lífveru: Nærast á innihaldi „Verður t.d að muna að sam- félagsmiðlar nærast á „innihaldi“ (e. content). Það þarf stöðugt að skaffa nýtt efni og innihald til að halda hlutunum á lífi,“ segir hann. „Sam- félagsmiðlar eru lika tilfinningalegir miðlar. Auglýsingar í fjölmiðlum eru oft upplýsingamiðaðar og ef þær eru yfirfærðar beint yfir á sam- félagsmiðil þá virka þær ekki, því tilfinningalega þáttinn vantar. Sam- félagsmiðlar eru líka eins og lífræn kerfi að því leyti að þeir losa sig hratt við úrgang. Fyrirtæki eða frumkvöðull sem sendir aðeins frá sér óáhugavert efni og fær ekki „læk“ og „deilingar“ verður fljótt undir í stöðugum upplýsinga- straumnum og hættir að birtast í sjónsviði fólks. Slæm markaðssetn- ing kallar fram slæm viðbrögð á augabragði.“ Samfélagsmiðlarnir eru lykillinn  Rekur fyrirtæki í Kaliforníu sem aðstoðar stórstjörnurnar við að gjörnýta möguleika samfélagsmiðlanna  Heldur erindi um þau lögmál sem hafa þarf í huga til að ná árangri með þessu nýja markaðstæki Morgunblaðið/Golli Eiginleikar „Það er eðli hefðbundnu miðlanna; sjónvarps, útvarps og dagblaða, að þar fer mikið af auglýsinga- fjármagninu til spillis. Ef ég t.d. auglýsi vöru ætlaða konum í sjónvarpi þá eru karlmenn helmingurinn af þeim áhorfendum sem ég er að borga fyrir að ná til,“ segir Oliver Luckett sérfræðingur í samfélagsmiðlum. Með undirstöðuatriðin á hreinu segir Oliver Luckett að jafnt stór- ir sem smáir eigi að geta virkjað krafta samfélagsmiðlanna. Það sé yfirleitt ekki fyrr en komið er út í þungavigtardeildina að fer að verða aðkallandi að fá að borðinu sérhæfðan ráðgjafa sem þekkir eiginleika samfélagsmiðlanna út og inn. Hann segir samfélags- miðlaheiminn á stöðugri hreyf- ingu og lögmálin sem þar gilda geta breyst frá einum degi til annars og með mjög djúpa þekk- ingu á þessum heimi sé hægt að ná enn meiri árangri. „Gott er að taka dæmi af Face- book og hvernig sú síða gefur færslum mismikið vægi. Ef þú sem notandi ert kannski með 500 manna vinahóp sem inni- heldur ættingja, kunningja, fyr- irtæki og dægurstjörnur er straumurinn af færslum svo mik- ill að Facebook byrjar að stýra því hvað þú sérð. Síðan gefur hverri færslu ákveðna „vigt“ eftir flóknum reiknireglum þar sem t.d. hvert „læk“ eða „deiling“ eykur vigtina og gerir færsluna sýnilegri,“ segir hann. „Það er hægt að borga fyrir þennan sýnileika, með því að greiða Facebook fyrir að birta færsluna hjá öllum vinum, eða það er hægt að gera virkilega vel heppnuð skilaboð sem dreifa sér sjálf. Það getur jafnvel skipt máli á hvaða formi skilaboðin eru höfð, og hafa rannsóknir okkar t.d. leitt í ljós að myndband sem birt er með Facebook-spilaranum fær fimmtán sinnum meiri sýni- leika en myndbönd sem tengd eru inn á Facebook af YouTube.“ Öll brögðin í bókinni FÆRSLUR SEM DREIFA SÉR Næststærsti lánveitandi Kína, China Construction Bank (CCB) sá hagnað á síðasta fjórðungi aukast um 9,4% í takt við væntingar markaðsgrein- enda. CCB er fyrstur kínverskra banka til að birta rekstrartölur fjórðungsins en von er á tölum frá ICBC, næststærsta banka heims að markaðsvirði, og frá öðrum kín- verskum lykilbönkum 30. október. Aukinn hagnaður CCB er einkum rakinn til aukinna tekna af lánveit- ingum og þjónustugjöldum. Námu tekjurnar á þriðja ársfjórðungi 56,8 milljörðum yuan, jafnvirði 9,3 millj- arða dala eða ríflega 1.100 millj- arða króna. Fréttaveita Bloomberg bendir á að bankinn byrjaði í ágúst að beina lánum í auknum mæli til smárra lántakenda en slík lán bjóða upp á hærri álagningu en lán til stærri og stöndugri aðila. Það að hagnaður bankans skuli hafa verið í samræmi við spár kann að hvetja til aukinnar bjartsýni á tölurnar sem vænta má 30. október en Deutsche Bank hefur áætlað að hagnaður kínversku bankanna níu mælist 11% hærri á þriðja ársfjórð- ungi. ai@mbl.is Hagnaður hjá CCB í samræmi við spár AFP Risi CCB er mikilvægur lánveitandi í Kína. Mannlífsmynd frá Beijing.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.