Morgunblaðið - 28.10.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.10.2013, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Kópavogs-bær birtiá dög- unum yfirlit yfir rekstur bæjarins og fjárhags- áætlun næsta árs. Fjárhagsáætlunin ger- ir ráð fyrir að fasteigna- skattur á íbúðarhúsnæði lækki á næsta ári, en hann var einnig lækkaður í ár frá fyrra ári. Einnig er áform- að að lækka vatnsskattinn aftur og samtals sparar þetta íbúum bæjarins al- mennt nokkra tugi þúsunda á ári. Þetta eru mikilvæg skref í rétta átt og brýnt að sveit- arfélögin fari að feta sig frá þeim háu sköttum og gjöld- um sem þau hafa byggt upp og létti álögum af íbúunum. Um leið er brýnt að þau fari sömu leið og Kópavog- ur hyggst gera á næstu ár- um. Bærinn leggur nú áherslu á að greiða niður skuldir og koma skulda- hlutfallinu niður, en það er allt of hátt í Kópavogi líkt og hjá mörgum sveitar- félögum. Seltjarnarnes hefur löngum verið til fyrir- myndar að ýmsu leyti, en ekki síst þegar kemur að álögum á íbúa og svo er enn. Þar er útsvarið, eftir lækkun fyrir þetta ár, með því lægsta sem þekkist á höfuðborgarsvæðinu, eða 13,66%, og að auki eru fast- eignagjöld hóflegri en al- mennt þekkist. Aðeins Garðabær er með jafnlágt útsvar þegar litið er til höf- uðborgarsvæðisins, en Garðabær er annað dæmi um sveitarfélag sem lagt hefur áherslu á trausta fjármálastjórn og hóflegar álögur. Seltirningar geta því ver- ið sáttir við samanburðinn við önnur sveitarfélög, en þeir þurfa þó að fara áfram gætilega ætli þeir að halda þessari eftirsóknarverðu stöðu. Sveitarfélögin söfn- uðu ekki síst skuldum vegna þess að þau réðust í verkefni sem þau réðu í raun ekki við og fjármögn- uðu með lántöku. Morg- unblaðið hefur á síðustu dögum birt greinar eftir Seltirninga sem vara við því að ráðist verði í öll þau verkefni á Sel- tjarnarnesi sem hugmyndir eru uppi um, enda hefðu þær fram- kvæmdir í för með sér aukna skuldsetningu og fælu í sér hættu á hærri sköttum í framtíðinni. Sjálfsagt er að bæjarfulltrúar þar taki slíkar aðvaranir alvarlega og gæti þess að færast ekki svo mikið í fang að sækja þurfi aukið fé til skattgreið- enda. Með sama hætti ættu fulltrúar í sveitarstjórnum um allt land að huga að því hvernig þeir geta takmark- að umsvif sveitarfélaganna og forgangsraðað í þágu brýnustu verkefnanna, þar með talið í þágu lægri skatta. Ríkisstjórnin hefur á stefnuskrá sinni að afnema lágmarksútsvar á kjör- tímabilinu og á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu upp- lýsti innanríkisráðherra að frumvarp þessa efnis væri í undirbúningi. Við sama til- efni upplýsti hún að einnig væri til skoðunar að heimila sveitarfélögum að lækka eða fella niður fasteigna- skatta kjósi þau að fara þá leið. Sveitarfélögin hafa mörg hver komið sér í skulda- vanda á liðnum árum og líta nú flest svo á, í það minnsta ef marka má útsvarshlut- fallið, að lægri skattar séu glatað fé. Þetta viðhorf þarf að breytast og liður í því gæti verið að afnema lágmarks- álagningu sveitarfélaga svo að þau keppi frekar um skattgreiðendur en nú er. Annað sem þarf að breytast til að slakað verði á skatt- heimtu hjá sveitarfélög- unum er að sveitarstjórn- armenn sýni skatt- greiðendum aukna tillits- semi og að kjósendur verði meðvitaðri um að gælu- verkefnin sem rætt er um fyrir kosningar koma við pyngjuna þeirra eftir kosn- ingar. Þess vegna þurfa þeir að sýna sveitarstjórn- armönnum aðhald þegar kemur að skattheimtu, ekki síður en í öðrum málaflokk- um. Sveitarstjórnir þurfa að taka aukið tillit til skattgreiðenda} Skattar og skuldir sveitarfélaganna C eline Dion greindi frá því í viðtali við Opruh Winfrey fyrir nokkrum árum að henni, René og börn- unum þeirra þremur hefði leiðst svo að þurfa að taka sér ferð á hendur til að fara í vatnsleikjagarða að þau hefðu ákveðið að byggja sinn eigin í heimreið- inni. Úr urðu tvær sundlaugar, brýr, renni- brautir, tréhús úti í miðri laug og sérlega falleg „á“ sem rétt silast áfram á grasflötinni. Þegar hún sýndi höllina í þætti Winfrey fékk hún yfir sig svívirðingar, þvílíkt gort, ekki að spyrja að derringnum. Winfrey lyfti varla brún enda á hún alltaf jafnflott dót og stjörnurnar og yfirleitt flottara. Þannig var Dion þarna í þætt- inum að hitta fyrir ömmu sína og ofjarl í herra- setrum og einkagörðum. Heimili Winfrey eru nærri tíu og af handa- hófi má nefna að í einum garðinum er kon- unglegt tehús með bleiku rósabeði allt um kring en þær rósir voru sérstaklega búnar til og ræktaðar upp fyrir Op- hruh og tók það garðyrkjumann hennar um fimm ár að ljúka því starfi. Það er ómögulegt að tefla þessu saman án þess að Dion sitji uppi með að eiga Hótel Örk. En hingað er kominn maður sem hvorki Dion né Win- frey eiga roð í og er umfjöllunarefni helgarblaðanna úti en það er Nicolas Cage. Leikarinn á nefnilega hauskúpu. Af risaeðlu. 67 milljóna ára gamla. Allar moldríkar aðalendur heimsins hljóta að mygla þegar Cage dregur hauskúpuna fram í samkvæmum. Trúlega er þetta eitt besta partíat- riðið í Hollywood. Það kurrar þó í einhverjum núna. Í ljós hefur komið að hauskúpan er þýfi. Á sínum tíma, árið 2007, var hauskúpan góð viðbót í steingervingasafn Cage. Og af þeim sem öfunduðu hann af forndýrinu var Leon- ardo DiCaprio trúlega sá reiðasti. Á uppboð- inu í Kaliforníu var hann á hinni línunni í þeirri von að yfirbjóða félaga sinn en á end- anum fékk Cage hana á 31 milljón íslenskra króna. Hún er þó ekkert svo ógurlega dýr – flest hús og flugvélar í Hollywood kosta margfalt á við það, 74 fermetra íbúð í Vesturbænum kostar 32 milljónir. Þó má geta þess að tveim- ur árum eftir þessi kaup stefndi Cage fjár- málastjóra sínum fyrir auma ráðgjöf, svona al- mennt. Slæm fjármálaráðgjöf eða ekki, hann á samt hauskúpu af forndýri. Fjölmiðlar ytra velta því fyrir sér hvernig Cage líði. Hvort honum bregði við þær fréttir að hauskúp- unni hafi verið rænt úr Gobi-eyðimörkinni í Kína og smyglað til Bandaríkjanna. Kannski þekkti hann þessa kínversku forsögu. Kannski ekki. Gullin okkar eiga mörg hver svipaða sögu – fortíð þeirra er gruggug, kínversk, mongólsk, kambódísk. Við vitum kannski að 250 sauma- konur féllu í yfirlið af vannæringu við saumavélarnar í Kambódíu þegar þær saumuðu jólakjólinn á okkur, kannski ekki. Þeim 5.000 króna kjól fylgja samt miklu fleiri móralskar spurningar en kúpu falinni í bananagámi, rennibrautum og rósabeðum. julia@mbl.is Júlía Margrét Alexanders- dóttir Pistill Rennibraut, tehús, kúpa og kjóll STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Borgarráð veitti fyrr í mán-uðinum staðfestingu sínasem eigandi á samþykktstjórnar Orkuveitu Reykjavíkur (OR) vegna fyrirhug- aðrar tengingar Hellisheiðarvirkj- unar við borholur í Hverahlíð. Fulltrúar meirihlutans og Sjálf- stæðisflokks greiddu atkvæði með staðfestingunni, en Sóley Tóm- asdóttir, fulltrúi VG í borgarráði, greiddi atkvæði á móti. Sóley lagði fram bókun af því til- efni, þar sem hún benti á að „[t]eng- ing borholanna í Hverahlíð við Hellis- heiðarvirkjun er skammtímalausn sem tekur ekki á hinum raunverulega vanda sem alltof miklar væntingar til afkastagetu á svæðinu hafa skapað,“ eins og segir í bókuninni „Ef við höldum áfram óbreyttri nýtingu á núverandi vinnslusvæði og ef ekkert verður að gert þá yrðu bara nokkur ár þangað til við verðum búin með það svæði sem við erum núna að nýta í Hellisheiðarvirkjun,“ sagði Sól- ey. Undrast Besta flokkinn „Niðurdrátturinn er um 4% á ári samkvæmt gögnum frá OR. Það seg- ir sig sjálft að það tæki ekki mjög mörg ár að klára nýtingarsvæðið. Ef við ætlum að halda áfram að nýta svæðið með sama ágenga hættinum og við höfum verið að gera, þá mun- um við á endanum klára orkuna á Hellisheiði, því nýting háhitavarmans er í eðli sínu ágeng. Ef fólk ætlar í skynsamlega nýtingu verður að draga úr framleiðslu í Hellisheið- arvirkjun.“ Sóley undrast hvernig fulltrúar meirihlutans kusu í þessu máli. „Ég er furðu lostin yfir að Besti flokkurinn skuli ekki standa með náttúruverndarsjónarmiðum sínum í þessu máli. Allt sem þau hafa talað fyrir bendir til að þau vilji það. Mér finnst þau ekki átta sig á því að þau eru í kjöraðstæðum til að breyta, til þess að vinda ofan af stóriðjustefn- unni. Til þess þarf samt rosalegan kjark.“ „Þetta er auðvitað mjög flókið, að hluta til af því að við vitum ekki allt um jarðfræðina á þessu svæði. Þess vegna höfum við legið yfir þessu í sumar,“ sagði Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs. „Að bestu manna yfirsýn og okkar fólks í stjórn OR sem hefur mikla sérþekkingu á þessu sviði, þá er þetta besti kost- urinn í stöðunni, og við samþykktum það að þeirra tillögu.“ Fullnægjandi til framleiðslu Eiríkur Hjálmarsson, upplýs- ingafulltrúi OR, sagði óþarfa að hafa áhyggjur af því að vinnsla á svæðinu myndi ganga of nærri því. Eiríkur segir OR gera ráð fyrir að tenging þeirra hola sem nú eru í Hverahlíð sé fullnægjandi til að við- halda framleiðslugetu Hellisheið- arvirkjunar. „Hugsanlega er hægt að byggja þar meira upp í framtíðinni, en menn verða að taka þetta í smærri skrefum en gert hefur verið síðasta áratuginn,“ sagði hann. „Þeir jarðvísindamenn sem hafa farið yfir þessar áætlanir meta það þannig að þetta sé það klókasta í stöðunni til að viðhalda vinnslugetu virkjunarinnar. Aðgerðin er einmitt til að koma í veg fyrir að of mikið sé tekið upp úr þessu svæði sem gert var ráð fyrir í kringum virkjunina,“ sagði Eiríkur. Hann segir Hellisheiðarvirkjun þurfa stærra upptektarsvæði en áður var gert ráð fyrir til að finna jafnvægi milli afkastagetu virkjunarinnar og jarðhitasvæðisins. „Svæðið er of lít- ið eins og er. Við gerum ekki ráð fyrir því að jafnvægið sé lægra þegar við lítum á þetta svæði í heild.“ Hverahlíðin tengd Hellisheiðarvirkjun Morgunblaðið/Styrmir Kári Gufustrókar Jarðhitasvæðið kringum Hellisheiðarvirkjun hefur ekki skil- að jafnmikilli orku og vonir stóðu til. Gufa verður leidd í hana úr Hverahlíð. Í umsögn fjármálastjóra Reykja- víkurborgar segir að sú tenging sem OR hyggst koma á milli hol- anna í Hverahlíð og Hellisheið- arvirkjunar muni kosta rúma 2,3 milljarða króna. Í erindi OR kemur fram að fyrirtækið hafi metið fjóra kosti, að bregðast ekki við, fjölga borholum við Hellisheiðarvirkjun, nýta Grá- hnúkasvæðið til orkuöflunar eða fara þá leið sem nú er til skoðunar, að tengja tilbúnar holur í Hverahlíð við Hellisheið- arvirkjun. Í umsögninni kemur enn fremur fram að framkvæmdin, sem kosta muni 1,5 milljörðum meira en holurnar sjálfar, rúm- ist samt sem áður innan „Plans- ins“ sem OR og eigendur henn- ar starfa eftir. Tenging fyrir milljarða HELLISHEIÐARVIRKJUN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.